Morgunblaðið - 21.01.2009, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 21.01.2009, Blaðsíða 26
26 Minningar MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 2009 ✝ Sigurjóna Stein-grímsdóttir fædd- ist í Reykjavík 25. apr- íl 1923. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Eir sunnudaginn 11. janúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Gunn- hildur Sigurjónsdóttir húsmóðir, f. 1902, d. 1984 og Steingrímur Sveinsson verkstjóri, f. 1888, d. 1986, frá Sveinsstöðum við Nes- veg. Systkini Sig- urjónu eru: Guðný Hulda, f. 1924, Hildur Ísfold, f. 1926, d. 2004, Guð- rún Sveinbjörg, f. 1929, d. 2004, Guðrún Lillý, f. 1931, d. 2006, og Sveinn Bergmann, f. 1936. Sigurjóna giftist 16. ágúst 1947 Guðmundi E. Einarssyni, aðalbók- ara Útvegsbanka Íslands, f. 2. janúar 1921, d. 19. júní 1998. Foreldrar hans voru hjónin Messíana Guð- mundsdóttir húsmóðir, f. 1891, d. 1969 og Einar Sveinbjörnsson, út- gerðarmaður frá Sandgerði, f. 1860, d. 1929. Sonur Sigurjónu og Guð- mundar er Gylfi Örn Guðmundsson, f. 1947, kvæntur Mörtu E. Sigurð- ardóttur, f. 1948, Börn þeirra eru: 1) Edda Jóna, f. 1967 gift Guðlaugi Viktorssyni, f. 1963. Börn þeirra eru Viktor Örn, f. 1987, Gylfi Bragi, f. 1990, og Agnes Edda, f. 1998. 2) Þórunn Heiða, f. 1972, sambýlismaður Þorsteinn S. Guð- mundsson, f. 1973. Dóttir Þórunnar og Árna Sæberg er Marta María Sæberg, f. 2002. Börn Þor- steins eru Guð- mundur, f. 1995, Eygló, f. 2000 og Guð- rún Ólafía, f. 2002. 3) Guðmundur Örn, f. 1975, sambýliskona Valgerður Er- lingsdóttir, f. 1977. Börn þeirra eru Hafþór Bjarki, f. 2001, Fanney Rún, f. 2005, og Atli Heiðar, f. 2007. Sigurjóna og Guðmundur áttu lengst af heima á Hagamel 35 í Reykjavík. Sigurjóna vann sem ung kona hjá Lofti Guðmundssyni ljós- myndara en lærði saumaskap á saumastofunni Gullfossi. Í mörg ár vann hún við sauma heima en fór einnig út á vinnumarkaðinn og starf- aði á saumastofu Öryrkjabandalags- ins og saumastofunni Elísu. Sig- urjóna starfaði einnig með kvenfélaginu Hringnum í mörg ár. Útför Sigurjónu fer fram frá Nes- kirkju í dag og hefst athöfnin klukk- an 11. Í dag kveð ég elskulega tengda- móður mína, Sigurjónu Steingríms- dóttur. Okkar kynni eru orðin löng, en tæplega fjörutíu og þrjú ár eru síðan ég kom fyrst á heimili hennar og Guðmundar tengdaföður míns. Margs er að minnast eftir svo löng kynni. Þegar ég hugsa um þessi ár birtast mér hlýjar minningar um góða konu sem bar mikla umhyggju fyrir fjöl- skyldu sinni. Hún var ekki mikið fyrir að vera í fjölmenni en naut sín best í hópi sinna nánustu. Sá hópur var henni dýrmætur og var hún ákaflega stolt af sínu fólki. Hún hafði miklar mætur á barnabörnunum og þegar barnabarnabörnin fæddust fylgdist hún vel með þeim og átti þar sínar Dúllur. Jóna, eins og hún var alltaf kölluð, var fædd og uppalin í vesturbænum. Þar bjó hún næstum allt sitt líf. Æskuheimilið var á Sveinsstöðum við Nesveg og þar sleit Jóna barnsskón- um í faðmi foreldra, ömmu, systkina og frændfólks. Vesturbærinn var hennar staður og sagði hún ávallt að hann væri besti staðurinn í Reykja- vík, þar væri best að búa, þar væri alltaf logn og blíða. Árið 1955 byggðu Jóna og Guðmundur sér íbúð á Haga- mel 35 í Reykjavík en þar bjó Jóna þar til hún flutti á Hjúkrunarheimilið Eir. Guðmundur tengdafaðir minn lést árið 1998. Jóna vann sem ung kona á saumastofunni Gullfossi og þar lærði hún kjólasaum. Það var því engin tilviljun að hún gerði sauma- skap að sínu ævistarfi. Og þvílík lista- kona sem hún var. Það lék allt í hönd- unum á henni. Vandvirkni og þolinmæði voru hennar aðalsmerki. Þau eru fjölmörg meistarastykkin sem hún hannaði og saumaði á mig, börnin mín og aðra í fjölskyldunni. Ef eitthvað stóð til þá var það hún Jóna