Morgunblaðið - 21.01.2009, Qupperneq 13
HÖRÐUR Torfason, talsmaður sam-
takanna Raddir fólksins, segist ekki
geta fullyrt hvort mótmælin haldi
áfram í dag en aðgerðirnar í gær
hafi ekki verið skipulagðar. Tilgang-
urinn hafi verið að hafa áhrif á
stjórnvöld.
„Fólk var að bíða eftir þessum
degi,“ segir hann. „Fólk er orðið leitt
á að vera kurteist og halda ræður [...]
Ef stjórnvöld halda þessu striki þá
verður allt vitlaust. Það er voðalega
einfalt. Mótmælin eru að aukast um
allt land,“ segir Hörður og bætir við
að fólk sé reitt og það gangi ekki að
stjórnvöld kalli mótmælendur skríl.
jonpetur@mbl.is
„ÉG vil Geir út og alla ríkisstjórnina
og alla mafíuna sem er þarna inni.
Við gefumst ekki upp,“ sagði Sól-
mundur sem tekið hefur þátt í mót-
mælunum frá því þau hófust og var
enn að er blaðamaður fór um tíu-
leytið í gærkvöldi.
„Við ætlum að fá þennan óþjóða-
lýð í burtu, það dugar ekkert annað.
Þetta eru ekki okkar þingmenn,“
sagði Sólmundur og ljóst er að hon-
um misbýður verulega sú staða sem
nú er komin upp í málum þjóðfélags-
ins.
„Við gefumst ekki upp“
13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 2009
virt að mestu í byrjun. Fljótlega tóku
mótmælendur að dreifa sér umhverf-
is húsið og stilltu sér upp við alla inn-
ganga og létu í sér heyra, auk þess
sem glerveggir viðbyggingarinnar
voru barðir utan flötum lófum og ber-
um hnefum. Er mótmælin höfðu
staðið hátt á aðra klukkustund fór
spennan vaxandi og í Alþingisgarð-
inum urðu stympingar milli mótmæl-
enda, sem köstuðu súrmjólk og eggj-
um, og óeirðalögreglumanna, sem
beittu ítrekað piparúða. Eins virtist
hætta á að skærist í odda er lögreglu
tókst að koma hópi fólks sem var í Al-
þingishúsinu út um framdyr viðbygg-
ingarinnar um sjöleytið.
Skömmu síðar kveiktu mótmæl-
endur í bálkesti framan við viðbygg-
inguna sem logaði fram á nótt.
Eggjum, snjóboltum og hveiti var
vissulega kastað oftar um daginn og
báru lögregumenn þess margir skýr
merki að hafa fengið yfir sig slíkar
sendingar. Og þó að spennan í sam-
skiptum mótmælenda og lögreglu
virtist oft ætla að magnast upp vildu
aðrir bara ræða málin. „Þetta eru
þvílíkir glæpamenn. Fjármálaeftir-
litið, Seðlabankinn og þeir allir sam-
an,“ sagði eldri kona vopnuð pönnu
og sleif við einn lögreglumannanna
og var greinlega heitt í hamsi.
Morgunblaðið/Júlíus
við Dómkirkjuna þar sem fólk gat leitað sér aðhlynningar.
Morgunblaðið/Golli
Spenna Það voru ekki allir sáttir er lögregla handtók einn mótmælenda og
líkt og sjá má höfðu sumir lögreglumanna fengið yfir sig egg og hveiti.
Morgunblaðið/Heiddi
Hugað að sárum Lögregla beitti piparúða og töldu sjúkraflutningamenn að
um 30 einstaklingar hefðu fengið aðhlynningu vegna þessa.
Morgunblaðið/Júlíus
Vér mótmælum allir Hann var ekki hár í loftinu þessi ellefu ára drengur
sem lögreglumenn leiddu á brott úr mótmælunum um miðjan dag.
Morgunblaðið/Ómar
Viðbúnir Reynt var að verja glerið, rúða brotnaði þó í þinghúsinu sem og
glerdyr á viðbyggingu. Hér hefur mótmælandi verið snúinn niður af lögreglu.
