Morgunblaðið - 01.02.2009, Síða 46

Morgunblaðið - 01.02.2009, Síða 46
46 Minningar MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2009 ✝ Þórdís ToddaGuðmundsdóttir fæddist á Bíldsfelli í Grafningi í Árnes- sýslu 28. mars 1928. Hún lést á bráða- móttöku Landspít- alans við Hringbraut 3. janúar síðastlið- inn. Hún var dóttir hjónanna Guð- mundar Þorvalds- sonar stórbónda og Kristínar Jós- efsdóttur ljósmóður. Þórdís Todda var yngst sjö hálfsyskina samfeðra sem öll áttu móðurina Guðríði Finnbogadóttur og héldu hún og Kristín móðir Þórdísar sameig- inlegt heimili að Bíldsfelli um áratuga skeið, sem systur væru, og skiptu með sér verkum innan heimilisins. Systkini Þórdísar Toddu eru öll látin nema Þóra, f. 6. maí 1918. Þórdís Todda giftist árið 1962 Erlingi Þorsteinssyni háls-, nef- og eyrnalækni. Börn þeirra eru: 1) Þorsteinn, f. 20. sept- ember 1962. Fv. ritstjóri, þátta- gerðarmaður fyrir sjónvarp, blaða- og leiðsögumaður og starfaði nokkurn tíma sem fram- kvæmdastjóri eigin ferðaskrif- stofu. Hann á tvö börn, þau eru a) Erling tölvunarfræðinemi í HR, f. 6 maí 1986, móðir hans er Berglind Ósk Sigurðardóttir snyrtifræðingur. b) Kristín, f. 15. janúar 2002, móðir hennar Erle Enneveer meistari í lögum frá HÍ. 2) Guðrún Kristín B.Ed. frá Kennaraháskóla Ís- land. f. 7. nóvember 1966. Hún er förð- unarfræðingur og starfaði sem þula hjá Ríkissjónvarp- inu um ára bil. Hún er gift Baldri Ár- manni Steinarssyni rafverktaka, þau eiga tvö börn, Steinar Berg, f. 7. júní 1997 og Þórdísi Toddu, f. 7.júní 1997. Þórdís Todda hóf nám í Hjúkr- unarkvennaskóla Íslands árið 1947 og ætlaði sér að útskrifast árið 1950, en vegna þess að hún smitaðist af berklum í náminu frestaði útskrift hennar til ársins 1951. Hún starfaði á fæðing- ardeild Landspítala Íslands 1954- 1955 og hélt til Fíladelfíu í Bandaríkjum árið 1956 og nam skurðstofuhjúkrunarfræði í Ger- man Town Hospital til ársins 1957. Eftir það starfaði hún á skurð- deildum Landspítalans og vann einnig á Hvítabandinu.vorið 1958 til vors 1959. Eftir að hafa komið börnunum á legg hóf hún að starfa í hlutastarfi á Droplaug- arstöðum upp úr síðari hluta ní- unda áratugarins sem yfirhjúkr- unarfræðingur á kvöldvöktum. Útför Þórdísar Toddu var gerð frá Fossvogskapellu 14. janúar, í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Leiðir okkar Þórdísar Toddu lágu fyrst saman haustið 1947 er við ellefu ungar stúlkur hófum nám í Hjúkrunarskóla Íslands. Við komum víða að af landinu, allar með sama áhugamálið, að hjúkra hinum sjúku. Þegar við í endur- skini minninganna lítum til baka, sjáum við sem í skuggsjá þessar ungu „hollsystur“ saman komnar á Landspítalanum. Nú rúmum 60 ár- um síðar hefur fækkað í hópnum. Á þessu nýbyrjaða ári kvaddi Þórdís Todda Guðmundsdóttir. Hún var okkur mjög kær, hún var góður hjúkrunarfræðingur, trygg- lynd, skemmtileg og glæsileg kona. Todda var mikil og góð hús- móðir, eiginkona, móðir og amma. Á heimili Toddu bjó Kristín móðir hennar og var hún alla tíð elskuð af öllum og alltaf til staðar. Við, nokkrar hollsystur og vinkon- ur, höfum komið saman