Morgunblaðið - 17.04.2009, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 17.04.2009, Blaðsíða 11
Fréttir 11INNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. APRÍL 2009 FRÉTTASKÝRING Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is STEINGRÍMUR J. Sigfússon sjávarútvegsráðherra ætlar ekki að úthluta byggðakvóta í sumar, en í stað þess leggur hann til að heimilaðar verði strandveiðar. Að- eins bátar undir 15 brúttótonnum mega stunda þessar veiðar. Stefnt er að því að veidd verði 8.627 tonn eftir þessu fyrirkomulagi. Undanfarin ár hefur hluta heild- arkvótans verið úthlutað til byggð- anna sérstaklega. Í ár átti þessi kvóti að vera 6.127 tonn. Deilur hafa verið um hvernig eigi að út- deila byggðakvótanum og úthlutun hefur dregist mikið af þeim sök- um. Raunar er ekki búið að út- hluta helmingi af byggðakvóta síð- asta fiskveiðiárs. Hugsað til reynslu Steingrímur J. ætlar sér að leggja byggðakvótann inn í nýjan flokk sem á að heita „strandveið- ar“. Jafnframt ætlar hann að auka kvótann um 2.500 tonn, en hann fer allur í þennan nýja flokk. Veið- arnar verða frjálsar fyrir báta sem eru minni en 15 brúttótonn. Alls eru í dag 720 haffærir bátar af þessari stærð. Um 650 þessara báta hafa stundað fiskveiðar í at- vinnuskyni á síðustu árum. Steingrímur J. leggur áherslu á að þetta fyrirkomulag sé hugsað „til reynslu“. Hann tekur jafn- framt fram að gera þurfi breyt- ingu á lögum áður en þetta kemur til framkvæmda og ekki vinnist tími til breytinga fyrr en eftir kosningar. Vonandi geti veiðarnar hafist í byrjun júní. Aðeins verður heimilt að stunda strandveiðar með handfæri. Steingrímur J. leggur áherslu á að þetta séu afar umhverfisvænar veiðar. Aflinn verði allur unninn innanlands og ætti því að stuðla að að fleiri störf skapist út um allt land. Þessi breyting væri einnig hugsuð til að greiða fyrir nýliðun í sjávarútvegi, efla atvinnu og hleypa meiri lífi í sjávarbyggðirnar. Þeir sem ætl- uðu sér að stunda þessar veiðar þyrftu að greiða gjald sem end- urspeglaði kostnað við umsýslu. Áætlað er að um helmingi byggðakvótans hafi verið úthlutað til skipa sem eru stærri en 15 tonn. Þessi skip missa því spón úr aski sínum. Sú spurning vaknar hvort þessi breyting leiði til þess að minni afli komi á land í ein- stökum byggðarlögum. Stein- grímur sagði að fyrirhugað væri að skipta landinu í svæði og þar yrði m.a. horft til þess hvernig byggðakvótinn hefði dreifst und- anfarin ár. Ýmis áhrif gætu orðið af þess- ari breytingu. T.d. er ekki ólíklegt að verð á smábátum eigi eftir að þokast upp á við, en búast má við að einhverjir sýni því áhuga að út- vega sér bát og hefja útgerð. Þessi breyting ætti einnig að bæta eitthvað stöðu kvótalausra útgerða sem hafa verið að leigja kvóta. Strandveiðar í stað byggðakvóta Morgunblaðið/Ómar Strandveiðar Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegsráðherra kynnir strandveiðarnar ásamt Jóhanni Guðmunds- syni, aðstoðarmanni sínum, og Sigurgeiri Þorgeirssyni ráðuneytisstjóra á Kaffivagninum í gær.  Sjávarútvegsráðherra áformar að leggja niður byggðakvóta og taka upp strandveiðar sem eingöngu verði stundaðar af smábátum  Strandveiðikvótinn verður 8.627 tonn og aðeins má veiða á handfæri Í HNOTSKURN »Strandveiðar má aðeinsstunda frá heimahöfn. »Veiðunum er ætlað aðstanda frá 1. maí til 31. ágúst. Veiðitímabilinu verður skipt í eins mánaðar tímabil til að dreifa álagi. »Eingöngu má veiða á virk-um dögum. »Ákveðinn verður há-marksafli sem bát er heim- ilt að veiða á hverjum degi. www.xf.is Ásta Hafberg Sigmundsdót t ir Norðausturkjördæmi Guðjón A . Kr ist jánsson Norðvesturkjördæmi Grétar Mar Jónsson Suðurkjördæmi Sturla Jónsson Reykjavík suður Karl V. Mat thíasson Reykjavík norður Kolbrún Stefánsdóttir Suðvesturkjördæmi Við þiggjum ekki mútur!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.