Morgunblaðið - 21.01.2009, Side 36
36 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 2009
Fólk
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
SNORRI Ásmundsson myndlistarmaður hefur
tilkynnt framboð til formanns Sjálfstæðisflokks-
ins á komandi landsþingi flokksins sem hefst 29.
janúar næstkomandi.
„Það er rétt. Ég skráði mig í flokkinn árið
2002 og ætlaði þá á móti Birni Bjarnasyni í
borgarstjórnarkosningunum. Það var hins veg-
ar ekkert hlustað á mig og ég datt á „dular-
fullan“ hátt úr flokknum, fannst ekki á skrá. Ég
tek því þannig að ég hafi verið rekinn. Ég stofn-
aði þá Vinstri hægri snú.“
Snorri skráði sig á nýjan leik í flokkinn fyrir
viku og segir upplitið allt annað á flokks-
mönnum nú. „Ég vil nánast ganga svo langt að
segja að mér hafi verið tekið fagnandi. Margir
sjálfstæðismenn eru mjög forvitnir og greini-
lega orðnir hundleiðir á Geir. Það eru breyt-
ingar í lofti, ég er mun velkomnari nú en fyrir
nokkrum árum.“
Snorri segist ekki gera sér almennilega grein
fyrir því á þessari stundu hvernig þetta muni
fara allt saman.
„En eitt er víst að ýmislegt getur gerst á
svona tímum. Ég lít á það sem skyldu mína að
láta reyna á þetta. Undirrótin er sú auðvitað að
manni er hreinlega ofboðið og maður vill koma
skikki á hlutina. Segjum að ég verði forsætis-
ráðherra, þá yrði það t.a.m. mitt fyrsta verk að
ráða Robert Wade sem fjármálaráðherra …“
Snorri kemur Sjálfstæðisflokknum til bjargar
Nýjasta breiðskífa Benna
Hemm Hemm, Murta St. Calunga,
kemur út í Japan 21. janúar. Út-
gáfufyrirtækið Afterhours gefur
plötuna út í samstarfi við íslenska
útgáfufyrirtækið Kimi Records.
Að því er segir í fréttatilkynn-
ingu hefur mikil vinna verið lögð í
textaþýðingar og greinargóðar
skýringar sem fylgja með hljóm-
plötunni. Þar fari ekki á milli mála
að í Norður-Atlantshafi fari fram
hvalveiðar, allt sé í sómanum í Afg-
anistan og allt sé auðvelt í Ísrael,
svo ekki sé talað um ævintýri Jör-
undar hundadagakonungs. Einnig
er japönskum áheyrendum gefinn
kostur á að kynnast murtunni, sem
lendir fyrir misskilning í slagtogi
við draug frá El Paso.
Þá segir ennfremur í tilkynningu
að Kimi Records sem stendur að út-
gáfunni með Afterhours stígi með
þessu sitt fyrsta skref út á alþjóð-
legan hljómplötumarkað.
Plata Benna Hemm
Hemm til Japans
Tónlistarkonan Kristín Björk
Kristjánsdóttir, sem í daglegu tali
gengur undir nafninu Kira Kira, er
á faraldsfæti um þessar mundir, en
tónleikaferð hennar um Evrópu
hófst hinn 14. janúar. Ferðalagið
stendur til 7. febrúar og mun Krist-
ín spila á hvorki fleiri né færri en
tuttugu og einum tónleikum á þeim
tíma, sem gerir næstum eina tón-
leika á dag að meðaltali. Þau lönd
sem Kristín mun heiðra með nær-
veru sinni eru Þýskaland, Austur-
ríki, Sviss, Ítalía, Frakkland,
Belgía, Holland og Danmörk.
Í sumar sendi Kristín frá sér plöt-
una Our Map to the Monster
Olympics og kom hún út samtímis í
Japan og á Íslandi, en fyrsta upplag
plötunnar seldist upp á skömmum
tíma í Japan. Í haust fór hún svo í
tónleikaferð og spilaði í Kína, Jap-
an, Rússlandi og Finnlandi.
Áhugasamir geta lesið blogg
Kristínar frá Evróputúrnum á My-
space-síðu hennar.
Kira Kira spilar í fjöl-
mörgum Evrópulöndum
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÞETTA leggst
rosalega vel í mig
og það er mjög
spennandi að fá
að vinna með
svona leikstjóra,“
segir Helgi
Björnsson, en
eins og greint var
frá í gær fer hann
með hlutverk í
nýjustu stórmynd finnsk/bandaríska
leikstjórans Rennys Harlins, Mann-
erheim. „Ég leik listaverkasala á
frönsku rívíerunni. Þetta er að vísu
ekkert svakalega stórt hlutverk, en
ég verð allavega í einum eða tveimur
senum og fæ nokkrar línur,“ segir
Helgi sem talar ensku í myndinni, en
þarf þó að búa til franskan hreim.
