Morgunblaðið - 21.01.2009, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 21.01.2009, Blaðsíða 22
22 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 2009 Morgunblaðinu hefur borist mikill fjöldi greina og pistla frá lesendum um ástandið í efnahagsmálum landsins. Margir höfundar lýsa áhyggjum sínum af þróun mála og margir gera tillögur um leiðir út úr efnahagsvanda þjóð- arinnar. Morgunblaðið leggur áherslu á að gera þessum umræðum góð skil í blaðinu á næstunni. Skoðanir fólksins UMRÆÐAN um ráðleysi Íslands og íslenskra hagsmuna heldur áfram og engin fyrirsjáanlegur endir á því. Allt þetta ráðagóða og velmeinandi fólk virðist algerlega kjaft-stopp þegar kemur að því að útlista einhverjar hug- myndir um framhaldið eftir algert hrun í íslensku hag- og stjórnkerfi. Atvinnu- leysi stefnir í hæstu hæðir ásamt verð- bólgunni og nálgast hvort tveggja stýrivaxtaprósentuna og hrun heimilanna og gjaldþrot al- mennings fylgir á eftir. Bankakerfið er ekki lengur til í því formi sem kalla má banka en íslenska ríkið heldur úti nokkur þúsund manns í stofnunum sem áður voru bankar. Enginn veit hvað þess- ar stofnanir gera. Sumar eru í því að afskrifa skuldir stjórnenda, aðrir stjórnendur afskrifa sínar skuldir og enn aðrir millifæra hundruð milljarða af íslenskum peningum til útlanda í þágu útvaldra. Ekkert af þessu á skylt við bankastarfsemi en ekkert er hægt að gera þar sem ríkisstjórnin og stjórnkerfið vafrar um í þoku. Í þeim leiðangri eru Seðlabanki og Fjármála- eftirlit og engin leið er lengur að sjá hvað Alþingi er að gera í þágu fólksins og fyrirtækjanna í landinu sem bíða úrbóta. Allt er í dimmum dal og engin skíma eða úrlausn á ástandinu í heild og botninum er ekki náð þar sem búist er við 100% aukningu á atvinnuleysi á næstu mánuðum. Í heildina kallast þetta hrun og við liggjum á botninum inn- an tíðar. Þorsteinn Pálsson skrifar í leiðara Fréttablaðsins í dag nokkur orð um ástandið og talar um að reisa traust, mann- leg gildi, gjaldmiðilinn, bankakerfið, stöðu Íslands í sam- félagi þjóðanna og ríkisfjármálin og endurspeglar það sem að ofan segir. Við sjáum úti í heimi að þegar vandamál koma upp í samfélögum eru þau stundum einangruð með múr sem er reistur í kringum vandamálið þannig að venjulegt fólk geti lifað eðlilegu lífi utan múranna. Ef við skilgreinum núver- andi stjórn-, banka- og valdakerfi sem „Gamla Ísland“ og finnum því stað á Austurvelli og í nærliggjandi byggingum og múrum það allt inni með háum vegg, gerum það að sjálfstæðu ríki – „Gamla Íslandi“ getum við einangrað allt gamla vandamálið þar inni. Við bara múrum inni alla sem vilja viðhalda núverandi vitleysu og látum þá hafa þennan reit til að leika sér á með sitt bull. Þeir geta þá leikið og dundað sér við að skemma eigið líf og látið okkar líf í friði. Þeir geta þá hækkað eftirlaunin sín upp úr öllu valdi og kostað þann kaleik sjálfir, ráðið vini og kunningja í allar stöður sem þeir vilja innan múranna og haft á sínum snærum bankakerfi þar sem peningunum þeirra er stolið. Ekki okkar peningum. Þetta fólk má sprikla í spillingu eins og það vill mín vegna og hvers