Morgunblaðið - 16.04.2009, Blaðsíða 25
Minningar 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 2009
✝ Árni Gunnarssonfæddist í Reykja-
vík 17.7. 1929. Hann
lést á hjúkrunarheim-
ilinu Holtsbúð í Garða-
bæ 5.4. 2009. For-
eldrar Árna voru
Gunnar Árnason, bú-
fræðingur frá Gunn-
arsstöðum í Þistilfirði,
f. 15.6. 1901, d. 17.11.
2002 og Olga Jenný
Nygard (Árnason) frá
Alvdal í Austurdal í
Noregi, f. 24.11. 1900,
d. 7.4. 1981.
Árni var elstur 4 systkina, sem eru:
Helga Lisa Amdal, f. 26.4. 1933. Maki
var James Edward Amdal, látinn. Bú-
sett í Seattle, Wash. USA. Þau áttu 1
barn og 4 barnabörn.
Sólveig Gunnarsdóttir, f. 10.8.
1935. Maki Aake Olafsson frá Sví-
þjóð, búsett í Reykjavík.
Sólveig á 3 börn og 4 barnabörn.
Gunnar Gunnarsson, f. 3. 9. 1939.
Maki Elín Jóna Jónsdóttir. Búsett í
Garðabæ. Þau eiga 2 börn og 4
barnabörn.
Árið 1955 kvæntist Árni Rebekku
Ólafsdóttur, f. 7.10. 1937, d. 31.1.
2004, dóttur Ólafs Sigurðssonar vél-
stjóra, f. 3.2. 1914, d. 19.1. 1989, og
eiga 3 börn: Sólveigu Matthildi, f.
17.12. 1994, Tómas Helga, f. 30.10.
1998 og Jóhann Gunnar, f. 19.8. 2008.
Móðir Kristjáns Þórs er Helga Gunn-
arsdóttir tónlistarkennari, f. 27.2.
1945. Börn Árna eru 5, barnabörn 16
og barnabarnabörn 10. Afkomendur
því 31. Árni giftist ekki aftur, en góð
vinkona Árna og félagi um árabil var
Kristrún Kristjánsdóttir, f. 10.7. 1939.
Árni ólst upp hjá foreldrum sínum í
miðbænum í Reykjavík og á Grund-
arstíg 8 frá 1933. Árni lauk samvinnu-
skólaprófi árið 1948 og kennaraprófi
árið 1953. Hann tók svo ýmsar gráður
og námskeið, m.a. BA-próf í kennslu-
fræðum. Hann starfaði svo við
kennslu alla sína starfstíð, m.a. í skóla
Ísaks Jónssonar. Lengst af í Barna-
skóla Garðahrepps, síðar Flataskóla,
ásamt því að gerast skólastjóri í Hrís-
ey um 2 ára skeið, og fara á vegum
Sameinuðu þjóðanna 2x2 ár til
kennslu í Afríku. Í frístundum frá
kennslu starfaði Árni mikið við alls
konar akstur, m.a. hjá Landleiðum,
við akstur strætisvagna og leigu-
bifreiðaakstur ásamt því að vera leið-
sögumaður í ferðalögum með ferða-
menn í rútum um landið. Reyndi
einnig hin ýmsu vélaverk og vörubíla-
akstur.
Árni var virkur í Félagi frímerkja-
safnara til áratuga enda helsta áhuga-
mál hans. Einnig í Þjóðdansafélaginu.
Útför Árna verður gerð frá Foss-
vogskirkju 16. apríl nk. kl. 13.
Kristjönu Þorsteins-
dóttur forstöðukonu, f.
8.4. 1912, d. 19.9. 2008.
Árni og Rebekka eign-
uðust 4 börn. Þau
skildu. Börn þeirra eru:
1. Gunnar Þór, f. 17.4.
1955. Hann á 2 dætur,
Hörpu Mjöll, f. 28.6.
