Morgunblaðið - 01.02.2009, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 01.02.2009, Blaðsíða 56
TÓNLISTARMAÐURINN John Ma- yer hefur verið yfirlýstur unnusti leikkonunnar Jennifer Aniston. Eitthvað virðist samband þeirra þó frjálslegt því undanfarið hefur sést til Mayer í fylgd fagurrar ljósku. Síðastliðinn miðvikudag, tveimur dögum eftir að hann dvaldi á heimili Aniston í Los Angeles, sást hann gefa stúlku undir fótinn á veitingastað í Santa Monica. „John talaði mikið við stúlk- una, sem var mjög sæt, og virtist spennt. Þegar leið á máltíðina færði John sig og settist hinum megin við borðið, við hlið stúlkunnar. Jennifer verður líklega ekki ánægð,“ sagði einn er til parsins sá. Þetta var ekki í fyrsta skipti sem sást til Mayer í fylgd þessarar konu og þau reyndu ekki að fela hinar rómantísku tilfinn- ingar. „Þau voru greini- lega á stefnumóti og kysstust löngum kossi.“ Mayer og Aniston hófu samband í apríl í fyrra, enduðu það í ágúst en tóku svo aftur saman í október. Síðan hefur verið uppi orðróm- ur um að Mayer ætli að biðja An- iston að giftast sér á 40 ára af- mæli hennar hinn 11. febrúar. Kvennamaður mikill Verk Söru Kane (1971-1999) eru tal- in með áleitnari leikhúsverkum síð- ustu ára. Alls skrifaði hún fimm leik- verk fyrir svið, hið fyrsta, Rústað, þegar hún var aðeins 24 ára. Þetta unga leikskáld gerði mannlegt eðli, ofbeldi og siðleysi að umfjöllunarefni sínu og var mjög umdeild enda voru verk hennar ofbeldisfull og ögrandi. Þau fengu í fyrstu hraklega dóma, þóttu yfirborðskennd og í engu sam- bandi við raunveruleikann. En Sara Kane hefur fengið uppreisn æru, ef svo mætti segja. Menn hafa séð að í verkum hennar liggur djúpur tónn mannlegs eðlis. Hún hreyfir sann- arlega við áhorfendum með grimm- um, beinskeyttum leikverkum sem eru raunsæisleg en geta orðið sym- bólsk öðrum þræði. Þetta á við um fyrsta verk hennar Rústað sem talið er hafa markað þáttaskil í leikritun Breta á seinni tímum. Leikurinn gerist á hótelherbergi þar sem fyrrverandi kærustuparið Ian (Ingvar E. Sigurðsson) og Cate (Kristín Þóra Haraldsdóttir) hafa mælt sér mót, hann með það í huga að sofa hjá henni, en hún af um- hyggju fyrir honum. Strax í upphafi verksins sjá áhorfendur hversu ólík þau eru. Hann er sjálfselskur mið- aldra blaðamaður, fullur af for- dómum og biturð. Cate er töluvert yngri og algjör andstæða Ians en er þó að reyna að öðlast sjálfstæði þótt í litlu sé. Samband þeirra er náið en um leið framandi, brenglað og ljótt. Þau hafa þekkst lengi og áhorfendur rennir grun í hvernig sambandinu var háttað. Skyndilega og án viðvörunar er skollið á stríð og hermaður (Björn Thors) kemur inn í herbergið, hlut- irnir snúast við, þau gildi sem voru til staðar eru hrunin og ljótleiki mannlegs eðlis kemur í ljós. Átökin sem eru í verkinu eru gróf, bæði þau andlegu og líkamlegu, og er sýningin ekki ætluð börnum né viðkvæmum áhorfendum og það með réttu. Blá- kaldur raunveruleikinn er borinn á borð, beint fyrir framan áhorfand- ann svo hann getur hvergi flúið. Sem skáld var Sara Kane óvenju nákvæm í skrifum sínum. Í leikritum hennar má finna nákvæmar sviðslýs- ingar og staðsetningar fyrir gjörðir persónanna eins og þegar drukkið er af flösku, farið að glugga o.þ.h. Leik- stjórinn, Kristín Eysteinsdóttir, fylgir handriti höfundar mjög ná- kvæmlega og reynir hvorki að minnka né stækka ljótleikann í verk- inu. Kristín skilar hér góðu verki og er ánægjulegt að sjá hvernig hún vex enn sem leikstjóri. Leikararnir standa sig með prýði í þessu erfiða verki sem hlýtur að reyna á þá sem listamenn og mann- eskjur. Túlkun þeirra á þessum brotnu og ónýtu manneskjum var mjög góð og er á engan hallað þótt hér sé tekið fram að Ingvar sýnir enn og aftur að hann er einn af okk- ar allra mögnuðustu leikurum. Leikmynd Barkar Jónssonar var fagmannlega unnin og vel úthugsuð. Lýsing og hljóð þjónuðu verkinu vel. Tónlistin, nokkrir píanóhljómar, undirstrikaði einmanaleika persón- anna. Rústað er vel unnin og mögnuð sýning þar sem áhorfandinn er skil- inn eftir í rúst. Hið myrka eðli mannsins Morgunblaðið/Ómar Mögnuð sýning „Leikararnir standa sig með prýði í þessu erfiða verki sem hlýtur að reyna á þá sem listamenn og manneskjur,“ segir í dómnum. Ingvar E Sigurðsson og Kristín Þóra Haraldsdóttir í hlutverkum sínum. Ingibjörg Þórisdóttir LEIKLIST Nýja svið Borgarleikhússins Rústað eftir Söru Kane Leikarar: Ingvar E. Sigurðsson, Kristín Þóra Haraldsdóttir og Björn Thors Leikmynd og búningar: Börkur Jónsson Tónlist: Frank Hall Ljós: Þórður Orri Pétursson Þýðing: Guðrún Vilmundardóttir Leikstjóri: Kristín Eysteinsdóttir Frumsýning 30. janúar. 56 MenningFÓLK MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2009 Lucia di Lammermoor Sýnd kl. 18.00 laugardaginn 7. febrúar í Sambíóunum Kringlunni HÁGÆÐA MYND OG HLJÓÐ Í FULLKOMNASTA BÍÓSAL LANDSINS Donizetti LUCIA DI LAMMERMOOR 7. FEBRÚAR Puccini MADAMA BUTTERFLY 7. MARS Bellini LA SONNAMBULA 21. MARS Rossini LA CENERENTOLA 9. MAÍ MIÐASALA HAFIN Á OG Í MIÐASÖLUM SAMBÍÓANNA SÝNDAR Í BEINNI BÍÓÚTSENDINGU Í BEINNI BÍÓÚTSENDINGU FRÁ METRÓPÓLITAN ÓPERUNNI Í NEW YORK tryggið ykkur miða í tíma ! Landakotsskóli er traustur og framsækinn grunnskóli fyrir nemendur í 1.-10. bekk, auk 5 ára deildar. Boðið er uppá góða kennslu í litlum bekkjum og notalegu umhverfi. Innritun í tónlistarnám og kór, fer fram með tölvupósti á netfangið tonlist@landakot.is ím yn du na ra fl |L K2 90 10 9 Nútímalegur skóli á gömlum grunni Stofnsettur 1896 Landakotsskóli Upplýsingar um innritun fyrir skólaárið 2009-2010 veitt í síma 510 8200 eða á heimasíðu skólans www.landakotsskoli.is Getum bætt við nemendum í nokkra bekki. Inn ritu n n em end a fyr ir n æs ta skó laá r ste ndu r n ú y fir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.