Morgunblaðið - 01.02.2009, Side 20
20 Þjóðargersemar
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2009
Vaxtalaus greiðslukjör
í allt að 12 mánuði
(visa/euro) Engin útborgun
Sjóntækjafræðingar með
réttindi til sjónmælinga
og linsumælinga
Eftir Ingu Rún Sigurðardóttur
ingarun@mbl.is
M
enningarsaga Ís-
lands lifnar við í
sýningunni Endur-
fundir, sem var
opnuð í myndasal
Þjóðminjasafnins í gær. Ævintýrið
byrjar þegar gengið er inn og stig-
ið á dyrhellu sem fannst í rúst
nunnuklaustursins á Kirkjubæ en
greina má fótstpor nunnanna í
steininum og sömuleiðis rispu eftir
hurðina. Sýningin er skemmtilega
upp sett en þegar inn er komið er
stigið inn í rými sem minnir á
klausturgarð og má þar líta muni
frá Kirkjubæjarklaustri til vinstri
og Skriðuklaustri til hægri og hægt
að skyggnast inn í heim nunnanna
og munkanna. Til viðbótar er hægt
að fræðast um fornfrægu staðina
Gásir, Hóla, Keldudal, Reykholt,
Skálholt og Þingvelli. Sýningin
býður þjóðinni til endurfunda við
fortíðina í gegnum gripina sem
hafa fundist við uppgröft, sem
Kristnihátíðarsjóður hefur styrkt, á
þessum stöðum síðustu ár. Nú er
komið að Þjóðminjasafninu að varð-
veita munina og miðla þessari
þekkingu áfram. Sýningin er því af-
rakstur mikillar vinnu, sem er þó
ekki lokið og eru rannsóknir enn í
gangi á mörgum staðanna. Í
tengslum við sýninguna kemur út
vegleg sýningarbók en bókin hefur
að geyma mikinn fróðleik um upp-
greftina og myndir af ýmsum þeim
munum sem þar hafa fundist.
Reynir á ímyndunaraflið
Þær fornleifar sem finnast í
jörðu hér á landi eru oftar en ekki
afar smágerðar. Þetta eru brot af
ýmsum hlutum, glerbrot, leir-
kerabrot, naglar og ýmsir smá-
munir. Það reynir því töluvert á
ímyndunarafl safngestsins,
þegar hann reynir að gera sér
í hugarlund þann veruleika
sem gripirnir eru sprottnir
úr.
Bryndís Sverrisdóttir er
sviðsstjóri miðlunarsviðs safnsins
og jafnframt verkefnisstjóri sýning-
arinnar. Hún segir að lagt hafi ver-
ið upp með að gera sýningu fyrir
alla aldurshópa og sérstaklega var
reynt að höfða til barna. Það end-
urspeglast meðal annars í skemmti-
legu leikborði, sem búið er að setja
upp í einu horni sýningarinnar. Þar
geta ungir (sem aldnir) end-
urskapað byggðina á Gásum við
Eyjafjörð í gegnum púsl og ann-
an leik. Hér og þar í sýningunni
eru líka litlir kassar með gægju-
gati sem kynda undir ímyndunar-
afl krakkanna og síðast en ekki
síst má nefna volduga hauskúpu,
sem er stök til sýnis í glerkassa.
Hjá henni eru blöð og pennar
og er boðið upp á að gestir
safnsins „holdgeri“ hauskúp-
una, teikni mynd af manneskj-
unni eins og þeir sjái fyrir sér
að hún hafi litið út í lifanda lífi.
Búast má við því að þessi þáttur
sýningarinnar verði vinsælli hjá
yngri kynslóðinni enda er hún
þekkt fyrir gott hugarflug.
Ný tegund hljóðleiðsagnar
Til viðbótar er auðvelt að fara
um sýninguna í hjólastól og textar
á veggjum eru ekki settir of hátt
upp, hvorki fyrir lágvaxnari gesti
né þá í hjólastól. Ennfremur
hjálpar hljóðleiðsögn af nýjasta
tagi til en hún virkar þannig að
gesturinn beinir tækinu að
ákveðnum punkti á vegg, sem
svarar með því að spila
ýmsar upplýsingar um
viðkomandi hluta sýn-
ingarinnar. Þá geta tveir
hlustað saman eða einn rölt um í
rólegheitum með heyrnartól á
höfði. Þessi nýja tækni er nú líka í
boði í grunnsýningu safnsins.
Lifandi menningarsaga
Sýningin Endurfundir,
sem var opnuð í Þjóð-
minjasafni Íslands í gær,
sýnir afrakstur forn-
leifauppgrafta síðustu
árin á lifandi hátt. Sýn-
ingin gleður unga jafnt
sem aldna og gefur
gestum tækifæri til þess
að skyggnast inn í mið-
aldaheiminn í gegnum
gripi og gaman.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Leikur Á sýningunni eru líka gripir sem má snerta og er hægt að leika sér með byggðina við Gásir í Eyjafirði.
Gömul gersemi Mjög heil hringnæla.
Heilög Barbara Forverðir safnsins
límdu þessa merku styttu sem
fannst á Skriðuklaustri saman.
Falleg Teskál
frá Skáholti.