Morgunblaðið - 01.02.2009, Blaðsíða 50
50 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2009
Sudoku
Frumstig
6
9 1 4 7 5 3
7 3 5 1
3 9 2
4 8 3 2
1 6 5
8 9 4 3
4 3 7 2 1 8
9
6 5 4 3
3 2 6
9 3 6
5 1 2 8
1 8 2 3 9 6
3 2 8 7
7 5 9
7 1 3
4 9 1 7
7 8 5 1 3 4
5 4 7
6 4
8 5 6
9 2 4 8
5 3 2
1 3
5 7 1
1 3 9 6 2 8
8 6 3 2 5 4 1 7 9
2 5 1 7 3 9 6 4 8
4 9 7 6 8 1 3 5 2
1 8 5 3 6 2 4 9 7
7 2 6 4 9 8 5 1 3
9 3 4 5 1 7 8 2 6
6 1 2 8 7 5 9 3 4
5 7 8 9 4 3 2 6 1
3 4 9 1 2 6 7 8 5
6 2 9 8 4 3 1 7 5
8 1 4 7 5 6 2 3 9
3 5 7 2 9 1 8 6 4
9 8 1 3 6 7 4 5 2
2 4 6 5 8 9 3 1 7
5 7 3 4 1 2 9 8 6
1 9 2 6 7 8 5 4 3
4 6 8 9 3 5 7 2 1
7 3 5 1 2 4 6 9 8
5 1 6 8 4 3 9 7 2
3 7 4 9 1 2 5 8 6
2 9 8 7 5 6 4 1 3
9 6 5 4 7 8 3 2 1
4 3 7 2 6 1 8 5 9
8 2 1 3 9 5 6 4 7
7 8 2 6 3 4 1 9 5
6 5 9 1 8 7 2 3 4
1 4 3 5 2 9 7 6 8
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að
fylla út í reitina þannig
að í hverjum 3x3-reit
birtist tölurnar 1-9. Það
verður að gerast þann-
ig að hver níu reita lína
bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9
og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er sunnudagur 1. febrúar, 32. dag-
ur ársins 2009
Orð dagsins: Breyttu ekki eftir því,
sem illt er, minn elskaði, heldur eftir
því, sem gott er. Sá sem gott gjörir
heyrir Guði til, en sá sem illt gjörir
hefur ekki séð Guð. (3. Jh 11.)
Víkverji hitti kunningja sinn umdaginn á kaffihúsi. Sá er mikill
kvennamaður og á kaffihúsum fer
dágóður tími hans í að virða fyrir sér
ungar afgreiðslustúlkur. Kunninginn
er einnig skartmaður. Hann klæðist
einungis dýrustu fötum sem völ er á
og ber 200.000 króna úr á úlnlið.
Kunninginn saknaði byltingarinnar
sem honum fannst hafa staðið alltof
stutt. „Þetta var svo gaman,“ sagði
hann dreyminn. „Það var ólýsanlegt
að standa fyrir framan bálið á Aust-
urvelli um kvöld og horfa á stelp-
urnar berja á trommur. Þetta voru
svo fallegar stelpur, svo óskaplega
fallegar. Ég vona að byltingin komi
aftur.“
x x x
Víkverji sem er borgaralegur framí fingurgóma lét sér fátt um
finnast og kunninginn sneri sér að
öðru eftirlætisumræðuefni sínu, sem
er klæðaburður hans sjálfs. „Hvernig
finnst þér nýi frakkinn minn?“ spurði
hann. Víkverji horfði á fyrirferð-
armikinn pelsjakkann og spurði:
„Hvað kostaði hann?“ „650.000,“
sagði kunninginn en bætti við stoltur:
„Ég fékk hann á útsölu á 325.000. Ég
var í honum á byltingarkvöldunum
fyrir framan bálið. Hann er mjög
hlýr. Æ, ég sakna byltingarinnar.“
x x x
Víkverji stillti sig um að segjakunningjanum að í raunveru-
legri byltingu hefði bæði jakka og
manni verið kastað á bálið ef upp-
götvast hefði að þar væri auðvaldss-
inni mættur til að drepa tímann með
því að horfa á sætar stelpur. Kunn-
inginn varð hins vegar var við tak-
markaða hrifningu Víkverja á hinni
margumtöluðu byltingu og sagði í
kvörtunartón: „Þú ert alltof borg-
araleg manneskja!“
x x x
Víkverji veit að kunninginn munlengi sjá tímann við bálið í róm-
antískum bjarma. Ný ríkisstjórn
mun þó líklega vekja hann aftur til
hins ískalda raunveruleika. Þá verð-
ur ekki lengur gaman.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 hornalaus, 8
lítil hús, 9 reiður, 10
ánægð, 11 fugl, 13 út, 15
fánýtis, 18 dreng, 21
málmur, 22 klámyrtu, 23
erfið, 24 skjall.
