Morgunblaðið - 01.02.2009, Blaðsíða 24
24 Myndaalbúm
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2009
Kátur ogmeðfærilegur kr
akki
Bókmenntaverðlaun
Dæturnar ungar
Þar sem verkin verða t
il
Stór hópur Fremst er Þórunn Freyja Brynjarsdóttir, frá vinstri Guð-
mundur Már Einarsson, Brynjar Már Karlsson, tengdasonur minn, ég,
Rakel María Axelsdóttir, fósturdóttir mín, Hera Björk Brynjarsdóttir,
Þórunn Jónsdóttir eiginkona mín, Hrafnkell Már Einarsson og Hildur
Úa Einarsdóttir. Anna Björk var erlendis þegar myndin var tekin.
Hafnarbúi Ég bjó í Kaupmannahöfn
í sex ár frá 1979 til 1985. Hér er ég
fyrir utan Konunglega bókasafnið þar
sem ég átti ákaflega góðar stundir við
lestur og skrif.
Róttækur Hér er ég að selja Neista,
málgagn Æskulýðsfylkingarinnar, á
áttunda áratugnum. Maður kynntist
fólki úr öllum áttum í fylkingunni og
tók þátt í mótmælum af ýmsu tagi.
Fjölskyldan Ég ásamt foreldrum mínum, Guðmundi Guðmundssyni
bifreiðastjóra, og Önnu Pálmadóttur skrifstofumanni, og systkinum,
Pálma Erni, sem nú er látinn en hann var fyrirmyndin að aðalpers-
ónunni í Englum alheimsins, Guðmundi Hrafni, prófessor í frumulíf-
fræði við HÍ, og Auði Hrönn, arkitekt sem búsett er í Þýskalandi.
Heiður Ég hlaut Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs
fyrir Engla alheimsins árið 1995 og veitti þeim viðtöku
úr hendi Geirs H. Haarde forseta Norðurlandaráðs.
Upplestur Ég hef alltaf lagt mikla áherslu á að lesa upp úr verkum
mínum, bæði hér heima og erlendis. Oft á stöðum sem ekki eru í
alfaraleið. Ég er nýkominn heim úr upplestrarferð til Noregs.
Dæturnar Ég ásamt dætrum mínum, Önnu Björk, sem
nú er orðin bókmenntafræðingur, og Hildi Úu, sem
leggur stund á nám í hótel- og matreiðslufræðum í
Flórens. Þarna eru þær tveggja og þriggja ára gamlar.
Frá sex ára aldri til stúdentsprófs Ég var með bros á vör í tímakennslu sex ára og á fermingardaginn
en ég var róttækur nýstúdent og neitaði t.a.m. að vera með húfu. Ég hafði ekki skorið hár mitt í sjö ár
en varð að láta það fjúka um sumarið þegar ég fékk vinnu við að byggja möstur. Það flæktist í þeim.
E inar Már Guðmundsson rithöf-undur fæddist í Reykjavík 18.september 1954. Hann lauk stú-
dentsprófi frá MT árið 1975, BA-prófi
í bókmenntum og sagnfræði frá HÍ
1979 og lagði stund á framhaldsnám í
bókmenntafræði við Kaupmanna-
hafnarháskóla.
Fyrsta bók Einars Más, ljóðabókin
Er nokkur í kórónafötum hér inni?,
kom út árið 1980. Síðan hefur hann
sent frá sér fjölda ljóðabóka, skáld-
sagna, smásagnasafna, barnasagna,
þýðinga og kvikmyndahandrita. Verk
Einars Más hafa verið þýdd og gefin
út víða um lönd.
Einar Már hefur ennfremur skrifað
fjölda ritgerða og greina í blöð og
tímarit og hafa greinar hans sem
Morgunblaðið hefur birt nú í kjölfar
bankahrunsins vakið mikla athygli.
orri@mbl.is
Einar
Már Guð-
mundsson