Morgunblaðið - 17.04.2009, Blaðsíða 47
Menning 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. APRÍL 2009
Sp
ar
að
u
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
FÉLAGARNIR Mickaël Téo og
James Duncan skipa tvíeykið The
Fancy Toys, en þeir eru staddir hér
á landi í kynningar- og skemmtiferð.
Þeir héldu sína fyrstu tónleika hér í
Rósenberg í gærkvöldi og koma
fram á miklum tónleikum í Bíósaln-
um á Hótel Loftleiðum sem haldnir
eru til styrktar Fjölskylduhjálp Ís-
lands.
Þeir Fancy Toys-bræður kom
hvor úr sinni áttinni, Duncan er
Lundúnabúi en Téo sleit barns-
skónum í Suður-Frakklandi. Þeir
hittust í hermisveit, en ákváðu fljót-
lega að skemmtilegra væri að gera
eitthvað nýtt; byrjuðu á fyrirsætu-
fyrirtæki, þá kom útgáfufélag, svo
sjónvarpskokkaþáttaröð og loks
músíkin: The Fancy Toys.
Á tónleikunum í kvöld, sem hefj-
ast kl. 20, koma fram auk The Fancy
Toys Svavar Knútur, Ragnheiður
Gröndal og þjóðlagasveit og Thin
Jim and the Castaways, sem er
hljómsveit Jökuls Jörgensen, Birgis
Ólafssonar og Margrétar Eirar auk
aðstoðarmanna.
Fjölhæfir
fjörkálfar
The Fancy Toys Leika á tónleikum í
Bíósal Hótel Loftleiða í kvöld.
BANDARÍSKA leikkonan Jennifer
Aniston er sögð ósátt við að vera
ekki gerð ellilegri með hjálp förð-
unarmeistara í sinni nýjustu kvik-
mynd, The Baster. Í myndinni leik-
ur Aniston, sem er fertug, 48 ára
gamla konu sem þráir ekkert heitar
en að eignast barn. Það kom An-
iston hins vegar á óvart að aðstand-
endur myndarinnar hafi ekki gert
neitt til að láta hana líta út fyrir að
vera eldri en hún er. „Henni finnst
þetta ekki trúverðugt vegna þess
að hún lítur út fyrir að vera miklu
yngri en 48 ára. Hún spurði förð-
unarmeistarann hvort nota ætti
einhverjar tæknibrellur til þess að
gera hana eldri, og varð fyrir mikl-
um vonbrigðum þegar í ljós kom að
svo var ekki,“ segir heimild-
armaður um málið.
Reuters
Ungleg? Jennifer Aniston.
Aniston
nógu ellileg?
SPÆNSKI söngvarinn Enrique Ig-
lesias segist ekki ætla að giftast unn-
ustu sinni, tenniskonunni og fyrirsæt-
unni Önnu Kournikovu, að minnsta
kosti ekki í bráð. Parið hefur átt í ást-
arsambandi í átta ár, en Iglesias seg-
ist hreinlega ekki vera nógu þrosk-
aður til þess að ganga í það heilaga og
stofna fjölskyldu.
„Ég trúi alveg á hjónabandið en ég
held að maður þurfi ekkert að vera
giftur til þess að vera hamingju-
samur. Ég hef séð rosalega ham-
ingjusöm pör sem eru ekki gift og svo
hef ég séð gift pör sem eru alveg
rosalega óhamingjusöm. Það er af-
skaplega erfitt að halda samböndum
heilbrigðum og í góðu jafnvægi, það
þarf ekki annað en að skoða tölur um
tíðni skilnaða,“ sagði hjartaknúsarinn
í samtali við breska tímaritið Hello!.
„Ég er eins varðandi börn. Það
fylgir því mikil ábyrgð að vera faðir
og þótt mig dreymi um að eignast
börn er ég ekki tilbúinn til þess
ennþá. Sjáum bara til hvort ég þrosk-
ist ekki,“ sagði Iglesias, sem er 33
ára, en Kournikova er 27 ára.
Vill ekki giftast
Kournikovu
Reuters
Ástfangin Iglesias og Kournikova á tennisleik í Flórída hinn 2. apríl.