Morgunblaðið - 21.01.2009, Blaðsíða 24
24 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 2009
✝ Birgir Axelssonfæddist í Reykja-
vík 20. júlí 1940. Hann
lést á Landspítalanum
við Hringbraut 12. jan-
úar síðastliðinn. For-
eldrar hans voru Axel
Gunnarsson kaup-
maður í Reykjavík, f.
21. febrúar 1901, lát-
inn 6. október 1963 og
Áslaug Guðlaugsdóttir
frá Snældubeins-
stöðum í Reykholtsdal,
f. 2. ágúst 1916. Systk-
ini Birgis eru Gunnar,
f. 6. ágúst 1952, d. 6. október 1970.
Kristín, f. 31. júlí 1942, gift Árna Ís-
leifssyni, börn þeirra eru Áslaug og
Ísleifur. Fyrir átti Kristín soninn Axel
Hilmarsson. Edda, f. 4. apríl 1945, gift
Ómari Friðrikssyni, börn þeirra eru
Ómar og Helena, en Rósa og Magnús
eru börn hennar frá fyrra hjóna-
bandi.
Birgir kvæntist 4. júní 1960 Stein-
unni Bjartmarsdóttur úr Reykjavík, f.
útivist og fjallaferðum en hann var
alla tíð mikill útivistarmaður. Undi
hann sér hvergi betur enn á fjöllum.
Síðustu árin voru afabörnin farin að
fara með honum í ferðirnar honum
til mikillar ánægju. Aldrei var
rjúpulaust um jólin á heimilinu. Þá
stundaði hann störf fyrir Frímúr-
araregluna í Reykjavík. Steinunn og
Birgir hófu búskap sinn í Mávahlíð-
inni í miðju Valshverfinu enda alla
tíð miklir Valsmenn. Síðan fluttu
þau í nýbyggt Árbæjarhverfið 1967
og undu hag sínum þar vel, enda í þá
daga hálfgerð sveit og stutt fyrir
Birgi að komast út í náttúruna. Fyr-
ir nær 30 árum fundu þau hjónin sér
sælureit í Úthlíð í Biskupstungum.
Þar undi Birgir sér vel með hamar í
hönd og afabörnin sín með sér. Birg-
ir byrjaði ungur maður að starfa við
Áfengisverslun Ríkisins, fyrst í
mörg ár í Ríkinu við Snorrabraut,
þá nokkur ár í útsölunni í Keflavík
og síðan í Heiðrúnu. Síðustu árin
starfaði hann í útsölunni við
Stekkjarbakka en hann lét af störf-
um síðastliðið vor vegna aldurs.
Útför Birgis fer fram frá Grafar-
vogskirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 11.
21. ágúst 1941. For-
eldrar hennar voru
Bjartmar Einarsson, f.
26. maí 1900, d. 9. jan-
úar 1963, og Laufey
Ásbjörnsdóttir, f. 29.
mars 1914, d. 9. des-
ember 1998. Börn
Steinunnar og Birgis
eru Einar Gunnar, f.
1960. Bjartmar, f.
1964, kvæntur Ástu
Björk Sveinsdóttur,
synir þeirra Sveinn
Andri, f. 1995, og Birg-
ir Þór, f. 1998. Axel
Valur, f. 1969, kvæntur Berglind
Kristinsdóttur, börn þeirra eru Álf-
heiður Edda, f. 1998, Anna Vala, f.
2001 og Bergþór, f. 2005.
Birgir lauk hefðbundinni skóla-
göngu í Reykjavík og dvaldi hann
mörg sumur á Smyrlabjörgum í Suð-
ursveit og hélt alla tíð mikla tryggð
og vináttu við heimilisfólkið á bæn-
um. Þessar sumardvalir höfðu mikil
áhrif á hann og vöktu áhuga hans á
Mig langar að minnast pabba
míns með nokkrum orðum. Pabbi
var afar sérstök blanda af borgar-
barni og sveitamanni. Í föðurættina
var pabbi kominn af gömlum
Reykjavíkurættum frá miðri 17. öld
eða í 9 ættliði. Hann var kominn af
bændum frá Arnarhóli, frá sjómönn-
um og hafnsögumönnum af Vestur-
götunni og frá útvegsbændum úr
Engey. Og í móðurættina var hann
kominn af borgfirskum bændum úr
Reykholtsdalnum, úr Hvítársíðu og
Kalmanstungu allt aftur á 17. öld.
