Morgunblaðið - 21.01.2009, Side 25

Morgunblaðið - 21.01.2009, Side 25
Minningar 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 2009 getað hugsað mér betri tengda- pabba né afa fyrir börnin mín. Ég þakka þér fyrir það og þann tíma sem við áttum saman, það var gam- an að kynnast þér. Við Axel og börn- in söknum þín sárlega, en þú skilur eftir svo margar góðar minningar sem við munum halda í heiðri. Elsku tengdapabbi, hvíldu í friði. Berglind Kristinsdóttir. Elsku afi, mikið söknum við þín. Þú varst afinn okkar sem varst alltaf að hlaupa eða úti í náttúrunni. Við eigum margar góðar minning- ar um þig og munum geyma þær í hjarta okkar. Sumarið 2007 þegar við fórum með ykkur ömmu norður í bústað í viku og keyrðum Kjöl aðra leiðina og Sprengisand hina það var mjög skemmtileg ferð. Einnig allar ferðirnar í bústaðinn þinn í Úthlíð, þar var mikið brallað og byggt sam- an og kíkt í minkagildrurnar þínar. Nú ætlum við að reyna að veiða minkinn fyrir þig svo fuglarnir þínir komist á kreik. Fel þú, Guð, í faðminn þinn, fúslega hann afa minn. Ljáðu honum ljósið bjarta, lofaðu hann af öllu hjarta. Leggðu yfir hann blessun þína, berðu honum kveðju mína. (L.E.K.) Elsku afi, takk fyrir allt. Þínir afastrákar, Sveinn Andri og Birgir Þór. Í örfáum orðum langar okkur að minnast bróður okkar. Hann kenndi sér meins sl. haust og var allur þann 12. jan. sl. Hann lést á einum feg- ursta degi vetrarins og við vitum hvað hann hugsaði þann dag, að nú væri gaman að fara í fjallgöngu en áður en dagur rann var hann látinn. Birgir var mikið náttúrubarn, allt- af glaður og lifði lífinu lifandi, hafði yndi af barnabörnum og öllu því sem fjölskyldan tók sér fyrir hendur. Hann var 9 sumur í sveit á Smyrlabjörgum í Suðursveit og þar leið Birgi vel, þær voru endalausar sögurnar sem við systurnar hlust- uðum á þegar hann kom úr sveitinni á haustin. Mörgum stundum eyddu þau Stenna og Biggi í sumarbústað sín- um, sem þau byggðu frá grunni, bjuggu í tjaldi fyrir austan þegar þau unnu í bústaðnum. Birgir og Steinunn voru mjög samrýnd hjón og í bústaðnum kom fjölskyldan oft saman, Birgir gjarnan við grillið og svo var setið á pallinum og horft yfir fallega sveit, þetta voru yndislegar stundir. Við systurnar þökkum bróður okkar samfylgdina sem einkenndist af heiðarleika og væntumþykju. Það er mikill söknuður að manni eins og honum. Guð blessi hann og veiti eftirlif- andi ættingjum styrk. Edda og Kristín. Birgir var mikil fyrirmynd okkar, vina Axels sonar hans. Ég man aldr- ei eftir honum öðruvísi en útiteknum og hressum, annaðhvort á leiðinni í einhvers konar útivist og hreyfingu eða að koma af fjalli. Alltaf í góðu formi og miklaði ekkert fyrir sér. Síðast þegar við fjölskyldan hittum hann, vorum við í kvöldgöngu á Esj- unni síðastliðið sumar. Birgir að koma skokkandi niður, eins og alltaf útitekinn og kátur og við á leiðinni upp. Við sögðum strákunum okkar frá því hver hann væri þessi spræki maður og þeir muna vel eftir honum, þrátt fyrir aðeins þennan eina fund. „Eftirminnilegur“ er orð sem lýs- ir Birgi vel. Hann var öðruvísi en flestir, duglegri, harðari af sér, hlýrri og meira lifandi. Það er ein- staklega óréttlátt þegar svona mað- ur er tekinn alltof