Morgunblaðið - 21.01.2009, Blaðsíða 34
34 MenningFRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 2009
Ég vil nánast ganga
svo langt að segja að
mér hafi verið tekið fagn-
andi. 36
»
HILDIGUNNUR Ólafsdóttir,
doktor í afbrotafræði, fjallar
um vel þekktar ímyndir af
áfengisneysluvenjum Íslend-
inga og tilhneiginguna til að
skapa þeim sérstöðu á fyrir-
lestri í Reykjavíkurakademí-
unni í kvöld kl. 20. Erindi sitt
kallar hún „Hversdagsvald:
Matur, drykkur og ímyndir“.
Þá talar Kristinn Schram þjóð-
fræðingur um það hvernig ís-
lenskar matarhefðir eru iðkaðar og leiknar bæði á
mannamótum og í fjölmiðlum. Varpað verður ljósi
á það baksvið ímynda af framandi og sérviturri
þjóð á norðurhjara sem viðhaldið er í hnattrænum
fjölmiðlum og sögulegum skírskotunum
Hugvísindi
Ímyndir Íslands
í mat og drykk
Hildigunnur
Ólafsdóttir
Í KVÖLD verður Ljóðstafur
Jóns úr Vör veittur við athöfn í
Salnum í Kópavogi kl. 20. Ljóð-
stafurinn er árleg ljóða-
samkeppni á vegum lista- og
menningarráðs Kópavogs. Í
fréttatilkynningu frá Salnum
segir að Ljóðstafur Jóns úr
Vör sé umfangsmesta sam-
keppni sinnar tegundar á land-
inu. Markmiðið með henni sé
að vekja athygli á íslenskri ljóðagerð. Þátttak-
endur skiluðu verkum inn undir dulnefni í nóv-
ember, en sigurvegarinn fær vegleg peninga-
verðlaun og verðlaunagripinn, Ljóðstaf Jóns úr
Vör. 300 ljóð bárust í keppnina nú. Aðgangur er
ókeypis og allir velkomnir.
Ljóðlist
Ljóðstafur Jóns úr
Vör veittur í kvöld
Jón úr Vör
Á MORGUN heldur dr. Hilm-
ar J. Malmquist, líffræðingur
og forstöðumaður Náttúru-
fræðistofu Kópavogs, fyr-
irlestur undir yfirskriftinni
„Reykjavík Pond – a Dirty
Jewel in the Capital Central.
Environmental assessment
and ecological status in the
past and present“. Fyrirlest-
urinn er haldinn í tengslum við
námskeiðið „Environmental
Health Clinic / Reykjavík“ í Listaháskóla Íslands,
hönnunar- og arkitektúrdeild í stofu 113, Skip-
holti 1-5, 101 Reykjavík kl. 15. Fyrirlesturinn
verður á ensku. Allir eru hjartanlega velkomnir á
meðan húsrúm leyfir.
Náttúruvísindi
Tjörnin í fortíð,
nútíð og framtíð
Dr. Hilmar J.
Malmquist
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
„ÉG held að það verði mikið leikhús í þessu,“ segir Áskell
Másson um frumflutning á konsertinum Crossings á tón-
leikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Háskólabíói annað
kvöld kl. 19.30. Í aðalhlutverkum í „leikhúsi“ Áskels verða
tveir af fremstu slagverkssnillingum samtímans, Skotinn
Colin Currie og Portúgalinn Pedro Carneiro. Þótt kons-
ertinn hafi verið frumfluttur í Danmörku fyrir fimm árum
lítur Áskell svo á, að nú sé um frumflutning að ræða. Að-
stæðurnar í Danmörku voru þannig að nota þurfti hljóð-
nema til að heyrðist í slagverksleikurunum sem þá voru í
einleikshlutverkunum, Evelyn Glennie og Gert Morten-
sen. En vegna þeirra blandaðist hljómurinn ekki rétt og
flutningurinn ekki eins og til var ætlast.
„Þessir drengir eru meðal mestu meistara á þessu sviði
í dag,“ segir Áskell um einleikarana. „Ég held að ég geti
líka óhikað kallað þá brautryðjendur, því þeir eru einleik-
arar, eins og Evelyn Glennie. Henni var mikið hrósað á
sínum tíma fyrir að vera fyrsti einleikarinn á slagverkið,
en þessir strákar eru það líka. Þeir eru báðir mjög fjöl-
hæfir og klárir tónlistarmenn, alveg frábærir.“
Áskell er löngu þekktur langt út fyrir landsteinana fyr-
ir tónlist sína fyrir slagverkið, en hann semur auðvitað
aðra tónlist af öllum gerðum jöfnum höndum. En hvernig
er konsertinn Crossings?
