Morgunblaðið - 21.01.2009, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 21.01.2009, Blaðsíða 16
16 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNILÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 2009 ()* ()*      ()* +*      ,-.- $  /        0123 ,4*       ()* ()*      ÞETTA HELST ... ● GENGIÐ hefur verið frá samningi um sölu á Nemi, dótturfélagi TM í Noregi, til norska trygg- ingafélagsins Protector Forsikring ASA. Samningurinn er með fyrirvara um niðurstöður áreiðanleikakönn- unar og samþykki opinberra aðila, þ.m.t. norska fjármálaeftirlitsins. TM eignaðist meirihluta í Nemi árið 2006. gretar@mbl.is TM selur Nemi í Noregi Tryggingamiðstöðin ● TÍMAÁÆTLANIR sem gerðar voru í upphafi viðræðna um sameiningu Sparisjóðsins í Keflavík, Byrs og SPRON, sem staðið hafa yfir frá því í byrjun desember í fyrra, munu ekki nást. Í tilkynningu segir að viðræð- urnar hafi gengið vel og nú sé þess beðið að sparisjóðirnir ljúki ársupp- gjörum sínum svo halda megi þeim áfram. gretar@mbl.is Tímasetningar í viðræðum nást ekki BANKARÁÐ Landsbankans, NBI, hefur samþykkt leiðbeiningar um aðgerðir vegna greiðsluerfiðleika fyrirtækja. Þær segja til um hvern- ig staðið verður að endurskipulagn- ingu fjárhags fyrirtækja í erfið- leikum. Um er að ræða framhald af yf- irlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 2. desember 2008 um hvernig skuli bæta rekstrarumhverfi fyrirtækja. Er leiðbeiningunum ætlað að út- færa betur þau tilmæli sem þar eru tilgreind, samkvæmt tilkynningu frá bankanum. Leiðbeiningar til starfsmanna taka til þeirra atriða sem gæta þarf að en er ekki ætlað að fela í sér fastmótaðar reglur. Segir þar m.a. að við framkvæmd starfa sinna beri starfsmönnum að hafa í heiðri leiðbeinandi tilmæli Fjármálaeftirlitsins um þátttöku viðskiptabanka, sparisjóða og lána- fyrirtækja í atvinnustarfsemi og starfsheimildir samkvæmt lögum. gretar@mbl.is Leiðbeiningar samþykktar Eftir Björgvin Guðmundsson bjorgvin@mbl.is „ENGAR reglur né lög voru brotin í tengslum við lán til viðskiptavina bankans sem veitt voru í ágúst og september á síðasta ári,“ segir í yf- irlýsingu sem Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaup- þings, sendi frá sér í gær. Í Morgunblaðinu í gær var því lýst hvernig Kaupþing fjármagnaði sér- staka samninga útvalinna viðskipta- vina. Á endanum höfðu um 84 millj- arðar króna farið úr bankanum vegna þessara viðskipta. Vildu treysta stöðu Kaupþings Sigurður segir að lánin hafi verið liður í að treysta stöðu Kaupþings. Hugmyndin hafi komið frá Deutsche Bank og vilji var til að athuga hvort hægt væri að lækka skuldatrygg- ingarálag Kaupþings. „Stjórnendur bankans álitu það mjög mikilvægt fyrir framtíð hans að spyrna þarna við fótum enda var þró- un skuldatryggingaálagsins í raun hægfara áhlaup á bankann. Einnig er ljóst að hefði þessi þróun skulda- tryggingaálagsins haldið áfram var einungis spurning um tíma hvenær lánalínur bankans hefðu farið að lokast.“ Enginn hagnaðist „Enginn sem að þessum viðskipt- um kom hagnaðist um krónu vegna þeirra. Rétt er einnig að benda á að það tjón sem kann að verða vegna þessara lánveitinga mun því miður allt lenda á kröfuhöfum bankans, það er skuldabréfaeigendum og bönk- um,“ segir stjórnarformaðurinn fyrr- verandi. Eins og kom fram í Morgun- blaðinu í gær var búið að reikna út að þeir sem fengu lánið, þar á meðal Ólafur Ólafsson, annar stærsti hlut- hafi bankans, áttu að hagnast um 60 milljónir evra. Sá hagnaður kom til án þess að þeir bæru nokkra per- sónulega ábyrgð á lánveitingu Kaup- þings upp á 84 milljarða króna. Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins stóð til að greiða út hagn- aðinn fyrirfram. Það gerðist ekki þar sem bankinn fór í þrot. Miklir fjármunir runnu út úr bank- anum vegna lána til einstakra við- skiptavina bankans á þessum tíma. Stjórnendur Kaupþings voru þess fullvissir að bankinn stæði af sér þá ólgu sem ríkti á fjármálamörkuðum. Góð lausafjárstaða „Þegar þessi ákvörðun var tekin var lausafjárstaða Kaupþings mjög góð og voru þessi viðskipti gerð í ljósi þess. Við stjórnendur töldum okkur einungis vera að gæta að hag bank- ans. Enginn okkar sá fyrir þá þróun sem hrundið var af stað með falli Lehman Brothers um miðjan sept- ember og vanhugsuðu inngripi seðla- bankastjóra í málefni Glitnis þann 29. september sem felldi íslensku bank- ana á undraskömmum tíma með há- markstjóni fyrir alla sem að þeim stóðu,“ segir Sigurður í yfirlýsingu sinni. Morgunblaðið/Kristinn Stjórnarformaðurinn Sigurður Einarsson segir reynt að varpa rýrð á Kaupþing til að beina athygli frá öðru. Sigurður Einarsson segir engin lög brotin Reynt var að bregðast við hækkandi skuldatryggingarálagi Öll stærri lán Kaupþings þurfti að samþykkja í sérstakri lánanefnd stjórnar. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins voru lánveitingar til nokkurra erlendra félaga vikurnar áður en Kaupþing féll afgreiddar áður en formlegt samþykki lána- nefndar stjórnar lá fyrir. Í tengslum við stjórnarfund 25. september sl. var lánanefnd stjórnar kölluð saman. Þar var langur uppsafnaður listi lánveit- inga afgreiddur. Gunnar Páll Páls- son, sem átti sæti í lánanefnd- inni, segir að eftir hans bestu vitneskju hafi ekki verið búið að afgreiða þau lán sem þar voru samþykkt. Fyrir þennan fund hafði ekki verið haldinn fundur lánanefndar stjórnar í langan tíma. Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, seg- ir í yfirlýsingu í gær: „Þegar lánin eru veitt upphaflega í ágúst og byrjun september …“ Það var áður en lánanefnd stjórnar var kölluð saman í lok september á síðasta ári. Lánin voru veitt í ágúst og september EKKI kom fram krafa um að Stoðir yrðu teknar til gjaldþrotaskipta í dómsölum Héraðsdóms Reykjavík- ur í gær, að sögn talsmanns Stoða, Júlíusar Þorfinnssonar. Þar fóru Stoðir fram á framlengda greiðslu- stöðvun. Dómari hefur sjö daga til að ákveða framhaldið. Helstu lánardrottnar Stoða eru föllnu bankarnir þrír; Landsbanki, Glitnir og Kauping, auk Straums Burðaráss og hóps þýskra banka. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins nema lánveitingar Glitnis til Stoða rúmum 27 milljörðum, Landsbankans tæpum 39 milljörð- um og Kaupþings tæplega 30 millj- örðum króna auk vaxta. Helstu kröfuhafarnir höfðu sam- þykkt að bankinn fengi greiðslu- stöðvunina framlengda og þá annað tækifæri til að koma eignum sínum í verð, en Stoðir hafa ekki talið for- svaranlegt að selja eignir á undir- verði. Stoðir voru kjölfestufjárfestir Glitnis við fall hans. Meðal fyrirtækja Stoða eru tryggingafélagið TM, fasteigna- félögin Landic Property og Bayrock, Refresco, stærsti drykkjaframleið- andi í Evrópu, og Royal Unibrew. Ingibjörg Pálmadóttir, eiginkona Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, er stjórnarformaður félagsins. thordur@mbl.is/gag@mbl.is Skulda föllnu bönk- unum 100 milljarða Morgunblaðið/Golli Stoðir Helstu kröfuhafar Stoða samþykkja annað tækifæri til að fé- laginu takist að forðast þrot. 0:00 0 0 WW.SA.IS 2 0 0 9 H A G S Ý N F R A M S Ý N O G Á R Æ Ð I N A T V I N N U S T E F N A K Y N N I N G A R F U N D I R S A M T A K A A T V I N N U L Í F S I N S 23. JANÚAR – REYKJAVÍK GRAND HÓTEL REYKJAVÍK KL. 8:30-10:00 26. JANÚAR – ÍSAFJÖRÐUR HÓTEL ÍSAFIRÐI KL. 20:00-21:30 26. JANÚAR – AKUREYRI HÓTEL KEA KL. 20:00-21:30 26. JANÚAR – EGILSSTÖÐUM HÓTEL HÉRAÐI KL. 20:00-21:30 27. JANÚAR – SELFOSSI HÓTEL SELFOSSI KL. 20:00-21:30 27. JANÚAR – KEFLAVÍK HÓTEL KEFLAVÍK KL. 20:00-21:30 SA hvetja félagsmenn til að mæta Skráning á vef SA - www.sa.is         

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.