Morgunblaðið - 21.01.2009, Síða 31
brúðkaupið þeirra Höllu og Didda í
Vallhólmann og voru saman að
spjalla og skoða gjafir þeirra. Hún
var svo stolt af börnum þeirra Jóns
og maður fann virkilega hvað þau
öll voru henni mikils virði. Alltaf
þegar maður hitti Auði var hún
glæsileg að sjá og kát og þessi rosa-
legi vilji sem maður fann svo mikið
fyrir. Barðist hún hetjulega við
sjúkdóminn og ekki varð maður
mikið var við veikindin hennar því
hún leit alltaf glæsilega út og kvart-
aði aldrei, hún bar sig alltaf svo vel
alveg til síðustu stundar. Því segj-
um við að hún Auður var „stór“
kona.
Megi góður Guð gefa að nú sé öll-
um þrautum hennar Auðar lokið og
gleðin ein ríki þar sem hún er nú.
Elsku Diddi minn, Margrét, Jón,
Kristmundur eldri og aðrir aðstand-
endur, við vottum ykkur okkar
dýpstu samúð yfir svo miklum
missi. Megi guð veita ykkur styrk í
sorginni.
Þótt ég sé látinn, harmið mig ekki með
tárum, hugsið ekki um dauðann með
harmi eða ótta. Ég er svo nærri, að hvert
eitt tár ykkar snertir mig og kvelur, þótt
látinn mig haldið.
En þegar þið hlæið og syngið með glöðum
hug, lyftist sál mín upp í mót til ljóssins.
Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífið
gefur og ég, þótt látinn sé, tek þátt í gleði
ykkar yfir lífinu.
(Kahlil Gibran.)
Halldóra Jóna Sölvadóttir
og Guðbjörg Sveinfríður
Sveinbjörnsdóttir.
Það var stór hópur sem mætti í
Kennaraskóla Íslands haustið 1969,
en það var í síðasta sinn sem ný-
nemar voru innritaðir í „Gamla
Kennó“.
Bekkjardeildirnar voru hvorki
færri eða fleiri en níu og í hverri
deild á milli tuttugu og þrjátíu nem-
endur. Okkar bekkur var H-bekkur.
Við komum alls staðar að af landinu
og fáir þekktust áður en við lögðum
upp í fjögurra ára leiðangur saman.
Auður Kristmundsdóttir var ein af
þessum hópi. Lagleg ung kona með
stór augu og sítt hár. Hún féll vel
inn í þennan hóp, sem var frekar
sundurleitur, alla vega til að byrja
með.
Við kynntumst fljótt og eignuð-
umst vini innan hópsins, misjafn-
lega nána, eins og gengur.
Fljótt kom í ljós að hin hægláta
Auður lét ekkert eiga inni hjá sér.
Ekki er grunlaust um að margir
bekkjarfélagarnir muni skjót og
hnyttin tilsvör Auðar við ýmsum
uppákomum í bekknum.
Það var alltaf gaman að vera með
Auði, opin, hress og skemmtileg í
vinahópnum. Við eigum öll eftir að
minnast þeirrar góðu samveru-
stundar þegar við hittumst í maí á
síðasta ári.
Þá var Auður veik og í erfiðri
meðferð, en mætti til að hitta okk-
ur, tilhöfð og flott, brosandi og
hress, hrókur alls fagnaðar. Aðdáun
okkar á þessari kraftmiklu og dug-
legu konu náði hámarki þetta kvöld.
Við minnumst kærrar bekkjar-
systur okkar með virðingu og þakk-
læti fyrir að hafa fengið að kynnast
henni.
Fjölskyldu Auðar sendum við
okkar innilegustu samúðarkveðjur.
F.h. bekkjarfélaga úr H-bekkn-
um í KÍ,
Guðrún Kristín Jóhannsdóttir.
Á leið okkar í gegnum lífið söfn-
um við minningaperlum. Auður
Kristmundsdóttir er ein af þessum
perlum sem við munum varðveita í
minningunni.
