Morgunblaðið - 01.02.2009, Blaðsíða 52
Eftir Birtu Björnsdóttur
birtabjorns@gmail.com
Þ
að að Woody Allen sendi frá sér nýja
kvikmynd heyrir kannski ekki til
stórtíðinda, enda maðurinn með
eindæmum afkastamikill leikstjóri.
Hann hefur gert eina mynd á ári
allar götur síðan 1982 en það finnst honum sjálf-
um enginn stórkostlegur árangur.
„Í flestum störfum telst eitt verkefni á ári
ekkert sérstakur árangur,“ byrjar Allen. Hann
talar frekar lágt og situr hokinn á stólnum sín-
um. Það þarf ekki mikinn speking til að sjá að
viðtöl eru ekki hans eftirlætisiðja, þó hann beri
sig vel.
„Kennari kennir 800 tíma á ári, læknir sinnir
10 þúsund sjúklingum á ári. Að gera eina kvik-
mynd á ári er ekkert svo merkilegt og þeir sem
halda öðru fram eru að reyna að gera sig merki-
legri en þeir í raun og veru eru.“
Þegar framleiðnin er jafn mikil og raun ber
vitni hjá Allen eru myndirnar eins og gefur að
skilja misjafnar að gæðum. Þær raddir hafa
heyrst að honum sé að förlast með árunum og
síðustu myndir hans séu heldur bágbornar mið-
að við margar þeirra gömlu góðu. Hvort sem
fólk tekur undir það eða ekki hefur Vicky
Cristina Barcelona hlotið fínar viðtökur og þá
hefur leikur Penelope Cruz ekki síst verið
mærður. Leikkonan er einmitt tilnefnd til Ósk-
arsverðlauna í ár fyrir hlutverk sitt sem hin ei-
lítið vanstillta Maria Elena.
Hvorki stórkostleg né hræðileg
En ætli Woody sjálfur sé jafn ánægður með
allar myndirnar sínar?
„Hjálpi mér nei! Þegar ég sá Manhattan í
fyrsta skipti langaði mig mest að henda henni
beint í ruslafötuna. Útkoman var alls ekki eins
og ég hafði ímyndað mér. Ég fór rakleitt á fund
United Artists og bað þá um leyfi til að fá að
farga myndinni en í staðinn myndi ég gera aðra
mynd fyrir þá þeim að kostaðarlausu.“
Eins og kunnugt er varð United Artists ekki
við bón Allens og Manhattan var tekin til sýn-
inga.
„Myndin sló svo í gegn,“ segir Allen. „En það
hefur gerst nokkrum sinnum á ferlinum að
myndir sem ég er afar óánægður með hafa átt
miklu fylgi að fagna og það er ekki góð tilfinn-
ing, get ég sagt þér. Ég myndi miklu frekar
vilja gera mynd sem ég er sáttur við þótt enginn
annar nennti að sjá hana. Það er ekki gaman
lífskúnstnernum Juan Antonio (Javier Bardem)
og hafa þau kynni ólík áhrif á hina trúlofuðu
Vicky og hina sveimhuga og ævintýragjörnu
Cristinu. Við sögu kemur svo einnig fyrrverandi
ástkona Juans, Maria Elena (Penelope Cruz).
„Myndin er fyrst og fremst rómantísk,“ full-
yrðir leikstjórinn en bætir svo við: „Allavega
framanaf. En ég upplifi endalokin þó mjög dap-
urleg. Vicky fær ekki það sem hún þráir. Hún
endar með eiginmanni sínum sem henni þykir
jú vænt um en hún elskar hann ekki af öllu
hjarta. Cristina mun hinsvegar aldrei finna það
sem hún leitar að í lífinu, ég held að hún viti ekki
einu sinni hvað það er sem hún leitar. Ekki veit
ég það og ég skrifaði persónuna. Juan og Maria
Elena sjá sér svo ekki fært að vera saman þrátt
fyrir tilfinningahitann svo það má segja að
myndin endi dapurlega fyrir allar persónurnar.
Þrátt fyrir hin dapurlegu endalok söguper-
sóna sinna segist Woody Allen vera sjálfur afar
hamingjusamur í sínu eigin lífi.
„Stundum hef ég upplifað ömurlega tíma,
verið óhamingjusamur og einmana, og þá hef ég
getað skrifað gamanmyndir. Eins hef ég skrifað
morðsögur og annað hroðalegt þegar ég hef
verið hvað hamingjusamastur í mínu lífi svo það
er engin tenging á milli minna tilfinninga og
sögupersóna minni og hefur aldrei verið.
Fallegustu konur í heimi
Woody Allen verður tíðrætt um einstaka
hæfileika og sláandi fagurt útlit samstarfs-
kvenna sinna, Scarlett og Penelope og lái hon-
um hver sem vill.
