Morgunblaðið - 01.02.2009, Blaðsíða 49
Auðlesið efni 49
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2009
Geir H. Haarde
forsætis-ráð-herra tilkynnti í
byrjun vikunnar að
stjórnar-sam-starfi
Sjálfstæðis-flokks og
Sam-fylkingar væri lokið.
Geir sagði að nú hefði það
gerst, sem hann óttaðist í
haust eftir banka-hrunið, að
stjórnar-kreppa myndi
bætast ofan á fjármála- og
gjaldeyris-kreppuna.
Sagðist Geir telja að
Sam-fylkingin hefði ekki haft
þrek til að ljúka þessu
stjórnar-sam-starfi með
eðlilegum hætti.
Geir þakkaði Ingibjörgu
Sólrúnu Gísladóttur,
for-manni
Sam-fylkingarinnar, fyrir
sam-starfið. Sagði Geir
jafn-framt að þau Ingibjörg
Sólrún hefðu lokið
stjórnar-sam-starfinu með
kossi eins og þau hófu það
fyrir rúmu einu og hálfu ári.
Forseti Íslands, Ólafur
Ragnar Grímsson, boðaði
Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur, for-mann
Sam-fylkingarinnar, og
Steingrím J. Sigfússon,
for-mann Vinstri grænna, á
sinn fund síðast-liðinn
þriðjudag til að fela þeim
stjórnar-myndun.
Form-legar við-ræður
flokkanna hafa síðan staðið
yfir síðari hluta vikunnar.
Óvissa um nýja ríkis-stjórn
Morgunblaðið/RAX
Steingrímur J. Sigfússon og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.
Rit-höfundarnir Einar
Kárason og Þorvaldur
Kristinsson hlutu Íslensku
bók-mennta-verðlaunin. Einar
fyrir Ofsa, skáld-sögu sem
gerist á tímum Sturlunga, og
Þorvaldur fyrir ævi-sögu
Lárusar Pálssonar leikara.
„Mér finnst eins og það
verði meira og meira
áberandi hvað 13. öldin talar
til fólks,“ segir Einar þegar
hann er spurður um
sögu-tímann. Hann vinnur út
frá Sturlungu en tekur efnið
persónu-legum tökum.
„Ég held ég hafi ekki
áhuga á ævi ein-staklinga
sem slíkri, nema því aðeins
að spurt sé um sam-bandið
milli um-hverfis og
ein-staklings,“ sagði
Þorvaldur þegar hann var
spurður hvort bókin um
Lárus væri ævi-saga,
menningar-saga eða saga
leik-listar á Íslandi.
Íslensku bók-mennta--
verð-launin af-hent
orgunblaðið/Árni Sæberg
Þorvaldur Kristinsson og Einar Kárason.
Verð-bólga mælist nú 18,6%
og hefur ekki verið jafn mikil á
Íslandi síðan í apríl 1990, eða
í tæp nítján ár.
Undan-farna þrjá mánuði
hefur vísi-tala neyslu-verðs
hækkað um 3,9%.
Sam-kvæmt upplýsingum frá
Hagstofunni er þó enn of
snemmt að meta hvort farið
er að hægja á verð-bólgunni,
enda hafi út-sölur sín á-hrif á
út-reikninga.
Sé litið til þeirra tólf flokka
sem vísi-tala neyslu-verðs
byggist á sést að allir nema
tveir hafa hækkað. Er annars
vegar um að ræða föt og skó,
sem lækka um 8,2% milli
mánaða og hins vegar
hús-gögn, heimilis-búnað o.fl.
sem lækka um 0,19% og eiga
vetrar-útsölurnar væntan-lega
sinn þátt í þeirri lækkun.
Matur og drykkjar-vörur
hækka hins vegar um 1,81%
milli mánaða, áfengi og tóbak
um 5,94%, heilsa um 2,59%,
húsnæði, hiti og rafmagn um
0,95%, hótel og
veitinga-staðir 1,82%, ferðir
og flutningar um 0,12% og
tómstundir og menning um
0,64%.
Þrátt fyrir að verðbólgan
hafi aukist um 18,6% á tólf
mánaða tíma-bili þá hefur
verð á mat- og drykkjarvöru
hækkað langt um-fram það.
Nemur hækkunin, að því er
Hagstofan bendir á vef sínum
á, 30% frá því í janúar 2008.
Athygli vekur að verð á
flug-far-gjöldum til út-landa
lækkaði um 14,5% milli
mánaða.
Verð-bólga
og hækkanir
Einar K. Guðfinnsson, fyrr-verandi
sjávar-útvegs-ráðherra, hefur leyft veiðar
á hrefnu og langreyði næstu fimm árin.
Búast má við því að heimilt verði að
veiða allt að 150 langreyðar og 100 til
400 hrefnur.
Hval-veiðimenn hafa verið að búa sig
undir vertíð í vor og segjast hafa beðið
eftir niður-stöðu ráð-herra. Kristján
Loftsson, forstjóri Hvals hf., segir að
verið sé að lagfæra hval-stöðina í
Hvalfirði. Hrefnu-veiðimenn ætla að
vinna saman að veiðum og vinnslu í eitt
stórt og gott fyrirtæki, segir Gunnar
Bergmann Jónsson, framkvæmda-stjóri
Hrefnu-veiði-manna ehf.
Morgunblaðið/Ómar
Hval-veiðar
leyfðar
Hermann Hreiðarsson verður
um kyrrt hjá Portsmouth.
Hermann óskaði eftir því að
fara frá Portsmouth en
knatt-spyrnu-stjórinn Tony
Adams kom í veg fyrir það og
gerði Hermanni það ljóst að
hann vildi ekki missa hann.
Jóhann Berg
til Hollands
Knatt-spyrnu-maðurinn
Jóhann Berg Guðmundsson
hefur skrifað undir þriggja og
hálfs árs samning við
hollenska úrvals-deildar-liðið
AZ Alkmaar.
Rakel samdi
við Brøndby
Rakel Hönnudóttir,
lands-liðskona í knatt-spyrnu
hefur tekið
til-boði
dönsku
meistaranna í
Brøndby um
að leika með
þeim til
vorsins. Rakel
verður þar í
láni þar til
Íslands-mótið hefst í maí en
kemur þá heim og leikur með
Þór/KA í sumar.
Hermann áfram
hjá Portsmouth
Rakel
Hönnudóttir
Hermann
Hreiðarsson
Jóhann Berg
Guðmundsson