vegna að vera að neita fólki um það ef það vill þá borga sjálft fyrir spillinguna? Allt ráðleysi, óheiðarleiki, valdníðsla og hvaða vandamál sem núverandi stjórnkerfi hefur fundið upp má okkar vegna vera þarna innan múra í sjálfstæðu „Gamla Íslandi“ og haga sér eins og það vill í geðveiku spillingargúlagi án þess að draga okkur hin niður í svaðið með sér. Engin ástæða verður fyrir þá að skipta um stjórnendur og geta því okkar vegna haft sömu stjórnendur í áratugi, bæði í Seðlabanka og ríkisstjórn. Er það ekki draumur þessa fólks að sama fólki ráði endalaust? Þarna er gott heimili fyrir Icesave-reikningana. Ég legg til að þessi fámenni hópur sem hefur staðið að þessu hruni finni sér stað innan þessara múra enda eru margir þessara einstaklinga „innmúraðir“ hvort sem er í gömlu stjórnmálaflokkunum. Gömlu stjórnmálaflokkarnir hafa jú í áratugi starfað sem eins konar múrar fyrir fólk og sem afgreiðslustofnanir hagsmuna. Nýi múrinn er því bara staðfesting á því ástandi sem núverandi deyjandi kerfi hefur valið sér í áratugi og skilur nú eftir sig algert hrun. Allir „vírusarnir“ og ranghugmyndirnar, óheiðarleikinn og hugsanaskekkjurnar verða þá þarna innmúraðar á ein- um stað og alþjóðasamfélagið þarf ekki lengur að vera neitt að villast á þessum vandræðagemlingum og öðrum Íslendingum. Það verður allt á hreinu. Orðspor okkar venjulegra Íslendinga verður þar með algerlega á hreinu út um allan heim. Málið er leyst. Við hin ætlum að koma hérna upp nýju og frjálsu ríki þar sem „vírusarnir“, spillingin og hagsmunapotið fær ekki að grassera og þar sem við munum viðhafa algerlega nýja stjórnunarhætti byggða á gagnkvæmu trausti, mannlegum gildum, gjaldmiðli Evrópusambandsins og ríkisfjármálin verða í höndum traustra fagmanna. Við stofnum nýtt Alþingi sem vinnur með gagnsæjum hætti og virku lýðræði, sem kýs sér ríkisstjórn fólksins í landinu og vinnur gagnsætt að hagsmunum okkar allra í hinu nýja Íslandi. Við þurfum engan Seðlabanka heldur notum evru sem gjaldmiðil og evrópski Seðlabankinn sér um það. Spillingin er þar með á enda í íslenska bankakerf- inu. Vírushreinsa þarf allt atvinnulífið sem er nú gegnsýrt af ranghugmyndum fyrirgreiðslupólitíkusa. Fyrirtækin fengju nú fyrirgreiðslu alvörubanka á lágum vöxtum og án verðtryggingar og gætu stundað sín viðskipti án fyr- irgreiðslupólitíkusa. Hið eina sem þarf er traust og mann- leg gildi. Nýja Ísland Sigurður Sigurðsson, cand. phil. bygg- ingaverkfræðingur. HVENÆR er nóg komið? Ríkisstjórn okkar sá eng- an veginn að nóg væri komið. Hún leit undan og naut glæsileikans, upphafningarinnar og glansins eins og svo mörg okkar. Ríkisstjórnin varð svo sjálfstæð að hún sá ekki nauðsyn þess að stjórna landinu. Skynjaði engan veginn að engin ábyrgð var tekin á að grunn- þarfir okkar sem þjóðar væru öryggar. Launamisrétti varð áberandi og bankarnir klúðruðu glæsilega hús- næðismálunum. Stjórnmálafólk virðist ekki átta sig á að fólk er búið að fá nóg. Nóg af einkavina- og starfs- mannavæðingu samfélagsins. Það er ekki nóg að þykja þetta leitt. Auð- vitað er erfitt að viðurkenna að maður hafi með aðgerðaleysi sett þjóðina