Morgunblaðið - 17.04.2009, Blaðsíða 34
34 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. APRÍL 2009
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Atvinnuhúsnæði
Sanngjörn leiga
Gott húsnæði við Tangarhöfða, 2
hæðir og kjallari alls um 900 fm.
Upplýsingar í síma 699 5112 og
861 8011.
Sumarhús
Sumarhús - orlofshús
Erum að framleiða stórglæsileg og
vönduð sumarhús í ýmsum stærðum.
Áratuga reynsla.
Höfum til sýnis á staðnum fullbúin
hús og einnig á hinum ýmsu
byggingarstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
netfang: www.tresmidjan.is
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi.
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda, sýningarhús á staðnum. Einnig
til sölu lóðir á Flúðum.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
All kinds of everything.
Skemmtileg síða um allt mögulegt.
www.sigurhus.is
Tómstundir
Plast-og Trémódel í miklu úrvali.
Tómstundahúsið, Nethyl 2,
sími 587-0600.
www.tomstundahusid.is
Til sölu
GSM minjasafn Símabæjar
er til sölu. Einstakt safn á heimsvísu
með u.þ.b. 500 GSM símum og eftir-
líkingum (dummy’s). Frábært atvinnu-
tækifæri á t.d. landsbyggðinni eða
sem hluti af öðrum rekstri til að
skapa athygli. Uppl. á simabaer.is
Verslun
Trúlofunarhringar, 14k par á kr
50.220,- Rómantíkin blómstrar í
kreppunni, 14k gullhringar á 50.220,-
Eigum einnig m.a. silfur, titanium og
tungsten hringa. ERNA, Skipholti 3,
s. 552 0775, www.erna.is
FREEMANS-LISTINN 10%
AFSLÁTTUR Í APRÍL. Listinn hefur
aldrei verið glæsilegri. S: 565 3900
eða www.freemans.is
Listinn er frír í apríl
Skattframtöl
Framtalsþjónusta 2009
Skattaframtöl fyrir einstaklinga,
einstaklinga með rekstur og félög.
Einnig bókhald. Hagstætt verð -
vönduð vinna. Sæki um frest.
S. 517 3977 - framtal@visir.is
Þjónusta
GULL-GULLSKARTGRIPIR
Kaupum til bræðslu allar tegundir
gullskartgripa, gamla, nýlega, ónýta,
gegn staðgreiðslu. demantar.is
Magnús Steinþórsson,
Pósthússtræti 13, sími: 699-8000.
Garðyrkjufræðingur getur bætt við
sig verkefnum í sumar. Hellulagnir,
hleðslur, þökulagning, pallasmíði og
margt fleira. Vönduð og góð vinnu-
brögð. Geri tilboð að kostnaðarlausu,
gerið verðsamanburð.
Upplýsingar í síma 663-6393
Málarar
Málningarvinna
Þaulvanur málari getur bætt við sig
verkefnum. Inni og úti. Vönduð og
öguð vinnubrögð. Sanngjarnt verð.
Uppl. í síma 897 2318.
Málningarvinna og múrviðgerðir.
Getum bætt við okkur inni- og
útiverkefnum. Vönduð vinnubrögð og
góð umgengni. Tilboð eða tímavinna.
Lítið Mál ehf. S. 896-5758.
Innrömmun
Opið kl. 10-18
Eftirprentanir
mikið úrval!
Ásgrímur - Picasso - Miro
Kandinsky - Hopper o.fl.
Ýmislegt
Vandaðar dömumokkasíur úr
mjúku leðri, skinnfóðraðar og með
mjúkum gúmmísóla. Sannkallaðir sjö
mílna skór. Margar gerðir og litir, td:
Stærðir: 36 - 41.
Verð: 9.985.-
Misty skór, Laugavegi 178,
sími 551 2070,
opið: mán. - fös. 10 - 18.
laugard. 10 - 14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
Sandblástur - www.blastur.is
Sandblástur og fínblástur á t.d.
bílum, felgum, ryðfríu o.fl.
Húðun m. t.d. epoxy, zinki o.fl.
Blástur.is
Helluhrauni 6, Hafnarfirði.
Sími 555 6005.
Vélar & tæki
Til leigu með/án manns.
Gerum einnig tilboð í hellulagnir og
drenlagnir. Upplýsingar í síma
696 6580.
Reiðhjól
Rafmagnsreiðhjól
Rafmagnsreiðhjól, verð 98.900,-
engin tryggingariðgjöld/bensín-
kostnaður. Allt að 25 km/klst. án
þess að stíga hjólið, ca. 20 km á
hleðslunni. www.el-bike.is
Bílar
Óska eftir sendibíl
(td Econoline) eða litlum pallbíl fyrir
hagstætt verð, má þarfnast viðgerðar
S: 860 2130.
