Morgunblaðið - 21.01.2009, Page 9
flutningi á vörum og þjónustu.
Verðmæti útflutnings verði því
umtalsvert meira en verðmæti inn-
flutnings.
Því er spáð að afkoma ríkissjóðs
verði neikvæð á þessu ári um 12,3
prósent af landsframleiðslu, eða
sem nemur um 187 milljörðum
króna, og á næsta ári verði afkom-
an neikvæð um 10,1 prósent. Það
nemur um 155 milljörðum. Sam-
kvæmt því munu útgjöld ríkissjóðs
dragast saman um 26 milljarða við
fjárlagagerð næsta árs. Til saman-
burðar var skorið niður um 45
milljarða á þessu ári. Niðurskurð-
urinn fyrir þetta ár var að mestu
bundinn við að slá af ný verkefni,
auk hagræðingaraðgerða við yf-
irstjórn stofnana. Á næsta ári mun
niðurskurðurinn því verða sárs-
aukafyllri en nú, þar sem hann
mun beinast í meira mæli að verk-
efnum og störfum sem hafa verið
lengi á fjárlögum.
Því er spáð að atvinnuleysi verði
um tíu prósent í byrjun næsta árs
en muni minnka hægt og bítandi
eftir því sem líður á árið. Sú spá
er að mestu í takt við það sem
komið hefur fram í skýrslum Al-
þýðusambands Íslands, Vinnu-
málastofnunar og Seðlabanka Ís-
lands um horfur á vinnumarkaði.
Stýrivextir Seðlabankans, sem
nú eru þeir hæstu í heimi meðal
ríkja með þróaða fjármálamarkaði,
18 prósent, munu lækka hratt
seinni part þessa árs samkvæmt
spánni. Í lok ársins verða þeir um
sjö prósent en meðaltalsverðbólga
þess árs verði um 13 prósent.
!
"
# $ !
"
# % %
!
""
&
&
'
% %
Fréttir 9INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 2009
Eitt meg-
inmarkmið
stjórn-
valda eftir
banka-
hrunið er
að endur-
heimta
stöðug-
leika eftir
bankahrunið og langt skeið
ójafnvægis í hagkerfinu. Í spá
efnahagsskrifstofunnar, þar
sem efnahagshorfur eru til
umræðu, segir að uppsveifla
síðustu ára hafi verið „megn-
uð“ af peningastjórn Seðla-
banka Íslands og sveiflujafn-
andi áhrif opinberra fjármála
hafi ekki tekist að sporna
gegn gríðarlegu þensluskeiði.
„Háir stýrivextir löðuðu til
landsins erlent lánsfjármagn
sem lækkaði fjármagns-
kostnað, hækkaði gengi krón-
unnar og jók eftirspurn í hag-
kerfinu og kaupmátt lands-
manna erlendis,“ eins og
orðrétt segir í umfjöllun efna-
hagsskrifstofunnar.
Mikið ójafnvægi í
þjóðarbúskapnum
MIKLU skiptir fyrir verðmæta-
sköpun íslensks efnahagslífs á
næstu tveimur árum að greiðlega
gangi að selja á erlendum mörk-
uðum vörur sem framleiddar eru
hér. Eins og greint hefur verið frá í
Morgunblaðinu ríkir mikil óvissa
um horfur á hrávörumörkuðum í
heiminum. Þar á meðal mörkuðum
með sjávarafurðir og ál, sem eru
þær útflutningsafurðir sem skipta
höfuðmáli fyrir Ísland. Þó ál-
framleiðslan sé í höndum erlendra
fyrirtækja að nánast öllu leyti eru
orkusölusamningar til álvera tengd-
ir söluverði á áli. Álverð hefur lækk-
að hratt frá því á sumarmánuðum.
Staðgreiðsluverðið hefur lækkað úr
meira en 3.000 dollurum á tonnið í
júlí í fyrra, niður í rúmlega 1.400
dollara nú. Þá hefur sala á fiski á
mörkuðum erlendis einnig gengið
treglega vegna mikillar niðursveiflu
á mörkuðum. Mikil birgðasöfnun á
sjávarafurðum, bæði hér á landi og
erlendis, gæti reynst atvinnulífinu
dýrkeypt ef hún verður til lengri
tíma. Hún hefur verið viðvarandi
undanfarna þrjá mánuði og er nú
svo komið að allar frystigeymslur
landsins eru fullar, eins og fram
kom í Morgunblaðinu í gær.
Betri staða á hrávöru-
mörkuðum atvinnu-
lífinu mikilvæg
Lægð á mörkuðunum skaðar efnahaginn
„VIÐ höfum
orðið varir við
að neytendur
hafi lent í erf-
iðleikum með
raftæki sem
hafa bilað, þar
sem innlendur
söluaðili hefur
farið í þrot og
nýr rekstraraðili
hyggst ekki taka ábyrgð á vör-
unum. Þá sitja neytendur eftir
með sárt ennið þar sem tveggja
ára neytendaábyrgð, sem kveðið
er á um lögum samkvæmt, er rof-
in. Við höfum ákveðið að bregðast
við þessu með þeim hætti að við
tökum fulla neytendaábyrgð á
þeim vörum sem við erum um-
boðsmenn fyrir,“ segir Erling Ás-
geirsson, framkvæmdastjóri Sense
ehf. sem er eitt sex dótturfyrir-
tækja Nýherja. Meðal þeirra
merkja sem Sense er umboðsaðili
fyrir eru Canon, Sony og Bose.
Að sögn Erlings geta neytendur
snúið sér til Sense sem staðsett er
í Hlíðarsmára, til þjónustuvers
Sense í síma: 585-3800, Sony Cent-
er í Kringlunni eða Nýherja í
Borgartúni. Bendir hann á að
neytendur þurfi auk bilaða tæk-
isins að hafa með sér sölukvittun.
Taka yfir
ábyrgðina
Erling Ásgeirsson
Útsalan
hefst í dag kl. 10
Klappastíg 44 - sími 562 3614
Innleggsnótur og gjafakort í fullu gildi á útsölunni
ÚTSALA
Fjármálaráðgjöf fyrir þig
Kynntu þér málin á www.kaupthing.is, hafðu samband
í síma 444-7000 eða komdu við í næsta í útibúi Kaupþings.
m
bl
10
82
18
0
www.fi.is • fi@fi.is • Sími 568 2533
Myndakvöld FÍ
Miðvikudagur 21. febrúar kl. 20:00 - FÍ salnum Mörkinni 6
Ína D. Gísladóttir formaður Ferðafélags Fjarðamanna sýnir myndir að
austan og Pétur Þorleifsson sýnir myndir frá Vestmannaeyjum.
Aðgangur kr. 600, kaffi og meðlæti innifalið, allir velkomnir.
Fjallakvöld FÍ
Fimmtudagur 22. febrúar kl. 20:00
Ferðafélagar, fjallafólk og útivistaráhugamenn hittast og spjalla um
ferðir, leiðir, búnað, myndir, bækur og fleira er tengist ferðamennsku.
Sérfræðingar og reynslumiklir ferðamenn mæta til skrafs og
ráðagerða. Kaffi og fjallakakó á könnunni, allir velkomnir.
Ferðaáætlun FÍ 2009 kemur út 23. janúar
Skráðu þig inn - drífðu þig út
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111