fljótt, en hann lifði lífinu lifandi og framkvæmdi meira en margur annar. Það veit enginn hversu miklum tíma honum er út- hlutað hér á jörðu, og þess vegna er svo mikilvægt að nota vel þann tíma sem við höfum. Það vitum við að Birgir gerði. Við sendum Axeli og allri fjöl- skyldunni okkar dýpstu samúðar- kveðjur, Birgir var einstakur og verður alltaf ein af okkar fyrirmynd- um. Guðjón, Vala og synir, Brasilíu. Vinur okkar Birgir Axelsson hef- ur nú lagt upp í sína síðustu ferð, eftir skammvinn en erfið veikindi. Hann barðist hetjulega og kvaddi með reisn. Hann var drengur góður, lundin létt og traustur vinur. Upp- haf nærri fimmtíu ára vináttu hófst þannig að við kynntumst Bigga og Stennu gegnum vina- og frændfólk, ásamt fleira góðu fólki. Við konurn- ar stofnuðum saumaklúbb sem varð fljótlega að hjónaklúbbi. Þar ríkti gleðin, þrátt fyrir að húsakynnin væru oft þröng á þessum árum, góð- ar veitingar, söngur og gítarspil í hávegum haft. Einnig var farið í ferðalög, tjaldað og landið skoðað. Árin liðu og seinna varð það frí- múrarareglan sem batt þrjá reglu- bræður sterkum böndum. Þá tóku við systrakvöld, sumarbústaðaferðir og ógleymanleg samvera. Auðvitað var lífið ekki alltaf ein skemmtun á þessum árum. Fólk var að koma yfir sig húsnæði og Biggi, eins og fleiri, vann tvöfalda vinnu í mörg ár. Öllu skyldi fórnað til að búa fjölskyldunni gott heimili. Drengirnir þeirra þrír, Einar, Bjartmar og Axel, uxu úr grasi og voru gleðigjafar foreldra sinna, og seinna prýddu góðar tengdadætur og elskuleg barnabörn hópinn. Biggi og Stenna voru ung að árum þegar þau létu þann draum rætast að eign- ast sumarbústað. Voru þau með þeim fyrstu, sem reistu bústað í landi Úthlíðar í Biskupstungum. Með mikilli elju og dugnaði byggði þau glæsilegt hús, að mestu fyrir eigin rammleik, þar áttu þau sinn griðastað og þar var hann kóngur í ríki sínu. Hann var mikill útivist- armaður, fjallgöngumaður, lang- hlaupari, náttúruunnandi og veiði- maður. Biggi hafði klifið öll fjöll í nágrenni sumarbústaðarins og mörg fleiri bæði hérlendis og erlendis. Hann gekk til rjúpna á haustin og lagði náttúrulegar gildrur fyrir mink, svo eitthvað sé talið. Hann hafði komið sér upp dálitlu náttúru- gripasafni á heimilinu í Hraunbæn- um, þar sem egg, steinar og aðrar gjafir náttúrunnar fylltu hillur og skápa. Sæll er sá maður sem tekur á móti því sem Guð gefur honum hlut- deild í. Þannig kunni vinur okkar að meta það sem máli skiptir og greina hismið frá kjarnanum. Nú er komið að leiðarlokum, skarð er fyrir skildi, Biggi er sá fyrsti úr gamla vina- hópnum sem kveður. Hópurinn lítur til baka með söknuði og þakklæti fyrir vináttuna og allar góðu stund- irnar. Við biðjum góðan Guð að styrkja elsku Stennu okkar og fjöl- skylduna. Við kveðjum vin okkar með virðingu og þökk og þessum orðum: Töfrandi fegurð fjallanna kallar mann til fjallgöngu og gleður hjartað. Ragna og Guðmar. Við Birgir kynntumst gegnum eiginkonur okkar, sem voru æsku- vinkonur, og þróuðust kynni okkar fljótlega upp í vináttu sem hefur enst í hálfa öld og aldrei borið skugga á. Birgir hafði marga góða kosti til að bera. Hann var vinur vina sinna, traustur og áreiðanlegur, mikill úti- vistarmaður og