1978 og Olgu Jennýju,
f. 10.2. 1981 og 4 barna-
börn. 2. Elín Birna, f.
23.7. 1956. Maki Ómar
Valgeirsson, f. 8.12.
1957. Þau eiga 2 börn,
Valgeir Árna, f. 20.10.
1976 og Anítu, f. 12.4. 1979 og 2
barnabörn. 3. Ólafur Logi, f. 4.8. 1959,
hann á 6 börn, Rebekku, f. 30.7. 1979,
Björn Sævar, f. 22.4. 1985, Rakel, f.
16.4. 1986, Einar Andra, f. 30.1. 1993,
Arnar Loga, f. 28.9. 1998 og Mána
Snæ, f. 5.3. 2000 og 3 barnabörn. 4.
Hildur Lind, f. 8.11. 1960. Maki Eiður
Örn Ármannsson, f. 16.2. 1959, þau
eiga 5 syni, Eini Loga, f. 16.7. 1979,
Valdimar Erni, f. 4.9. 1981, Hjörvar
Frey, f. 6.10. 1982, Mána Fannar, f.
3.7. 1990 og Bjarma Stein, f. 28.7.
1997 og 1 barnabarn.
5. barn Árna er Kristján Þór Árna-
son, f. 12.4. 1967. Maki; Valgerður
Guðrún Johnsen, f. 19.4. 1972, þau
Árni móðurbróðir minn var mjög
sérstakur maður. Það var honum að
þakka að aldrei skorti umræðuefni í
annars frekar hversdagslegri fjöl-
skyldu minni. Árni var einstæður
faðir. Hann átti fimm börn en aðeins
tvö elstu börnin ólust upp hjá honum.
Árni spilaði á allskonar hljóðfæri.
Hann hafði mjög gaman af að dansa
og dansaði með Þjóðdansafélaginu
árum saman. Hann var barnakennari
og ég veit að börn sem þurftu á sér-
kennslu að halda tóku miklum fram-
förum hjá honum. Hann safnaði frí-
merkjum af ástríðu og átti pennavini
úti um allan heim. Hann ferðaðist
mikið og bjó meðal annars í Afríku í
nokkur ár. Við eldri bróðir minn vor-
um jafnaldrar elstu barna Árna og
komum oft á heimili þeirra sem börn
og unglingar. Húsið var yfirfullt af
stórum pottablómum og eitt her-
bergið var fullt af kanarífuglum. Árni
útbjó oft spurningakeppni fyrir okk-
ur krakkana og lagði fyrir okkur
próf. Það var ekki fyrr en við höfðum
lokið við verkefnin að við gátum farið
að ærslast. Með honum máttum við
gera ýmislegt sem enginn annar full-
orðinn hefði leyft. Hann kenndi okk-
ur til dæmis að skjóta úr riffli og við
fengum að keyra bíl. Þegar ég var 14
ára stalst hann með okkur krakkana
í Glaumbæ og sagði okkur að
skemmta okkur ærlega. Árni sinnti
öldruðum föður sínum af mikilli natni
og umhyggju síðustu æviár hans
þegar hann þurfti á aðstoð og
umönnun að halda. Hann taldi aldrei
eftir sér að matbúa fyrir hann, fylgja
honum í félagsstarf, sund, göngu-
ferðir og fleira. Árni hafði einstakt
lag á að rækta grænmeti og galdraði
upp úr garðinum sínum tegundir
sem við vissum ekki einu sinni að
hægt væri að rækta utandyra á ís-
landi. Hann hélt langar tölur yfir
okkur krökkunum um hollustu
grænmetis meðan við ranghvolfdum
í okkur augunum. Hann drakk aldrei
áfengi og ekki einu sinni kaffi. Holl-
ustuhættirnir komu þó ekki í veg fyr-
ir heilsubrest því síðustu ár herjuðu á
hann illvígir sjúkdómar sem skertu
mjög lífsgæði hans og drógu hann að
lokum til dauða. Ég þakka Árna
frænda fyrir skemmtilegar samveru-
stundir.
