Morgunblaðið - 01.02.2009, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 01.02.2009, Blaðsíða 10
10 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2009 Bændaferðir 200 9 www.baendaferdir.is Sp ör eh f. - R ag nh ei ðu r I. Á gú st sd ót ti r s: 570 2790 A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R Því má segja að stund hefndarinnar hafi runnið upp hjá Ingibjörgu Sólrúnu Gísla- dóttur á mánudagsmorgun, þegar hún fékk hugljómun og ákvað að gera tillögu um að Jóhanna Sigurðardóttir yrði í forsæti fyrir minnihlutastjórn Samfylkingar og Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, með stuðningi Framsóknarflokks. Ég segi stund hefnd- arinnar, vegna þess að all- ir þeir sem á annað borð hafa reynt að fylgjast með því hvað hefur gerst á stjórnarheimilinu undanfarna mánuði, vita hvers konar höfuð- verk Jóhanna hefur kallað fram hjá formönn- um stjórnarflokkanna. Jóhanna er þeim eig- inleikum gædd að rekast afar illa í flokki og líta gjarnan þannig á að þau mál sem hún er ábyrg fyrir séu mun þýðingarmeiri en þau sem heyra undir kollega hennar í rík- isstjórn. Í báðum þingflokkum og meðal ráðherra í báðum stjórnarflokkunum hefur hún gjarnan verið nefnd þriðji ríkisstjórnarflokkurinn, því hún hefur verið tilbúin að blessa niðurskurð, aðhalds- aðgerðir, frestun og þess háttar hjá öðrum, en aldrei í eigin málaflokki. Sennilega hefur Ingibjörg Sólrún, sem augljóslega er á útleið úr pólitík, talið þetta vera nokkuð sæta hefnd gagnvart félögum sínum í Samfylkingunni, sem þyrptust ekki beinlínis að baki henni, í stuðningi, festu og samhygð, þegar hún átti við erfið veikindi að stríða, heldur kepptust um að svíkja hana og reka rýtinginn í bakið á henni. Fremstur í flokki var varaformaður hennar, Ágúst Ólafur Ágústsson, sem nú hefur með snautlegum hætti sagt skilið við stjórnmálin, eiginlega án þess að hafa nokkurn tíma byrjað. Kannski leiðist Ingibjörgu Sólrúnu það ekki held- ur að Jóhanna muni nú bera pólitíska ábyrgð á allri hinni nýju ríkisstjórn, ekki bara sínum málaflokki. Loks er mér til efs að Ingibjörgu Sólrúnu leiðist nokkuð tilhugsunin um að vinstri græn með Stein- grím J. Sigfússon í fararbroddi þurfi að lúta for- sætisráðherravaldi Jóhönnu um einhverra mánaða skeið. agnes@mbl.is Í JÚNÍ 1994 birtist viðtal sem ég átti við Jóhönnu Sigurðardóttur, fráfarandi félagsmálaráðherra, hér í sunnudags- blaði Morgunblaðsins undir fyrirsögn- inni Stríð Jóhönnu. Viðtalið var uppgjör Jóhönnu við Jón Baldvin Hannibalsson, þáverandi formann Alþýðuflokksins, og þar gaf hún í skyn að hún léti ekki við afsögn sitja og útilokaði ekki sérframboð. Lokaspurningin var svohljóðandi: „Er Jóhanna Sigurðardóttir kannski farin að trúa spaugsyrðum Jóns Bald- vins frá því fyrir nokkrum árum, í þá veru að hún sé „heilög Jóhanna“? Svar Jóhönnu var svohljóðandi: „Ég er ekkert heilög Jóhanna. Ég bara reyni að vinna af trú- mennsku í því starfi, sem mér hefur verið treyst fyrir. Svo einfalt er það. Það er enginn ómissandi í pólitík, en ég get ekki starfað í pólitík, með hendur mínar reyrðar fyrir aftan bak …“ Í ljósi atburða liðna viku finnst mér svolítið skondið að rifja upp þetta viðtal, því augljóslega kom tími Jóhönnu, eins og hún hafði boðað nokkr- um dögum fyrir viðtalið og hefur staðið með hrein- um ágætum allar götur síðan, þótt hennar pólitíski ferill hafi sennilega risið hæst á undanförnum dög- um. Jóhanna hefur ávallt verið hálfgert vandræða- barn í