Lóðrétt | 2 fórna, 3 bar-
efla, 4 veisla, 5 reyfið, 6
afkimi, 7 spaug, 12 tók,
14 gagn, 15 blýkúla, 16
vanvirðu, 17 andvarpi,
18 skjót, 19 flokk, 20 lítið
skip.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 lítil, 4 budda, 7 gómum, 8 ofboð, 9 bót, 11 reit,
13 maur, 14 ámuna, 15 karl, 17 lost, 20 ódó, 22 púður, 23
veður, 24 nánar, 25 remma.
Lóðrétt: 1 lögur, 2 tæmdi, 3 lamb, 4 brot, 5 dubba, 6
auður, 10 ólund, 12 tál, 13 mal, 15 kúpan, 16 ræðin, 18
orðum, 19 tyrta, 20 órar, 21 óvær.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 e6 2. d4 d5 3. exd5 exd5 4. c4 Rf6
5. Rc3 c6 6. Bd3 Bd6 7. Rge2 Be6 8. c5
Be7 9. 0-0 0-0 10. Rf4 Rbd7 11. Rxe6
fxe6 12. De2 He8 13. Dxe6+ Kh8 14.
Df5 b6 15. cxb6 axb6 16. Bg5 Bd6 17.
Hae1 Dc7 18. f4 Hf8 19. Dh3 h6
Staðan kom upp í Skákþingi Reykja-
víkur – Skeljungsmótinu sem er nýlok-
ið í húsakynnum Taflfélags Reykjavík-
ur. Hrannar Baldursson (2.080) hafði
hvítt gegn Friðriki Þjálfa Stefánssyni
(1.640). 20. Bxh6! gxh6 21. Dxh6+ Kg8
22. Dg6+ Kh8 23. He3 Hg8 24. Hh3+
Rh5 25. Dh7 mát. Hrannar er umsjón-
armaður skáksíðunnar Skákveitan
(http//:skakskoli.net) sem nýlega var
sett á laggirnar. Á síðunni kennir ým-
issa grasa og eru skákáhugamenn
hvattir til að kynna sér hana.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Of lengi.
Norður
♠K84
♥K42
♦Á976
♣K95
Vestur Austur
♠D1076 ♠5
♥Á10973 ♥D85
♦KG4 ♦D10852
♣4 ♣G762
Suður
♠ÁG932
♥G6
♦3
♣ÁD1083
Suður spilar 4♠.
„Kóngur, takk.“ Vilhjálmur Sigurðs-
son júníor leit sposkur á Curtis Cheek:
„Þú varst ansi lengi að þessu.“
Í stjörnustríði bridshátíðar sátu Vil-
hjálmur og Gabríel Gíslason í N-S gegn
Cheek og Joe Grue. Vilhjálmur vakti á
1♠ í suður og Gabríel lýsti yfir góðum
spilum og spaðastuðningi með 2G. Vil-
hjálmur stökk í 4♣, Gabríel sýndi tíg-
ulfyrirstöðu með 4♦ og Vilhjálmur sló
af í 4♠. Allir pass. Cheek reiknaði rétti-
lega út að suður ætti skiptinguna 5-2-
1-5, en þeir útreikningar tóku nokkurn
tíma og það fór ekki framhjá Vilhjálmi.
Þegar hin stórhættulega hjartatía lá
loks á borðinu var Vilhjálmur snöggur
að fara upp með kónginn.
Hitti sagnhafi ekki í hjartað verður
hann að spila trompinu gætilega: taka
fyrst á ásinn og læða svo smáu á átt-
una.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú nærð góðum árangri við að
selja, kenna, markaðssetja eða sannfæra
aðra í dag. Tíndu til allt hið þroskaðasta í
eigin fari til þess að komast í gegnum
þrengingarnar.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú munt hugsanlega kvarta undan
foreldrum þínum við systkini þín í dag.