„Ég get sagt það að fyrir utan laglínur og melódíur sem
ég geri sjálfur, þá nota ég líka ýmis þekkt lög frá Íslandi,
Danmörku og Skotlandi. Verkið endar á heljarmikilli ka-
densu þar sem spilað er á skoska hálandatrommu í skosk-
um stíl. Það má þekkja þarna Liljulagið og barnalög eins
og Lille Peder edderkop og ég þýði líka barnaleik – klapp-
leik, eins og krakkar klappa oft saman á róló og læt ein-
leikarana slá saman kjuðum og niður á risastóra bassa-
trommu,“ og jánkar því aðspurður að það sé því leikur og
gleði í verkinu. „Einleikararnir eru áberandi allt verkið í
gegn og eru spilandi nánast allan tímann.“
Önnur verk á efnisskrá tónleikanna verða ballettarnir
Petrúska eftir Stravinskíj og Les biches eftir Poulenc en
stjórnandi er Rumon Gamba.
Leikhús slagverksins
Slagverkskonsertinn Crossings eftir Áskel Másson frumfluttur annað kvöld
Fær til liðs við sig tvo af fremstu slagverkssnillingum samtímans
Morgunblaðið/Ómar
Félagar Colin Currie, Áskell Másson og Pedro Carneiro flytja konsertinn Crossings í kvöld.
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
MYRKIR músíkdagar verða haldnir dagana
6.-13. febrúar. Það er Tónskáldafélag Íslands
sem stendur að hátíðinni sem skartar fimmtán
tónleikum auk fyrirlestra og annarra viðburða.
Kjartan Ólafsson er formaður Tónskálda-
félagsins: „Stefnan í ár er sú sem við höfum
verið að byggja upp á undanförnum árum. Við
höfum að leiðarljósi að endurspegla tónlistar-
lífið eins og það er í dag, þó með skírskotun til
eldri tónlistar svo hægt sé að heyra sögulegt
samhengi þróunar tónlistarinnar á Íslandi. Við
fáum líka til okkar erlenda gesti sem tengjast
því sem við erum að gera hér.“
Kjartan segir þessa stefnu hafa reynst mjög
vel og að á síðustu árum hafi gestum á hátíð-
inni fjölgað jafnt og þétt. „Við erum ein af fáum
samtímatónlistarhátíðum í heiminum sem
státa af vaxandi aðsókn, meðan margar þeirra
íhaldssamari eiga við það vandamál að stríða
að aðsókn dvínar stöðugt. Hátíðirnar í Hudd-
ersfield og í Brussel eru undantekningar. Þar
eru ungir listrænir stjórnendur sem hafa verið
að fara sömu leið og við með sama árangri.
Þetta bendir til þess að tónlistarlífið í Evrópu
sé að breytast og verða fjölbreyttara og opn-
ara. Þetta eru mjög áhugaverðir tímar.“
Tónskáldið stjórnar Sinfóníunni
Frumflutningur nýrra verka hefur ávallt
verið aðalsmerki Myrkra músíkdaga og engin
undantekning verður þar á í ár. Kjartan nefnir
tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands á hátíð-
inni sem stærsta viðburðinn. Í ár verða þeir
sérstakir þar sem Víkingur Heiðar Ólafsson
frumflytur með hljómsveitinni Píanókonsert
eftir Daníel Bjarnason sem jafnframt verður
stjórnandi tónleikanna.
Meðal annarra stórviðburða nefnir Kjartan
tónleika Kammersveitar Reykjavíkur þar sem
flutt verða íslensk og tékknesk verk. Fimm
einleikarar koma fram með sveitinni og verk
eftir Hauk Tómasson og Atla Ingólfsson verða
frumflutt.
Philippe Manoury verður sérstakur gestur
hátíðarinnar og stjórnar tónleikum Caput.
Hann er bróðir Oliviers Manoury bandoneon-
leikara sem margoft hefur spilað á Íslandi.
„Hann er prófessor í tónlist í Bandaríkjunum,
hefur unnið hjá IRCAM í París og er mikill
framúrstefnumaður. Hann verður með fyrir-
lestra og kennslu í Listaháskólanum og kynnir
óperuna sína í samvinnu við Íslensku óp-
eruna.“
Á síðustu árum hafa Myrkir músíkdagar
aukið stórum samstarf við tónlistarfólk á
landsbyggðinni. Eins og fyrri ár teygir hátíðin
sig norður til Laugarborgar í Eyjafirði; Þór-
arinn Stefánsson tónlistarstjóri þar verður
með tónleika í Reykjavík ásamt fleirum, og
Kammerkór Suðurlands verður með tónleika
með nýrri kórtónlist í Neskirkju.