Gunnhildur Olga Jónsdóttir.
Minningar skólaára eru ótrúlega
ágengar og jafnframt kærar í muna
manns þegar ár færast yfir. Þannig
er um skólaárin í Kennaraskóla Ís-
lands þar sem tekist var á við und-
irbúning þess verkefnis að mega
reynast nýtir kennarar nemendum
sínum og samfélagi og boðorðið okk-
ur gefið það helzt að megna þess að
koma öllum til nokkurs þroska. Það
mynduðust ákveðin vinatengsl, mis-
mikil að sjálfsögðu, en í myndum
minninganna voru öll þau kynni gef-
andi og víkkuðu um leið sjóndeildar-
hringinn.
Í dag kveðjum við bekkjarbróður
okkar sem var hinn mætasti félagi og
góðvinur alla tíð, ljúfir voru allir sam-
fundir síðar á ævinni, ávallt var vin-
hlýju að mæta. Hress í bragði, góð-
gjarn og óspar á bros og hlátur, enda
gleðin áberandi eðlisþáttur hans,
heillyndur og hreinlundaður, þannig
minnumst við Árna Gunnarssonar
með söknuði og þakklæti í senn.
Árni var greindur vel og námfús,
einkar geðþekkur og dagfarsprúður,
en gat verið ákveðinn og hiklaus í
svörum, þegar svo bar undir, spaug-
samur var hann og hafði unun af að
glettast, en alvaran átti þó ætíð ríkan
eðlisþátt hjá honum. Hann bar sig vel
og djarfmannlega án alls yfirlætis.
Árni átti ágætan kennsluferil, en
hann átti líka ljómandi ár í Afríku við
uppeldisstörf þar, hann var einkar fé-
lagslyndur, ungur gegndi hann trún-
aðarstörfum í Góðtemplarareglunni,
hann var stjórnarmaður í Norræna
félaginu og Tónlistarfélaginu í Garða-
bæ svo og í Þjóðdansafélagi Reykja-
víkur svo eitthvað sé nefnt, góður
liðsmaður hvarvetna á vettvangi.
Við þökkum vermandi samfylgd og
veitul samskipti á skólaárunum.
Við sendum börnum hans og þeirra
fólki innilegar samúðarkveðjur.
Þar gekk um vegu góður drengur.
Blessuð sé minning hans.
Helgi Seljan, Ólafur Einarsson.
Árni Gunnarsson
Er eitt blóm rís, þá sofnar annað.
Það er gangur lífsins.
Því allt sem fæðist líf á jörðu, að
lokum sofnar deyr.
Svo leggðu augun aftur þín, og
inn í svefninn langa.
Fagna því er lífið dvín, að leggja á
koddann vanga.
Dreymi þig um ókunn lönd, og
ástvinum að mæta.
Leggðu bæði líf og önd, þinn eng-
ill mun þín gæta.
Kveðja,
þín dóttir,
Elín Birna og fjölskylda.
HINSTA KVEÐJA
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
MARGRÉT ÖGMUNDSDÓTTIR,
Hraunbæ 103,
Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítala Landakoti miðviku-
daginn 8. apríl.
Útförin fer fram frá Áskirkju föstudaginn 17. apríl
kl. 13.00.
Guðrún Jónsdóttir, Oddur Þórðarson,
Jóna Jónsdóttir, Pétur Eiríksson,
Guðlaugur G. Jónsson, Sigríður I. Ágústsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær dóttir okkar, systir, mágkona, barnabarn og
frænka,
EYGLÓ GUÐRÚN KRISTJÁNSDÓTTIR,
Hlíðargötu 37,
Sandgerði,
lést þriðjudaginn 7. apríl.
