Morgunblaðið - 01.02.2009, Síða 35
Umræðan 35
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2009
• Stórt innflutnings- og framleiðslufyrirtæki með miklar erlendar skuldir,
sem gert er ráð fyrir að verði afskrifaðar að hluta við eigendaskipti.
• Meðfjárfestir óskast við kaup á rótgrónu dönsku framleiðslufyrirtæki.
Samþykkt kauptilboð, fjármögnun og áreiðanleikakönnun liggur fyrir.
Viðkomandi þyrfti að leggja fram 20 millj. DKK.
• Ein þekktasta og elsta ísbúð borgarinnar. Ársvelta 50 mkr.
EBITDA 8 mkr.
• Rótgróið vinnuvélafyrirtæki með langtímasamning um föst
þjónustuverkefni. Mjög góður hagnaður. Skuldlaust fyrirtæki.
• Heildverslunin Tinna óskar eftir meðeiganda-samstarfsmanni. Tinna
selur prjónagarn og skyldar vörur í yfir 50 verslanir um land allt.
Mjög góður rekstur í miklum vexti. Skuldlaust fyrirtæki.
• Rótgróið innflutnings- og þjónustufyrirtæki með vörur fyrir sjávarútveg.
Ársvelta 320 mkr. EBITDA 48 mkr.
Virðing
Réttlæti
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
VR óskar eftir vönduðum sumarhúsum, orlofsíbúðum eða hótelherbergjum á
leigu til framleigu fyrir félagsmenn sína. Leitað er bæði eftir húsnæði á
landsbyggðinni og í höfuðborginni. Áhugasamir sendi upplýsingar á
vr@vr.is, fyrir 12. febrúar nk.
Eftirfarandi upplýsingar þurfa að liggja fyrir: Lýsing á eign og því sem henni
fylgir, ástand hennar, staðsetning, stærð, aldur og fjöldi svefnplássa. Auk þess
skal fylgja lýsing á útivistarmöguleikum og afþreyingu í næsta umhverfi.
Æskilegt er að myndir og lýsing á umhverfi fylgi með.
Öllum tilboðum verður svarað.
VR óskar eftir samstarfi
við ferðaþjónustuaðila
BANKARNIR hefðu
hvorki vaxið svona mik-
ið, né teflt jafn djarft, ef
þeir hefðu ekki notið
ríkisábyrgðar. Þeir
nutu þessa alls:
Væntinga um að
Seðlabankinn starfaði
sem þrautavaralánveit-
andi
Yfirlýsinga rík-
isins að það styddi bankana ef þörf
krefði
Beinnar ábyrgðar ríkisins á
innistæðum
Vegna þessa fengu þeir mun hærra
lánshæfismat en ella. Ef þeir hefðu
ekki haft svona gott lánshæfismat
hefðu þeir ekki getað tekið jafn mikið
að láni. Án ríkisábyrgðar hefðu lán-
veitendur gert harðari kröfur um
áhættufælni.
Stóri gallinn við kerf-
ið var þessi beina og
ætlaða ríkisábyrgð
(sem svo reyndist ekki
standast að öllu leyti
þegar skaðinn var skeð-
ur.) Afleiðingin af rík-
isábyrgð er meiri líkur
á falli bankanna, stærra
fall en ella og að al-
menningur þarf að
borga brúsann.
Breytingarnar þurfa
að skipta máli
Breytinga er þörf. En þær breyt-
ingar þurfa að skipta máli. Aðeins
hefur verið rætt um að styrkja og
herða regluverk og eftirlitsstofnanir.
Það finnst mér líkt og að sleppa jó-
kernum lausum og treysta á að Bat-
man haldi honum í skefjum. Best er
að sleppa honum ekki. Batman klikk-
aði síðast og gæti klikkað aftur. Við
eigum ekki að sleppa bönkum lausum
með ríkisábyrgð í farteskinu.
Ríkisábyrgð: umráð og
ábyrgð fara ekki saman
Kerfi ríkisábyrgðar í peninga-
málum hefur hrunið. Kerfið, þar sem
lánveitendur taka ekki ábyrgð sjálfir,
heldur ríkið. Ríkisábyrgð er í raun
ábyrgðarleysi. Kerfi sjálfsábyrgðar
lánveitenda myndi duga betur og
væri öruggara þar sem ábyrgð og
umráðaréttur yfir peningum fara
saman.
Tillaga um framtíðarlausn
Allar ríkisábyrgðir ber að afnema
og taka upp ábyrgð lánveitenda
þannig að þeir beri ábyrgð á eigin fé.
Í meðfylgjandi töflu má sjá sam-
anburð á slíkri sjálfsábyrgð lánveit-
enda og því ríkisábyrgðarkerfi sem
verið hefur við lýði. Ég tek það fram
að ég er ekki að mæla gegn því að til
staðar séu ríkisstofnanir sem fylgjast
með að farið sé að lögum. Það er
ágætt að hafa Batman til staðar en
vont að þurfa að treysta um of á hann.