af og til á heimilum okkar. Til Toddu og Er- lings hefur verið gott að koma, þau voru bæði fagurkerar, heimilið fal- legt og allt svo velkomið. Við minnumst ferðar sem við hollsysturnar fórum í 1948 með rútu í heimsókn að Bíldsfelli í Grafningi í boði Toddu og móður hennar. Ferðalagið og koman á æskuheimili Toddu er okkur öllum ógleymanleg, hve vel var tekið á móti okkur á þessu rausnarheimili og fegurð náttúrunnar gleymist ekki. Á sorgarstundu minnumst við með hjartans þakklæti fyrir alla gleðina sem við höfum notið af samvistum við sæmdarhjónin Þór- dísi Toddu og Erling og sendum fjölskyldunni allri innilegustu sam- úðarkveðjur. En í minningunni býr ljósið. Herdís, Inga og Theódóra. Nýtt ár vekur oftast vonir og væntingar um að óskir manna muni rætast en sú varð ekki raun- in hjá Þórdísi Toddu vinkonu minni sem varð bráðkvödd hinn 3. janúar sl. Hún var glæsileg kona, svo eftir var tekið, með sitt fallega kop- arrauða hár og ávallt vel tilhöfð. Trygglynd og góð vinkona. Vinátta okkar hefur varað í yfir fjörutíu ár eða frá því við báðar stofnuðum heimili. Það var alltaf tilhlökkunarefni þegar Þórdís og Erlingur buðu okkur Jóni til veislu í Skaftahlíðinni og áttum við þar margar gleðistundir, enda þau hjónin höfðingjar heim að sækja. Þórdís eldaði veislumat, enda snilldarkokkur, Erlingur sá um tónlistina og skenkti í glösin. Hann átti það jafnvel til að spila á sögina sína við mikinn fögnuð og stjórna dansi frameftir kvöldi. Það var heldur ekki í kot vísað að heimsækja þau í sumarbústað- inn góða við Bíldsfell og gæða sér á nýveiddum laxi úr Soginu, sem Erlingur var lunkinn við að veiða. Ég á eftir að sakna minnar kæru vinkonu og alls þess sem hún var mér og mínum. Hjartanlegar samúðarkveðjur sendi ég elsku Guðrúnu Kristínu, Þorsteini og barnabörnum. Við þökkum fyrir ástúð alla, indæl minning lifir kær. Nú mátt þú vina höfði halla, við herrans brjóst er hvíldin vær. Í sölum himins sólin skín við sendum kveðju upp til þín. (H.J.) Blessuð sé minnig þín. Sigríður S. Þórdís Todda Guðmundsdóttir ✝ Kristján NikolajBruun, ævinlega kallaður Mansi af ættingjum og vinum, fæddist í Reykjavík 26. apríl 1931. Hann andaðist á gaml- ársdag 2008. For- eldrar hans voru William Thorwald Bruun, f. í Kalund- borg í Danmörku 25. júlí 1896, d. í Reykja- vík 15. september 1950, og Aðalheiður Kristjánsdóttir Bru- un, f. á Litla-Lóni á Snæfellsnesi 30. janúar 1900, d. í Reykjavík 12. febrúar 1981. Þau voru gefin sam- an 20. nóvember 1926. William Thorwald lærði prentverk í Dan- mörku, en í Reykjavík fékk hann sveinsbréf sem veitingamaður 1943 og starfaði við báðar þessar grein- ar, jöfnum höndum, prentaði Morg- unblaðið og vann á Kaffi-Höll. Hann vann einnig mörg ár á Þing- völlum og var jafn- framt eftirlitsmaður þar og bjó þá á Brúsastöðum. Systur Kristjáns voru Karen N. A. Bruun, f. í Reykjavík 4. jan. 1927, d. 19. mars 1972 og Sigrún Bru- un, f. í Reykjavík 27. apríl 1928, d. 24. mars 2007. Systra- synir hans eru Willi- am Ragnar Jóhann- esson, f. 9. apríl 1946, Heiðar Woodrof Jon- es, f. 1. mars 1947, Kristinn Stein- grímsson, f. 