náttúruunnandi, ein- staklega hraustur, þolgóður og vel á sig kominn líkamlega. Ég ætlaði því vart að trúa því þegar Birgir vinur minn hringdi í okkur hjónin síðla hausts og sagðist hafa greinst með krabbamein á háu stigi. Það var ekki nema örstutt síðan hann hafði þreytt maraþonhlaup á götum Reykjavíkur og blés vart úr nös þegar við hittumst fyrir tilviljun á Lækjargötunni að hlaupi loknu. Þar gat að líta stæltan mann og það gat varla hvarflað að neinum að sjúk- dómur, þótt illvígur væri, gæti lagt slíkan mann að velli svo snögglega. Mestan sinn starfsaldur vann Birgir hjá Áfengisverslun ríkisins, sem afgreiðslumaður og síðar for- stöðumaður útsölustaða bæði í Reykjavík og Keflavík. Til þess var tekið hversu röskur hann var, ljúfur í viðmóti og heill í starfi, enda naut hann fyllsta trausts yfirmanna sinna. Fjölmargir borgarbúar hafa gegnum árin verslað við Birgi og var andlit hans því vel kunnugt ótal viðskiptavinum hans, þótt þeir þekktu hann ekki nánar. Mér er enn í minni þegar Birgir gekk í Frímúr- araregluna á Íslandi fyrir 35 árum að margir spurðu mig á fundum hver hann væri þessi nýi félagi, þeir könnuðust svo vel við hann en kæmu honum ekki alveg fyrir sig. Síðastliðin 15 ár hef ég starfað mikið erlendis en á þeim tíma urðu samfundir okkar því miður strjálli. Það var okkur hjónum því mikil ánægja þegar Birgir og Stenna komu í heimsókn til okkar í Nami- bíu haustið 1996. Við nutum sam- verunnar til fullnustu, ferðuðumst um þvera og endilanga Namibíu, sáum ljón og fíla, gíraffa og sebra- dýr ásamt ótalmörgum dýrategund- um í Etosha-þjóðgarðinum; strúta og antilópur í Kalahari-eyðimörk- inni, allt í sínu eðlilega umhverfi. Við skoðuðum mörg undur í náttúru landsins, m.a. stærstu selalátur í heimi á norðvesturströnd landsins, gistum í eyðimerkurtjaldbúðum og skoðuðum stærstu sandöldu í heimi, svo eitthvað sé nefnt. Ferð sem þessi og ómældar ánægjustundir gegnum árin með þessum yndislega samstilltu vinahjónum okkar, gleymast ekki frekar en minningin um góðan dreng sem við kveðjum í dag. Blessuð sé minning hans. Kæra Stenna, við Lóla vottum þér, drengjunum ykkar þremur ásamt fjölskyldum, innilegustu sam- úð okkar. Grétar H. Óskarsson. Kær vinur og félagi, Birgir Ax- elsson, er fallinn frá, langt fyrir ald- ur fram. Við kynntumst honum þeg- ar þau hjónin Stenna og Biggi reistu sumarhúsið sitt 1980 í Úthlíð við Skyggnisveg, sama ár og við. Eftir það varð til kær vinskapur sem hef- ur verið okkur ómetanlegur á næst- um síðustu þremur áratugum. Við fylgdumst hvort með öðru. Dreng- irnir þeirra uxu úr grasi, kvæntust og barnabörnin bættust við. Biggi var mjög skemmtilegur maður, mikið náttúrubarn eins og allir vita sem hann þekktu. Mikill hlaupa- og göngugarpur og skytta svo eitthvað sé nefnt. Hann gekk ekki bara á Bjarnarfellið og til baka eins og okkur hinum finnst nóg, heldur yfir og aftur til baka og svo kannski á Miðfellið í bakaleiðinni. Þetta lýsir því vel hversu vel á sig kominn hann var. Við áttum svo margar góðar stundir í sumarbú- stöðunum okkar sem við erum þakklát fyrir. Alltaf var gaman að hitta Bigga. Hann var gamansamur og hafði ákveðnar skoðanir á öllu. Við mun- um sakna þessara samverustunda. Svo kom reiðarslagið. Hann