Þessi uppruni endurspeglaðist í
pabba sem var mikið náttúrubarn.
Hann var jafnframt mikill Reykvík-
ingur, alinn upp á Laugaveginum og
var gallharður Valsari. Pabbi hvarf
svo hvert vor í mörg ár í sveit að
Smyrlabjörgum í Suðursveit. Á
sokkabandsárum múttu og pabba,
upp úr 1960, þótti fásinna að flytja
úr miðbænum og í Mávahlíðina, hvað
þá austur yfir Elliðaár austast í
Árbæinn í lok 7. áratugarins. Það
kom heldur ekki á óvart þegar þau
festu kaup á smáskika af Birni í Út-
hlíð í Biskupstungum árið 1978 þar
sem þau byggðu sér sumarhús og
ræktuðu landið. Þau voru lengi í Úti-
vist og fóru í ótal ferðir innanlands
sem utan, og þá sérstaklega í Aust-
urísku Alpana þar sem þau bundust
heimafólki ævarandi vinaböndum.
Pabbi var mikill göngugarpur sem
undi sér best á fjöllum, hvort sem
það var á Esjunni eða á Hvannadals-
hnúk. Í pabba endurspeglaðist sér-
stök persóna, hann var stoltur mað-
ur, hress og kátur allajafnan og
ósérhlífinn við hvert verk, enda boð-
inn og búinn að hjálpa manni við
hvers kyns tilefni. Hann sinnti fjöl-
skyldunni af alúð og umhyggju og þá
sérstaklega barnabörnunum sínum.
Hann fór með þeim í eggjaferðir út í
Þerney og á Suðurnesin, í ýmsar
gönguferðir og naut þess að hafa
þau á vappi í kringum sig í sum-
arbústaðnum í Úthlíð, hvort sem það
var að fella geitungabú, flagga eða
skoða hvort minkur hefði læðst í
gildruna. Þau munu sakna afa síns
sárt en eru þó heppin að eiga fal-
legar minningar um hann sem þau
munu læra að meta síðar meir þótt
sorgin og söknuður þeirra sé mikill á
þessari stundu.
Elsku pabbi minn, að hafa þig
ekki lengur við hlið eru mér ólýs-
anleg vonbrigði. Það verður erfitt að
sætta sig við að vera ekki lengur
samferða þér í lífinu og að fara ekki
með þér aftur í veiðiferðir eða að
njóta þess að ferðast saman. Að tími
aðskilnaðar okkar væri nú kominn
var mér víðs fjarri. Undanfarna
daga eftir andlát þitt hef ég alið með
mér þá hugsun að þú sért núna á
björtum og fallegum stað, þar sem
sól skín í heiði, fjallasýn er fögur og
þar sem íslenski fáninn blaktir við
hún. Það er fjall framundan sem þú
ætlar þér upp á og í bakpokanum er
suðusúkkulaði og jafnvel ákavítis-
lögg.
Kolagrillið er að hitna og vel valin
rauðvínsflaska bíður örlaga sinna,
hrossahlátur þinn hljómar í kvöld-
stillunum í takt við harmonikkutón-
list. Þetta er umhverfið sem ég vil
muna eftir þér í. Þótt fráfall þitt sé
mér afskaplega sárt veit ég fyrir víst
að með tímanum mun ég vinsa sökn-
uðinn og tómleikann frá öllum ljúfu
minningum sem ég á um þig, minn-
ingum um besta pabba í heimi. Þinn
sonur,
Axel Valur.
Elsku Biggi minn, ekki átti ég von
á því að kveðja þig svona fljótt. Þú
sem varst alltaf að hlaupa, synda og
ganga á fjöll. Þessi áhugamál þín
stundaðir þú af mikilli elju og gátum
við tvö mikið hlegið af sundferðun-
um þínum á morgnana. Þú þurftir
alltaf að fara í sturtu heima, áður en
þú fórst í sund og ég var að segja
þér bara að drífa þig í fötin og fara í
sund, þú varst nú ekki sammála
þessu hjá mér, því það er gott að
fara í sturtu þegar maður vaknar á
morgnana og ekki gott að breyta út
af góðum sið. Þannig varst þú í öllu,
fannst nú óþarfi að breyta hlutunum
ef þeir reyndust góðir fyrir og virk-
uðu vel.