sem bjargaði málunum. Ballk- jólarnir, fermingarfötin, brúðarkjól- arnir, það var sama hvað hún var beðin um, hún kunni þetta allt. „Farðu bara og kauptu þér efni“ sagði hún, ég skal sauma. Já, hún var svo sannarlega tilbúin að hjálpa og það var gott að eiga hana að. Jóna starfaði lengst af við sauma- skap heima, en einnig á saumastofu Öryrkjabandalagsins og saumastof- unni Elísu. Seinna gekk Jóna í kven- félagið Hringinn og starfaði með fé- laginu meðan heilsan leyfði. Þegar ég kom inn í fjölskylduna höfðu Jóna og Guðmundur nýlega eignast sinn fyrsta bíl. Frá þeim tíma ferðuðust þau mikið um landið og einnig voru ferðir í sumarbústaði Út- vegsbankans fastur liður í öllum sumarfríum. Í þessar ferðir vorum við Gylfi og börnin okkar alltaf vel- komin og eigum við svo sannarlega margar góðar og skemmtilegar minn- ingar frá þeim. Jóna greindist með Alzheimer- sjúkdóminn fyrir nokkrum árum og sl. fimm ár var hún til heimilis á Hjúkrunarheimilinu Eir. Þar naut hún góðrar umönnunar þess góða fólks sem þar starfar. Þessi tími var tengdamóður minni erfiður. Henni gekk ekki vel að aðlagast á sínu nýja heimili. Hún var alltaf á leiðinni heim, heim á Hagamel, heim í Vesturbæinn. Ég vona að tengdamóðir mín finni sinn Vesturbæ í nýjum heimkynnum, þakka henni samfylgdina og bið Guð að blessa minningu hennar. Marta Sigurðardóttir. Okkur systkinin langar að minnast hennar ömmu sem var svo stór hluti af lífi okkar. Minningarnar um hana eru margar og yndislegar. Amma var verndandi, hlý og góð kona. Henni var umhugað um okkar velferð og hafði sérstakan áhuga á að fylgjast með öllu sem við gerðum. Það var alltaf gott að koma á Hagamelinn til ömmu og afa. Þar mætti okkur mikil hlýja og velkomin vorum við svo sannarlega. Þau tóku okkur alltaf fagnandi. Amma og afi eignuðust eitt barn, hann pabba. Amma minntist oft á að við hefðum sagt sem lítil börn, að hún mætti líka eiga okkur og við feng- um oft að finna að í hennar augum vorum við best í heimi. Ömmu þótti gaman að hafa fínt í kringum sig og heimilið bar þess svo sannarlega merki. Hjá henni gekk maður að hlut- unum vísum, þar var allt í röð og reglu og sumir hlutir áttu sinn stað í tugi ára. Amma og afi höfðu sérstaklega gaman af því að ferðast um landið og þá vorum við gjarnan tekin með. Með þeim fórum við í okkar fyrstu útilegur sem oft voru mikið ævintýri. Sum- arbústaðaferðirnar urðu líka ótal margar. Á þessum ferðalögum var mikið tekið af myndum sem við eigum nú sem minningar. Það skipti engu máli hvar hún amma var, í sumarbú- stað, tjaldi eða heima, pönnukökur eða kleinur voru alltaf með kaffinu. Einhvern tímann sinnaðist Mumma við ömmu og ætlaði aldeilis að hitta á viðkvæman stað þegar hann tilkynnti henni á dramatískan hátt að hann væri sko hættur að borða pönnukök- ur og kleinur. Þetta fannst ömmu hins vegar ótrúlega fyndið og hló og hafði gaman að þessu í mörg ár. Amma var mikil saumakona, það var alveg sama hvað hún tók sér fyrir hendur í saumaskap, hún gerði allt vel og af mikilli þolinmæði. Hún var ótrúlega vandvirk, útsjónarsöm og mikil handverkskona. Flíkurnar hennar var hægt að bera saman við það besta sem hægt var að kaupa úti í búð. Amma virtist geta saumað allt sem við báðum hana um. Mumma langaði er hann var lítill strákur í KR- utanyfirgalla sem ekki var framleidd- ur nema fyrir meistaraflokk. Amma reddaði því í hvelli og gallinn hans varð nákvæmlega eins. Að því leytinu til var hún undrakona í að uppfylla óskir okkar, og það var henni mjög mikilvægt. Þar naut hún sín vel. Við munum eftir því þegar við fengum að gista á Hagamelnum og amma kenndi okkur bænir. Hún var mjög hlédræg kona en við fundum þó öll fyrir því að trúin var henni mik- ilvæg þó ekki bæri mikið á því í henn- ar daglega