Hvaðeina vekur forvitni þína og þú legg-
ur mikið á þig til þess að komast til botns
í hlutunum.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Stundum er best að láta aðra al-
farið um sín mál því okkur er ekki ætlað
að lifa lífinu fyrir aðra. Gerðu tímabundið
samkomulag varanlegt.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Það getur verið ósköp þreytandi
að hlusta á sjálfshól annarra. Til þess að
skapa þarf maður fyrst að trúa því að
það sé hægt. Vertu ekki ósanngjarn.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þér hefur gengið vel að undanförnu
og ættir að leyfa öðrum að njóta þess
með þér. Það sem þú framkvæmir ein-
kennist af fagmennsku og þér er lagið að
skynja undiröldu.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þátttaka þín í félagasamtökum
eykst að líkindum næstu misserin. Al-
vörugefni þín er sveipuð hulu léttlyndis
og félagslyndis.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú mátt ekki láta deigan síga, heldur
sækja fram af fullri djörfung til þess sem
þú vilt. Hik er sama og tap.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Einhver sem er að reyna að
koma sér áfram, steig á tána á þér í leið-
inni. Þú ættir að leggja meira upp úr
hreyfingunni í frítíma þínum.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Ættingjar þínir gætu þurft á
hjálp þinni að halda í dag. Láttu ekki
einhver smáatriði verða til þess að draga
úr þér kjarkinn, brettu bara upp erm-
arnar.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Það getur reynst erfitt að
bregðast rétt við þegar viðkvæm mál eru
borin upp. Dragðu djúpt andann og veltu
fyrir þér, hvaða breytingar þú vilt gera.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Gættu þess að segja ekkert
það sem þú kannt að iðrast seinna meir.
Leyfðu vinum þínum að umvefja þig
kærleika.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þetta er mjög góður dagur til þess
að skrifa undir samninga og samkomulag
við aðra. Hvernig geturðu bætt hlutina?
Stjörnuspá
Ingibjörg Jón-
atansdóttir,
Bröttugötu 2,
Borgarnesi, er
áttræð í dag, 1.
febrúar.
80 ára
BERNHARÐ Haraldsson, fyrrverandi skólameist-
ari Verkmenntaskólans á Akureyri til 35 ára,
fagnar sjötugsafmæli sínu í dag með því að flat-
maga í sólinni á Kanarí ásamt eiginkonu sinni,
Ragnheiði Hansdóttur tannlækni.
„Þegar ég varð fimmtugur bjó ég í Kaupmanna-
höfn, þegar ég varð sextugur vorum við hjónin hjá
syni okkar í Peking í Kína og núna erum við kona
mín í höfuðborg Kanarí. Þegar ég varð fertugur,
þrítugur og tvítugur var ég hins vegar í höf-
uðborg Norðurlands, Akureyri. Þannig að ég elti
höfuðborgir á stórafmælum,“ segir Bernharð.
Spurður hvort hann sé byrjaður að leggja drög að því í hvaða höf-
uðborg hann ætli að halda upp á áttræðisafmæli sitt svarar Bernharð
því neitandi en bætir jafnharðan við að sennilega verði erfitt að velja
úr öllum þeim fjölda höfuðborga sem spennandi gæti verið að heim-
sækja. Spurður hvort hann eigi sér einhvern uppáhalds afmælisdag í
endurminningunni svarar Bernharð: „Þeir hafa allir verið ósköp
elskulegir og ljúfir. Þetta er bara eins og venjulegur hvunndagur,
nema hvað ég breyti um áratug rétt eins og skröltormurinn skiptir
um skinn á vissum fresti.“ silja@mbl.is
Bernhard Haraldsson 70 ára
Slakar á í sólinni á Kanarí
;)
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af nýja ríkisborgaranum
ásamt upplýsingum um fæðingarstað
og stund, þyngd, lengd
og nöfn foreldra, á netfangið
barn@mbl.is
Í dag, 1. febr-
úar, er Pétur
Kristinn Jónsson
á Hellum í Bæj-
arsveit í Anda-
kílshreppi 85
85 ára
1. febrúar 1904
Heimastjórn. Ný stjórnskipan
kom til framkvæmda og fól í
sér skipan íslensks ráðherra
sem bæri ábyrgð gagnvart Al-
þingi. Þessu var „fagnað með
veisluhöldum bæði í Reykja-
vík og víðar um land“, eins og
sagði í Skírni. Hannes Haf-
stein varð fyrsti ráðherrann.
Hann gegndi því embætti til
1909 og aftur frá 1912 til
1914.
1. febrúar 1973
Alþingi samþykkti lög um
stofnun Viðlagasjóðs til að
bæta eftir föngum tjón vegna
náttúruhamfaranna í Vest-
mannaeyjum. Öll afgreiðsla
málsins tók einn dag.
1. febrúar 1980
Vigdís Finnbogadóttir leik-
hússtjóri tilkynnti að hún gæfi
kost á sér í forsetakjör. Hún
sagði í samtali við Morg-
unblaðið að það hefði ýtt und-
ir ákvörðunina að hún fékk
„skeyti frá sjómönnum, fal-
legt skeyti, þar sem ég var
hvött til þessa“. Vigdís sigraði
í kosningunum 29. júní.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …