Morgunblaðið - 21.01.2009, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 2009
Mótmæli við Alþingishúsið
„Það er verið að sýna samstöðu
hér. Við hér fyrir norðan getum
ekki farið niður á Austurvöll eða
Alþingi, þannig að við ákváðum
að fara niður á okkar Ráðhústorg
og sýna samstöðu með þeim sem
eru að berjast fyrir sunnan,“
sagði Valgerður Bjarnadóttir,
einn mótmælenda, í samtali við
mbl.is.
Um 60 manns söfnuðust saman á
torginu og þar var kveikt í litlum
bálkesti auk þess sem mótmælend-
urnir notuðu ýmsa hluti til að fram-
kalla hávaða.
Valgerður sagði þá ákvörðun hafa
verið tekna um áttaleytið í gær-
kvöldi að sýna mótmælunum í
Reykjavík samstöðu. „Það er hugur
í fólki, en engin læti.“
Samstöðumótmæli á Akureyri
Eftir Unu Sighvatsdóttur og
Önnu Sigríði Einarsdóttur
VANHÆF ríkisstjórn! Vanhæf rík-
isstjórn! Þeir voru ekki í vafa um
hvaða skilaboð þeir vildu senda ríkis-
stjórninni mótmælendurnir sem
söfnuðust saman við Alþingishúsið í
gær. Taktfastur trommusláttur,
blístrur, flautur ásamt öllum þeim
skarkala sem kalla má fram með því
að slá í potta, pönnur, ruslatunnulok
og raunar hvað annað sem fram-
kallað getur hávaða. Og svo slag-
orðið: Vanhæf ríkisstjórn! sem fólk á
öllum aldri og úr ýmsum stéttum
hrópaði meðan á mótmælastöðunni
við þinghúsið stóð.
Það skyldi enginn halda að mót-
mæli almennings á Íslandi hafi logn-
ast út af með áramótunum. A.m.k var
enga uppgjöf að sjá á þátttakendum í
mótmælunum sem hófust með fyrsta
þingfundi ársins um eittleytið í gær og
stóðu enn yfir er blaðið fór í prentun.
Talið er að á annað þúsund hafi safn-
ast saman við Alþingishúsið þegar
mest var í gærdag og er leið á kvöldið
voru þar 5-6 þúsund manns.
Breitt aldursbil
Enginn einn leiddi mótmælin, eða
skipaði sér í fylkingarbrjóst en samt
var greinilegur samhljómur meðal
mótmælenda enda var krafan skýr:
Afsögn ríkisstjórnarinnar. Ásetning-
urinn var líka skýr: Hávaði. Fyrsti
þingfundur ársins 2009 fékk ekki að
ganga ótruflaður fyrir sig og engin
leið var fyrir þá sem fyrir innan sátu
að leiða hjá sér raddir fólksins sem
fyrir utan stóð. En þó þinghaldi lyki
hreyfðu mótmælendur sig hvergi.
Vissulega þynntist hópurinn út er
líða tók á daginn og stóð yngra fólkið
vaktina fastar en þeir sem eldri voru,
þó það hafi vakið athygli blaðamanna
hve breitt aldursbilið var. Staðfesta
unga fólksins vakti líka aðdáun
sumra af eldri kynslóðinni. „Hvað
þessir krakkar eru duglegir,“ sagði
eldri kona sem búin var að taka þátt í
mótmælunum stóran hluta dags.
„Maður fær bara gæsahúð af hrifn-
ingu. Það eru þessir krakkar sem
koma til með að taka við landinu.“
Er kvölda tók fjölgaði mótmæl-
endum að nýju og fjölgaði þá í hópi
þeirra sem eldri voru. Pelsklæddar
konur, foreldrar með börn, fólk á
miðjum aldri og eldra. Líkt og um
daginn voru sumir með potta, pönn-
ur, flautur, blístrur og hrossabresti.
Þokulúðrar voru þeyttir, kínverjar
sprengdir – allt bættist þetta við
taktfastan trommusláttinn sem óm-
aði um nágrennið. Aðrir stóðu hjá en
sýndu þögla samstöðu.
Þuríður Einarsdóttir var ein
þeirra sem létu óánægju sína í ljós
með því að berja með skeið í pott.
Hún hafði tekið þátt í mótmælunum
stóran hluta dags og var aftur mætt á
svæðið um kvöldið. „Það þarf að
skipta um ríkisstjórn og skipta um
leið um í öllum flokkum. Við þurfum
nýtt lýðveldi,“ sagði Þuríður og kvað
þessi mótmæli vera ansi sérstök.
„Maður vill ekki fara.“
Friðsamlegt að mestu
Mótmælin fóru friðsamlega fram
að mestu leyti þrátt fyrir lætin. Lög-
regla var fjölmenn og við öllu búin.
Borði hafði verið strengdur umhverf-
is húsið í upphafi en hann fékk fljótt
að fjúka, þótt afmarkað svæði væri
„Þurfum nýtt lýðveldi“
Mótmælendur á öllum aldri blésu í flautur og slógu í potta og pönnur Samstaða meðal þeirra sem
voru við Alþingishúsið um að ríkisstjórnin eigi að víkja Bál kveikt við viðbygginguna
Morgunblaðið/Kristinn
Bílageymslan Mótmælendur vöktuðu bílageymsluhúsið að utan og lögregla
að innan og glumdi í þegar flugeldar voru sprengdir við innganginn.
Morgunblaðið/Golli
Taktfast Þeir unnu sér aldrei hvíldar drengirnir sem sáu um trommuslátt-
inn. Jafnvel á ferðalögum þeirra umhverfis húsið var tromman sleginn.
Morgunblaðið/Golli
Í vörn Lögregla notaði skildi til að stugga við mótmælendum og loka betur
af þeim svæðum sem hún vildi ekki veita fólki aðgang að.
Gas, gas Piparúðanum var beitt er kom til stimpinga milli mótmælenda og óeirðalögreglumanna. Komið var upp aðstöðu
Morgunblaðið/Kristinn
Bálköstur Undir kvöldið kveiktu mótmælendur bálköst sem fékk að loga í friði þó að lögregla reyndi að hindra
að meiri eldmatur bærist á brennuna. Mótmælendum tókst engu að síður að finna trébretti og spýtur á eldinn.