Morgunblaðið - 21.01.2009, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 2009
ÞJÁLFURUM tveggja mjaldra í sædýrasafn-
inu í borginni Harbin í Norðaustur-Kína
hefur tekist vel með tamninguna og geta
þeir fengið hvalina til að leika hinar ótrú-
legustu listir. Hér hafa mjaldrarnir myndað
hjarta og reka síðan þjálfurum sínum remb-
ingskoss. Mjaldurinn er tannhvalur, tarf-
urinn getur orðið 5,5 m langur en kýrin
rúmir fjórir. Hér við land sést hann aðeins
sem flækingur.
AP
Kossaflens í kafinu
Eftir Svein Sigurðsson
svs@mbl.is
STANISLAV Markelov, rússneskur lögfræð-
ingur og baráttumaður fyrir mannréttindum,
var myrtur í Moskvu í fyrradag. Ung blaða-
kona, sem var með honum í
för, varð einnig fyrir skot-
um og lést á sjúkrahúsi í
fyrrakvöld. Markelov hefur
á síðustu árum komið upp
um fjölda grimmdarverka
og mannréttindabrota rúss-
neskra hermanna í Tétsníu.
Vitni bera, að morðing-
inn, grímuklæddur maður,
hafði beðið Markelovs og
blaðakonunnar, Anastasíu
Baburova, er þau komu út af blaðamannafundi
en á honum mótmælti Markelov því, að Júrí
Búdanov, rússneskum liðsforingja, sem hafði
verið dæmdur í 10 ára fangelsi fyrir að kyrkja
Khedu Kúngajevu 18 ára, tétsneska stúlku,
skyldi hafa verið sleppt áður en fullnustu
dómsins var lokið. Ætlaði Markelov að áfrýja
þeirri ákvörðun.
Föður stúlkunnar hótað
Hafa baráttumenn fyrir mannréttindum í
Tétsníu og raunar einnig fulltrúar stjórnvalda
þar, sem sitja í skjóli Rússa, mótmælt því, að
Búdanov skyldi sleppt en faðir stúlkunnar
segir, að sér hafi borist nafnlausar líflátshót-
anir.
Rússneskir saksóknarar sögðu í gær, að
verið væri að kanna hvort Markelov hefði ver-
ið myrtur vegna starfa sinna í þágu mannrétt-
inda en blaðakonan, Babúrova, hefur skrifað
margar greinar um vaxandi kynþáttahyggju
og öfgafulla þjóðernisstefnu í Rússlandi fyrir
dagblaðið Novaja Gazeta. Við það starfaði
einnig blaðakonan Anna Politkovskaja, sem
var myrt 2006.
Ekki minna mál en morðið
á Önnu Politkovskaju
Ljúdmíla Alexejeva, forsvarsmaður Hels-
inki-samtakanna í Moskvu, sagði, að morðið á
Markelov hefði ekki minni pólitíska þýðingu
en morðið á Politkovskaju og mannréttinda-
samtök í Rússlandi og utan þess hafa skorað á
rússnesk yfirvöld að beita sér fyrir heiðarlegri
rannsókn. Hafa bandarísku mannréttinda-
samtökin Mannréttindavaktin, Human Rights
Watch, skorað á Evrópusambandið að þrýsta
á rússnesk stjórnvöld í þessu máli.
Ljúdmíla Alexejeva hjá Helsinki-samtök-
unum sagði, að morðið á Markelov væri mikil
„skömm fyrir Rússa“ en málið gegn Búdanov
var á sínum tíma sagt prófsteinn á það hvort
yfirvöld kærðu sig um að refsa fyrir mann-
réttindabrot í Tétsníu. Hann var hins vegar
strax hafinn til skýjanna af öfgafullum þjóð-
ernissinnum, sem kröfðust þess, að honum
yrði sleppt, og nú hefur það verið gert.
„Skömm fyrir Rússa“
Kunnur lögfræðingur og baráttumaður
fyrir mannréttindum og ung blaðakona myrt
eftir blaðamannafund í Moskvu
Í HNOTSKURN
» Margir hafa áhyggjur af og hafaorðið fyrir vonbrigðum með lýðræð-
isþróunina í Rússlandi og oft virðist sem
dómstólarnir séu verkfæri í höndum
stjórnvalda.
» Varla er hægt að tala lengur umóháða fjölmiðla í Rússlandi og marg-
ir blaðamenn hafa verið myrtir vegna
skrifa sinna. Frá því Vladímír Pútín
komst til valda árið 2000 hafa 22 blaða-
menn fallið í valinn.
Stanislav Markelov
Barack Hussein Obama sver eið sem forseti Bandaríkjanna
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
BARACK Obama hvatti í gær
Bandaríkjamenn til að horfast í augu
við efnahagskreppu sem græðgi
hefði valdið en einnig „þau sameigin-
legu mistök okkar að taka ekki erf-
iðar ákvarðanir“. Obama hét því að
grípa strax til „djarfra og snöggra“
aðgerða til að endurreisa efnahaginn
og skapa ný störf með opinberum
framkvæmdum til að styrkja innviði
samfélagsins. Hann sagði gildi eins
og heiðarleika og vinnusemi, hug-
rekki og sanngirni, umburðarlyndi
og forvitni, tryggð og ættjarðarást
vera gömul en þau væru sönn og
hefðu verið undirstaða framfara í
allri sögu þjóðarinnar.