22. maí 1957, og Jó- hannes Grétar Snorrason, f. 9. maí 1961. Sambýliskona Kristjáns um nokkurra ára skeið var Guðrún Friðleifsdóttir, f. 9. júní 1939, d. 15. október 1996. Dóttir hennar er Ósk Valgeirsdóttir, f. 4. febrúar 1966. Útför Kristjáns fór fram í kyrr- þey. Kynni okkar hófust árið 1944, þeg- ar ég var nýlega fluttur til Reykja- víkur, ásamt móður minni og þremur systkinum. Húsnæði var ekki á hverju strái á þessum árum og við fengum loforð um húsnæði, eftir ákveðinn tíma, en á meðan beðið var eftir því fengum við inni í bragga í Kamp Melrós við Þóroddsstaði. Þar kynntist ég Mansa, hann 13 ára og ég 14 ára. Ég var að leika mér í hverfinu og þá birtist hann á hjólinu sínu og fór að tala við mig. Og þar tókst með okkur vinátta sem aldrei rofnaði. Á næstu árum fórum við í margar hjólreiða- ferðir upp á Vatnsendahæð og til Þingvalla og víðar. Margar voru bíó- ferðirnar og seinna bættust kaffi- húsaheimsóknirnar við, sem við stunduðum af kappi. Þá voru nú tóm- stundir færri en nú til dags. Á þess- um ungdómsárum fór hann að vinna í Kjöthöllinni við Klambratún en ég byrjaði í byggingavinnu hjá Einari Einarssyni byggingameistara. Ég byrjaði að læra prentverk og litlu síðar fór Mansi að læra rakaraiðn hjá Sigurjóni rakarameistara. Lengst af vann hann á rakarastof- unni í Eimskipafélagshúsinu, en einnig á Keflavíkurflugvelli hjá setu- liðinu. Ég fór alltaf til hans í klipp- ingu og eftir að hann hætti að klippa fann ég aldrei jafngóðan hárskera. Hann varð heilsulítill frekar snemma á ævinni og það var mikil synd því hann var mjög fær og hæfileikaríkur maður. Hann vann við ýmis önnur störf svo sem við akstur hjá Kópa- vogsbæ. Ég held að hann hafi aldrei eignast bíl en hann var mjög vel að sér í öllu sem þeim við kom. Hann fór meira að segja á sjó og var á Agli Skallagrímssyni. Hélt heimili með móður sinni meðan hún lifði, eða til 1981. Seinna var hann í sambúð í nokkur ár með Guðrúnu Friðleifs- dóttur, sem honum þótti mjög vænt um, en það voru of fá ár því hún lést 1996 eftir erfið veikindi. Það er óhætt að segja að hann eignaðist marga góða vini á þeim ár- um sem hann var rakari enda mjög fær í sinni iðn og hafði kurteist og gott viðmót við fólk. Var velviljaður og góðsamur við alla sem hann átti samskipti við. Hann sagði einhvern tímann við mig: „Ég hef bognað en aldrei brotnað“. Að lokum votta ég ættingjum hans samúð mína. Ég þakka honum alla þá vináttu sem hann sýndi mér alla tíð og ég segi að lokum: „Vertu blessaður, gamli, góði vinur.“ Theódór Ingólfsson. Kristján N. Bruun ✝ Barði Guðmunds-son fæddist í Hafnarfirði 1. júlí 1932. Hann lést á heilbrigðisstofnun Suðurnesja 24. janúar síðastliðinn. For- eldrar hans voru Guðmundur Júl- íusson, f. 1892, d. 1941, og Guðrún Guð- jónsdóttir, f. 1891, d. 1958. Systkini Barða eru Guðjón Brynjar, f. 1916, d. 1986, Sess- elja Unnur, f. 1920, d. 1930, Dóra Sigríður, f. 1925, Ing- ólfur, f. 1927, d. 2004 og Sesselja Unnur, f. 1930. Barði kvæntist 1. janúar 1961 Guðrúnu Friðgeirsdóttur, f. 14.1. 1940, þau skildu. Dætur þeirra eru: 1) Björg, f. 31.3. 1961, börn hennar Viktor, f. 18.9. 