Nissan DC árg. '99 ek. 212 þ. km
2.5 TD dr.krókur, plast í skúffu, ný
dekk, nýjar fjaðrir, ný skúffa, smá
dældir á hlið og gafli, nýskoðaður.
Fæst á 400 þús. Uppl. í síma
898-9795.
Bílaþjónusta
Húsviðhald
Þarftu að breyta eða bæta heima
hjá þér?
Eða þarftu aðstoð í nýbyggingunni?
Við erum til í að aðstoða þig við alls-
konar breytingar. Við erum til í að
brjóta niður veggi og byggja upp nýja,
breyta lögnum, flísaleggja eða
parketleggja og fl. Bjóðum mikla
reynslu og góð vinnubrögð.
Upplýsingar í síma 899 9825.
Tökum að okkur að leggja PVC
dúk á þök og bílskúra. Þjónum lands-
byggðinni einnig. Erum líka í
viðgerðum. Uppl. í síma 659-3598.
Sisalteppi
Strönd ehf. Suðurlandsbraut 10,
108 Reykjavík. s. 533-5800.
www.strond.is
NÝKOMNIR AFTUR
þeir eru komnir aftur - MEGA
vinsælu AÐHALDSBOLIRNIR í
stærðum S,M,L,XL2X,3X,4X í húðlitu,
svörtu og hvítu verð kr. .5.850,-
Misty, Laugavegi 178,
sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10-18, lau. 10 - 14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
✝ Erlingur Ottósson(Albrektsen)
fæddist í Borup á
Sjálandi í Danmörku
12. mars 1928. Hann
lést á Landspít-
alanum við Hring-
braut 11. apríl 2009.
Foreldrar hans
voru Inger Marie Al-
brektsen og Otto
Anton Albrektsen.
Systir Erlings var
Viola Albrektsen,
þau eru öll látin.
Erlingur kvæntist í
Noregi árið 1958 Vilmu Mar, f.
21.12. 1940. Foreldrar hennar voru
Cesar Mar og Guðfinna Vilhjálms-
dóttir, þau eru bæði látin.
Dóttir Erlings er Jette Fryd-
endahl, f. 1953, gift Erik Fryd-
endahl, f. 1951. Þau búa í Dan-
mörku. Börn Erlings og Vilmu
Mar eru: 1) Jörgen
Erlingsson, f. 1960,
kvæntur Hallfríði
Arnarsdóttur, f.
1960. Synir þeirra
eru: a) Arnar, f. 1980,
sambýliskona Sidse
Vedel, f. 1984, þau
eiga einn son, Oscar,
f. 2007. b) Ívar, f.
1989, d. 2008. Þau
búa í Danmörku. 2)
Irena Erlingsdóttir, f.
1961, giftist Kjartani
Erni Jónssyni, f.1959,
d. 2007. Börn þeirra
eru: a) Erla Björk, f. 1981, sam-
býlismaður Ágúst Hilmar Jónsson,
f. 1976, stjúpsonur Jón Þór, f.
1997.
Þau búa í Danmörku. b) Ottó Er-
ling, f. 1983, unnusta Unnur Magn-
úsdóttir, f. 1985. 3) John Mar Erl-
ingsson, f. 1962, sambýliskona
Hildur Björk Betúelsdóttir, f. 1963.
Dóttir þeirra: Birta Mar, f. 1997.
Dóttir Johns og Sigríðar Björns-
dóttur er Silja f.1987. 4) Inger
María Erlingsdóttir, f. 1964, gift
Árna Eðvaldssyni, f. 1963. Börn
þeirra eru: a) Vilma Ýr, f. 1987 og
b) Ísar Mar, f. 1993.
Erlingur fluttist ungur til Jót-
lands þar sem foreldrar hans hófu
búskap.
Hann gegndi herskyldu í Dan-
mörku og iðkaði filmleika. Hann
stundaði þar búskap.
Hann kynntist konu sinni, Vilmu
Mar, í Noregi árið 1956, þau fluttu
til Danmerkur árið 1960 og þaðan
til Íslands árið 1962. Erlingur hóf
störf á Íslandi hjá Verk hf., síðan
starfaði hann hjá Loftorku, Mið-
felli og síðustu 20 starfsárin sín
hjá Reykjavíkurborg við þunga-
vinnuvélar.
Útför Erlings fer fram frá
Digraneskirku í dag, 17. apríl
2009, og hefst athöfnin klukkan
11.
Meira: mbl.is/minningar
Kæri tengdafaðir, þú velur þér
sannarlega tímann til að kveðja
þennan heim. Hver getur verið dap-
ur á vorin þegar líf er að kvikna alls
staðar í kringum okkur? Vorið var
sannarlega þinn tími. Vorið er nýtt
upphaf, ný tækifæri og umfram allt
tími sakleysisins. Hvernig getur allt
þetta nýja líf sem kviknar á vorin
haft eitthvað á samviskunni?