Hún var alin upp við gamla Lauf-
ásveginn og í Laugarásnum í
Reykjavík, og eftir hefðbundna
skólagöngu settist hún í Kennara-
skólann þaðan sem hún útskrifaðist
árið 1973. Næstu árin kenndi hún
síðan við Fellaskóla í Reykjavík og
síðar við Varmárskóla í Mosfells-
sveit.
Árið 1977 fluttu Auður og Magn-
ús G. Kjartansson, fyrri maður
hennar, í Mosfellssveitina, þegar
sveitin var lítið og notalegt sam-
félag sundurskorið af fellum, örfoka
melum og þjóðvegakerfinu. Í litlu
byggðarlagi reyndi oft meira á sam-
heldni íbúanna en í stóru, og öflugt
og gott félagslíf skipti sköpum um
líðan manna í slíku samfélagi. Auð-
ur átti sinn þátt í að auðga mann-
lífið í sveitinni með störfum sínum
fyrir Kvenfélag Lágafellssóknar þar
sem hún sat í stjórn, og var formað-
ur félagsins um skeið.
Eftir fráfall Magnúsar flutti hún
„suður“ til Reykjavíkur og sneri sér
þá að rekstri ferðaþjónustufyrir-
tækis sem hún rak ásamt seinni
manni sínum, Jóni Knútssyni.
Kynni okkar Auðar hófust árið
1981, þegar ég réðst til starfa í Mos-
fellssveitinni og hún hafði umsjón
með skólasafni Varmárskóla auk
þess að kenna við skólann. Fljótlega
hófst samvinna okkar, sem leiddi til
einlægrar vináttu við hana og fjöl-
skyldu hennar. Vináttu sem dafnaði
jafnt í stormi og stillum.
Auður var atkvæðamikil kona.
Dagfarslega var hún ljúf í viðmóti,
viðkvæm og blíð, og fyrir vikið leið
manni vel í návist hennar. Um leið
var hún föst fyrir, hörkudugleg og
fylgin sér. Ég er þakklátur fyrir að
hafa átt hana að vini, fengið að
starfa með henni að góðum mál-
efnum og njóta samvista við hana.
Sú sára staðreynd að upp úr vináttu
okkar slitnaði síðustu árin sem hún
lifði fær í engu spillt þeim hlýju til-
finningum sem fylgja minningunum
um Auði og munu lifa með mér alla
tíð.
Kæra vinkona, það er ekki langt
þetta korter sem við köllum líf.
Jón Sævar Baldvinsson.
Minningar 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 2009
Atvinnuauglýsingar
Sölufólk velkomið
Miðlun viðskiptatengsl býður gott sölufólk vel-
komið. Skemmtilegar úthringingar fyrir traust
íslensk fyrirtæki. Kvöld og helgar. Vinna að vild
í boði. Reynsla er kostur.
Hafið samband: andri@midlun.is, s.580 8030.
Raðauglýsingar
Nauðungarsala
Uppboð
Eftirtaldir lausafjármunir verða seldir nauðungarsölu fimmtu-
daginn 29. janúar nk. kl. 11:00 að Efstubraut 2 á Blönduósi í
Austur-Húnavatnssýslu:
Snyrtilína 8 stæði með ljósum, vinnuborð úr ryðfríu stáli með
rúlluheftum og rennu, borð með rúllukeflum úr ryðfríu stáli, borð
með kari, lyftari JL nr. 3423Yale 1997 2,50 tonn, færiband (stigaband),
Baader 189 flökunarvél ný yfirfarin ásamt hnífum, Baader 421 Hau-
savél, Baader 51 roðflettivél 1978 nr. 10-4943-0051, færiband (reima-
band), Ishilda tölvuvog lítil, tölvuvog frá Marel serialnr. A031125 gaff-
lavog, stálvaskur á hjólum 120 x 60 cm, stálvaskur með tveimur
hólfum ásamt borði.
Blönduós 20. janúar 2009
Sýslumaðurinn á Blönduósi,
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Breiðamörk 23, fnr. 221-0112, Hveragerði, þingl. eig. Gísli Kristbjörn
Björnsson, Þorkell Guðjónsson og Ágúst Ólafsson, gerðarbeiðandi
Íbúðalánasjóður, mánudaginn 26. janúar 2009 kl. 10:05.