1984, Gígja, f. 18.9. 1984, og Sólrún, f. 17.6. 1992, Heið- arsbörn. 2) Brynhildur, f. 6.4. 1963, gift Jóni Víði Haukssyni. Sonur hennar Barði Stefánsson, f. 19.8. 1982. 3) Guðrún, f. 18.10. 1964. Seinni kona Barða var Steinþóra Jóhannsdóttir, f. 10.3. 1939, d. 2004. Börn hennar eru Jón Hlíðar, f. 1957, Hildur, f. 1960 og Ingibjörg, f. 1970. Barnabörnin eru 9. Barði fór ungur til sjós, var fyrst sem messagutti, þá mat- sveinn en lengst af sem vélstjóri. Eftir að hann lét af sjó- mennsku og fór í land starfaði hann að mestu við störf tengd verslun og sölu- mennsku. Lengst starfaði hann hjá Kaupfélagi Vopnfirðinga, Vopna- firði, en þar bjó hann og starfaði í 20 ár eða til árisns 1986. Eftir það var hann kaupfélagstjóri í Mývats- sveit um tveggja ára skeið. Barði bjó ásamt seinni konu sinni í Suður- Afríku til margra ára en þar voru þau m.a. með veitingarekstur. Þeg- ar þau fluttu heim tóku þau við rekstri golfskálans í Grindavík og bjuggu þar á sumrin en voru yfir vetrarmánuðina í Afríku. Síðast- liðin fjögur ár hefur Barði búið í Grindavíkurbæ. Útför Barða fór fram frá Hafn- arfjarðarkirkju 30. janúar. Elsku afi, dagurinn sem þú varðst afi minn er mér ljóslifandi í minni. Ég var 10 ára gömul og amma dvaldi þá hjá okkur. Þið komuð inn og amma kynnti þig fyrir okkur. „Þetta er Barði, vinur minn,“ sagði hún feimnislega. Við heilsuðum kurteislega. Allt í einu kom Sindri, yngsti bróðir minn, þá tveggja ára hlaupandi fram í gang þar sem við stóðum, horfði á þig og hrópaði: „Afi!“ Svo fleygði hann sér í fangið á þér. Við hlógum öll að þessu uppá- tæki hjá honum, en amma roðnaði pínulítið. „Er ég svona afalegur?“ Spurðir þú og hlóst djúpa, smitandi hlátrinum þínum. Og það varstu einmitt. Þú og amma giftuð ykkur og í hönd fór hamingjusamasti tím- inn í hennar lífi. Í þér fann hún allt sem hún hafði leitað að og það sagði hún okkur öllum. Ég sagði skólafélögunum hvers- lags ævintýrafólk amma mín og afi voru. Hálft árið bjugguð þið í Afr- íku, og í mínum huga bjugguð þið að sjálfsögðu í strákofa með ljón í bak- garðinum. Hinn helming ársins bjugguð þið svo á Húsatóftum í Grindavík þar sem gamlar hleðslur, golfvöllurinn og fjaran varð ævin- týraland okkar krakkanna og í kaffisölunni var hægt að fá sér eins mikið malt og prinspóló og við gát- um mögulega torgað. Þarna var allt hægt. Í einum af löngu göngutúrun- um fundum við óvenju gæfan heim- alning. Við tókum hann með okkur heim að Húsatóftum og bjuggum til litla rétt úr gömlu hleðslunum og hlógum mikið yfir þessu uppátæki okkar. Daginn eftir hringdir þú svo í bóndann og kynntir þig sem sauða- þjófinn, svo hlóstu og lambinu var skilað. Þú kenndir mér svo margt. Hversu mikilvægt það er að halda í barnið í sjálfum sér. Að láta verkin tala. „Hlutirnir gerast ekki af sjálf- um sér.