Þú lagðir sannarlega þitt af mörk-
um til að gera heiminn betri. Það
hefur varla verið glæsilegt um að lit-
ast í þinni barnæsku í Danmörku að
fyrri heimsstyrjöldinni nýlokinni, og
þú rétt að vaxa úr grasi er sú síðari
hófst. Vafalaust hafa þessir atburðir
mótað þig. Þú skildir eftir þig ynd-
islega fjöldskyldu sem ég var svo
lánsamur að kvænast inn í og kynn-
ast, fyrir það verð ég ævinlega þakk-
látur. Þegar tilgangi lífsins er velt
fyrir sér sést að meginviðfangsefnið
er að viðhalda lífinu og hlúa að því
svo það dafni áfram. Þegar því lýkur
má segja að verkefninu sé lokið og
við taki bið sem fólk reynir að gera
það besta úr. Fyrir mann sem hefur
helgað sig vinnu allt sitt líf getur það
reynst erfitt að þurfa að hætta þrátt
fyrir að vera í fullu fjöri. En svona er
þessu nú einu sinni háttað. Þú
reyndir eftir fremsta megni að
fóstra lífið í garðinum þínum sem
var alltaf fallegur. Þér var náttúran
alltaf einstaklega hugleikin sem
vafalaust hefur átt sinn þátt í að þú
settist að hér á landi.
Víkur nú norðangarrinn, skín nú sólin
hátt.
Hún veitir yl og blessun og náttúrunni
mátt.
Verum þakklát fyrir lífið, unum því sátt
þá stund er þú dvaldir meðal okkar.
Hittumst um síðir minn kæri gamli
vinur
þegar sólin sígur og húmar að hjá mér
en þangað til hjartað mitt ylinn finnur
við tilhugsunina um samveruna með
þér.
Ástkær tengdasonur,
Árni Eðvaldsson.
Allt eins og blómstrið eina
upp vex á sléttri grund
fagurt með frjóvgun hreina
fyrst um dags morgunstund,
á snöggu augabragði
af skorið verður fljótt,
lit og blöð niður lagði, –
líf mannlegt endar skjótt.
(Hallgrímur Pétursson.)
Kæri Erling,
takk fyrir allt. Sofðu rótt.
Þín tengdadóttir,
Hildur.
Alle små fugle siger: bip, bip, bip.
Skorstensfejerens dreng siger:
kig, kig, kig.
Þessa vísu kenndi afi Erling okk-
ur, hún var meðal margra annarra
vísna og sagna sem afi hafði í poka-
horninu. Sérstaklega munum við
systur eftir sögunum um það hvern-
ig hann missti fremsta hlutann af
löngutöng. Sögurnar segjum við í
fleirtölu því þær breyttust í hvert
skipti sem við hittum hann. Afi naut
þess að gera okkur grikk við öll
tækifæri. Í uppáhaldi var at á borð
við að fela eignir okkar eða binda
skó okkar saman.
Ekki þekktum við afa fyrr en
hann var kominn á sín efri ár. Gam-
an hefði verið að sjá hann keppa í
fimleikum á Ólympíuleikum eða
virða hann fyrir sér gegna her-
skyldu í Danmörku. Hliðin sem við
kynntumst var afi sem drakk app-
elsín og ræktaði garðinn sinn vel
enda með níu og hálfan grænan fing-
ur.
Síðasta minning okkar um afa var
á sjúkrahúsinu. Ekki hefðum við
getað kosið okkur ánægjulegri
stund. Amma færði afa kókosbollu
með páskaunga á og afi smakkaði
bolluna. Hann hafði aðeins eitt orð
um páskanammið: „Lím!“
Við munum sakna þín og skrítln-
anna þinna og við lofum að gera okk-
ar besta til að halda garðinum þínum
grænum þér til heiðurs. Því miður
varðstu ekki hundrað ára eins og þú
spáðir en þú lifir að eilífu í hugum
okkar.
Ég kveð þig nú kæri vinur,
kveð þig í hinsta sinn.
Ástkæri eðalhlynur,
einstaki vinur minn.
Með ástarkveðju,
Silja og Birta Mar Johnsdætur.
Erlingur Ottósson
Fleiri minningargreinar um Er-
lingur Ottósson bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.
Veistu ef þú vin átt
þann er þú vel trúir
og vilt þú af honum gott geta.
Geði skaltu við þann blanda
og gjöfum skipta,
fara að finna oft.
(Úr Hávamálum.)
Ég sakna þín.
Þinn sonur,
John.
HINSTA KVEÐJA