Morgunblaðið - 24.04.2009, Page 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. APRÍL 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt-
ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
íslenskur ríkisborgari
21.000 undirskriftir voru
afhentar Jóhönnu Sigurðardóttur
forsætisráðherra. Undirskriftir
berast enn og vilji fólksins er skýr.
Lífeyrissjóðina á að nýta í þágu
sjóðsfélaga, þeir eru ekki fríðindi
forstjóranna. Nýtum atkvæðin
okkar á laugardaginn.
Enn bætast við
undirskriftir
Eftir Magnús Halldórsson
magnush@mbl.is
STEINGRÍMUR J. Sigfússon fjármálaráðherra sendi í
gær frá sér tilkynningu þar sem hann neitaði því alfarið
að íslenska ríkið þyrfti að koma að eða taka yfir rekstur
flugfélagsins Icelandair.
Tilkynningin var send út eftir að fréttir voru sagðar af
því að Steingrímur J. hefði á fundi á Egilsstöðum sl.
þriðjudag, sem atvinnumálanefnd Fljótsdalshéraðs boð-
aði til, sagt stöðu Icelandair alvarlega og ríkið þyrfti
hugsanlega að yfirtaka rekstur flugfélagsins.
Þessar fréttir ollu nokkru uppnámi hjá hluthöfum í
Icelandair, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins, enda
félagið skráð á hlutabréfamarkað. Þórður Friðjónsson,
forstjóri Kauphallar Íslands, setti sig strax í samband við
Steingrím eftir að fréttir um þetta birtust og óskaði eftir
frekari skýringum á ummælum hans. Sagði hann að
skýringar yrðu að liggja fyrir áður en opnað yrði fyrir
viðskipti í Kauphöllinni í dag. Ekki síst var talið nauðsyn-
legt að fá skýringar þar sem upplýsingar sem þessar
gætu fallið undir innherjaupplýsingar samkvæmt lögum
um verðbréfaviðskipti. Steingrímur sendi þá frá sér til-
kynningu þar sem hann neitaði því alfarið að hafa talað
um Icelandair með fyrrnefndum hætti. Sagði hann Ice-
landair standa sig vel miðað við erfiðar aðstæður og að
þótt „erfiðleikar kunni að herja á einhverja í eigendahópi
félagsins“ þá væru ekki uppi nein áform um að ríkið yf-
irtæki flugfélagið.
Fundargestir, sem Morgunblaðið ræddi við, sögðu
Steingrím hafa sagt það vera möguleika að Icelandair
yrði yfirtekið af ríkinu. Þessu neitar hins vegar Stein-
grímur alfarið eins og áður sagði.
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group,
móðurfélags Icelandair, segir orðróm sem þennan vera
óheppilegan og geta skaðað flugfélagið mikið. „Icelandair
Group er skráð félag og þess vegna er svona orðrómur
alltaf viðkvæmur, og beinlínis skaðlegur. Viðskiptavinir
geta hætt við að eiga viðskipti við félagið útaf svona orð-
rómi,“ sagði Björgólfur í samtali við Morgunblaðið.
Flugfélag ekki þjóðnýtt
Fjármálaráðherra neitar því að hafa sagt íslenska ríkið mögulega vera að taka
yfir Icelandair Forstjóri Kauphallar Íslands óskaði strax eftir skýringum
Í HNOTSKURN
» Lánveitendur 70 prósentahluthafa í Icelandair Gro-
up stýra í raun félaginu eins
og greint hefur verið frá í
Morgunblaðinu á mbl.is. Þar á
Íslandsbanki mestra hags-
muna að gæta.
» Rekstur Icelandair hefurgengið samkvæmt áætl-
unum á árinu, samkvæmt upp-
lýsingum frá félaginu. Hrun
íslensku krónunnar kom illa
við fjárhag eignarhaldsfélaga
sem eru meðal stærstu hlut-
hafa félagsins.
VART má á milli sjá hvort er einbeittara, Heið-
björt Einarsdóttir úr Mývatnssveit eða sjálfur
Andrés Önd. Heiðbjört rennir sér þarna af stað í
fyrri ferð svigkeppni 9 ára í gær á leikunum sem
kenndir eru við öndina heimsfrægu, í Hlíðarfjalli
við Akureyri. Keppendur eru 792 að þessu sinni
og talið að um 2.000 séu viðriðnir þessa árlegu
hátíð; þjálfarar, fararstjórar og foreldrar auk
allra krakkanna. Keppni lýkur á morgun.