Á að sleppa jókernum lausum
og treysta á Batman?
Gunnlaugur Jóns-
son skrifar um efna-
hagsmál
» Við eigum ekki að
sleppa bönkum laus-
um með ríkisábyrgð í
farteskinu.
Gunnlaugur Jónsson
Höfundur er framkvæmdastjóri.
Samanburður á sjálfsábyrgð og ríkisábyrgð
Sjálfsábyrgð Ríkisábyrgð
Hver lánar bönkunum? Einkaaðilar lána sína eigin peninga.
Einkaaðilar lána peningana –
en treysta á ríkisábyrgð.
Hver er talinn taka
áhættuna á að bankar
geti ekki borgað?
Lánveitendur. Ríkið.
Hver sér um eftirlit?
Lánveitendur. Geta sjálfum sér um
kennt tapi þeir, verða að gæta sjálfir
að lána ekki slökum bönkum.
Ríkið sér um eftirlit –
„Batman“.
Úrræði eftirlitsaðila
Að lána ekki og hætta að lána.
Bankarnir tapa fjármögnun.
Óraunhæft er að afturkalla
ríkisábyrgð. Ýmsum veikum
úrræðum beitt, t.d. sektum.
Fjárráð eftirlitsaðila
A.m.k. jafn mikil og bankanna. – Þeir
eru að lána þeim!
Venjulega ekki jafn mikil og
bankanna.
Hvatar eftirlitsaðila
Að tapa ekki þeim peningum sem eru
lánaðir.
Að halda vinnunni eða það
sem betra er, að fá kannski
vinnu hjá bönkunum.
Andmælaréttur banka
Lánveitandinn þarf ekki að hlusta á
bankann frekar en hann vill.
Banki getur varist
umvöndunum fjármálaeftirlits.
Eftirlitið þarf að gæta
meðalhófs, jafnræðis o.fl.
Sönnunarbyrði í
ágreiningsmálum
Hjá bankanum. Sá sem lánar ræður
hvort hann lánar og hefur enga
sönnunarbyrði gagnvart honum.
Sönnunarbyrðin er í mun
meiri mæli á eftirlitinu.
Fara umráð og ábyrgð
saman?
Já. Umráð yfir fénu og ábyrgðin er hjá
þeim sem lánar.
Nei. Ábyrgð er hjá
skattgreiðendum. Umráð hjá
bönkunum og lánveitendum.
ÖSSUR Skarphéð-
insson iðnaðarráðherra
hefur ákveðið að hafin
skuli olíuleit á svo-
nefndu Drekasvæði,
milli Íslands og Jan
Mayen. Það er allt gott
um þetta að segja, við
þurfum á peningum að
halda og olía gefur af
sér gjaldeyri.
En Össur, líttu þér nær, líkur á að
olíu sé að finna mun nær landi eru
miklar og óþarfi að ana út í ballarhaf
þegar við eigum nánast landfastan
olíuborpall sem er Flatey á Skjálf-
anda. Tvívegis hefur verið hafist
handa við að bora í Flatey en alltaf
frá horfið vegna fjárleysis. Ekki má
velja dýrari leiðina
þegar ódýrari kostur
er í boði.
Líkur á að olía sé
undan Langanesi og í
Skjálfandaflóa eru
mjög miklar eins og
Sovétmenn bentu okk-
ur á á sínum tíma eftir
segulmælingar á land-
grunni Íslands. Orku-
málastofnun má ekki
liggja lengur á þessum
upplýsingum, þær
verða að koma upp á
borðið sem fyrst.
Þess vegna segi ég þér, Össur,
líttu þér nær maður og skoðaðu
þessi gömlu gögn sem svo lengi hafa
verið grafin í Orkumálastofnun. Nú
má engan tíma missa. Þú heldur á
spottanum sem fólkið er tilbúið að
grípa í og draga þessa þjóð á þurrt.
Kostnaður við olíuleit á Drekasvæð-
inu er mikill, en uppi í landsteinum
aðeins brot af því.
Ég skora á þig, Össur, að fylgja
þessu máli eftir. Engan feluleik
lengur um þessi mál. Í framhaldi af
þessu máli má benda á setlagahvilft
sem áðurnefndur sovéskur leið-
angur fann á landgrunni Íslands og
benti á þykk setlög beint út af Faxa-
flóa. Það má svo geta sér til hvort
milljónir og milljónir tonna af dauðri
loðnu hvíli þar í sinni votu gröf bíð-
andi eftir því að Íslendingar nýti sér
alla kosti loðnunnar, lifandi sem
dauðrar.
Olíuleit við Ísland
Sigurjón Gunn-
arsson skrifar opið
bréf til Össurar
Skarphéðinssonar
» Ábending um að olíu
sé hugsanlega að
finna mun nær landi en
áður var talið.
Sigurjón Gunnarsson
Höfundur er matreiðslumeistari.