Á tónleikum „flautuhjónanna“ Guðrúnar
Birgisdóttur og Martials Nardeaus og Snorra
Sigfúsar Birgissonar píanóleikara verður flutt
verk eftir Klaus Ager, en hann er einnig gestur
hátíðarinnar í ár. „Hann kemur frá Mozarteum
í Salzburg og á meðan á hátíðinni stendur verð-
ur hann gestaprófessor í Listaháskólanum.
Salzburg, París og Prag verða því í sviðsljósi.“
Einn forvitnilegasti viðburður Myrkra mús-
íkdaga verða tónleikar þar sem tvö tónskáld,
ný í Tónskáldafélaginu, Ragnhildur Gísladóttir
og Hilmar Örn Hilmarsson, verða kynnt sér-
staklega. „Þetta verða portrett-tónleikar og
gaman að geta kynnt ný tónskáld á hátíðinni.“
Nánar um dagskrána hér:
Myrkir músíkdagar
Víkingur Heiðar frumflytur Píanókonsert eftir
Daníel Bjarnason, Daníel stjórnar Sinfóníunni
Morgunblaðið/Sverrir
Fjölhæfur Daníel Bjarnason stjórnar Sinfón-
íutónleikum á hátíðinni en þar verður frum-
fluttur píanókonsert eftir hann.
www.listir.is
TÓNLISTARHÚS Danska útvarps-
ins, sem er hannað af Jean Nouvel,
var vígt í Kaupmannahöfn um
helgina.
Í gær birtist dómur um það í The
New York Times og er gagnrýnand-
inn mjög hrifinn af verkinu sem sækir
innblástur í hönnun Hans Scharound
á tónleikahöll Fílharmóníusveit-
arinnar í Berlín með misháum og mis-
laga áhorfendasvölum sem umkringja
hljómsveitina. Honum þykir tónlistar-
húsið vera ein af fegurstu byggingum
sem hann hefur séð í langan tíma.
Húsið er eins og skærblár kubbur í
laginu og á kvöldin er varpað á það
allskonar myndum sem vekja það til
lífsins. Gagnrýnandinn er minnst hrif-
inn af staðsetningu hússins sem er
umkringt leiðinlegum glerhúsum og
skrifstofublokkum.
Flott tónlist-
arhús Dana
GUARDIAN hefur tekið saman lista
yfir bókartitla sem nokkrum þekkt-
um bókum voru gefnir upprunalega
á sínum tíma en útgefendur höfn-
uðu. Efst á listanum trónir First Im-
pressions eftir Jane Austen sem
varð síðar Pride and Prejudice. All’s
Well that Ends Well var uppruna-
legur titill á Stríð og friði eftir Tol-
stoj. Fyrsta skáldsaga Elizabeth
Gaskell átti að heita John Barton en
varð síðar að Mary Barton. No-
body’s Fault eftir Dickens varð síðar
Little Dorrit og The Mill on the
Floss eftir George Eliot fékk fyrst
nafnið Sister Maggie en útgefand-
anum fannst hitt ljóðrænna.
Maddox Ford vildi gefa meistara-
verki sínu The Good Soldier titilinn
The Saddest Story. The Great
Gatsby eftir Fitzgerald átti að vera
Trimalchio on West Egg. Fyrsta
skáldsaga Williams Goldings, Lord
of the Flies, var upprunalega Stran-
gers from Within og Stephen King
valdi þann hræðilega titil Cancer á
bókina Dreamcatcher.
Vondir
bókartitlar
Colin Currie vakti heimsathygli þegar hann
varð fyrsti slagverksleikarinn til að komast
í úrslit BBC Young Musician-keppninnar
fimmtán ára gamall. Hann hefur frumflutt
ótal verk, meðal annars með Lundúnafíl-
harmóníunni og Hljómsveitinni Fíladelfíu í
Carnegie Hall, og hefur leikið inn á nokkra
metsöludiska.
Pedro Carneiro er metinn í algjörum sér-
flokki sem slagverksleikari. Hann hefur
frumflutt yfir áttatíu verk eftir mörg af
fremstu tónskáldum heims auk þess sem
hann hefur sjálfur samið töluvert af slag-
verkstónlist. Hann hefur haldið meistara-
námskeið við marga bestu tónlistarskóla
heims.
Einleikarar í sérflokki