Morgunblaðið - 24.04.2009, Síða 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. APRÍL 2009
Námsmönnum hjá Keili bjóðast glæsilegar íbúðir á hagstæðu verði með frábærri
aðstöðu fyrir barnafólk. Sjón er sögu ríkari! Skemmtileg dagskrá fyrir alla fjölskylduna.
Á S B R Ú - S Í M I : 5 7 8 4 0 0 0 - W W W . K E I L I R . N E T
Laugardaginn 25. apríl kl. 12-17
Opinn dagur hjá Keili
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
UNGMENNI sextán ára og yngri
virðast í auknum mæli sækja í e-töfl-
ur. Ráðgjafi hjá Foreldrahúsi telur
jafnvel hægt að tala um faraldur í
þeim efnum undanfarið ár eða svo. Á
síðustu mánuðum hefur jafnframt
orðið vart aukningar á neyslunni. Á
vefsvæði Samtaka áhugafólks um
áfengis- og vímuefnavandann (SÁÁ)
má sjá að verð á e-töflum hefur frek-
ar lækkað en önnur efni hækkað í
verði.
„Þetta hefur verið frekar áberandi
neysla hjá krökkum, og við höfum
merkt aukningu síðustu mánuði,“
segir Díana Óskarsdóttir, ICADC-
ráðgjafi hjá Foreldrahúsi. Erfitt er
að henda reiður á því hvers vegna
unga fólkið sækir í e-töflur, Díana
segir að það leiti kannski frekar í
önnur efni ef framboð á kannabis-
markaði minnkar, s.s. í kjölfar um-
fangsmikilla aðgerða lögreglu við að
þefa uppi kannabisverksmiðjur. „En
ég hef reyndar ekki orðið vör við
neina minnkun grasneyslu. Og það
þrátt fyrir að búið sé að stoppa þess-
ar verksmiðjur.“
Ofsjónir, óróleiki
og ofsahræðsla
Díana tekur þó fram að áhrifin
komi síðar inn á borð til hennar. Það
gæti því verið kippur í þessari neyslu
um þessar mundir en það kemur
ekki ljós fyrr en eftir mánuð eða svo
eða „þegar þeim fer að líða illa og
vilja hætta að nota efnin“.
Undanfarin tvö ár eða svo hefur
viðtölum í Foreldrahúsi farið stöðugt
fjölgandi. Díana sér ekki að það muni
breytast, miðað við hvernig þróunin
er á þessu ári. Á fimmta hundrað við-
töl fóru þannig fram á fyrstu þremur
mánuðum ársins.
E-töflur, alsæla, helsæla eða bara
MDMA. Sama hvaða nafni það er
kallað er efnið skylt amfetamíni. Það
er oftast í töfluformi og töflurnar
myndskreyttar. Þær innihalda
venjulega 100 mg af virka efninu
MDMA.
Á vef SÁÁ kemur fram að í
vímunni lýsi fólk því að það finni fyr-
ir aukinni samkennd, samúð og
skilningi og aukinni þörf fyrir að
hreyfa sig og dansa. Hjá næmum
einstaklingum komi fram vægar of-
skynjanir, hjartsláttur og höfuð-
verkur. Í stórum skömmtum koma
fram ofsjónir, óróleiki, hiti og ofsa-
hræðsla. Eftir vímuna kvarta margir
um að vera ruglaðir, kvíðnir og
þunglyndir. Þessi líðan varir í nokkr-
ar klukkustundir upp í nokkra daga
eftir neyslu í eitt skipti.
Notkun á e-töflum eykst
Ungmenni virðast í vaxandi mæli sækja í e-töflur Ráðgjafi hjá Foreldrahúsi
segir jafnvel hægt að tala um faraldur, en um mjög hættulegt efni er að ræða
NOKKUR hundruð manns komu saman við álversframkvæmdirnar í
Helguvík á sumardaginn fyrsta. Slegin var skjaldborg um álver og at-
vinnuuppbyggingu á Suðurnesjum. Með aðgerðum sínum vildi fólkið vekja
athygli á því að á Suðurnesjum mælist mesta atvinnuleysi á landinu. 360
þúsund tonna álver geti hins vegar skapað 1.800 vel launuð störf og það
hafi mikil áhrif á stöðu atvinnumála á svæðinu. Mikil ósamstaða sé hins
vegar er á milli ríkistjórnarflokkana um þá uppbyggingu sem átt hafi sér
stað í Helguvík.
Skjaldborg um álversframkvæmdir
Ljósmynd/Víkurfréttir
ÁSTA Ragnheið-
ur Jóhann-
esdóttir, félags-
og trygginga-
málaráðherra,
hefur úthlutað
952 milljónum
kr. úr Fram-
kvæmdasjóði
aldraðra fyrir ár-
ið 2009. Verður
fénu m.a. varið
til uppbyggingar hjúkrunarrýma,
fækkunar fjölbýla á hjúkr-
unarheimilum og viðhalds hús-
næðis.
Ákvörðun ráðherra er í samræmi
við tillögur samstarfsnefndar um
málefni aldraðra sem fer með
stjórn sjóðsins. Aðspurð hvort ekki
hefði verið tilefni til að endurskoða
fjárhæðina í ljósi núverandi efna-
hagsástands, segir Ástar Ragnheið-
ur svo ekki vera. „Þetta er mark-
aður tekjustofn og greiðslan er í
samræmi við lög og fram-
kvæmdaáætlun um uppbyggingu í
þágu aldraðra,“ segir hún. Út-
hlutun úr Framkvæmdasjóði aldr-
aðra fari nú fram á sama árstíma
og áður. En Jóhanna Sigurð-
ardóttir, þáverandi félags- og
tryggingamálaráðherra, úthlutaði
653 milljónum kr. úr sjóðinum í
mars í fyrra.
Segir Ásta Ragnheiður úthlut-
unina nú raunar hafa hafa átt að
fara fram fyrir páska en það ekki
tekist.
Alls voru um 1,4 milljarðar kr. til
ráðstöfunar í sjóðnum og er ráð-
gert að tæpum 450 milljónum verði
úthlutað síðar á þessu ári. Hæstu
framlögin nú fara til byggingar
hjúkrunarheimilis við Suðurlands-
braut í Reykjavík, hjúkrunarheim-
ilis við Boðaþing í Kópavogi og
hjúkrunarheimilisins Jaðars í Snæ-
fellsbæ. annaei@mbl.is
Milljarður
til aldraðra
Ásta R.
Jóhannesdóttir
Úthlutað úr Fram-
kvæmdasjóði aldraðra
Fleiri heita Júní
Ekki er rétt, sem haldið var fram í
Morgunblaðinu í gær, að Gissur
Júní Kristjánsson sé fyrsti karl-
maðurinn á Íslandi til að heita
nafninu Júní. Fleiri en einn hafa
borið þetta nafn. Nafnið mun hins
vegar ekki hafa verið skráð í
mannanafnaskrá fyrr en Gissur
Júní lagði fram ósk um að það
fengist skráð sem gilt karlmanns-
nafn.
LEIÐRÉTT