greind- ist með illvígan sjúkdóm sem dró hann til dauða á þremur mánuðum. Við kveðjum þig vinur með miklum söknuði og biðjum góðan guð að styrkja Stennu, syni, tengdadætur og afabörnin í þeirra miklu sorg en missirinn er sárastur fyrir þau. Ásmundur og Guðbjörg. Við kveðjum í dag góðan dreng og traustan vin. Við kynntumst Birgi þegar við byggðum okkur bústað austur í Úthlíð í Biskupstungum fyrir 30 árum. Og margar góðar minningar eigum við frá þeim tíma um góðar stundir sem við áttum með þeim hjónum. Ekki datt okkur í hug að hann myndi kveðja svona snögglega. Hann var rétt að byrja að njóta þess að vera hættur að vinna. Hann var mikill útivistar- og göngugarpur og ætlaði sér eflaust að klífa nokkur fjöll en er nú eflaust að klífa sinn hæsta tind. Við eigum eftir að sakna hans og við sendum Steinunni og allri fjölskyldunni inni- legar samúðarkveðjur. Megi hinn hæsti styrkja þau og styðja, Nína og Jón.  Fleiri minningargreinar um Birgi Axelsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur hlýhug, vináttu og samúð við andlát og útför móður minnar, tengdamóður, ömmu, dóttur, systur og mágkonu, HÓLMFRÍÐAR HELGADÓTTUR, Auðbrekku, Hörgárbyggð. Sérstakar þakkir sendum við Friðriki Yngvasyni yfirlækni og öllu starfsfólki á lyflækningadeild Sjúkrahússins á Akureyri. Guð geymi ykkur öll. Bernharð Arnarson, Þórdís Þórisdóttir, Bergvin Þórir Bernharðsson, Anna Ágústa Bernharðsdóttir, Ísak Óli Bernharðsson, Karin Thelma Bernharðsdóttir, Sigríður Ketilsdóttir, Helgi Sigurjónsson, Smári Helgason, Anna Jóhannesdóttir, Ketill Helgason, Anna Gunnbjörnsdóttir, Sigurjón Helgason, Sólrún Sveinbergsdóttir, Níels Helgason, Sveinbjörg Helgadóttir, Jónína S. Helgadóttir, Kristján Gunnþórsson, Guðjón Þór Helgason, Erla Halls, Regína Helgadóttir, Gunnhildur Helgadóttir og fjölskyldur. ✝ Hjartans eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR JÓNSSON, Selvogsgötu 6, Hafnarfirði, lést á krabbameinsdeild Landspítalans aðfaranótt laugardagsins 17. janúar. Fyrir hönd aðstandenda, Nanna Hálfdánardóttir. ✝ Ástkær faðir okkar, SIGURJÓN HÓLM SIGURJÓNSSON fv. pípulagningarmeistari, síðast til heimilis á Skjólbraut 1A, Kópavogi, lést á Landspítalanum í Fossvogi fimmtudaginn 15. janúar. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 23. janúar kl. 13.00. Viðar og Gunnhildur Sigurjónsbörn, tengdabörn, afabörn, langafabörn og langalangafabörn. ✝ Elskuleg frænka mín, SÓLVEIG GEIRSDÓTTIR frá Sléttabóli, lést á hjúkrunarheimilinu Klausturhólum laugar- daginn 17. janúar. Útför hennar fer fram frá Prestbakkakirkju á Síðu laugardaginn 24. janúar kl. 14.00. Guðríður Erla Halldórsdóttir. ✝ Sonur minn, HAFLIÐI JÓNSSON, Höfðavegi 32, Húsavík, andaðist á hjúkrunarheimilinu Hvammi, Húsavík laugardaginn 18. janúar og verður jarðsunginn í kyrrþey frá Húsavíkurkirkju laugardaginn 24. janúar kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, Jón Sigurðsson frá Arnarvatni. ✝ Faðir minn og tengdafaðir, GUÐMUNDUR HJARTARSON, lést á Hrafnistu, Hafnarfirði fimmtudaginn 15. janúar. Útför hans fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 26. janúar kl. 13.00. Hjörtur Guðmundsson, Auður Sigurbjörnsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.