Þegar þú byrjaðir í geislunum í
nóvember og komst ekki í sund því
það var búið að teikna þig allan upp
þá gastu ekki beðið eftir að þeir
kláruðust til að komast aftur í laug-
ina þína, en því miður náðir þú því
ekki. Bestur varst þú nú samt í bú-
staðnum þínum, Laufási í Úthlíð-
inni. Þar gast þú verið að ditta að
eða byggja eitthvað nýtt frá morgni
til kvölds og eru fáir sem notuðu bú-
staðinn eins mikið og þið Stenna. Þú
varst búin að smíða gesthús,
krakka-kot og stækka pallinn og svo
átti að ráðast í að stækka bústaðinn
sjálfan. Einnig var mikilvægt fannst
þér að veiða minkinn í nágrenni
Laufáss svo fuglarnir kæmust á
kreik og eru ófá skottin sem hafa
komið í gildrurnar þínar.
Núna í ágúst fórst þú með ung-
linginn okkar hann Svein Andra í þá
skemmtilegustu ferð sem þið báðir
hafið farið í, en það var í Lónsöræf-
in. Þið tveir löbbuðuð með Rósu og
hennar fólki í 5 daga og nutuð fal-
legrar náttúru og áttuð frábæra
stund saman. Sveinn Andri talar oft
um þessa ferð og planið hjá ykkur
var að fara næsta sumar í aðra góða,
en því miður kom kallið og þú hélst
yfir móðuna miklu.
Elsku Biggi minn, við eigum eftir
að hugsa mikið til þín og góðu
stundanna með þér.
Við hugsum um hana Stennu þína.
Hvíl í friði.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka
hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að kynn-
ast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir.)
Þín tengdadóttir,
Ásta Björk.
Ég kynntist Bigga fyrst fyrir
tæpum 15 árum þegar við Axel vor-
um að byrja að vera saman. Þegar
ég hitti foreldra hans fyrst, hugsaði
ég, vá hvað þau eru flott. Enda kom
fljótlega í ljós að þau voru einstak-
lega virk og lífsglöð. Þau voru ein-
staklega samrýnd og flott par í
gegnum 50 ár. Það verður undarlegt
og virkilega sárt að hafa hann ekki
lengur hjá okkur.
Elsku Stenna mín, ég get ekki
ímyndað mér þann söknuð sem nú
býr í brjósti þér.
Ég upplifði tengdapabba sem
óvenju hlýlegan og góðan mann með
góða nærveru. Hann var einstakur
maður að mörgu leyti. Ég hef ekki
kynnst öðru eins náttúrubarni og
honum. Hann var einstakur fugla-
áhugamaður og lagði sitt af mörkum
til að hjálpa þeim með að koma ung-
unum á legg, þar sem hann var með
minkagildru í nánd við sumarbú-
staðinn sinn. Hann átti glæsilegt
safn fugla, eggja og steina sem
barnabörnin höfðu mikið yndi af.
Hann fór í egg, dúntöku og tíndi
ber. Hann var líka mikill veiðimaður
og hafði unun af að veiða sér til mat-
ar bæði rjúpu og fisk. Hann var
ósérhlífinn og iðjusamur, alltaf að
sýsla eitthvað, sérstaklega í sum-
arbústaðnum. Hann elskaði sólina
og sumarið og hann þurfti rétt að
stinga hausnum út og þá var hann
orðinn fallega brúnn. Þrátt fyrir
iðjusemina kunni hann líka að njóta
lífsins og slappa af í sólinni, grilla
góða steik á kolagrillinu og valdi
gott rauðvín af kostgæfni með.
Birgir vann í tæp 50 ár hjá ÁTVR
og veikindadaga hans var hægt að
telja á fingrum annarrar handar.
