Morgunblaðið - 24.04.2009, Qupperneq 13
Fréttir 13INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. APRÍL 2009
SVEFNSÓFA
20 - 30% AFSLÁTTUR!
H E I L S U R Ú MRekkjan ehf ≤≥ Suðurlandsbraut 48 (Bláu húsin í Faxafeni) ≥≥ 108 Reykjavík
588 1955 ≥≥ www.rekkjan.iS ≥≥ Opið virka d. 10–18 og lau 11–16
EITT MESTA ÚRVAL LANDSINS
AF SVEFNSÓFUM! Verð frá 37.840 kr.
www.xs.is
Jóhanna Sigurðardóttir
1. sæti í Reykjavík norður
ESB snýst um
vinnu og velferð
Okkur ber skylda til að kanna kosti aðildar að ESB til hlítar. Stöðugleiki evrunnar,
lægri vextir, lífvænleg vaxtarskilyrði fyrir atvinnulífið, ekki síst í landbúnaði og
sjávarútvegi og fullt forræði yfir auðlindunum eru okkar markmið.
Hefjum viðræður við ESB strax eftir kosningar og leggjum
niðurstöðuna í dóm þjóðarinnar sem fyrst.
KRISTJÁN L. Möller samgönguráð-
herra hefur gengið frá því við bæj-
arstjóra Fljótsdalshéraðs að sveitar-
félagið fái greiðslu upp á 100 millj-
óna króna viðbótarframlag Jöfnun-
arsjóðs sveitarfélaga vegna samein-
ingar Austur-Héraðs, Norður-Hér-
aðs og Fellahrepps árið 2004. Þetta
kemur fram í fréttatilkynningu.
„Forsögu málsins má rekja til fyrr-
nefndrar sameiningar þriggja sveit-
arfélaga árið 2004 en allar götur síð-
an hafa farið fram viðræður milli
sveitarfélagsins og yfirvalda um
framlög vegna sameiningarinnar.
Niðurstaða þeirra varð sú að Fljóts-
dalshérað væri hluti af samein-
ingarátakinu sem stóð yfir á þeim
tíma.
Heimild var veitt í fjáraukalögum
ársins 2008 fyrir framlaginu. Sam-
gönguráðuneytið, sem tók við sveit-
arstjórnarmálum í ársbyrjun 2008,
lagði áherslu á að greiðsla þess yrði
tengd sameiningu Fljótsdalshéraðs
og Djúpavogshrepps. Ráðherra sam-
göngu- og sveitarstjórnarmála
ákvað að þar sem sameiningarvið-
ræður sveitarfélaganna væru hafn-
ar skyldi framlagið greitt og afhenti
Kristján L. Möller Eiríki Bj. Björg-
vinssyni bæjarstjóra bréf því til stað-
festingar,“ segir þar jafnframt.
Framlagið greitt út
Bréf Kristján L. Möller afhenti
Eiríki Bj. Björgvinssyni bréfið.
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
„ÉG kom hingað til að læra. Bik-
ararnir eru frábær viðbót við það,“
segir Hlynur Guðmundsson, bú-
fræðinemi við bændadeild Land-
búnaðarháskóla Íslands á Hvann-
eyri. Hann reið út úr hestamiðstöð
LBHÍ í gær með hvor tveggja að-
alverðlaun Skeifudags Hvanneyr-
inga, Morgunblaðsskeifuna og
Gunnarsbikarinn.
Skeifudagurinn er uppskeruhá-
tíð nemenda í hrossarækt á bú-
fræðibraut Landbúnaðarháskól-
ans. Þeir sýna afrakstur
vetrarstarfsins og keppa. Hátíðin
fer fram í hestamiðstöðinni á Mið-
Fossum. Nokkrir nemendur há-
skóladeilda og starfsmenn skólans
voru með í áfanganum í vetur.
Reynir Aðalsteinsson tamn-
ingameistari er aðalkennari og
Jakob Sigurðsson honum til að-
stoðar.
Vill verða bóndi
Keppt er um Morgunblaðsskeif-
una eins og gert hefur verið í rúm
fimmtíu ár. Í ár var hún veitt þeim
nemanda sem stóð sig best á prófi
í frumtamningum og reiðmennsku.
Hlynur Guðmundsson sem lýkur
búfræðiprófi frá Hvanneyri í vor
varð efstur á prófinu og fékk
Morgunblaðsskeifuna afhenta á
Skeifudaginn. Hann sigraði einnig
í keppni nemenda í hrossarækt 3
um Gunnarsbikarinn sem kenndur
er við Gunnar Bjarnason, fyrrum
kennara á Hvanneyri og hrossa-
ræktarráðunaut Búnaðarfélags Ís-
lands. Keppnin var hefðbundin
fjórgangskeppni.
„Það er mikill heiður að fá bæði
þessi verðlaun, ég er mjög ánægð-
ur með það,“ segir Hlynur. Hann
er frá Ytri-Skógum undir Eyja-
fjöllum og hefur haft áhuga á hest-
um frá unga aldri. „Ég man fyrst
eftir mér á hestbaki,“ segir hann.
Góð aðstaða er á Hvanneyri til að
stunda hestamennsku og þegar
Hlynur fór í búfræðinámið ákvað
hann að nýta sér það og reyna að
læra sem mest í hestamennskunni.
„Mér finnst ég hafa lært margt
nýtt,“ segir hann.
Þótt Hlynur sé heltekinn af
hrossabakteríunni hefur hann
einnig mikinn áhuga á að gerast
bóndi. Hann ætlar að nota tímann
til að sinna hestamennskunni
þangað til hann finnur hentugt
jarðnæði til að byrja að búa.
Fleiri verðlaun voru afhent, að
vanda. Ingveldur Ása Konráðs-
dóttir fékk ásetuverðlaun Félags
tamningamanna og Sigríður Ása
Guðmundsdóttir fékk Eiðfaxabik-
arinn sem veittur er þeim nem-
anda sem hugsað hefur best um
hest sinn í vetur.
Reynisbikarinn í fyrsta sinn
Síðastliðið haust hófst nám í
reiðmennsku á vegum endur-
menntunardeildar Landbún-
aðarháskólans og hlaut það nafnið
Reiðmaðurinn. Reynir Að-
alsteinsson er hugmyndasmiður
þessa náms og aðalkennari. Hann
útfærði keppni fyrir nemendur í
Reiðmanninum með nokkuð ný-
stárlegu sniði og gaf farandbikar,
Reynisbikarinn, sem nú var keppt
um í fyrsta sinn. Keppendur gátu
valið um hvort þeir kepptu í tölti
eða fjórgangi.
Eftir úrslitakeppnina sem fram
fór á Skeifudaginn varð Þórdís
Arnardóttir efst í töltkeppninni og
Hanna Heiður Bjarnadóttur efst í
fjórgangskeppninni og náði einnig
bestum árangri í keppninni í heild
og varðveitir því Reynisbikarinn
næsta árið.
Reið út með öll helstu verðlaunin
Morgunblaðs-
skeifan afhent
á Skeifudegi
Hvanneyringa
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Enginn draumur Hlynur Guðmundsson vann Gunnarsbikarinn og Morgunblaðsskeifuna. Hesturinn heitir Draumur.