á hausinn. En versta blindan er að þau sjá ekki að sama fólkið getur ekki haldið áfram eftir hrun fjármálaheimsins. Sama fólkið mun gerir sömu mistökin. Núna erum við stödd á stað sem getur verið upphafið að nýju lífi. Byrj- uð göngu okkar á leið að manneskjulegra samfélagi. En án þess að taka ábyrgð á fortíðinni og afgreiða hana er ekki hægt að halda áfram af heil- indum og trúverðugleika. Það er staðreynd að í grunnstoðir samfélagsins vantar leik- og umgengnisreglur. Þau sem við kusum til þess að vinna að stöðugleika-, hamingju- og öryggisneti okkar brugðust. Þau sem stóðu fremst blinduðust af vel sýnilegri og glæsilegri umgjörð. Ríkisstjórnin brást trausti okkar og stofnanir ríkisins fengu aldrei skýrar reglur til að fara eftir. En ljóst er að þrátt fyrir þetta brugðust opinberir eftirlits- aðilar ekki við ástandinu og notuðu ekki þau tæki og tól sem til voru. Sérfræðingar ríkisins bentu sjaldnast ef nokkurn tíma á hætturnar af festu og fylgdust ekki með alltof hröðu og stjórnlausu breytingaferli sam- félagsins. Fréttir um málin komu helst að utan og úr háskólum landsins. Siðferðisleg ábyrgð er mikil ábyrgð. Ef ég er valinn til þess að bera hana ásamt því að finna leiðir að stöðugleika fyrir kjósendur mína og þjóð verður siðferðið að vera sterkt. Alþingi brást trausti okkar með því að lúta ráðherravaldi. Og ráðherrarnir skynja ekki vitjunartíma sinn. Vegna þessa valdaafsals Alþingis veður uppi hroki og vanvirðing við al- menning. Enginn er þó í sjónmáli til að leiða okkur út úr þessum vanda. Sá aðili birtist örugglega um leið og ný pláss myndast vegna brottfarar annarra úr pólitíkinni. Leiðin út úr þessu er kosningar. Leyfið okkur að velja nýtt fólk til ábyrgðar og sjá hvað gerist. Ljóst er að núverandi flokkar verða að bylta stefnuyfirlýsingum sínum ef þeir eiga að fá mitt atkvæði. Víst er í lagi að gera mistök ef við lærum af þeim. Víst er í lagi að til séu vandamál ef þau eru leyst. Og víst er það í lagi að eiga í útistöðum, en útistöður þarf að leysa og sætta á aðila. Núna verður að vinna að nýjum grunni til að byggja á nýjan traustan veruleika. Heiðarlegan og auðmjúkan veruleika í sátt við fólk og umhverfi. Sáttmáli er góð hugmynd en hann þarfnast samvinnu allra til að verða að veruleika. Jafnrétti milli manna er mark- miðið. Líf á Íslandi í sátt og samlyndi? Percy B. Stefánsson, ráðgjafi og sósíaldemókrati. EINSTÖK fegurð íslenskrar náttúru verður aldrei of mikið í umræðunni. Fegurð sem oft er hrikaleg og storkar okkar tilfinningum sem í besta falli framkallar samkennd á vettvangi og þar með verður tilefni til daðurs. – Í friði úti í íslenskri náttúru undir söng hamrandi fossa, sem er hægt að kalla eitt öflugasta ásláttarhljóðfæri íslenskrar náttúru. Þar sem áskorunum og ástum er hamrað saman. – Það sem drepur þig ekki, styrkir þig. Ein spurning: Tvær íslenskar stúlkur – önnur er sólbrún og sælleg á sól- arströnd en hin er frostbarin og rjóð á göngutúr úti í fersku íslensku frosti. Hvor þessara stúlkna er þokkafyllri? Ímynd fáklæddr- ar sólarstúlku er mun þekktari en þeirrar frostbörðu. En ég er viss um að ís- lensk kvennafegurð