Morgunblaðið - 17.04.2009, Side 37
Velvakandi 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. APRÍL 2009
Aflagrandi 40 | Leikfimi kl. 8.30, kaffi
og dagblaðalestur kl. 9, vinnustofa kl.
9-16.30, bingó kl. 13.30.
Árskógar 4 | Bað kl. 8.15-16. Opin
smíðastofa kl. 9-16.30. Árleg handa-
vinnusýning hefst kl. 14-17. Fallegir
munir í trésmíði og handavinnu. Mynd-
listarsýning. Veitingar. Sönghópur Elsu
syngur 18.4 og harmonikkuleikur Þor-
leifs og Elsu milli kl. 16-17.
Bólstaðarhlíð 43 | Kertaskreyting,
handavinna, kaffi/dagblöð, hárgreiðsla,
böðun, fótaaðgerð.
Dalbraut 18-20 | Harmonikka og söng-
ur kl. 13.30.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Bók-
menntahópur hittist kl. 13, í Stangarhyl
4. Stefán Ólafsson, formaður stjórnar
TR og formaður nefndar um endur-
skoðun laga um almannatryggingar,
kynnir niðurstöður nefndarinnar á opn-
um fundi hjá Félagi eldri borgara í
Reykjavík að Stangarhyl 4 í dag kl. 15.
Félagsheimilið Gjábakki | Boccia kl.
9.20, málm- og silfursmíði kl. 9.30, jóga
kl. 10.50 og félagsvist kl. 20.30.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Vefn-
aður kl. 9, jóga kl. 9.30, ganga kl. 10,
leikfimi kl. 10.30, Gleðigjafarnir kl. 14.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Vatnsleikfimi kl. 9.20, gler og leir kl. 10,
námskeið í bútasaumi og ullarvinnu kl.
13, félagsvist FEBG kl. 13.30, rúta frá
Hleinum kl. 13 og Garðabergi kl. 13.15.
Félagsstarf Gerðubergi | Kl. 9-16.30
vinnustofur opnar, m.a. bókband. Kl. 10
prjónakaffi/bragakaffi. Kl. 10.30 staf-
ganga, umsj. Sigurður Guðmunds.
íþróttakennari. Frá hádegi spilasalur op-
inn. Kl. 13 fjölbreytt leikfimi í ÍR-
heimilinu v/Skógarsel. Kl. 14.30 kóræf-
ing. Miðvikud. 22. apríl kl. 14 er dagskrá
í Breiðholtskirkju.
Furugerði 1, félagsstarf | Kl. 9 tré-
smíðar og útskurður, kl. 12 hádeg-
ismatur. Kl. 14 guðsþjónusta, prestur sr.
Ólafur Jóhannsson, Furugerðiskórinn
leiðir söng undir stjórn Ingunnar Guð-
mundsdóttur. Messukaffi.
Hraunbær 105 | Baðþjónusta og
handavinna kl. 9, bingó kl. 14., bókabíll-
inn kl. 14.45.
Hraunsel | Opnað kl. 9, bókmennta-
klúbbur kl. 10-12, leikfimi Bjarkarhúsi kl.
11.30, tréskurður Hjallabraut og g-
Lækjarsk. kl. 13, brids kl. 13, Skrifstofa
stjórnar kl. 10-12.
Hvassaleiti 56-58 | Opin vinnustofa, kl.
9 postulínsmálning. Lífsorkuleikfimi kl.
9 og 10. Námskeið í myndlist kl. 12.15.
Böðun fyrir hádegi, hársnyrting.
Hæðargarður 31 | Morgunkaffi kl. 9.
Listasmiðja kl. 9-16. Gönguhlaup kl.
9.10. Hláturjóga kl. 13.30. Frú Mínerva
mætir aftur næsta haust. World Class í
dag. Fulltrúar frá Samfylkingu koma í
heimsókn kl. 12.30. Qigong á morgun,
föstudag, kl. 9. Helga Jónsdóttir leik-
kona leiðbeinir. S. 411 2790.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Blaða-
klúbbur með Önnu Hermannsdóttur kl.
10, leikfimi með Janick Moisan kl. 11,
opið hús, vist og brids kl. 13. Hár-
greiðslustofa, s. 862 7097, fótaað-
gerðastofa, s. 552 7522.
Norðurbrún 1 | Morgunleikfimi kl. 9.45.
Myndlistarnámskeið kl. 9-12, útskurður
með Halldóri leiðb. kl. 9-12 og smíða-
verkstæði opið, leikfimi með Janick kl.
13. Samvera kl. 14 með Margréti
djákna.
Vesturgata 7 | Handavinna kl. 9-12,
spænka kl. 11, sungið v/flygilinn kl.
13.30, dansað í aðalsal kl. 14.30. Hár-
greiðsla og fótaaðgerðir.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Leirmótun
kl. 9, handavinnustofan opin, hár-
greiðslu og fótaaðgerðastofur opnar,
morgunstund kl. 9.30, leikfimi kl. 10 og
bingó kl. 13.30. Uppl. í síma 411 9450.
