Morgunblaðið - 01.02.2009, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 01.02.2009, Blaðsíða 25
Sjúkrasaga 25 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2009 – Lifið heil Lægra verð í Lyfju www.lyfja.is 20% verðlækkun KARBOBLOKKER Kolvetnabani, 120 töflur. Minnkar hungurtilfinningu og hindrar upptöku kolvetna í líkamanum. 2.518 kr. 1.998 kr. Gildir til 8. 2. 2009 20% verðlækkun VOLTAREN EMULGEL 2.280 kr. 1.824 kr. 15% verðlækkun MICROLIFE BLÓÐÞRÝSTINGSMÆLIR Sjálfvirkur blóðþrýstingsmælir, einfaldur í notkun og nákvæmur. Minni: 30 niðurstöður. 11.678 kr. 9.926 kr. ÍS L E N S K A /S IA .I S /L Y F 44 83 0 01 /0 9 Af hverjum seldum mæli renna 500 kr. til Hjartaheilla. Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur kolbrun@mbl.is Á rið 2000 fór Atli Thoroddsen, 29 ára gamall flugmaður hjá Ice- landair, að finna fyrir verk við nára sem leiddi niður í fót. Þetta var byrjunin á krabbameini sem greindist ekki fyrr en sex árum síðar þrátt fyrir að Atli gengi milli lækna til að fá sjúk- dómsgreiningu og viðeigandi meðferð. Í dag gengur Atli við hækjur og er í erfiðri lyfja- meðferð en með henni er reynt að halda sjúk- dómnum niðri. Sjúkdómurinn gýs þó alltaf upp aftur og krabbameinið er nú á lokastigi. „Það er sama hvernig horft er á þetta, sjúk- dómurinn hefur snúið allri veröld minni á hvolf. Allt í einu varð mesta martröð mín að veruleika. En það ótrúlega er að það er hægt að lifa með þessu,“ segir Atli. Hvernig er það hægt? „Ég á svo lítið val og verð að lifa með þessu. Svo á ég svo góða að. Ég uppgötvaði í veikind- unum hversu marga og góða vini ég á og þeir, ásamt fjölskyldunni, hjálpa á allan mögulegan hátt.“ Aðgerðir skiluðu engu Hann lýsir langri sjúkrasögu sinni sem ein- kennist af samskiptaleysi milli lækna sem brugðust ekki við þannig að rétt greining fannst ekki: „Þegar ég fór í rannsókn árið 2000 fannst lítið æxli og tekið var sýni sem sett var í ræktun. Ekkert kom út úr því en æxlið var fjarlægt. Verkirnir héldu áfram og ég var settur á bólgueyðandi lyf sem gerðu ekkert gagn. Tveimur árum síðar fór ég í brjósklosaðgerð því skurðlæknir taldi brjósk- los vera líklega ástæðu fyrir þessum verkjum. Þessi aðgerð skilaði engu og enn héldu verk- irnir áfram þrátt fyrir sprautumeðferðir og verkjastillandi lyf. Árið 2005 var ákveðið að spengja tvo hryggjarliði saman. Sú aðgerð skilaði heldur engu og verkirnir héldu áfram og versnuðu fremur en hitt. Seinna kom í ljós að á röntgenmyndum sem teknar voru fyrir aðgerðina sást krabbameinsæxlið en sérfræð- ingar tóku ekki eftir því vegna þess að þeir skoðuðu bara hryggjarsúluna á þeim mynd- um.“ Þrátt fyrir veikindi og verki hélt Atli áfram að sinna starfi sínu sem flugmaður. „Sumarið 2006 flaug ég sem flugstjóri með sumarleyf- isfarþega til Krítar. Þar endaði ég á spítala með brotna mjöðm og viku síðar fór ég heim til Íslands og í myndatöku. Þá kom í ljós að ill- kynja krabbamein hafði náð að éta sig gegn- um alla mjöðmina. Ég gat ekki lengur gengið óstuddur og fékk hækjur.“ Heldurðu að ef þetta krabbamein hefði greinst á frumstigi þá værirðu ekki í þeirri stöðu sem þú ert í í dag? „Ég get ekki fullyrt það en hefði krabba- meinið uppgötvast snemma þá hefði ég fengið viðeigandi meðferð og lyf og átt tvö ár, jafnvel þrjú, án þess að öskra á nóttum vegna sárs- auka. Og því fyrr sem krabbamein greinist því betri eru lífsmöguleikarnir.