í jóla- og áramótafrosti 2008-2009 kæmi sterk inn til að bæta ímynd íslenskrar gjaldþrota þjóðar. Og íslenski lopinn í sinni útgeislun mundi krydda fegurð íslenskra kvenna, – betri helming okkar karlaímyndar. Það er ekki góð landkynning að fara um með ófriði og ofbeldi, þó að reiði og örvænting sé mikil í kreppunni. Reiði og ofbeldi eru fréttamatur, fjölmiðlar eru forvitnir um það. Viljum við kynna landið okkar fyrir ferðamönnum með ófriði og öfgum? Guð gef mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt, kjark til að breyta því sem ég fæ breytt, og vit til að greina þar á milli. Amen. Pólitískir auðmenn og einræðisherrar á Íslandi þurfa helst að finna það hvað þeir eru óvelkomnir inn í einkalíf okkar með því að við bjóðum þeim í tertu, sem þeir fá síðan framan í sig. Best er þó að hafa þetta með öllu öfga og hrekkjalaust: Ég vitna aftur í íslenska fegurð. Sjáið spæjara allra spæjara á hvíta tjaldinu: Það er endalaust hægt að blinda hann með kven- legri fegurð. Það þarf að gera þetta á svipaðan hátt í íslenskum ferðamanna- iðnaði en þó ekki með því að blinda auðmennina, heldur verður að sannfæra þá með einum „tvöföldum“, „hristum“: Kvenlegri íslenskri fegurð í íslenskri náttúru. Álengdar standa síðan gjaldþrota atvinnuleysingjar, örorkubóta- og elllífeyrisþegar og hamra sér til hita við undirleik norðanvinda sem hvína um hrikaleg hamrabelti við undirleik ferskasta vatns í heimi sem telur tímann í holandi steinum undir dettifossum daðurssveita, (ferðamannahópar að skoða íslenskar sveitir). Núverandi og komandi kynslóða með ísingu örvæntingar í öfgum íslenskrar þjóðar sem ætlar að toppa aðrar þjóðir með útsölutilboðum og auka þar með enn á forvitni ferðamanna til að kynna sér betur þetta „herfría land hreinleika og fegurðar“. Til sannfæringar auðmönnum úti í heimi til eflingar okkar álvera, kvenlegrar, íslenskrar, þokkafullrar þjónustu, – ferðaþjónustu. Kvenlegrar kindar, lopaímyndar. Dettifossar daðurssveitanna Atli Viðar Engilbertsson, fjöllistamaður Í NÝLEGU viðtali við Íslending búsettan í Kaupmannahöfn vitnaði hann í leigubílstjóra sem sagði eitt- hvað á þá leið að hann skildi ekki hvers vegna þessi 320 þúsund gætu ekki lifað góðu lífi hér á þessari eyju sem er þrisvar sinnum stærri en Danmörk og ræður yfir verðmætum auðlindum. Þessi orð eru töluð af hreinskilni og almennri skynsemi, eiginleikum sem hafa verið harla lítið í hávegum hafðir á undanförnum árum. Við vildum nefnilega ekki vera 320 þúsund. Við vildum eiginlega ekki heldur vera á Ís- landi. Við vildum þykjast vera eins og í útlöndunum, eins og í sjónvarpinu eða í bíó. Við vildum lifa í sýnd- arveruleika. Eða hvað. Vildum við það í raun og veru eða var okkur bara talin trú um að við vildum það? Vildum við Manhattan-skýjakljúfa meðfram ströndinni í Reykja- vík? Vildum við einkaþotur á gamla flugvöllinn? Vild- um við fleiri hundruð fermetra sveitasetur og þyrlu- palla í stað blómlegra býla? Var þetta sú þjóð sem við vildum vera, þrískipt í þá sem áttu allt, þá sem höfðu nóg og þá sem áttu ekkert? Ég held að okkur langi núna til að verða ein þjóð í landinu okkar. Við