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
STRÁKARNIR Í BRÆÐRAFÉLAGINU
VORU MEIRI GRALLARARNIR
ÞETTA VAR SAMT ALLT BARA
SAKLAUST GRÍN
HÉRNA ER ÉG SOFANDI MEÐ KJÚKLING
LÍMDAN VIÐ HÖFUÐIÐ Á MÉR
ÉG ÆTLA
AÐ SKRIFA
ÞETTA NIÐUR
ÉG
HATA
MIG
ÞAÐ VAR
SÓUN Á
PENINGUM AÐ
KAUPA ÞESSAR
SÁLFRÆÐI-
BÆKUR FYRIR
BÖRN
MÉR VAR SAGT AÐ EFTIR AÐ
MAÐUR GIFTIR SIG SÉ AUÐVELT
FYRIR KONUR AÐ VERA ÚTIVINNANDI
OG SINNA HEIMILINU
HVAÐA
VITLEYSINGUR
SAGÐI ÞÉR
ÞAÐ? KÆRASTINN
MINN
ROSALEGA ER
MIKIÐ AF SNIÐUGU
DÓTI Í VESKINU
HENNAR MÖMMU
ÞÚ MÁTT
EIGA ÞAÐ...
ÉG ÆTLA BARA
AÐ TAKA
PENINGINN
KIDDU FANNST FRÁBÆRT
AÐ HUGSA UM ROTTUNA
HENNAR ALDÍSAR
ÉG VEIT
HÚN SPURÐI HVORT HÚN
MÆTTI FÁ ROTTU, EN ÉG
SAGÐI AÐ ÞAÐ KÆMI EKKI TIL
GREINA. HÚN VARÐ SVO LEIÐ
AÐ MÉR FANNST ÉG ÞURFA AÐ
GERA EITTHVAÐ
SVO ÞÚ
KEYPTIR
NAGGRÍS?
HANN HEITIR
„TÍSTIR“
ÞAÐ VAR GAMAN Í L.A.,
EN ÞAÐ ER ALLTAF GOTT
AÐ KOMA HEIM
ÉG GÓMAÐI ÞRJÁ
GLÆPAMENN Á EINU
OG SAMA KVÖLDINU!
HVAÐ
MEÐ
ÞESSA?
RÉTT Í ÞESSU VAR ANNAR
BÍLL FRÁ „DAILY BUGLE“
SPRENGDUR Í LOFT UPP...
VORIÐ bankar nú upp á, svo mikið er víst. Að minnsta kosti ef miðað er við
fögru sumarblómin sem spretta upp við íþróttahúsið á Seltjarnarnesi.
Morgunblaðið/Ómar
Sumarblóm á Seltjarnarnesi
Þakklæti til þeirra
sem fundu Brand
ÉG vil koma á framfæri
þakklæti til þess heiðurs-
fólks sem fann köttinn
minn, Brand, dáinn niðri
í Tjarnargötu og fór með
hann upp á dýraspítala
til þess að finna út hver
væri eigandinn.
Ég vil benda fólki á að
gera slíkt hið sama ef
það finnur dauð dýr á
víðavangi. Það er mikils
metið af eigendum.
Sigurður H Jóhannsson.
Verjum lýðræðið
ÞANN 15. apríl sl. fór ég á fund sem
Öryrkjabandalag Íslands stóð fyrir
og var sá fundur sá sjötti og síðasti í
fundarröð sem þeir hafa staðið fyrir
en þeir báru yfirskriftina „Verjum
velferðina.“
Þar sátu á palli formenn flokkanna
en eitt fannst mér gagnrýnisvert og
það var að ekki voru leyfðar fyr-
irspurnir úr sal til formanna. Hins
vegar var hægt að skrifa spurningar
og fundarstjóri fór yfir nokkrar
þeirra, en afganginn átti að setja inn
á tölvu og yrði þeim svarað síðar. Ég
vil benda á að það eiga ekki allir tölv-
ur. Hvað ætlar Öryrkjabandalag Ís-
lands að gera til að allir fá svör við
sínum spurningum fyrir kosningar?
Það er margt sem hvílir þungt á
fólki í því efnahags-
ástandi sem nú ríkir.
Það þarf að opna betur
fyrir tengsl milli stjórn-
málamanna og almenn-
ings. Hvað um fund þar
sem fólkið sæti á pöll-
unum og fengi að halda
ræður og frambjóð-
endur sætu frammi í sal
og spyrðu fólkið hvað
það væri sem það óskaði
eftir? Þetta er bara hug-
mynd því að fólk kvartar
mjög yfir því að komast
ekki í samband við
stjórnmálamennina fyr-
ir kosningarnar og við
verðum alltaf að verja lýðræðið.
Sigrún Reynisdóttir.
Dagbók glataðist
HREFNA, 9 ára,
týndi dagbók sinni
annan í páskum
við Bláa Lónið eða
á leið um 101 Rvk.
(Laugavegi). Bók-
in er eins og sú á
myndinni og ber
titilinn Hrefna.
Fundarlaun 15.000 kr. Finnandi er
vinsamlegast beðinn um að hafa sam-
band í síma 694 3513 eða 691 6713.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara