Morgunblaðið - 21.01.2009, Blaðsíða 7
Fréttir 7INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 2009
FRUMMATSSKÝRSLU vegna mats
á umhverfisáhrifum vegna Halls-
vegar, Úlfarsfellsvegar og mis-
lægra gatnamóta við Vesturlands-
veg er nú lokið. Kynning á
frummatsskýrslunni og réttur til að
skila inn athugasemdum er frá 20.
janúar til 4. mars nk. Athugasemdir
eða ábendingar skal senda inn
skriflega til Skipulagsstofnunar.
Frummatsskýrsla
um áhrif Hallsvegar
TRÚNAÐARMANNARÁÐ SFR
(Stéttarfélags í almannaþjónustu)
mótmælir harðlega niðurskurði hjá
opinberum stofnunum og fyr-
irtækjum. Þetta kemur fram í
ályktun sem ráðið sendi frá sér í
gær. Tilefni ályktunarinnar eru
fyrirhugaðar uppsagnir 20-30
starfsmanna hjá Landhelgisgæslu
Íslands. Ráðið krefst þess að stjórn-
völd endurskoði stefnu sína, sporni
gegn atvinnuleysi og tryggi innviði
samfélagsisns í stað þess að auka
skerðingar og atvinnuleysi.
Mótmæla
uppsögnum
hjá Gæslunni
Morgunblaðið/ÞÖK
Björgun Starfsmenn Landhelgisgæslu Íslands sóttu björgunarsveitarmenn í
flutningaskipið Wilson Muuga sem strandaði í Sandgerði undir lok árs 2006.
SEX umsóknir bárust um starf
prests í Laufási við Eyjafjörð. Séra
Pétur Þórarinsson lést 2007 og síðan
hefur séra Gylfi Jónsson, héraðs-
prestur í Þingeyjarprófastsdæmi,
þjónað í Laufásprestakalli.
Þeir sem sækja um starfið eru séra
Bolli Pétur Bollason, prestur í Selja-
kirkju í Reykjavík, séra Hildur Inga
Rúnarsdóttir, sem þjónaði síðast á
Skinnastað, og guðfræðingarnir Sól-
veig Jónsdóttir, Stefán Karlsson,
Sveinbjörn Dagnýjarson og Ævar
Kjartansson. Þess má geta að Bolli
Pétur er sonur séra Bolla Gústavs-
sonar, prests í Laufási árum saman
og síðar vígslubiskups á Hólum.
Embættið verður veitt frá 1. maí
næstkomandi. Valnefnd velur sókn-
arprest. Hún er skipuð prófasti Þing-
eyjarprófastsdæmis, sem jafnframt
er formaður nefndarinnar, og níu
fulltrúum prestakalls.
Biskup Íslands skipar þann í emb-
ættið til fimm ára sem valnefnd hefur
náð samstöðu um. skapti@mbl.is
Sex vilja þjóna sem
prestar í Laufási
Fjórir karlar og tvær konur sækja um
SÉRA Ásta Ingi-
björg Péturs-
dóttir var sett inn
í embætti sóknar-
prests Bíldudals-
og Tálknar-
fjarðarpresta
kalls, sl. sunnu-
dag af sr. Agnesi
M. Sigurðardótt-
ur, prófasti Vest-
fjarðaprófastdæmis. Innsetningin
fór fram í Bíldudalskirkju og var
eftir á boðið til kaffisamsætis
Sr. Ásta Ingibjörg nam guðfræði í
Háskóla Íslands og lauk prófi árið
2007. Hún var í starfsþjálfun í dóm-
kirkjunni hjá sr. Hjálmari Jónssyni
og í Grafarvogskirkju hjá sr. Önnu
Sigríði Pálsdóttur.
Nýr sóknarprestur
vígður í Bíldudal
Ásta Ingibjörg
Pétursdóttir
Á MORGUN, fimmtudag, kl. 20 er
boðað til fundar í Laugardalshöll af
samtökunum Réttlæti.is sem berj-
ast fyrir réttlátu uppgjöri á Pen-
ingabréfum Landsbankans.
Á fundinum fer Hilmar Gunn-
laugsson hrl. yfir stöðuna, en hann
hefur tekið að sér málsókn fyrir
hönd Réttlæti.is á hendur Lands-
vaka, dótturfélags Landsbankans
sem nú er í eigu NBI.
Réttlát uppgjör
Í JÓLASÖFNUN Hjálparstarfs
kirkjunnar sem stendur út janúar
hafa safnast 58 milljónir króna sem
renna til aðstoðar innanlands og til
vatnsverkefna í Eþíópíu, Mósam-
bík, Malaví og Úganda. Sambærileg
tala fyrir 2007 er 40 milljónir
króna. Umsóknum um aðstoð hefur
fjölgað um 70% á síðustu mánuðum,
samkvæmt fréttatilkynningu.
58 milljónir söfn-
uðust í jólasöfnun
Kynntu þér úrræðin
Starfsfólk Kaupþings aðstoðar þig við allt sem tengist fjármálum heimilisins og breyttum
aðstæðum og leitar hentugra úrræða fyrir þig.
Kynntu þér málin á www.kaupthing.is, hafðu samband í síma 444-7000
eða komdu við í næsta í útibúi Kaupþings.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
K
A
U
44
53
9
01
/0
9
Fjármálaráðgjöf fyrir þig
• Heimilisbókhald • Stöðumat • Netdreifing/útgjaldadreifing
• Úrræði í greiðsluerfiðleikum • Sparnaðarleiðir • Lífeyris- og tryggingamál
Í DAG, miðvikudag, hefst á ný mat-
arúthlutun hjá Fjölskylduhjálp Ís-
lands kl. 15 til 17 í Eskihlíð 2-4 í
Reykjavík. Tekið er á móti gjöfum,
matvælum og fatnaði alla miðviku-
daga kl. 13 til 17 á sama stað.
Matarúthlutun