Morgunblaðið - 21.01.2009, Qupperneq 44
MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 21. DAGUR ÁRSINS 2009
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 250 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1700
SKOÐANIR»
Staksteinar: Hálfkveðnar vísur
Forystugreinar: Andóf við Alþingi |
Nýr tónn frá Bandaríkjunum
Pistill: Skríllinn er þeir
Ljósvakinn: Obama og Alþingi
4)$,5&) / + ,
67889:;
&<=:8;>?&@A>6
B9>96967889:;
6C>&BB:D>9
>7:&BB:D>9
&E>&BB:D>9
&3;&&> F:9>B;
G9@9>&B<G=>
&6:
=3:9
.=H98?=>?;-3;H&B;@<937?I:C>?
J J
J
J J
J ?)
J
J J
J
J
J
J J
J .B #2 &
J J
J
J
J
J
J Heitast 2°C | Kaldast -3°C
Austan 8-15 m/s og
dálítil slydda með köfl-
um s- og v-lands en
annars stöku él. Hiti
nálægt frostmarki. »10
Gyðingurinn Irena
Némirovsky er nýtt
nafn í bókmennta-
sögunni áratugum
eftir dauða sinn í
Auschwitz. »38
BÓKMENNTIR»
Irena
Némirovsky
FÓLK»
Britney Spears syngur
dónó texta. »37
Daníel Bjarnason
stjórnar Sinfóníunni
á Myrkum mús-
íkdögum og Vík-
ingur Heiðar spilar
verk hans. »34
TÓNLIST»
Myrkir
músíkdagar
BÓKMENNTIR»
Tim og Jong berjast
gegn óréttlæti. »41
TÓNLIST»
Hjörvar var með útgáfu-
tónleika í Iðnó. »39
Menning
VEÐUR»
1. Svæði við þinghúsið rýmt
2. Allt á suðupunkti við Alþingi
3. Piparúða beitt við þinghúsið
4. Beittu kylfum á mótmælendur
Íslenska krónan styrktist um 0,5%
»MEST LESIÐ Á mbl.is
Iðnó
Systur
Skoðanir
fólksins
’Vírushreinsa þarf allt atvinnulífiðsem er nú gegnsýrt af rang-hugmyndum fyrirgreiðslupólitíkusa.Fyrirtækin fengju nú fyrirgreiðslu al-vörubanka á lágum vöxtum og án verð-
tryggingar og gætu stundað sín við-
skipti án fyrirgreiðslupólitíkusa. » 22
SIGURÐUR SIGURÐSSON
’Ríkisstjórn okkar sá engan veginnað nóg væri komið. Hún leit undanog naut glæsileikans, upphafning-arinnar og glansins eins og svo mörgokkar. Ríkisstjórnin varð svo sjálfstæð
að hún sá ekki nauðsyn þess að stjórna
landinu. » 22
PERCY B. STEFÁNSSON
’Það er ekki góð landkynning aðfara um með ófriði og ofbeldi, þóað reiði og örvænting sé mikil í krepp-unni. Reiði og ofbeldi eru fréttamatur,fjölmiðlar eru forvitnir um það. Viljum
við kynna landið okkar fyrir ferðamönn-
um með ófriði og öfgum? » 22
ATLI VIÐAR ENGILBERTSSON
’Þegar við horfum á bankahrunið,kreppuna og verðbólguna í heild erverðtrygging og hækkun lána ekki orsökheldur afleiðing. Grunnurinn er spillt ogilla undirbúin einkavæðing. » 23
BALDUR ÁGÚSTSSON
’Hér áður fyrr var sagt að kreppanværi eins og vindurinn, það vissienginn hvaðan hún kæmi og hvert húnfæri. Á Íslandi er ljóst af hverju kreppankom. » 23
SKÚLI ALEXANDERSSON
’Ísland er auðugt land hvað varðarnáttúru og mannauð. Við eigumvel menntað ungt fólk og náttúra Ís-lands er einstök og ómenguð. Það máekki selja landið undir álver og virkjanir
heldur á að nýta auðlindirnar á annan
hátt. » 23
GUNNUR INGA EINARSDÓTTIR
VALSMENN glíma við fjárhagsvanda af völdum krepp-
unnar eins og önnur knattspyrnufélög, enda þótt þeir
hafi náð að semja við marga nýja leikmenn í vetur, eftir
að kreppan skall á. „Það er samið á allt öðrum nótum
núna heldur en áður. Það eru allir meðvitaðir um stöð-
una og raunsæir hvað sé mögulegt og hvað ekki. Við
eins og öll önnur félög endurskoðuðum alla okkar
samninga við leikmenn og lagfærðum þá eftir bestu
getu en engu að síður verður reksturinn þungur,“
sagði Ótthar Edvardsson framkvæmdastjóri knatt-
spyrnudeildar Vals við Morgunblaðið. „Öll umræða um
að kreppan bíti ekki á Val er röng,“ sagði Ótthar enn-
fremur. | Íþróttir
Kreppan bítur á
Val eins og aðra
Morgunblaðið/G.Rúnar
Sviptingar Valsmenn hafa séð á bak mörgum leik-
mönnum undanfarið og fengið marga í staðinn.