Breiðamörk 23, fnr. 221-0114, Hveragerði, þingl. eig. Gísli Kristbjörn
Björnsson, Þorkell Guðjónsson og Ágúst Ólafsson, gerðarbeiðandi
Íbúðalánasjóður, mánudaginn 26. janúar 2009 kl. 10:10.
Breiðamörk 23, fnr. 227-1870, Hveragerði, þingl. eig. Gísli Kristbjörn
Björnsson, Þorkell Guðjónsson og Ágúst Ólafsson, gerðarbeiðandi
Íbúðalánasjóður, mánudaginn 26. janúar 2009 kl. 10:00.
Gljúfurárholt land-10, fnr. 199504, Ölfus, þingl. eig. Gljúfurbyggð ehf.,
gerðarbeiðandi Sveitarfélagið Ölfus, mánudaginn 26. janúar 2009
kl. 10:55.
Gljúfurárholt land-2, fnr. 199479, Ölfus, þingl. eig. Gljúfurbyggð ehf.,
gerðarbeiðandi Sveitarfélagið Ölfus, mánudaginn 26. janúar 2009
kl. 10:45.
Gljúfurárholt land-9, fnr. 199503, Ölfus, þingl. eig. Gljúfurbyggð ehf.,
gerðarbeiðandi Sveitarfélagið Ölfus, mánudaginn 26. janúar 2009
kl. 10:50.
Holtagljúfur 2, fnr. 201615, Ölfus, þingl. eig. Gljúfurbyggð ehf.,
gerðarbeiðendur Kaupþing banki hf. og Sveitarfélagið Ölfus,
mánudaginn 26. janúar 2009 kl. 10:40.
Klettagljúfur 8, fnr. 229-8855, Ölfus, þingl. eig. Gljúfurbyggð ehf.,
gerðarbeiðendur Lá, lögfræðiþjónusta ehf., Sjóvá-Almennar trygg-
ingar hf. og Sveitarfélagið Ölfus, mánudaginn 26. janúar 2009
kl. 10:30.
Úthlíð 2, Mosar 204988, fnr. 204988, Bláskógabyggð, þingl. eig. Holta-
byggð ehf., gerðarbeiðendur Byko hf. og Landsbanki Íslands hf.,
aðalstöðv., mánudaginn 26. janúar 2009 kl. 11:50.
Sýslumaðurinn á Selfossi,
20. janúar 2009.
Ólafur Helgi Kjartansson.
Félagslíf
HELGAFELL 6009012119 l V/V
I.O.O.F. 9 189012181/2
I.O.O.F. 7. 1891217½ Þb.
I.O.O.F. 181891218MTW.Þb. Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
HELGAFELL 6009012119 lll
Smáauglýsingar 569 1100
Fatnaður
Allar fatabreytingar
Fljót og góð
afgreiðsla
Skraddarinn á Horninu
Árni Gærdbo, klæðskerameistari
Lindargötu 38
S. 552 5540 og 861 4380.
FATABREYTINGAR
Heilsa
Frelsi frá streitu og kvíða
hugarfarsbreyting til betra lífs
með EFT og sjálfsdáleiðslu.
Viðar Aðalsteinsson
dáleiðslufræðingur,
sérfræðingur í EFT,
sími 694 5494,
vidar@theta.is, www.theta.is
Heimilistæki
Hornbaðkar með nuddi til sölu.
Hornbaðkar 1,35x1,35 með nuddi til
sölu, í góðu lagi og lítur þokkalega út.
Selst ódýrt.
Upplýsingar í síma 894 3701
Amerískur ísskápur til sölu.
GE tvöfaldur hvítur með frystihólfi,
klakavél og köldu vatni. Mjög vel
með farinn og lítur vel út. Gott
staðgreiðsluverð.
Upplýsingar í síma 894 3701.
Húsnæði í boði
Tveggja herbergja íbúð með
húsgögnum og húsbúnaði til leigu í
105 Rvk. Leiga 90 þúsund með hita,
rafmagni og fl. Sími 692 9267.
Breiðholt - Bakkasel - til leigu
3 herbergja 92 fm kj. í raðhúsi. Laus
1. feb. Leigan er 105 þús. + rafmagn
á mánuði. Uppl. í s. 691-4242.
