Morgunblaðið - 17.04.2009, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 17.04.2009, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. APRÍL 2009 Það hefur aldrei tíðkast að Ís-lendingar sitji heima á kjör- dag. Einar Sigurðsson bóndi á Reykjarhóli orti fyrir rúmri öld um mann sem lét það henda sig: Keyptur var að kúra heima á kjörfundinn vildi’ei sveima, sjálfum sér til mæðu’ og meins. Nú er einn af Valtýs vinum en vildi’ um daginn fylgja hinum, en krympaði sig að kjósa eins. Eitthvað hefur Magnús Sig- urbjörnsson á Akureyri haft áhyggjur af kjörsókninni er hann orti í kjörklefanum: Enn er talan okkar lág ekki er því að hrósa. Ætti að hýða alla þá sem ekki vilja kjósa? Kolbeinn Högnason orti um þing- mann á fyrri hluta síðustu aldar: Von er að litlu valdi hér vit og frækin tunga. Allir kjósa ætla sér eftir holdi og þunga. VÍSNAHORN | pebl@mbl.is Af þunga og kosn- ingum Í HEIMI hárgreiðslunnar er allt leyfilegt. Sérstaklega þegar um sýn- ingar fyrir framan áhorfendur er að ræða. Þá ganga hárgreiðsluhönnuðir oft lengra en þeir myndu gera á stof- unum sínum. Hártískusýning fór ný- verið fram í Rúmeníu. Keppt var í ýmsum greinum og var frumleikinn í fyrirrúmi eins og svo oft áður á sam- bærilegum sýningum. Reuters Hárfín vinnubrögð Opinn fundur, fjölskylduhátíð og bröns GÖNGUM HREINT TIL VERKS Það verður sannkölluð fjölskylduhátíð í Valhöll á laugardaginn Bjarni Benediktsson, Illugi Gunnarsson og Guðlaugur Þór Þórðarson verða með framsögur á opnum fundi í Valhöll, laugardaginn 18. apríl, kl. 10.30. Á meðan fundurinn fer fram verður boðið upp á hoppukastala og skemmtilega leiki fyrir börnin utan við Valhöll og þar sem veðurspáin er góð ætlum við að grilla saman eftir fundinn. Bröns um alla borg á sunnudaginn Á kosningaskrifstofum Sjálfstæðisflokksins um alla borg verður boðið upp á bröns sunnudaginn, 19. mars kl. 11 til 14. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, heimsækir allar skrifstofurnar og frambjóðendur flokksins ætla að snæða með þeim sem líta inn yfir léttu spjalli. Nánari upplýsingar eru á xd.is.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.