Gangi þér vel, Heiðbjört
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
LANDSMENN eiga gott sumar framundan að mati
Brynjúlfs Brynjólfssonar, starfsmanns fuglaathug-
unarstöðvar Suðausturlands. Sú sé a.m.k. raunin ef
mark sé tekið á hrossagauknum, sem víða sást
hneggja í suðri.
Farfuglar eru nú byrjaðir að flykkjast til landsins.
Fyrstu kríurnar sáu þeir á Stöðvarfirði 19. apríl sl.
en þeir byrja yfirleitt að skyggnast um eftir komu
hennar um miðjan apríl. Þá hefur Brynjúlfur frétt
af einum spóa og segir fleiri vera á leiðinni. Sömu-
leiðis steindepil og lóuþræl, sanderlu og rauðbryst-
ing, þórshana og óðinshana, en hann er venjulega
síðastur á ferð – um miðjan maí.
Brynjúlfur er líka vel vakandi gagnvart flækings-
fuglum, sem hingað koma, ásamt öðrum austfirskum
fuglaáhugamönnum og færir fregnir af þeim reglu-
lega inn á vefinn fuglar.is. „Við höfum séð bæði her-
fugl og kjarnbít hér nýlega.“ Báðar koma tegund-
irnar hingað frá Evrópu og er herfuglinn, að sögn
Brynjúlfs, þrátt fyrir nafnið laus við ráneðli. „Við
höfum meiri áhyggjur af að hann nái ekki að lifa.“
Trjátittlingur fannst sömuleiðis á Stöðvarfirði um
daginn, en þessi tiltölulega sjaldséði fugl líkist þúfu-
tittlingi. Brynjúlfur telur þó ekki meira um flæk-
ingsfugla hér nú en áður. „Þetta er vissulega alltaf
breytilegt milli ára og við fylgjumst nú betur með
þessum fuglum, enda hefur virkum fuglaskoðurum
fjölgað verulega.“
Hrossagaukurinn hneggjaði í suðri
Ljósmynd/ Brynjúlfur Brynjólfsson
Kjarnbítur Einn flækinganna frá Evrópu sem hér eru.
„NEI það hefur
nú enginn rætt
það við mig hvort
mér bjóðist að
vera ráðherra að
loknum kosn-
ingum,“ segir
Gylfi Magnússon
viðskiptaráð-
herra. Hann seg-
ir engan hafa
rætt við sig um framtíð sína sem
ráðherra. „Ég geri alveg eins ráð
fyrir því að fara í háskólann aftur.
En þetta hefur verið afar lærdóms-
ríkur tími, og verkefnin auðvitað
krefjandi. Ég neita því ekki að þetta
hefur verið erfitt, en að sama skapi
skemmtilegt,“ segir Gylfi. Hann tók
sæti sem viðskiptaráðherra í minni-
hlutastjórn Vinstri grænna og Sam-
fylkingarinnar 1. febrúar, eftir að
stjórnarsamstarfi Sjálfstæðisflokks
og Samfylkingarinnar lauk.
Ekki rætt
um fram-
haldið
Gylfi Magnússon
Gylfi Magnússon
viðskiptaráðherra
SÍÐASTI vetrardagur er liðinn og
landsmenn margir hverjir eflaust
farnir að huga að því hvernig sum-
arfríinu skuli varið. Þó að minna
verði um utanlandsferðir en und-
anfarin ár þá halda alltaf einhverjir
utan og stundum er bíllinn tekinn
með.
Á heimasíðu fjármögnunarfyr-
irtækisins Avants er vakin athygli á
að óheimilt sé að fara úr landi með
ökutæki sem Avant hf. er skráð eig-
andi að án skriflegs samþykkis fé-
lagsins. Á þetta jafnt við um flutning
af landi brott sem og skemmri ferðir,
t.d. sumarleyfisferðir með Norrænu.
„Vandamálið er að bílarnir eru
ekki tryggðir þegar þeir eru komnir
til útlanda,“ segir Magnús Gunn-
arsson, framkvæmdastjóri Avant.
Samkvæmt bílasamningnum sé bíll-
inn í eigu Avant, en viðkomandi um-
ráðamaður. „Þannig að ef eitthvað
kemur fyrir erlendis þá erum við eig-
andinn. Þess vegna höfum við verið
að skoða hvaða möguleika við höf-
um.“ Fyrirtækið sé í mjög þröngri
stöðu varðandi það að heimila að
bílar fari úr landi, en hvert dæmi sé
þó skoðað fyrir sig. „En þetta er á
vissan hátt ákveðinn vandi og sér-
staklega fyrir fólk sem er kannski að
flytja úr landi.“ annaei@mbl.is
Má fara á
bílnum í fríið?