Morgunblaðið - 01.02.2009, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 01.02.2009, Blaðsíða 16
16 Viðtal MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2009 Eftir Ingu Rún Sigurðardóttur ingarun@mbl.is A uður Bjarnadóttir seg- ist líta á sig sem eilíf- an nemanda í þeirri miklu list að lifa lífinu skapandi. Þessi fyrr- verandi ballerína og núverandi jógakennari hefur skemmtilegt viðhorf til lífsins sem allir geta lært eitthvað af. Síðustu ár hefur hún kennt jóga í jógasetrinu Lót- us-jóga, sem hún stofnaði ásamt Ástu Arnardóttur árið 2002. Hún kennir Kundalini-jóga og með- göngujóga og svo fara margar ný- bakaðar mæður til hennar í mömmujóga með börnin. Hún hefur stundað jóga síðan 1992 en hellti sér ekki út í það fyrr en sex árum síðar þegar hún flutti til Seattle í Bandaríkjunum. Hún fékk hins vegar fyrst áhuga á jóga þegar hún var í Íslenska dansflokknum. „Einn leikstjórinn talaði mikið um hvað jóga væri frábært. Ég var þarna í kringum þrítugt og að mörgu leyti búin að ganga fram af líkamanum í ballett- inum og þörfin fyrir að finna eitthvert jafnvægi var til stað- ar,“ segir Auður. Hún útskýrir að hún hafi þarna verið búin að dansa lengi og skilgreint sjálfa sig mikið út frá dansinsum. „Ég fór smám saman út í jógað og í Bandaríkj- unum skoðaði ég margs konar jóga. Fyrst varð jógað hluti af lífinu en svo varð það lífsleiðin. Jógað hefur áhrif á lífsstílinn og hvernig maður hugsar.“ Umgjörðin og innihaldið Auði er tamt að tala um einingu sálar og líkama og segir jógað hafa haft góð áhrif á líf sitt. „Jóga er mannrækt og gengur út á það að maður beri ábyrgð á sinni líð- an og sínu lífi. Það er nauðsyn- legt að skoða hugann, hugs- anamynstrið og viðhorfið hverju sinni. Ég er búin að vera í sjálfsskoðun í nokkuð mörg ár og er ekkert að fara að hætta því. Með jóganu upplifi ég til- finningalegt jafnvægi, ég finn tilfinningarnar en stjórnast ekki af þeim eins og ég gerði,“ segir Auður og minnir á að jóga þýði eining, sameining og jafnvægi. „Jógað tengist líka sjálfsvirðingu. Hún dýpkar en það hefur áhrif á hvernig maður með- höndlar sjálfan sig,“ segir hún og minnist þess hvernig hún áður keyrði sig áfram í tengslum við ýmis leikhúsverkefni, segir það hafa verið „svolítið manískt en skemmtilegt.“ Vel má ímynda sér að fólk fari í sjálfsskoðun í kreppunni. Margir hafa misst at- vinnuna, sem oft er tengd sjálfsmynd fólks. Hvernig fer jóga og kreppa saman? „Jóga- stöðin mín er í Borgartúninu og ég hef því stund- um grínast með það að ég sé í Wall Street. Það er mikilvægt á þessum tímum að styrkja andlega heilsu, innra fjallið. Það er eitt- hvað sem við öll höfum en týnum oft og förum að leita að gildum í kringum okkur. Svo þegar hriktir í stoðunum vitum við ekki hver við erum eða hvað við heitum. Mér varð litið út um gluggann í upp- hafi bankahrunsins og sé þá þessa voldugu bankabyggingu á móti mér,“ segir Auður en Kaupþing er til húsa á móti jógastöðinni. Leit að innra verðgildi Auður Bjarnadóttir dansari og jógakenn- ari hvetur fólk til að líta inn á við í krepp- unni og bera ábyrgð á sinni eigin líðan. Hún mælir með því að byggja samfélagið upp frá börnunum og ræðir hvernig jógað varð smám saman að lífsleiðinni. Morgunblaðið/Árni Sæberg Í Lótus Auður í björtu jógastöðinni sinni, sem er á efstu hæðinni í húsinu við Borgartún 20. Auður stofnaði stöðina ásamt Ástu Arnardóttur árið 2002. AUÐUR er sem stendur að vinna við uppsetningu dansverksins Sölku Völku. Hún er höfundur verks- ins, sem er flutt af Svöluleikhúsinu, sem hún stofn- aði árið 1990, við tónlist Úlfars Inga Haraldssonar. Dansverkið verður sýnt á nokkrum sýningum í Hafn- arfjarðarleikhúsinu undir lok mánaðarins og í Þýska- landi á hátíðinni tanzWelten í Braunschweig í mars. Auður á glæstan feril að baki en hún dansaði með Íslenska dansflokknum frá stofnun hans 1973 til árs- ins 1978 þar sem hún dansaði meðal annars á móti Helga Tómassyni og aftur 1983-85. Einnig ber að nefna að hún dansaði við Bayerische Staatsoper í München, Basler Ballet í Sviss og Konunglega sænska ballettinn í Stokkhólmi, á árinum 1978-87. Síðar menntaði Auður sig í leikstjórn og hefur starfað bæði við leikhús og dans sem höfundur og leikstjóri. Enn- fremur var hún listrænn stjórnandi Íslenska dans- flokksins 1989-90. „Ég setti upp Sölku Völku fyrir Íslenska dansflokk- inn fyrir nokkrum árum. Ég gerði leikgerð úr bókinni og einbeitti mér í henni að Sölku, móðurinni og mönn- unum tveimur,“ segir Auður en verkið var sýnt á Listahátíð í Reykjavík árið 2002. Hún segir sýninguna eiga vel við á krepputímum og kallar Sölku „kreppuhetju“. „Ég mæli með því að við setjumst öll niður núna og lesum Sölku Völku.“ Einn dansari úr gömlu sýningunni Sýningunni hefur áður verið boðið til útlanda en Auður hefur ekki getað þegið boð fyrr en nú. Hún set- ur saman nýjan danshóp af þessu tilefni. „Það er einn dansari úr gömlu sýningunni en Lára Stefánsdóttir dansar móðurina. Unnur Elísabet Gunnarsdóttir, sem var í Íslenska dansflokknum, dansar Sölku. Allt hitt eru ný andlit,“ segir Auður, sem fékk til sín karldans- ara frá Svíþjóð. Verkefnið fékk myndarlegan styrk frá tanzWelten og hlakkar Auður til ferðarinnar. Hún segir hátíðina spennandi og fjölbreytilega. „Svo kom það upp að Salka Valka verður sýnd í Braunschweig á alþjóðlega kvennadeginum, 8. mars. Mér finnst þessi tilviljun al- veg frábær.“ Morgunblaðið/Ásdís Salka dansar Myndin er frá uppsetningunni á Listahátíð 2002 en þarna má sjá Hlín Diego Hjálm- arsdóttur og Guðmund Elías Knudsen en aðrir dansa þessi hlutverk nú. SETUR UPP SÖLKU VÖLKU Í ÞÝSKALANDI Með Íslenska dansflokknum Auður á ár- unum með Ís- lenska dans- flokknum þar sem hún dans- aði m.a. á móti Helga Tóm- assyni. Morgunblaðið/Jim Smart
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.