Morgunblaðið - 24.04.2009, Blaðsíða 12
12 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. APRÍL 2009
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Stuðningshlífar
fjölbreytt úrval
ÞÓ AÐ sumardagurinn fyrsti væri á köflum blautur sló það ekki á gleði fram-
bjóðenda sem héldu kosningaskemmtanir um víðan völl í gær. Leitað var ým-
issa leiða til að gleðja gesti og gangandi; gítarleikur, barnaskemmtun, trúðs-
læti og pulsur með öllu.
Sjálfstæðis- og framsóknarmenn mettuðu munna, vinstri græn mettuðu
andann, Samfylkingin gladdi börnin, að ótöldum öllum þeim samtölum sem
frambjóðendur áttu við gestina um menn og málefni líðandi stundar.
Óhætt er að fullyrða að vel tókst til, í það minnsta ef marka má svipbrigði
þeirra sem nutu.
Kosningagleði
á sumardegi
Morgunblaðið/Ómar
Andinn mettaður Vinstri græn hlýddu á ljúfan gítarleik.
Morgunblaðið/Ómar
Maður gleypir bolta Þessi biti er kannski fullstór fyrir sjálfstæðismenn.
Morgunblaðið/Ómar
Hugað að maganum Ungur maður sleikir út um og býr sig undir að þiggja pulsu af sjálfstæðismönnum.
Morgunblaðið/Ómar
Formaður Framsóknar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson ræddi við fólkið.
Morgunblaðið/Ómar
Samfylking Börnin nutu þess að fylgjast með því sem til þeirra var beint. Þau eru framtíðin.
Með barni Sigurður Kári mætti með barn á handlegg. Eftirvænting Framsóknarmenn bíða eftir pulsu.
Morgunblaðið/Ómar
Vinstri græn Ljúft bros læddist fram á varir vinstri grænna, enda góð kosning væntanlega í vændum.