„Við þurfum að hverfa aftur til
þessara sanninda. Við þurfum nýtt
skeið ábyrgðarkenndar – að sérhver
Bandaríkjamaður viðurkenni að
hann eigi skyldur að rækja við sjálf-
an sig, þjóð sína og heiminn, skyldur
sem við sættum okkur ekki við með
semingi heldur tökum á okkur með
ánægju, í þeirri staðföstu trú að ekk-
ert veiti jafnmikla andlega full-
nægju, ekkert geri jafnmikið fyrir
skapgerðina og að okkur sé öllum
fengið erfitt verkefni.“
Um utanríkis- og varnarmál sagði
Obama að þjóðin ætti í stríði við „víð-
tækt net ofbeldis og haturs“ en
Bandaríkin myndu að lokum sigra
hryðjuverkamennina. Hann vísaði
því hins vegar á bug að velja yrði
milli „öryggis okkar og hugsjóna“,
forfeður þjóðarinnar hefðu ákveðið
að tryggja mannréttindi í stjórnar-
skránni og þeim mætti ekki fórna
eftir hentugleikum. Hann bætti við
að hann vildi við þetta tækifæri segja
öllum þjóðum og ríkisstjórnum, „frá
glæstustu höfuðborgum til litla
þorpsins þar sem faðir minn fæddist,
að Bandaríkjamenn eru vinir sér-
hverrar þjóðar og sérhvers karls,
konu og barns sem leitar að framtíð
friðar og virðuleika og við erum
reiðubúin að taka á ný forystuna“.
Ekki eingöngu skriðdrekar
og eldflaugar
Forsetinn sagði að hafinn yrði
brottflutningur herja frá Írak en
ekki með neinu ábyrgðarleysi og
lögð yrði áhersla á að koma á friði í
Afganistan. Hann minnti á að fyrri
kynslóðir hefðu sigrað fasima og
kommúnisma, ekki einvörðungu með
eldflaugum og skriðdrekum heldur
traustum bandalögum og staðfestu
sem ekki hefði brugðist.
„Þær skildu að afl okkar getur
ekki eitt út af fyrir sig varið okkur og
það veitir okkur ekki leyfi til að gera
allt sem okkur þóknast. Þær vissu að
afl okkar vex ef notum það varlega
og öryggi okkar byggist á réttlæti
málstaðarins, þunganum sem for-
dæmi okkar felur í sér, auðmýktinni
og aganum sem gerir okkur hóf-
stillt.“
Forsetinn fjallaði um efnahags-
vandann. „Fólk hefur misst húsin
sín, störf hafa tapast, fyrirtækjum
verið lokað. Heilbrigðiskerfið okkar
er of dýrt, skólarnir okkar bregðast
of mörgum og á hverjum degi sjáum
við frekari vísbendingar um það
hvernig orkunotkun okkar eflir
fjendur okkar og ógnar plánetunni.“
Staðnaðar og úreltar
stjórnmáladeilur fortíðar
Framkvæmdamenn og þeir sem
hefðu tekið áhættu hefðu leitt
Bandaríkjamenn „um langan og
hrjóstrugan stíg til hagsældar og
frelsis“. Hann sagði að nú yrði haldið
áfram á þeirri braut og geta þjóð-
arinnar væri í engu minni en fyrr.
„Við verðum að byrja núna í dag,
verðum að taka okkur tak, hrista
upp í okkur sjálfum og byrja að end-
urskapa Bandaríkin.“ Staðnaðar
stjórnmáladeilur fortíðarinnar sem
hefðu heltekið menn dygðu ekki
lengur.
„Við spyrjum ekki lengur hvort
ríkisvaldið sé of mikið eða lítið held-
ur spyrjum við hvort það virki –
hvort það hjálpi fjölskyldum að finna
sér vinnu með viðunandi launum,
umönnun sem þær ráði við að borga,
tryggi þeim sæmandi elli þegar
starfsævinni er lokið.“ Hann sagði
einnig að ekki væri spurt hvort
markaðsskipulagið væri gott eða
slæmt. Ekkert jafnaðist á við það til
að framleiða auð og breiða út frelsi
„en kreppan hefur minnt okkur á að
séu ekki hafðar á því góðar gætur
getur markaðsskipulagið orðið
hömlulaust – að þjóð getur ekki til
lengdar notið hagsældar ef aðeins
hinum ríku er hampað“.
„Afl okkar vex ef við notum þa
Obama sagði að þjóðin yrði að hverfa aftur til gamalla gilda
Ekki mætti fórna mannréttindum á altari öryggisins
Gæta yrði þess að markaðsskipulagið yrði ekki hömlulaust
Eiður Barack Obama sver eið sem 44. forsetinn. Forseti hæstaréttar, John Roberts,