íslenskum stjórnmálum; hún hefur ekki sætt sig við flokksaga; hefur eiginlega alltaf verið ákveð- ið eyland í pólitík, þótt hún hafi lengi verið í Al- þýðuflokki, stofnaði svo Þjóðvaka og gekk loks til liðs við Samfylkinguna, hvar hún hefur setið og notið mikils trausts. Hún hefur verið sá stjórn- málamaður sem hefur notið langmests trausts ís- lenskra kjósenda undanfarna mánuði og misseri. Svo mikils trausts að Ingibjörg Sólrún Gísladótt- ir hefur ekki einu sinni dirfst að rifja upp þann samning sem gerður var við Jóhönnu, þegar hún og Geir H. Haarde mynduðu fráfarandi ríkisstjórn á Þingvöllum í maí 2007; samningurinn gekk út á það að Jóhanna sæti sem ráðherra fram á mitt þetta kjörtímabil, þ.e. til vors 2009 og þá viki hún fyrir annarri konu í Samfylkingunni, Katrínu Júlíus- dóttur. Segja má að almenningur hafi þannig fyrir margt löngu tekið völdin af formanni Samfylkingarinnar, því hún hefði aldrei þorað að skipta heilagri Jó- hönnu út. Agnes segir … Hefnd? Kannski leiðist Ingibjörgu Sólrúnu það ekki heldur að Jóhanna muni nú bera pólitíska ábyrgð á allri hinni nýju ríkisstjórn. Stund hefndarinnar Jóhanna Sigurðardóttir Boðað var til sigurhátíðar á Aust-urvelli í gær. Hinn vikulegi fundur átti að þessu sinni að vera haldinn til að fagna. En hverju átti að fagna? Vissulega er ríkisstjórnin fallin, en eins og Egill Helgason bendir á á bloggi er enn margt í ólagi.     Mér er alvegfyrirmunað að skilja hví Raddir fólksins boða til sig- urhátíðar í dag,“ skrifar Egill. „Lítið hefur gerst nema að ein ríkisstjórn er fallin. Önnur hef- ur ekki einu sinni tekið við. Nánast á hverjum degi berast fréttir af nýjum hneykslismálum í banka- og fjármálakerfinu. Maður sér ekki að sé mikið verið að taka á fjárglæframönnunum sem settu Ís- land á hausinn. Atvinnuleysi eykst og kjörin versna. Er virkilega til- efni til að fagna sigri?“     Mótmælin á Austurvelli hafa ver-ið vettvangur til að láta í ljósi óánægju með íslenska ráðamenn úr bæði stjórnmálum og viðskiptalífi og setja fram kröfu um betra og heilbrigðara samfélag.     Frægt var þegar George Bushflutti ræðu um borð í flugmóð- urskipi undir stórum borða, sem á var letrað: „Markmiðinu náð“. Borgarastyrjöldin í Írak var hins vegar rétt að byrja.     Á Íslandi ríkir ekki borgarastyrj-öld, en hins vegar er varla hægt að segja að hafist hafi verið handa við að leysa verkefnið, hvort sem þar er átt við kreppuna í efnahags- málum eða nauðsynlegar umbætur á stjórnkerfinu.     Hin raunverulega sigurhátíð munþurfa að bíða í einhvern tíma enn. Egill Helgason Ótímabær sigurhátíð                            ! " #$    %&'  ( )                   ! !      * (! +  ,- . / 0     + -         " "        # $           12       1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (        # $    %$$     ! !         :  3'45;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@).? !  "!    !"" ! ! !     !  !    !    !  !  !                              *$BCD               !" !! !#  ! #$  #    ! ! %  &  '&   "    !"! ! ! *! $$ B *!   & ' (  '   )* +) <2  <!  <2  <!  <2  & (  , $-.)/  C8- E                <    87   (         !! !)  # !#   !" * $ !!    +     ! *   6  2      ,       - #$   #$  "  !   !  #  !! !)  # ! !" .       !" B  /       #    ! '    #  # )  #  !"!  %  &  '0   " !!# ! !)   ! !" 0% )11 )* 2 )*), $3 !  ! ! Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ STAKSTEINAR VEÐUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.