lífi. Við trúum því að nú sé hún í góðum höndum á góðum stað. Eftir lifa allar fallegu og góðu minn- ingarnar sem við eigum um hana. Guð blessi minningu hennar. Edda Jóna, Þórunn Heiða og Guðmundur. Nístandi stefið úr ljóðinu Systurlát eftir Hannes Hafstein, kom í huga minn. Við hlustir mér helfregnin lætur höfug og grimm. Hvert stynjandi næturhljóð nístir mig í gegn, hver næðandi gjóstur og þetta kalda regn. Söknuðurinn heltók mig við and- látsfregn Jónu frænku. Jóna hafði gefið mér svo mikið á lífsins vegi, hún var einfaldlega ein af þessum sér- stæðu boðberum birtu og vinarþels sem bræðir burt öll leiðindi hvers- dags anna og vonbrigða. Hún bar með sér fölskvalausa góðvild með raunsæju ívafi, lítillæti, listræna hæfileika og ábyrgðarkennd, dugnað og velvilja. Huggun við harmi er fengin hvíld frænku frá erfiðum sjúk- dómi á ævikvöldi. Sigurjóna var uppalin á Nesvegi í Reykjavík vestan KR, hjá ástríkri móður, virðulegum föður og samhuga 4 systrum og einum bróður. Þangað var gaman að koma æskuárum og hitta þar allar þessar fallegu frænkur mínar og frænda. Og í vesturbænum var heimili hennar og Guðmundar og þangað var gott að koma í heimsókn þegar við áttum borgardvöl. En við áttum líka samverustundir með þeim á Egilsstöðum og í Stykkishólmi. Þá deildu þau öllu með okkur og léttu þar með göngu okkar sem vorum samferða þeim um grýttar götur lífs- baráttunnar. En fyrst og síðast renn- ur um hjörtu okkar straumur gleði og þakklætis, því hún og Guðmundur voru vinir okkar sem köstuðu birtu og yl á hverja samverustund, svo stund- in var önnur og betri en stundin sem var liðin, og sannaði um leið að í hverju lífsins spori getur maður verið manns gaman. Á síðustu árum höfum átt hlýjar og gefandi samverustundir með Jónu á heimili hennar á Eir, en þær stundir hefðu mátt vera fleiri. Þá spurði oft sjálfan mig: Er ekki hægt að deyða meinið með verkfærum vísindanna? Sjálf átti ég engin önnur verkfæri en hlýjar bænir. Vonin um að allt þetta sé til einhvers, var okkur gefin við upprisu frelsarans og við eigum ekki að spyrja „til hvers er þetta allt, ef allt er svona valt“ en við spyrjum samt. Við þökkum allt og þetta allt er geymt í okkar hjörtum. Góður Guð blessi minningu góðrar konu og móður Sigurjónu Stein- grímsdóttur. Hugheilar samúðar- kveðjur sendum við Gylfa og Mörtu og til barna þeirra og barnabarna. Einnig til Guðnýjar og Denna. Jóhanna og Erling Garðar Jónasson. Sigurjóna Steingrímsdóttir Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Barnabarnabörnin, Viktor Örn, Gylfi Bragi, Agnes Edda, Hafþór Bjarki, Marta María, Fanney Rún og Atli Heiðar. HINSTA KVEÐJA                               ! "# $!% &   ' (!!%  ! $) (!!*% !! +! ( (!!*% , ( '$  (!!*% - $ .! $  (!!*% /  0  (!!*% 0  1 ! (!!*% Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför Hermann Jónasson Yvonne Tix ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, VIGFÚS TÓMASSON, Árskógum 6, áður Rauðagerði 18, Reykjavík, sem lést á Landspítalanum miðvikudaginn 14. janúar, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 22. janúar kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Félag nýrnasjúkra. Kristín Valgerður Ellertsdóttir, Ellert Vigfússon, Jóhanna Sigríður Njálsdóttir, Elín Vigfúsdóttir, Hinrik Morthens, afabörn og langafabörn. ✝ Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýju við fráfall ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, ÚLFARS GUÐMUNDSSONAR trésmíðameistara, Skriðustekk 20, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki heimahlynningar Landspítalans. Gyða S. Hansen, Anna Kristín Úlfarsdóttir, Guðmundur Örn Úlfarsson, Jóna Dagbjört Dagsdóttir, Alda Gyða Úlfarsdóttir og afabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.