Morgunblaðið - 17.04.2009, Page 6
Sumarstörf Auglýst er eftir fólki til
skapandi starfa í borginni í sumar.
Morgunblaðið/Valdís Thor
ALLS hafa á fjórða þúsund sótt
um tæplega 1.400 sumarstörf hjá
Reykjavíkurborg. Garðyrkja, eld-
hússtörf, heimaþjónusta og vinna
við umferðarmerkingar eru meðal
starfanna sem auglýst eru á vef
Reykjavíkurborgar fyrir sumarið.
Lárus Haraldsson, deildarstjóri
vinnumiðlunar Hins hússins, segir
ásóknina í störfin meiri en í meðal-
ári. Dæmi séu um að umsækjendur
séu eldri en áður og í almennri at-
vinnuleit á markaði, en sá elsti í ár
er fæddur 1943.
„Öllum er velkomið að sækja um.
Við tökum við þar sem Vinnuskól-
anum sleppir og umsækjendur hjá
okkur eru því fæddir 1992 og
eldri.“
Á þriðjudag höfðu 3.344 sótt um
sumarstörfin, en umsóknarfrest-
urinn rennur út 19. apríl. Hann
segir að ákvörðun hafi verið tekin
um að fleiri sinni störfunum í ár
þar sem það sé hægt og að hver
verði því ráðinn í sex til átta vikur.
„Við vonumst til að geta svarað öll-
um fyrir 15. maí, þó að í ein-
hverjum tilfellum geti það dregist.
Flestum verður þó svarað á allra
næstu dögum.“
Sum starfanna eru vinsælli en
önnur. Allt að fimmtíu hafa sótt um
tólf til átján skapandi störf hjá
Hinu húsinu; fyrir þá sem vilja
koma list sinni á framfæri, og 140
um níu lausar stöður hjá Götuleik-
húsinu. Ása Ingibjörg Hauksdóttir
er umsjónarmaður verkefnisins.
„Þetta er draumastarf margra, gíf-
urlega þroskandi og reynir mikið
á.“ gag@mbl.is
Þúsundir sækja í sumar-
störfin hjá borginni
Stytta vinnutímabilið í sumar svo fleiri fái störf
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. APRÍL 2009
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
Í DAG taka nemendur í flestum grunnskólum
landsins til við að móta framtíðarsýn þjóðar-
innar í samvinnu við foreldra sína. Samtök sem
kalla sig Hugmyndaráðuneytið standa fyrir
þessu vikulanga heimaverkefni grunnskóla-
barnanna og hafa fengið skólana til samstarfs
við sig. „Framtíðarsýn þjóðar“ er yfirskriftin, en
að sögn Þorgils Völundarsonar, talsmanns ráðu-
neytisins, fá börnin bréf í skólanum, sem þau
fara með heim. Í bréfinu eru leiðbeiningar um
verkefni sem þau eiga að leysa með foreldrum
sínum á heimasíðu á netinu.
„Þar á fólk að svara spurningum um hvað
skipti það mestu máli persónulega og hvað skipti
okkur Íslendinga sem þjóð mestu máli,“ segir
Þorgils. Verkefnið verður í gangi í eina viku og
hafa viðtökur verið mjög jákvæðar í langflestum
skólum að sögn Þorgils. „Við erum að vinna í því
að ná sem flestum inn í verkefnið. Það er okkar
von að við fáum stóran hluta þjóðarinnar til að
taka þátt,“ segir hann og bindur miklar vonir við
að börnin virki foreldra sína í þessu.
Markmiðið er að útskýra hvaða gildi og viðmið
þjóðin telur nauðsynleg, til að byggja upp sann-
gjarnt samfélag í sátt við þarfir nútímans og
býður upp á jöfn tækifæri fyrir komandi kyn-
slóðir. Upplýsingarnar verða svo teknar saman í
gagnabanka með kerfisbundnum hætti og opnað
fyrir aðgang í hann innan nokkurra vikna. Sér-
frótt fólk verður fengið til þess að greina gögnin
og túlka niðurstöðurnar, en engu að síður verður
aðgangur að þeim opinn fyrir hvern sem er til að
vinna úr. „Við höfum meðal annars talað við
gervigreindardeild Háskólans í Reykjavík, sem
hefur sýnt mikinn áhuga á því að vinna úr gögn-
unum,“ segir Þorgils.
Verkefninu verður hleypt af stað í Þjóðminja-
safninu á fjórða tímanum eftir hádegið í dag, við
hátíðlega athöfn. Vigdís Finnbogadóttir, fyrr-
verandi forseti, er verndari verkefnisins.
Það sem skiptir þjóðina mestu
Hugmyndaráðuneytið virkjar fjölskyldur landsins til að móta framtíðarsýn íslensku þjóðarinnar
Skólabörn fá heimaverkefni til að vinna með foreldrunum og skila hugmyndum í gagnabanka
Í HNOTSKURN
»Hugmyndaráðuneytiðer ekki opinber stofnun
heldur sjálfstæð samtök
sem vinna að frumkvöðla-
starfi.
»Framtíðarsýn þjóðar erstærsta verkefni sam-
takanna hingað til, en þau
vinna að fleiri hugmyndum
og koma saman á opnum
fundum á laugardögum.
»Vef hugmyndaráðu-neytisins má finna á
slóðinni hugmyndaradu-
neytid.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Framtíðarsýn Yngsta fólkið hefur eflaust
skoðun á því hvað skiptir mestu í lífinu.
Dansmeyjar Tignarlegar voru þær ballerínurnar úr Listdansskóla Íslands
sem dönsuðu Þyrnirós eftir Pjotr Tsjajkovskíj á sviði Háskólabíós við und-
irleik Sinfóníuhljómsveitar Íslands í gærmorgun.
Sinfóníuhljómsveitin bauð grunnskólanemum á höfuðborgarsvæðinu á
tónleikana og fékk til liðs við sig leikarann Halldór Gylfason til að fara með
hlutverk sögumanns.
Morgunblaðið/Ómar
SKÝRSLA nefndar ríkisstjórn-
arinnar um þróun Evrópumála
verður kynnt á blaðamannafundi í
dag. Nefndin fundaði í gær og á
stuttan lokafund í dag, segir Ágúst
Ólafur Ágústsson, annar tveggja
formanna nefndarinnar. „Ferlið
hefur verið langt og strangt eins og
við er að búast í svo viðkvæmu
máli,“ segir hann.
Nefndin var skipuð á fyrri hluta
síðasta árs. Fulltrúar allra flokka
eiga sæti í nefndinni auk fulltrúa
Samtaka atvinnulífsins, ASÍ, Við-
skiptaráðs og BHM. gag@mbl.is
Kynna
skýrslu Evr-
ópunefndar
laugardaga 10-18 sunnudaga 12-18 mánudaga - föstudaga 11-19
s: 522 4500 www.ILVA.is
Talia. Diskamotta. 290,-
Grillhanski. 490,-
Pottaleppar. 490,-
einfaldlega betri kostur
Nýtt kortatímabil
Grillum
saman!
YFIR 550 umsóknir bárust um aug-
lýst sumarstörf hjá álveri Alcoa
Fjarðaáls í Reyðarfirði. Ráðið verð-
ur í um sextíu tímabundnar stöður
framleiðslustarfsmanna og iðn-
aðarmanna. Umsóknir bárust hvað-
anæva af landinu og flestar af höf-
uðborgarsvæðinu.
Um 450 manns starfa hjá Alcoa
Fjarðaáli og um 250-300 manns til
viðbótar við störf nátengd álverinu
á álverssvæðinu.
550 vilja í
álver Alcoa