„Að mæta í vinnuna og eyða deginum með
Scarlett og Penelope er hreint ekki leiðinleg leið
til að vinna fyrir sér, get ég sagt þér. Þær eru
báðar svo ótrúlega hæfileikaríkar og færar á
sínu sviði. Svo held ég að ég hafi aldrei verið í
návígi við eins fallegar konur á ævi minni,“ full-
yrðir Woody en segir eiginkonu sína taka slík-
um yfirlýsingum með ró og spekt.
„Hún gerir sér grein fyrir því að nærvera mín
hefur engin áhrif á konur eins og þær. Hvorug
þeirra myndi nokkurntíman binda trúss sitt við
mann eins og mig.“
Þegar myndin kom út í Bandaríkjunum var
um fátt annað rætt henni tengt en koss sem þær
Penelope og Scarlett smella á hvor aðra í mynd-
inni. Viðbrögðin voru kannski helst til yfirdrifin,
ekki ólík því þegar brjóstið á Janet Jackson sást
óvart á skjám landsmanna þar vestra og þjóðin
fór á hliðina í kjölfarið. Woody Allen gerir líka
lítið úr erótíkinni í kringum þetta atriði.
„Þetta var bara eins og hver annar dagur á
tökustað. Þær mættu umkringdar ljósamönn-
um, hljóðfólki og tökuvélum og kysstust. Svo
var bara farið í hádegismat.“
Kossinn góði er þó hluti af öðrum undirtón
myndarinnar, sem er upplifun tveggja banda-
rískra stúlka á evrópsku líferni.
„Bandaríkjamönnum finnst Evrópa í það
heila vera menningarlega þróaðari, fágaðari og
kynferðislega opnari staður en heimalandið. Og
ég held að það sé alveg rétt hjá okkur. Ég
myndaði mér þessa skoðun á Evrópu eftir að
hafa horft á svo margar myndir þaðan þegar ég
var yngri. Kvikmyndir skiptust í tvo flokka,
myndir frá Hollywood og svo myndir frá Evr-
ópu, myndir eftir snillinga á borð við Ingmar
Bergman, Truffault, Fellini og Godard. Þessar
myndir voru betri, fágaðri, gáfulegri og ekki
eins ritskoðaðar kynferðislega og þær banda-
rísku. Ég hef alltaf haft mjög rómantíska hug-
mynd um Evrópu, rétt eins og ég hef um New
York. Fólk hefur gagnrýnt mig og sagt mig ekki
sjá New York í réttu ljósi, öfugt við Martin
Scorsese eða Spike Lee. Mín sýn á borgina sé of
rómantísk, en þannig er mín hugmynd um Evr-
ópu einnig.“
Evrópa með augum Woody Allen
Vinkonurnar Vicky og
Cristina fara í frí til Barce-
lona. Þannig hefst nýjasta
mynd Woody Allen sem nefn-
ist einmitt Vicky Cristina
Barcelona og var frumsýnd
hér um helgina. Blaðamaður
Morgunblaðsins hitti Allen í
Cannes og ræddi við hann um
evrópska kvikmyndagerð,
huggulegar leikkonur og
kvikmyndina sem hann lang-
aði mest að henda í ruslið.
Reuters
Allen „Það þarf ekki mikinn speking til að sjá að viðtöl eru ekki hans eftirlætisiðja.“
þegar lélegum myndum er hampað, þá fær
maður á tilfinninguna að áhorfendur skilji mann
ekki eða fari um mann of mjúkum höndum.“
Allen segist því miður ekki geta farið sömu
leið og faðir Javiers Bardem í Vicky Cristina
Barcelona, en sá yrkir ljóð sem hann heldur
leyndum fyrir umheiminum.
„Þegar ég er að skrifa, hvort sem það eru
handrit eða pistlar er ég eiginlega alltaf óánæg-
ur með það sem frá mér kemur. Ég hugsa ekki
með mér að þetta sé svo ótrúleg snilld að ég ætli
að halda þessu fyrir mig og refsa þannig al-
menningi sem fær ekki að njóta þessa með mér.
Mér finnst frekar það sem ég skrifa svo slæmt
að ég geti ekki lagt það á nokkurn mann að sjá
það. Það er hinsvegar ómögulegur hugs-
unarháttur í kvikmyndagerðinni. Þá eyðirðu 15
milljónum dala úr veski einhvers annars við
gerð myndarinnar og þá er ekki í boði að segja
einfaldlega að myndin sé ómöguleg. Þó að ég
óski engum þess að sjá hana og vilji helst henda
henni í ruslið. Það kostar engann pening þó að
pabbi Javiers vilji halda ljóðunum sínum fyrir
sig.“
Þegar Allen er jafn gagnrýninn á eigin verk
og raun ber vitni gæti verið forvitnilegt að
heyra hvernig honum hugnast nýjasta afurð
sín.