Útförin fer fram frá Safnaðarheimilinu Sandgerði
laugardaginn 18. apríl kl. 14.00.
Jarðsett verður í Hagakirkjugarði í Holta- og Landsveit, laugardaginn
25. apríl kl. 15.00.
Kristján Níelsen, Sigurborg Andrésdóttir,
Andrés Daníel Kristjánsson, Hjördís Lilja Bjarnadóttir,
Ástrós Sóley Kristjánsdóttir,
Benjamín Smári Kristjánsson,
Andrés Eyjólfsson,
Eygló Kristjánsdóttir,
Júlía Rós, Alexander Freyr og Gabríel Þór.
✝
Elskulegur eiginmaður minn og faðir okkar,
ÞÓRHALLUR ÞORLÁKSSON,
dvalarheimilinu Sóltúni,
áður Efstaleiti 10,
Reykjavík,
lést þriðjudaginn 14. apríl.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðríður I. Einarsdóttir,
Örn Þórhallsson,
Þórunn Þórhallsdóttir,
Sigríður Þórhallsdóttir,
Einar Þ. Þórhallsson,
Hörn Harðardóttir.
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
AUÐUR SIGURÐARDÓTTIR
frá Hróarsstöðum
í Skagabyggð,
andaðist á Heilbrigðisstofnuninni Blönduósi mánu-
daginn 6. apríl.
Útförin verður frá Hofskirkju laugardaginn 18. apríl
kl. 14.00.
Sigurður Ingimarsson, Svava Kristinsdóttir,
Sigvaldi Ingimarsson,
Svava Ingimarsdóttir, Gunnar Tryggvason,
Valgerður Ingimarsdóttir, Kristinn Gestsson,
Guðjón Ingimarsson, Gunnur Gísladóttir,
Aðalsteinn Ingimarsson,
Gunnar Ingimarsson, Phakaphan Lamaithong,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
HARALDUR BESSASON,
181 Havelock Str.
Toronto Kanada M6H 3B7,
fyrrv. prófessor
við Manitobaháskóla
og rektor Háskólans á Akureyri,
lést í Toronto miðvikudaginn 8. apríl.
Minningarathöfn fer fram í útfararstofu Neil
Bardal Inc. 3030 Notre Dame Ave. í Winnipeg laugardaginn
25. apríl kl. 13.00.
Hans verður einnig minnst í Toronto laugardaginn 9. maí.
Minningarathöfn verður í Akureyrarkirkju 25. apríl kl. 13.00.
Í Reykjavík verður minningarathöfn í Áskirkju á sama tíma,
þ.e. laugardaginn 25. apríl kl. 13.00.
Fyrir hönd ættingja og vina,
Margrét Björgvinsdóttir.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
ERLENDUR SIGURÐSSON,
Stöðulsholti 4,
Borgarnesi,
sem andaðist á Sjúkrahúsi Akraness mánudaginn
13. apríl, verður jarðsunginn frá Borgarneskirkju
laugardaginn 18. apríl kl. 14.00.
Gunnfríður Sigurharðardóttir,
Sólveig R. Erlendsdóttir, Ólafur Júlíusson,
Þórir Erlendsson, Berglind Ólafsdóttir,
Steingerður Örnólfsdóttir
og afabörn.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÞORKELL DIEGO ÞORKELSSON,
Engihjalla 9,
Kópavogi,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
mánudaginn 13. apríl.
Útförin fer fram frá Laugarneskirkju föstudaginn
24. apríl kl. 13.00.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast
hans er bent á Rauða kross Íslands.
Elmar Þór Diego Þorkelsson, Erna K. Sigurbjörnsdóttir,
Dóra Diego Þorkelsdóttir,
Guðrún Ásta Guðjónsdóttir, Jóhannes Jónsson,
Sigurþór Yngvi Ómarsson, Hanna María Hjálmtýsdóttir,
Eva Dögg Þorkelsdóttir
og barnabörn.