“ „Kerfið brást mér“ Þú gekkst á milli lækna í nærri sjö ár áður en krabbameinið greindist. Álasarðu lækn- unum? „Fyrst og fremst álasa ég sjálfum mér fyrir að hafa ekki gripið inn í ferlið. Jú, auðvitað varð ég gramur einum og einum lækni en ég er líka þakklátur mjög mörgum læknum. Ég er hins vegar afar ósáttur við heilbrigðiskerfið. Ég lagði líf mitt í hendur þessa kerfis og treysti því en það brást mér. Ég lenti inni í heilbrigðiskerfi sem virkar ekki fyrir alla. Hver læknir var að vinna á sínu sérsviði og greindi meinið út frá því sviði. Hjá mér voru einkennin svipuð og hjá þeim sem þjást af brjósklosi þannig að ég var í skoðun hjá sér- fræðingum á því sviði. Þrátt fyrir að bati minn yrði enginn töldu læknarnir ekki að skoða ætti mig frekar. Það er einkennilegt að enginn skyldi ákveða að setja mig í frekari greiningu svo hægt væri að kanna hvað gæti mögulega valdið þessum verkjum hjá svo ungum manni. Einstaklingur sem fer til læknis á að geta treyst því að ef sá læknir finnur ekki lausnir þá verði hann sendur til annars læknis. En það virðist ekki vera gert. Þegar fólk er komið yfir átján ára aldur og glímir við alvarlega og ill- víga sjúkdóma þá er ekki lengur til staðar teymisvinna þar sem sjúklingurinn er miðdep- illinn og kerfið starfar fyrir hann. Ég veit að núna er verið að vinna að því að koma á teym- isvinnu inni á spítölunum en til að hún virki þarf hugarfarsbreytingu hjá læknum. Þeir verða að samþykkja að leita álits annarra lækna og starfa með hjúkrunarfræðingum. Heilbrigðiskerfi okkar er stundum sagt vera eitt það besta í heimi og við erum með fagfólk sem er sennilega með því besta í heiminum. En kerfið sem þetta fólk vinnur í býður ekki upp á að sjúklingurinn sé alltaf í forgrunni.“ Sér lífið í víðara samhengi Veikindin hafa orðið til þess að Atli hefur ekki getað stundað vinnu í tvö ár. „Þetta er gríðarleg breyting á öllu lífsmynstri. Fjöl- skyldan verður undirlögð af umræðunni um krabbamein. Við reynum samt eftir fremsta megni að lifa eðlilegu fjölskyldulífi. Litla stelp- an, fjögurra ára, var svo lítil þegar krabba- meinið greindist að hún þekkir ekkert annað og eldri stelpan, fjórtán ára, er sterk og dug- leg.“ Veikindi þín eru mjög alvarleg, hugsarðu stundum um að allt geti farið á versta veg? „Já, ég veit að það getur farið þannig. Ég held alltaf í vonina og meðan ég geri það þá er niðurdrepandi að tala um tölfræði því hún er mér ekki í hag. En það eru til góð lyf, læknarn- ir eru mjög færir og sjálfur er ég sterkur og hef staðið mig vel. Allt þetta er mér í hag.“ Hafa veikindin breytt lífsskoðunum þínum og gildismati á einhvern hátt? „Áður var hugmynd mín um frábæran dag að komast á mótorhjólið, í einkaflugvélina eða í skútusiglingar. Þegar ég veiktist gat ég ekki lengur veitt mér þetta. Ég var ekki manngerð sem velti fyrir sér andlegum málum, þau skiptu mig litlu sem engu máli. Ég var efa- semdamaður en er það ekki lengur. Nú trúi ég til dæmis á framhaldslíf og það er mjög mik- ilvægt fyrir mig að vita af því að dauðinn er ekki endalok. Að þessu leyti hef ég breyst mjög mikið. Ég er líka duglegri að takast á við erfiðleika en ég var. Ég er ekki lengur upptek- inn af veraldlegum hlutum og fjármálakreppa og stjórnmálaóvissa skipta mig í rauninni litlu máli. Nú horfi ég á lífið í víðara samhengi. Ég hélt á tímabili að veikindi mín hefðu ekki breytt mér en svo kom í ljós að það varð tals- vert mikil breyting á Atla Thoroddsen.“ Mesta mar- tröðin varð að veruleika Morgunblaðið/Kristinn Ósáttur Atli Thoroddsen er ósáttur við heilbrigðiskerfið, sem hann segir hafa brugðist sér. Vinnan Flugstjórinn í þotu Icelandair. Fjölskyldan Atli ásamt eiginkonunni Ástu Hallgrímsdóttur og dætrunum Andreu og Júlíönu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.