Þótt hlutverkið sé vissulega gott
segist Helgi ekki líta á það sem neitt
risastórt tækifæri. „Það er bara
gaman að fá að taka þátt í þessu, en
maður veit auðvitað ekkert hvað ger-
ist, maður kynnist náttúrlega hinum
og þessum. En ég lít ekki þannig á
það að ég sé að fara að opna ein-
hverjar sérstakar dyr.“
Gröf Hitlers
Það er annars meira en nóg að
gera hjá Helga um þessar mundir
því auk Mannerheim leikur hann í
einni íranskri og einni ungverskri
mynd á næstunni. Sú íranska heitir
Hitler’s Grave og fjallar um ungan
sveitastrák. „Afi hans hvíslar því að
honum á dánarbeðnum að hann verði
að fara til Berlínar að leita að gröf
Hitlers. Hann gerir það, og fer að
spyrja til vegar í Berlín þar sem fólk
verður mjög hissa, enda gröf Hitlers
ekki til svo vitað sé,“ segir Helgi, en
leikstjóri myndarinnar heitir Da-
ryush Shokof. „Hann er mjög góður
vinur Roberts DeNiros, og þeir
vinna meðal annars að Tribeca-
kvikmyndahátíðinni. Svo fer mjög
frægur ítalskur leikari með aðal-
hlutverkið, hann heitir Adriano Gi-
annini og lék m.a. á móti Madonnu í
Swept Away.“ Hitler’s Grave verður
tekin í Berlín í apríl og fer Helgi með
hlutverk lögreglustjóra í henni.
Spilar á þorrablóti
Ungverska myndin heitir Slave og
er í dramatískari kantinum. „Hún
fjallar um konu með fortíð sem giftist
ríkum viðskiptamanni. Þegar þau
skilja reynir hún að taka börnin með
sér, en hann notar afl sitt til að rústa
lífi hennar með sínum meðulum,“
segir Helgi sem fer með hlutverk
veitingamanns í myndinni, en tökur
hefjast strax í næstu viku.
Aðspurður segir Helgi að það sé
hreinlega tilviljun hversu mikið sé að
gera hjá honum í leiklistinni um
þessar mundir. „Þetta er nú bara til-
fallandi. Lífið sér um mann; ef maður
hefur ekki of miklar áhyggjur af því
þá kemur alltaf eitthvað á snærið,“
segir Helgi sem býr í Berlín þar sem
hann rekur hið fornfræga Admi-
ralspalast-leikhús.
Ekki er hægt að sleppa Helga án
þess að spyrja hann hvað sé að frétta
af hljómsveitinni hans, SSSól. „Ég er
nú einmitt að koma heim um helgina
til að spila á þorrablóti og í afmæl-
isveislu. Það er fínt að nota tækifær-
ið, það borgar kostnaðinn við heim-
komuna. Þá getur maður skotist
heim og hitt fjölskylduna og svona.“
Helgi í þremur stórmyndum
Helgi Björns leikur í finnskri, ungverskri og íranskri mynd á næstu mánuðum
Leikur fyrir góðan vin Roberts DeNiros Hefur þó tíma til að sinna SSSól
Morgunblaðið/Ómar
Að slá í gegn? Helgi Björnsson hefur nóg að gera, en hér er hann ásamt eiginkonu sinni, Vilborgu Halldórsdóttur.
Adriano Giannini
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
ÞORLEIFUR flutti með fjölskyldu sinni til Stafangurs
í Noregi stuttu fyrir jól. Hann er rétt liðlega átján ára
og hefur getið sér nokkuð góðs orðs fyrir munnhörpu-
leik. Gítarleikurinn steinliggur þá einnig fyrir honum.
Þorleifur hugðist sækja sér frekari menntun í gítar-
leik úti í Noregi en sú umsókn endaði með því að hann
var ráðinn sem kennari við skólann!
Skólinn kallast Fagervik Musikskole og er í eigu
hljóðfærabúðakeðjunnar 4Sound, sem er ansi um-
svifamikil í Evrópu og víðar reyndar.
„Ég sótti um í tveimur skólum, komst inn í einn
þeirra en ákvað að tékka líka á Fagervik,“ útskýrir Þor-
leifur símleiðis frá Noregi.
„Ég tók smá blúsdjamm með kennaranum og hann
lýsti því yfir að ég væri eiginlega of góður. Hann náði
í annan kennara sem varð alveg heillaður líka. Þeir
bentu mér eindregið á að tala við eigandann því að
það vantaði kennara. Hann tók ljúfmannlega á móti
mér. Ég kenni á kvöldin og notast við ensku, enda ný-
kominn út. Og reyndar er þetta í fyrsta skipti sem ég
fer út fyrir landsteinana. Eigandinn er svo að hjálpa
mér að komast í nám í djassgítarleik hjá einkakenn-
ara.“
Þorleifur segir eðlilega engan veginn hafa átt von á
þessu.
„Nú er ég að vinna að því að koma mér í band og er
farinn að djamma með fólki í miðbænum. Svo á ég
ábyggilega eftir að kynnast einhverjum í skólanum.
Þetta lítur allt saman vel út!“
„Þú ert bara allt of góður"
Morgunblaðið/Einar Falur
Þorleifur Tekur norsku músíksenuna með trompi ... ábyggilega.
Þorleifur Gaukur Davíðsson ætlaði að læra gítarleik
úti í Noregi en var þess í stað skipaður kennari
Helgi hefur leikið í fjölda kvik-
mynda á síðustu 25 árum. Á
meðal þeirra helstu eru At-
ómstöðin (1984), Skytturnar
(1987), Foxtrot (1988), Sódóma
Reykjavík (1992), Ungfrúin
góða og húsið (1999), Óska-
börn þjóðarinnar (2000), Villi-
ljós (2001), No Such Thing
(2001), Strákarnir okkar
(2005), Beowulf & Grendel
(2005), Köld slóð (2006) og
Reykjavík Whale Watching
Massacre (2009).
Flottur ferill
Ofboðið Geymir þessi maður lausnina á
kröggum Sjálfstæðisflokksins?