Eftir Andrés Skúlason
ÁRIÐ 2008 fæddust ellefu nýir
Djúpavogsbúar en í hreppnum búa
innan við 500 manns. Þegar hafa
átta konur á staðnum staðfest að
þær beri barn undir belti og þar sem
árið er aðeins nýhafið er tími til að
bæta um betur.
Sökum þessa barnaláns er leik-
skólinn á Djúpavogi nær fullbók-
aður. Aðeins nokkur ár eru síðan
leikskólinn var reistur og töldu þá
nokkrir hann vera of stóran.
Fækkun vegna góðæris
Í sveitarfélaginu öllu fækkaði íbú-
um um 12% á árunum 1997-2007 og
má það að einhverju leyti skýra með
góðærinu sem laðaði fólk úr litlum
bæjarfélögum. Í þéttbýlinu á Djúpa-
vogi fækkaði fólki um 5,9% á sama
árabili en mun meiri fækkun varð í
flestum öðrum þéttbýliskjörnum á
landinu af sambærilegri stærð og
Djúpivogur. Í fyrra varð töluverður
viðsnúningur og fjölgaði þá mest á
Djúpavogi af öllum sveitarfélögum á
Austurlandi en nokkur fækkun varð
á flestum öðrum svæðum í fjórð-
ungnum sama ár.
Íbúar á Djúpavogi segja að ekki
séu um samantekin ráð að ræða en
segja megi að ákveðin samstaða sé
um að fjölga í samfélaginu og að auki
séu þeir allir mikið fyrir börn og vilji
leggja sitt af mörkum til samfélags-
ins í þessum efnum.
Á laugardögum mæta foreldrar,
sem og verðandi foreldrar, í leikja-
tíma í Íþróttamiðstöðina á Djúpa-
vogi og leika við börnin. Þessir tímar
eru vel sóttir og nýta foreldrarnir
þessa samverustund gjarnan einnig
til að spjalla hverjir við aðra og bera
saman bækur sínar. Á eftir skellir
hópurinn sér gjarnan í sundlaugina
og slakar á saman. | 17
Blómstrandi
barnalán á
Djúpavogi
Íbúum Djúpavogs fjölgaði mest allra
sveitarfélaga á Austurlandi sl. ár
Nýir íbúar Það er líf og fjör
í barnabænum Djúpavogi.
Í HNOTSKURN
»Frá árinu 2006 hefurnokkur fjöldi ungs fjöl-
skyldufólks fjárfest í íbúðar-
húsnæði á staðnum.
»Nýbyggingar á íbúðar-húsnæði á Djúpavogi hafa
litið dagsins ljós eftir nokkur
mögur ár.
Morgunblaðið/Andrés Skúlason
HELGI Björnsson, leikari og tónlist-
armaður, leikur í þremur stórmynd-
um á næstu mánuðum. Hann mun
m.a. fara með hlutverk listaverka-
sala á frönsku rívíerunni í nýjustu
mynd Rennys Harlins. „Þetta er að
vísu ekkert svakalega stórt hlut-
verk, en ég verð allavega í einum
eða tveimur senum og fæ nokkrar
línur,“ segir Helgi sem lítur ekki á
hlutverkið sem stórt tækifæri. Hann
fer einnig með hlutverk í mynd góð-
vinar Roberts De Niros. | 36
Helgi í stór-
myndum
„ÁÐUR en við skreyttum jólatréð okkar fylltum við rúmið hans af jólakúl-
um og lögðum hann svo í þær, og hrúguðum aðeins yfir hann,“ segir Guð-
jón Jónsson, sigurvegari í jólaljósmyndakeppni mbl.is og Canon, um sig-
urmyndina sem hann tók af syni sínum, Baltasar Loga. „Hann er fjögurra
mánaða núna, en hann var þriggja mánaða þegar ég tók myndina,“ segir
Guðjón sem nefndi myndina „Baltasar í jólakúlulandi“. Guðjón hlaut glæsi-
leg verðlaun að launum; myndavél af bestu gerð. | 41
Sigraði í jólaljósmyndakeppni mbl.is
Baltasar í jólakúlulandi
Ljósmynd/Guðjón Jónsson
UMRÆÐAN»
Sveitarfélögin í Evrópusamstarfinu
Hreppapólitík iðnaðarráðuneytisins
Undir pilsfaldi stjórnvalda
St. Jósepsspítali