“ Þú varst stöðugt að hvetja barnabörnin þín og þú varst svo stoltur af þeim. Þú varst alltaf að segja mér og strákunum hvað Barði yngri, Gígja, Viktor og Sólrún væru að gera, að þau ættu eftir að ná svo langt hvert á sínu sviði. Hversu yndisleg Alistair og Kristín væru. Og þegar þú komst heim frá Afríku komst ekkert annað að en hversu mikið Tamerin, Tiffany, Steven og Steffany væru búin að stækka og hversu dugleg þau væru. Þess vegna, þrátt fyrir að við barnabörn- in hittum hvert annað sjaldan viss- um við alltaf hvað hin voru að gera. Fyrir þér skipti fjölskyldan öllu máli. Ég mun minnast þín sem afa míns sem hló, jafnvel þegar lífið var þér erfitt. Þú kvartaðir aldrei yfir neinu, meira að segja þegar þú varst sem veikastur. „Hverju hef ég svo sem yfir að kvarta!“ svaraðir þú þegar við spurðum þig hvernig þér liði. Þeir sem brosa framan í lífið jafnvel á erfiðustu stundunum, þeir sem hafa fjölskyldu sína í fyrirrúmi, þeir sem halda í barnið í sjálfum sér og leyfa sér að leika sér og gleðjast, þeir hafa yfir engu að kvarta jafnvel þegar harðnar í ári. Ég mun sakna þín, strákarnir biðja að heilsa. Hjartans kveðjur Eyrún Ósk Jónsdóttir. Barði Guðmundsson kom inn í líf mitt og fjölskyldunnar þegar hann giftist tengdarmóður minni, Stein- þóru Jóhannsdóttur. Hann steig inn í líf okkar áreynslulaust með opinn faðminn líkt og hann hefði alltaf til- heyrt þessari fjölskyldu. Hann hafði ekkert fyrir því að stækka fjöl- skyldu sína og taka við nýjum barnabörnum eins og þau væru hans eigin. Barði kom alltaf til dyr- anna eins og hann var klæddur, for- dómalaus gangavart samborgurum sínum. Hann var einn sá hreinskipt- nasti maður sem ég hef kynnst. Samskipti Barða við fjölskyldu mína voru mikil og góð. Það var allt- af hressandi að hitta Barða. Alltaf stutt í brosið og bjartsýnina. Aldrei heyrði ég hann kvarta yfir neinu. Jafnvel þegar hann var orðinn mikið veikur svaraði hann „Það er ekkert að mér,“ þegar hann var spurður um heilsuna. Barði hafði gaman af því að segja sögur enda góður sögumaður og hafði átt viðburðaríka ævi. Margar sögur hans eru mér minnistæðar. Ein var frá uppvaxtarárum hans á Selvogsgötunni í Hafnarfirði þar sem leikur hans að því að kveikja og slökkva í sífellu ljósið á baðherberg- inu, varð til þess að hermenn gráir fyrir járnum réðust inn í íbúðina til að athuga hvort einhver stórhættu- legur njósnari væri að senda mors- merki út á fjörðinn. Aðrar sögur átti hann frá Vopnafirði þar sem hann var kaupfélagsstjóri, af skemmti- legu fólki og atburðum og enn fleiri frá Afríkuárunum. „Þegar veturinn gengur í garð, missa tré og aðrar plöntur lauf sín tímabundið. En þessar plöntur og tré búa yfir lífi sem gerir þeim kleift að bera brum þegar vor- ar að nýju. Hið sama á við um dauða mannlegrar veru, við búum yfir lífskrafti sem mun leiða okkur í átt að nýju lífi, nýju hlutverki, samstundis og án sárs- auka.“ (Daisaku Ikeda.) Þessi orð komu upp í huga minn þegar ég frétti af andláti Barða. Lífsgleði og hlátur voru honum eig- inleg. Góðar manneskjur gera líf manns ríkara. Því langar mig að þakka af öllu hjarta fyrir að hafa fengið að kynnast þessum skemmti- lega öðlingsmanni. Ég er þess full- viss að þín bíður annað hlutverk, önnur ævintýri á nýju sviði og þar muntu áfram brosa kankvíslega út í annað og njóta lífsins. Eygló Jónsdóttir. Barði Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.