Morgunblaðið - 01.02.2009, Side 33

Morgunblaðið - 01.02.2009, Side 33
33 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2009 Fjórir svartir ungir menn, nem- endur landbúnaðar- og tækniháskól- ans í Norður-Karólínu, gengu inn á matsölustað í verslanakeðjunni Wo- olworth’s í borginni Greensboro 1. febrúar 1960 og fengu sér sæti við afgreiðsluborðið. Þar voru stólar, sem eingöngu voru ætlaðir hvítu fólki, en ætlast var til að svartir mötuðust standandi. Mennirnir fjór- ir sátu lengi dags við borðið. Þeir fengu ekki afgreiðslu, en ekki var amast við mótmælasetu þeirra að öðru leyti. Daginn eftir voru 28 háskólanem- ar á matsölustaðnum, á þriðja degi var talan komin upp í 300 og fjöldinn fór allt upp í þúsund manns. Mótmælaseta nemendanna vakti verðskuldaða athygli. Á næstu vik- um hófu svartir víðs vegar um Bandaríkin mótmælasetur á stöðum, sem aðeins voru ætlaðir hvítum. Ekki aðeins veitingastöðum, heldur í strætisvögnum og lestum, listasöfn- um, á bekkjum í lystigörðum, í sund- laugum og bókasöfnum. Alls staðar voru skiltin „Aðeins fyrir hvíta“ og alls staðar settust svartir. Friðsamleg mótmæli Ungu mennirnir voru alls ekki fyrstir til að mótmæla með þessum hætti. Frægt varð þegar Rosa Parks settist fimm árum fyrr í sæti í stræt- isvagni sem ætlað var hvítum og neitaði tilmælum vagnstjórans um að færa sig. Þau mótmæli, í Montgo- mery, Alabama, urðu til þess að Rosa varð holdgervingur rétt- indabaráttu svartra. Mótmælaseturnar áttu það sam- eiginlegt að vera friðsamleg mót- mæli, til að vekja athygli á þeim órétti sem svartir voru beittir. Árið 1964 voru sett lög, sem bönn- uðu kynþáttaaðskilnað á opinberum stöðum. Ungu mennirnir, og aðrir svartir Bandaríkjamenn, áttu þá rétt á sömu þjónustu og hvítir íbúar landsins. Á fyrsta degi mótmælasetunnar í veitingastað Woolworth’s keðj- unnar í Greenboro gekk öldruð, hvít kona að einum ungu mannanna sem sátu í „hvítu“ sæti við af- greiðsluborðið. Hún lagði hönd á öxl hans og sagði: „Piltar, ég er svo stolt af ykkur. Þið hefðuð átt að gera þetta fyrir tíu árum.“ Hvort hún eða pilturinn hafi séð það fyrir að 49 árum síðar myndi svartur maður setjast í stól forseta Bandaríkjanna, skal ósagt látið. rsv@mbl.is Sögulegir stólar Hluti afgreiðsluborðsins í Woolworth’s versluninni í Greensboro og stólarnir fjórir sem mennirnir sátu á, er varðveitt í Smithsonian safninu í Washington. Á þessum degi ... 1. FEBRÚAR 1960 MÓTMÆLASETA Í GREENSBORO Hugrekki Rosa Parks varð heimsfræg eftir að hún settist í sæti í stræt- isvagni, sem ætlað var hvítum, og neitaði að færa sig. Holtasmára 1 • 6. hæð • 201 Kópavogi • Sími 550 3030 • www.hjartamidstodin.is Hjartamiðstöðin Við sinnum greiningu, eftirliti og meðferð hjartasjúkdóma og helstu áhættu- þátta þeirra. Markmið okkar er að veita greiðan aðgang að þverfaglegri þjónustu. Markhópar okkar eru: • Sjúklingar með hjarta- og æðasjúkdóma • Einstaklingar með áhættuþætti eða einkenni hjarta- og æðasjúkdóma • Allir sem þurfa ráðgjöf eða leiðbeiningar vegna sjúkdóms eða einkenna frá hjarta og æðakerfi Við bjóðum upp á viðtal og skoðun hjartalæknis, ráðgjöf og fræðslu hjúkr- unarfræðinga, viðtal við sálfræðing auk þess sem við framkvæmum helstu rannsóknir sem notaðar eru við greiningu hjartasjúkdóma svo sem: • Hjartalínurit • Óm- og dopplerskoðun af hjarta • Áreynsluhjartaritun (þolpróf) • Hjartasírit (Holter) Unnið er samkvæmt núgildandi samkomulagi hjartalækna og heilbrigð- isráðuneytis sem gerir ráð fyrir greiðsluþátttöku Tryggingastofnunar ríkisins. Tímapantanir eru í síma 550 3030 eða á www.hjartamidstodin.is Höfum hafið starfsemi í Holtasmára 1, 6. hæð, í Kópavogi Hjartamiðstöðin T ilkynning – H jartalæ knar Hef flutt læknastofu mína í Hjartamiðstöðina, Holtasmára 1, 6. hæð í Kópavogi. Tímapantanir eru í síma 550 3030 eða á www.hjartamidstodin.is Holtasmára 1 • 6. hæð • 201 Kópavogi • Sími 550 3030 • www.hjartamidstodin.is Halldóra Björnsdóttir hjartalæknir Hjartamiðstöðin T ilkynning – H jartalæ knar Hef flutt læknastofu mína í Hjartamiðstöðina, Holtasmára 1, 6. hæð í Kópavogi. Tímapantanir eru í síma 550 3030 eða á www.hjartamidstodin.is Holtasmára 1 • 6. hæð • 201 Kópavogi • Sími 550 3030 • www.hjartamidstodin.is Axel F. Sigurðsson Dr.Med. hjartalæknir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.