erum vel menntuð, ung þjóð, hraust og dugmikil, við eigum verðmætar auðlindir. En 320.000 manna þjóð stendur ekki undir auðmannastétt. Hún er ekki nógu stór til þess, hún hefur ekki efni á því. Til að halda uppi þeim örfáu sem mest höfðu um- leikis og mest bárust á var byggt upp blekkingakerfi sem helst má líkja við pýramídasvindl. Fjármagn var sogað úr bankakerfinu, lífeyrissjóðum og sparnaði ein- staklinga og notað sem grunnur til að byggja á inni- haldslausar skýjaborgir. Þetta var hægt vegna þess að ríkjandi hugmyndafræði leyfði ekki aðeins slíkt heldur lofaði í hástert. Þetta var hástig þeirrar græðgi sem stjórnvöld litu á sem skapandi afl í samfélaginu. Við aðstæður sem þessar blómstra einstaklingar með brenglaða siðferðiskennd. Við höfum ekki efni á að láta þannig fólk leika lausum hala. Við höfum heldur ekki efni á stjórnvöldum sem hefja slíkt athæfi upp til skýjanna, veita fjárglæframönnunum aflausn þegar allt hrynur og bjóða þeim svo að halda spilinu áfram. Íslensk þjóð hefur aftur á móti efni á að reka þjóð- félag þar sem allir hafa nóg og enginn líður skort; þjóðfélag þar sem velferðarkerfið er sterkt og sam- ábyrgð ríkir, þar sem allir geta menntað sig á eigin forsendum og náð að þroska hæfileika sína, sér og öðr- um til gagns og gleði. Við getum verið þjóð sem nýtir menntun sína og sköpunarkraft til að halda uppi öflugu og fjölbreyttu atvinnulífi; þjóð sem umgengst einstaka, dýrmæta og viðkvæma náttúru af virðingu og um- hyggju. Ég held að langflest viljum við vera hluti af slíkri þjóð. En til þess að það geti orðið þurfum við að reka af höndum okkar þá sem trúðu (og trúa jafnvel enn) á blekkingarleik nýfrjálshyggjunnar – og ekki síð- ur hina sem vissu fullvel að um blekkingu var að ræða en voru tilbúnir til að fórna almannaheill fyrir eigin gróða. Við erum 320 þúsund, en höfum alla burði til að lifa sem frjáls og sjálfstæð þjóð í okkar fallega landi. Við erum öfundsverð – og kannski erum við líka öfunduð. Breskur Evrópuþingmaður sendi okkur Íslendingum orðsendingu um daginn og sagði einmitt það, að dverg- ríkið sjálfstæða væri litið hornauga af „stóru strákun- um“ og að hlakkað hefði í ýmsum þegar fór að hrikta í stoðum þess. Eflaust eru þeir bæði innlendir og er- lendir, hrægammarnir sem nú voma yfir okkur og bíða færis að kroppa upp í sig það sem bitastætt er. Hér er hægt að byggja upp fyrirmyndarþjóðfélag. En til þess að svo megi verða þurfum við að skilgreina markmið og leiðir af heilbrigðri skynsemi og sýna ein- dæma kjark. Við þurfum að hreinsa út spillingu og setja fagmennsku og almannaheill ofar hagsmuna- tengslum. Við þurfum að horfast í augu við að við erum bara 320 þúsund manna þjóð, koma okkur svo í skiln- ing um að það eru einstök forréttindi – og njóta þess. Dvergríkið Ísland Ragnheiður Gestsdóttir, rithöfundur. Ég held að okkur langi núna til að verða ein þjóð í landinu okkar. Við erum vel menntuð, ung þjóð, hraust og dugmikil, við eigum verð- mætar auðlindir. En 320.000 manna þjóð stendur ekki undir auðmannastétt. Hún er ekki nógu stór til þess ... ’

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.