Hann var fyrirmynd margra um
hreysti. Hann tók þátt í óteljandi
hlaupum og fjallgöngur voru hans
yndi. T.d. hljóp hann Laugavegs-
hlaupið nokkrum sinnum og síðast
þegar hann varð 60 ára hinn 20. júli
2000. Í Þórsmörk hélt hann svo upp
á afmælið sitt með pomp og prakt
eins og honum leið best, í faðmi fjöl-
skyldu, vina og fjalla. Hann elskaði
að ferðast og ég dáist að því hversu
fylginn sér hann var. Hann setti sér
markmið að fara á ákveðinn stað,
hvort sem það var land eða fjall og
hann lét drauminn rætast. Vorið
2008 hætti Birgir að vinna og hlökk-
uðum við hjónin og barnabörnin til
að geta átt meiri tíma með honum.
En sá tími var allt of fljótur að
brenna upp og eftir sitjum við sár og
svekkt yfir að hafa ekki fengið meiri
tíma saman.
Birgir var alveg einstakur afi,
alltaf svo hlýr, góður og natinn við
að sinna barnabörnunum. Álfheiður
mín spyr með tárin í augunum hver
eigi nú að fara með þau í minka-
gildruna, Anna Vala segir „aldrei
aftur ólsen-ólsen með afa“. Ég fæ
sting í hjartað og vöknar um augun
þegar ég hugsa til þess að Bergþór,
sem er rétt 3 ára, muni ekki njóta
þess að hlaupa á eftir afa sínum í bú-
staðnum, og muni líklega aldrei
muna eftir afa Bigga.
Elsku besti Biggi, ég hefði ekki
Birgir Axelsson
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
HULDA SIGURJÓNSDÓTTIR
frá Eyrarkoti,
Hlaðhömrum 2,
Mosfellsbæ,
lést á Landspítalanum í Fossvogi föstudaginn
16. janúar.
Útförin fer fram frá Langholtskirkju fimmtudaginn 22. janúar kl. 15.00.
Gestur Ó. Karlsson, Áshildur Emilsdóttir,
Sigurjón Karlsson, Valgerður Jónsdóttir,
Gróa Karlsdóttir, Lárus E. Eiríksson,
Andrés Karlsson, Mínerva Jónsdóttir,
Sólveig Karlsdóttir Lynge, Henrik Lynge,
Ævar Karlsson, Inga Dís Hafsteinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Hjartans eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
AGNAR JÖRGENSSON,
Dalbraut 20,
Reykjavík,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli fimmtudaginn
15. janúar, verður jarðsunginn frá Áskirkju
föstudaginn 23. janúar kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim
sem vilja minnast hans er bent á að styrkja starfsemi Fríðuhúss, dag-
vistar Alzheimerssjúkra, bankareikningur 327-26-4301 kt. 430101-3580.
Jensey Stefánsdóttir,
Edda Agnarsdóttir, Birgir Guðmundsson,
Kolbeinn Agnarsson, Ljósbrá Guðmundsdóttir,
Kjartan Agnarsson,
Hlín Agnarsdóttir,
Gyða Agnarsdóttir, Guðjón Aðalsteinsson,
Ari Agnarsson, Védís Guðjónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma,
INGRID BJÖRNSSON,
Bólstaðarhlíð 41,
Reykjavík,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Víðinesi mánu-
daginn 12. janúar.
Útförin fer fram frá Fossvogskapellu föstudaginn
23. janúar kl. 15.00.
Bjarni Jónsson, Marianne Olsen,
Inga Birna Bjarnadóttir,
Anna María Bjarnadóttir,
Linda Björk Bjarnadóttir,
Bjarni Hallgrímur Bjarnason.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
ANTON JÓNSSON
skipa- og húsasmiður,
Vatnsnesvegi 29,
áður Sóltúni 14,
Keflavík,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Garðvangi, Garði,
sunnudaginn 18. janúar.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Marta Kristjánsdóttir,
Guðrún Kristín Antonsdóttir,
Karl Antonsson, Hrafnhildur Jónsdóttir,
Eygló Antonsdóttir, Ólafur Arthúrsson,
Helen Antonsdóttir, Þórhallur Guðmundsson,
Guðrún Antonsdóttir, Sæbjörn Þórarinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
RICHARD BJÖRGVIN ÞORGEIRSSON,
lést á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja
mánudaginn 19. janúar.
Útförin fer fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum
laugardaginn 24. janúar kl. 10.30.
Þórdís Vilborg Sigfúsdóttir,
Hlynur Geir Richardsson, Þórunn Jónsdóttir,
Þorgeir Richardsson, Þórdís Sigurjónsdóttir
og barnabörn.