Morgunblaðið - 21.01.2009, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 21.01.2009, Blaðsíða 41
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „NEI, ég bjóst nú ekki við þessu. Ég hef tekið þátt í svona keppnum áð- ur en aldrei unnið. Maður tekur náttúrlega þátt af því að mann langar til að vinna,“ segir Guðjón Jónsson, sigurvegari í jóla- ljósmyndasamkeppni mbl.is og Ca- non. Sigurmyndina tók Guðjón af syni sínum, Baltasar Loga. „Hann er fjögurra mánaða núna, en hann var þriggja mánaða þegar ég tók myndina,“ segir Guðjón sem nefndi myndina „Baltasar í jólakúlulandi“. „Áður en við skreyttum jólatréð okkar fylltum við rúmið hans af jólakúlum og lögðum hann svo í þær, og hrúguðum aðeins yfir hann. Svo stillti ég flassið þannig að það fór beint upp í loft, og þá kom svona mjúk og fín lýsing,“ útskýrir Guðjón sem segist lengi hafa haft áhuga á ljósmyndun. „Já, alveg síð- an ég man eftir mér, og ég tek mjög mikið af myndum.“ Í verðlaun hlaut Guðjón Canon EOS 1000D myndavél með 18-55 linsu. Sigurmyndina má einnig sjá á baksíðu Morgunblaðsins í dag. 2. sæti Myndina tók Stefán Frey Stefánsson. Barn í jólakúlu- baði 3. sæti Myndina tók Þorsteinn Orri Magnússon. 1. sæti Myndina tók Guðjón Jónsson. Sigurvegarar jóla- ljósmyndasamkeppni mbl.is og Canon Morgunblaðið/Ómar Sáttir Stefán Frey Stefánsson, Guðjón Jónsson og Þorsteinn Orri Magnússon með vörur frá Canon sem þeir fengu í verðlaun. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 2009 “HRÖÐ, F LOTT OG FYNDIN GAMAN MYND.” “...STÓRS KEMMTI LEG GLÆ PAMYND OG AÐD ÁENDUR RITCHIES GETA TE KIÐ GLE ÐI SÍNA Á NÝ.” L.I.B. - TO PP5.IS HVAÐ EF ÆVINTÝRI OG DRAUMAR ÞÍNIR MYNDU RÆTAST ADAM SANDLER ER STÓRKOSTLEGUR Í ÞESSARI FRÁBÆRU GAMANMYND BYGGT Á SÖNNUMATBURÐUM Frá Clint Eastwood, óskarsverðlauna- leikstjóra Mystic River, Million Dollar Baby og Unforgiven. Tilnefnd til 2 Golden Globe verðlauna AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELLFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI “JIM CARREY KEMUR LOKS INN Í GRÍNIÐ AFTUR EFTIR FULLLANGA FJARVERU, OG HANN VELDUR ALLS EKKI VONBRIGÐUM!” TOMMI - KVIKMYNDIR.IS VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA V.J.V TOPP5.IS SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI „HEILLANDI, FULLORÐINS ÞRILLER, MEÐ ÓTVÍRÆÐRI ÓSKARSFRAMMISTÖÐU FRÁANGELINU JOLIE.“ - EMPIRE SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA BEDTIME STORIES kl. 8 LEYFÐ ROCKNROLLA kl. 10 B.i. 16 ára CHANGELING kl. 10 B.i. 7 ára YES MAN kl. 8 B.i. 7 ára BEDTIME STORIES kl. 5:50 - 8D - 10:20 LEYFÐ DIGITAL ROCKNROLLA kl. 8 - 10:20D B.i. 16 ára DIGITAL ROCKNROLLA kl. 5:30 - 10:20 B.i. 16 ára LÚXUS VIP YES MAN kl. 5:50 - 8 - 10:20 B.i. 7 ára YES MAN kl. 8 LÚXUS VIP CHANGELING kl. 5:30 - 8:30 B.i. 16 ára BOLT m/ísl. tali kl. 5:503D LEYFÐ THE SPIRIT kl. 10:20 B.i. 12 ára TWILIGHT kl. 8 B.i. 12 ára CITY OF EMBER kl. 5:50 B.i. 7 ára BEDTIME STORIES kl. 6D - 8:10D - 10:20D LEYFÐ ROCKNROLLA kl. 8D - 10:20D B.i. 16 ára YES MAN kl. 6 - 8:10 - 10:20 B.i. 7 ára BOLT m/ísl. tali kl. 63D LEYFÐ BEDTIME STORIES kl. 8 LEYFÐ THE SPIRIT kl. 10:10 B.i. 12 ára SÓLSKINSDRENGUR m/ísl. tali kl. 8 LEYFÐ TWILIGHT kl. 10:10 B.i. 12 ára BEDTIME STORIES kl. 8 LEYFÐ THE SPIRIT kl. 10:10 B.i. 7 ára SÓLSKINSDRENGURINN kl. 8 LEYFÐ FOUR CHRISTMASES kl. 10:10 B.i. 7 ára ÁLFABAKKA KRINGLUNNI AKUREYRI SELFOSSIKEFLAVÍK EMPIRE SAMbio.is Reykjavík • Akureyri • Keflavík • Selfoss SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍKSÝND Í ÁLFABAKKA, KEFLAVÍK OG SELFOSSI FILMCRITIC.COM SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI L.I.B. – FRÉTTABLAÐIÐ SÝND MEÐ ÍSLENSKU T ALI BANDARÍKJAMAÐURINN Tim Dyk og Jeong Heon frá Suður-Kóreu kynntust á námskeiði um hvernig á að beita ljósmyndun til að vekja at- hygli á óréttlætinu í heiminum. Þeir félagar komu hingað til lands í mán- uðinum til að kynna bókina Sex+Mo- ney: A Global Search for Human Worth (Kynlíf+Peningar: Leit að virði mannlífs) sem þeir unnu ásamt bekkjarfélögum sínum á námskeið- inu. Hluti af því var að ferðast um heiminn og kynna sér málefni á borð við mansal og kynlífsþrælkun sem þeir skrásettu í formi ljósmynda og frásagna. „Ferðalag okkar hófst í Suður- Afríku í september 2007 og stóð fram í júní 2008,“ segir Tim sem heimsótti fjórtán lönd á þessum tíma en Jeong sótti átján lönd heim. Þegar ferðalag- inu var lokið hittist bekkurinn aftur á Hawaii og bar saman bækur sínar. Niðurstaðan var að undirstaða alls óréttlætis í heiminum væri kynlíf og peningar og gáfu þau bókina út í kjöl- farið, í henni fléttast ferðalag þeirra saman með sögum og ljósmyndum. Nú skipta þau sér niður á heiminn til að kynna bókina og fengu Tim og Jeong það hlutverk að fara um gjör- valla Skandinavíu. „Tilgangurinn með ferðalaginu í upphafi var að sjá hvað er að gerast í heiminum og nú erum við á öðru ferðalagi til að fræða fólk um það sem við sáum og berjast fyrir betri heimi,“ segir Tim sem hefur orðið. Misnotkun fyrir smápeninga „Þegar við í bekknum litum á allar ferðasögurnar okkar og ljósmynd- irnar vissum við að við yrðum að koma fram opinberlega til að ræða réttlæti,“ segir Tim en sögurnar höfðu þau beint frá innfæddum sem þau hittu á ferðalagi sínu. „Þetta eru ólíkar sögur og málefni en eiga það sameiginlegt að tengjast misnotkun á kynlífi og peningum. Algengt þema sem kannski lítur ólíkt út í hverju landi en á sér stað alls staðar í heim- inum,“ segir Tim og fræðir blaða- mann um að það kosti aðeins 0,5 doll- ara að kaupa kynlíf með eþíópísku barni, 20 dollara í Taílandi og 70 doll- ara í Amsterdam. „Í okkar heimi eru börn keypt og seld og konur misnot- aðar fyrir smápeninga. Hinir sak- lausu þjást og þess vegna viljum við leita leiða til að hjálpa þeim,“ segir Tim. „Þetta er líka að gerast alls stað- ar í heiminum, það er barnaþrælkun, mansal, vændi alls staðar en í mis- jöfnum myndum. T.d. er allt klám á netinu hluti af þessu, í hvert skipti sem einhver klikkar á klám á netinu er hann að ýta undir eftirspurnina eftir því að einhver sé misnotaður, sakleysingjar notaðir sem féþúfa. 20% af klámi á netinu er barnaklám,“ segir Tim alvarlegur og bætir við að máttur breytinganna liggi hjá fólk- inu. Meira en græðgi og eigingirni Þeim félögum hefur verið vel tekið hér á landi. „Eins og efnahags- ástandið er hér eru margir að hugsa um hvernig hægt er að breyta fram- tíðinni. Það er gaman að tala við ungt fólk og sýna fram á að það er meira í heiminum en græðgi og eigingirni, sem hefur sært svo marga hér. Við getum gert margt annað við líf okkar en hugsa um peninga,“ segir Tim og bætir við að það sem ein kynslóð leyf- ir muni næsta kynslóð fordæma. Morgunblaðið/Kristinn Réttlæti Jeong Heon og Tim Dyk í Hinu Húsinu í gærkvöldi þar sem þeir voru með ljósmyndasýningu og fluttu fyrirlestur. Máttur breyt- inganna liggur hjá fólkinu Óréttlæti má rekja til kynlífs og peninga www.photogenx.net/sex- andmoney Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.