Björt - nýmáluð - 3ja herb. - suður-
svalir, nýmáluð, nýtt eldh. m/uppþvv.,
íssk., örbylgjuofni og annar eldh.bún-
aður getur fylgt. Íb. nýtist sem 2 stór
svefnherb. og stofa. Kr. 120.000 á
mán. Hiti + húsfélag innif. Þvottavél
fylgir. Uppl. Vilborg s. 849-3069.
Atvinnuhúsnæði
Vörulager og skrifstofur
Til leigu eitt eða fleiri skrifstofu-
herbergi ásamt vörulager með inn-
keyrsludyrum í 104 Reykjavík.
Upplýsingar í síma 896 9629.
Sumarhús
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi.
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda, sýningarhús á staðnum. Einnig
til sölu lóðir á Flúðum.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Námskeið
Upledger höfuðbeina- og spjald-
hryggjarmeðferð
1. áfanginn í Upledger höfuðbeina-
og spjaldhryggjarmeðferð verður
haldinn í Reykjavík 7.-10. febrúar
2009. Uppl. og skráning á
www.upledger.is eða í s: 466-3090.
Til sölu
Frímerkjasafn til sölu
Kóngsríkið! Afsláttur frá verðlista(fa-
cit)ca.70%. Upplýsingar í síma
5448181 eða 5572574.
Verslun
Rýmingarsala, 50-90% afsláttur
Dekurbúðin
Rýmingarsala, 50-90% afsláttur,
Dekurbúðin Laugavegi 67, gegnt GK.
Afsláttur af sloppum, koddum, sæng-
um, handklæðum og fl. Komdu og
gerðu frábær kaup.
Málarar
Málningarvinna
Þaulvanur málari ætlar að bæta við
sig verkefnum. Inni og úti. Vönduð og
öguð vinnubrögð. Sanngjarnt verð.
Uppl. í síma 897 2318.
Málningarvinna
Getum bætt við okkur inni- og
útiverkefnum. Vönduð vinnubrögð og
góð umgengni. Tilboð eða tímavinna.
Lítið Mál ehf. S. 896-5758.
Ýmislegt
Útsala
Útsala
Síðustu dagar
Meyjarnar,
Austurveri
sími 553 3305
NÝKOMIÐ OG ROSALEGA
FALLEGT
Teg. 42026 - vel fylltur, stækkar um
númer í BC skálum á kr. 3.850,- buxur
fást í stíl á kr. 1.950,-
Teg. 42027 - mjúkur og flottur í C,D,E
skálum á kr. 3.850,- sömu buxurnar í
stíl á kr. .1950,-
Misty, Laugavegi 178,
sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10-18, lau. 10 - 14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
Bátar
Óska eftir að kaupa góðan bát
Má vera Sómi eða sambærilegur.
Einnig kemur til greina góður
skemmtibátur. Upplýsingar:
omarsig@simnet.is
Bílar
Peugeot 306 1998 til sölu, ekinn
140 þ. Vel með farinn, gott lakk, þarf
að skipta um kúplingu, verð 60 þús.
Upplýsingar í síma 822 8324.
Bílar óskast
Óska eftir nýlegum bíl
Óska eftir nýlegum, lítið eknum bíl.
Audi A4 árgerð 2003 upp í og stað-
greiðsla á milli. Ólafur 660-4027.
jobbagunn@hotmail.com
Bílaþjónusta
Ökukennsla
Bilaskoli.is
Bókleg námskeið - ökukennsla
- akstursmat - kennsla fatlaðra
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '06.
8637493/5572493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza '08.
6960042/5666442.
Snorri Bjarnason
BMW 116i ´07.
8921451/5574975.
Visa/Euro.
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat '08.
8924449/5572940.
Húsviðhald
Stigahúsateppi
Suðurlandsbraut 10, 108 Reykjavík.
Sími 533-5800. www.strond.is
Eruð þið leið á baðherberginu?
Breytum, bætum og flísaleggjum.
Upplýsingar í síma 899 9825.
Fleiri minningargreinar um Auð-
ur Kristmundsdóttir bíða birtingar
og munu birtast í blaðinu næstu
daga.