Þorgrímur Gestsson
Hlaut að koma að þessu
Það hlaut að koma að þessu, hvort
sem einhver „vildi“ það eða ekki. Og
þá fannst mér kasta tólfunum þegar
forseti Alþingis sagði í öllum látunum á
þá leið að þeir þyrftu ekki að hlusta á
einhver mótmæli, þing og ríkisstjórn
væri að „sinna sínum störfum“. Betur
að svo væri. Ég var við Alþingishúsið
frá því fyrir klukkan eitt og fram yfir
fimm og get borið um að mótmæl-
endur hegðuðu sér eins vel og hægt
er …
Meira: hallormur.blog.is
Gísli Sváfnisson
Upp með lýðræðið
Ráðherrarnir verða nú að gera sér
grein fyrir því að það næst enginn
sáttmáli á milli þjóðar og valdsins í
landinu nema að leysa ,,gömlu stjórn-
ina“ upp og boða til kosninga. Stjórnin
verður að ganga fram fyrir skjöldu og
lýsa þeirri leið sem farin verður til þess
að byggja brýrnar til baka og hvenær
hver ,,brúarsmíði“ hefst og hvenær
stefnt er að „brúarvígslunni“ þannig að
lýðræði virki fyrir þjóðina.
Meira: grandvar.blog.is
Þór Þórunnarson
Við stóðum saman
Þið létuð finna fyrir ykkur í dag og í dag
er ég stoltur yfir því að vera Íslendingur -
það hef ég ekki verið lengi. Við getum
það! - Við getum komið þessari rík-
isstjórn frá. Við getum komið höndum
yfir fjárglæframenn og endurheimt virð-
ingu úti í heimi. Við stóðum saman í dag.
Við gáfumst ekki upp.
Áfram svona - við getum það!
Meira: toro.blog.is
Sigrún Jónsdóttir
Gargandi skríll!
Það virðist líka allt hafa verið á suðu-
punkti innan hússins, sem mótmælt er
við í dag. „Hann stendur hér og gargar,
eins og hann sé að tala á útifundi,“
sagði Geir Hilmar Haarde forsætisráð-
herra um Ögmund Jónasson alþing-
ismann úr ræðupúlti Alþingis í dag.
Þetta er semsagt álit forsætisráðherra
á útifundarmótmælendum. „Gargandi
skríll!“
Meira: amman.blog.is
María Kristjánsdóttir
Aum er sú stjórn
Aum er sú stjórn og stórar eru þær
skammir sem hún veit upp á sig - er tel-
ur sig þurfa að verjast með óeirða-
lögreglu og piparúða - fólki sem slær
trommur, potta og létt á glugga.
Glæsilegir þeir menn sem telja sig
berjast fyrir frelsi, jafnrétti og bræðra-
lagi og senda lögguna á bræður sína!
Meira: mariakr.blog.is
Baldvin Jónsson
Gáttaður á ráðherra
Ég var alveg gáttaður gjörsamlega að
heyra tilsvör forsætisráðherra á þingi í
dag. Hann er hreinlega móðgaður bara
yfir því að þing fái ekki að starfa í
friði??
Í friði fyrir hverjum?!? Geir lýsir því
drjúgur yfir, fullur af hroka og jólasteik,
að vantrauststillaga hafi verið felld á
þingi og að ríkisstjórnin starfi í umboði
þingsins. Hvaða heilhveitis bull er þetta
Geir??
Meira: baldvinj.blog.is
Sigurbjörg Eiríksdóttir
Hvað hugsa þeir?
Ég hef nú haft trú á að við ættum hugs-
andi stjórnmálamenn. En ég er farin að
efast. Vita þeir ekki að fyrir hvern einn af
þessum mótmælendum sitja hundr-
uðheima? Vita þeir ekki um reiðina sem
undir kraumar? Hvað vita þeir? Hvað
hugsa þeir? Hrista höfuð og hugsa:
Hvernig kemst ég í bílinn minn fína í bíla-
húsinu og heim!
Meira: heidarbaer.blog.is
BLOG.IS 20. janúar
BENJAMÍN var einn þeirra sem
börðu trommuhúðirnar af miklum
móð. „Ég má ekki hætta, þú verður
að tala við mig svona,“ sagði hann
og sló taktinn.
Hann er ekki sáttur við ríkis-
stjórnina. „Stjórnvöld eru búin að
klúðra málum alveg ótrúlega. Þetta
eru atvinnupólitíkusar sem eru
bara að halda sér og sínum flokki
við völd,“ sagði Benjamín.
Þeir félagar ætluðu heldur ekki
að gefast upp, húðirnar skyldu
barðar áfram. „Við hættum ekki
nema löggan handtaki okkar. Við
treystum því bara að einhver gefi
okkur eitthvað að borða og drekka
og þá getum við haldið áfram.“
Morgunblaðið/Kristinn
„Þetta eru at-
vinnupólitíkusar“ „Fólk var að bíða eftir þessum degi“
Morgunblaðið/Ómar
Fjölmörg myndskeið um
mótmælin við Alþingi.
mbl.is | Sjónvarp
Morgunblaðið/Kristinn