„Mér finnst hún hvorki stórkostleg né hræði-
leg,“ segir Woody. „Ég er þó aðallega spenntur
að sjá hvernig viðbrögð hún fær því ég er að fást
við hluti sem ég hef ekki áður gert. Ég var að
taka upp í nýju landi og leikstýrði auk þess
tveimur spænskum leikurum sem léku á móð-
urmáli sínu á köflum, sem ég skil vel að merkja
ekkert í. Ég hef því ekki eins sterka tilfinningu
fyrir því hvort afraksturinn sé góður eða ekki.
Ætli ég hafi ekki verið of óöruggur til að leyfa
mér að vera ánægður með hana vegna allra nýj-
unganna, en ég get sagt að ég var alls ekki mið-
ur mín með árangurinn.“
Það er þó allavega huggun fyrir þá sem
hlakka til að sjá myndina, að leikstjórinn hafi
ekki verið miður sín yfir útkomunni.
Aðspurður hvers vegna Barcelona hafi orðið
fyrir valinu sem tökustaður segir Woody Allen
það alfarið stjórnvöldum þar í borg um að
kenna.
„Mér var boðið að koma og gera mynd í
Barcelona mér að kostnaðarlausu. Ætli ráða-
menn í Barcelona hafi ekki viljað koma borginni
á framfæri með þessu tagi,“ segir leikstjórinn
og bætir við að hann myndi alveg geta hugsað
sér að endurtaka þennan leik, jafnvel í Reykja-
vík.
„Já ég myndi alltaf hugsa málið ef tilboð bær-
ust. En ég myndi auðvitað þurfa að heimsækja
viðkomandi land fyrst til að athuga hvort mér
dytti þar í hug einhver góð saga.“
Þá er bara spurning hvort ný ríkisstjórn
muni gera ráð fyrir slíkum útgjöldum í næstu
fjárlögum.
Dapurleg endalok
Vicky Cristina Barcelona fjallar um vinkon-
urnar Vicky (Rebecca Hall) og Cristinu (Scar-
lett Johannsson) og viðburðaríkt ferðalag
þeirra til Spánar. Þær kynnast flagaranum og
52 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2009
BANDARÍSKI leikstjórinn og
handritshöfundurinn Woody Al-
len fæddist Allan Stewart Ko-
nigsberg hinn 1. desember
árið 1935, og er því 73
ára. Hann byrjaði ferilinn
sem skríbent fyrir blöð
og seldi þeim skrítlur og
gamanefni sem hann
samdi sjálfur. Hann
leikstýrði sinni
fyrstu kvikmynd ár-
ið 1966, What’s Up,
Tiger Lilly?, og
hefur verið iðinn
við kolann síðan.
Meðal hans þekkt-
ustu mynda eru
Annie Hall (1977), Manhattan (1979) ,
Hannah and her Sisters (1986), Husbands
and Wives (1992) og Manhattan Murder
Mystery (1993).
Af nógu er að taka því Allen hefur gert
eina kvikmynd á ári síðan 1982.
Woody Allen hefur verið tilnefndur oft-
ar en nokkur annar til Óskarsverðlauna
fyrir frumsamin handrit, eða alls 14 sinn-
um. Einnig hafa 15 leikarar verið til-
nefndir til sömu verðlauna fyrir leik sinn
í myndum Allens í gegnum tíðina og fjór-
ir farið heim með styttuna gullnu.
Allen hefur þó ekki einungis borið á
góma í tengslum við kvikmyndir sínar.
Mikið var fjallað um samband hans við
núverandi eiginkonu sína, Soon-Yi Pre-
vin, á sínum tíma. Ekki er nóg með að
hún sé tæplega 40 árum yngri en Allen
heldur er Soon-Yi einnig ættleidd dóttir
þáverandi unnustu Allens, Miu Farrow.
Það þótti því sannarlega saga til næsta
bæjar þegar þau fóru að stinga saman
nefjum fyrir rúmum áratug, þegar Soon-
Yi var rétt skriðin yfir tvítugt. Í ævisögu
sinni, What Falls Away, segir Mia Farrow
meðal annars frá því að Frank Sinatra,
fyrrverandi eiginmaður sinn, hafi boðist
til að láta brjóta báða fæturna á Allen
þegar upp komst um samband hans við
dótturina. Af því varð þó ekki, svo vitað
sé. Allen hefur sjálfur leikið í þónokkrum
mynda sinna og auk kvikmyndagerð-
arinnar hefur hann skrifað leikrit, pistla í
blöð, leikið á klarinett á djassklúbbum og
verið með uppistand.
Svart-hvít Woody Allen og þáverandi
eiginkona hans Mia Farrow í hlut-
verkum sínum í myndinni Shadows
and Fog frá árinu 1992.
Allan Stewart Konigsberg