Morgunblaðið - 24.04.2009, Síða 16
10 börn og fjölskyldur þeirra hlutu í gær styrk úr sjóðn-
um Vildarbörn, styrktarsjóði Icelandair. Alls hafa 250
fjölskyldur notið stuðnings frá sjóðnum frá stofnun hans.
Í styrknum felst skemmtiferð fyrir barnið og fjöl-
skyldu þess, og er allur kostnaður greiddur – flug, gist-
ing, dagpeningar og aðgangseyrir að viðburði sem barn-
ið óskar sér. Starfsemi Vildarbarna Icelandair byggist á
hugmyndum og starfi Peggy Helgason, sem hefur um
árabil unnið sem sjálfboðaliði á barnadeildum sjúkra-
húsa í Reykjavík.
10 börn fara í ferð með Vildarbörnum
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. APRÍL 2009
Eftir Björn Björnsson
Sauðárkrókur | Undirbúningur hinnar
árlegu skagfirsku hátíðar, Sæluviku,
er nú kominn á lokastig og ljóst að
þessi gamla héraðshátíð verður með
allra glæsilegasta móti í ár.
Leikfélag Sauðárkróks rifjar upp
hundrað og tuttugu ára sögu félags-
ins, og bregður upp svipmyndum í
söng og töluðu orði úr hinum ýmsu
verkum sem félagið hefur tekið til
meðferðar í áranna rás, og segir um
leið söguna eins og hún hefur liðið, en
leikfélagið hefur lengstum verið
burðarás Sæluvikunnar og á þess
vegum verið settur upp ótalinn fjöldi
verka.
„Frá okkar fyrstu kynnum“
Höfundur og leikstjóri leikverks-
ins „Frá okkar fyrstu kynnum“ er
Jón Ormar Ormsson, en honum til
aðstoðar er Guðbrandur Ægir Ás-
björnsson, og að verkinu koma nítján
leikarar en aðrir starfsmenn og í
hljómsveit eru tuttugu og þrír. Jón
Ormar segir að undirbúningur þessa
hafi staðið nokkuð lengi og mjög
ánægjulegt að fá að takast á við þetta
krefjandi verkefni og rifja upp marg-
ar ánægjustundir með félaginu, en á
sínum tíma var Jón í ýmsum hlut-
verkum á fjölum Bifrastar.
Jón segir það sérstaklega ánægju-
legt að auk þess fjölda af yngri leik-
urum, sem komi að sýningunni, hafi
hann fengið þrjá úr hópi eldri félaga
til þess að taka þátt að þessu sinni, fé-
laga sem ekki hafa stigið á svið í
mörg ár. Er hér um að ræða Elsu
Jónsdóttur, Braga Haraldsson og
Hafstein Hannesson en þau voru á
árum áður hluti af sterkum kjarna
sem bar félagið uppi.
„Frá okkar fyrstu kynnum“ er
skemmtilegt verk þar sem áhorf-
endur hitta gamalkunnar söguhetjur
eins og Gróu á Leiti, Kalla á Sauma-
stofunni, Skugga-Svein, Höllu í
Fjalla-Eyvindi, svo einhverjar séu
nefndar, en auk þess koma fram per-
sónur úr óskrifuðum leikritum sem ef
til vill verða einhvern tíma á fjöl-
unum, og má þar nefna prímadonnur,
tangódansara, húsverði, barþjóna og
bílstjóra og ýmsa fleiri sem gaman er
að kynnast.
Ljóst er að mikill áhugi er á þessu
verki og sem dæmi má geta þess að
Félag eldri borgara í Skagafirði hef-
ur boðið öllum félagsmönnum sínum,
tvo hundruð og sjötíu talsins, að sjá
sýninguna.
Byrjaði að leika púka
Í spjalli við Hafstein Hannesson
kom fram að hann hafi fyrst stigið á
svið í Skugga-Sveini, í gervi púka lík-
lega rétt um miðja síðustu öld. „Auð-
vitað var maður að sniglast í kringum
félagið, í sendiferðum, vísa til sætis
og selja miða, allt eftir því hvað mað-
ur gat gert. Og svo byrjaði maður að
taka þátt í þessu og núna er þetta
komið langleiðina í sextíu ár, og alltaf
gaman,“ segir Hafsteinn.
„Það var ótrúlega gaman að vinna
með mönnum eins og Gísla Halldórs-
syni, en hann kom hingað og leik-
stýrði, líklega einum fimm eða sex
verkum, og ég fullyrði að þeir sem
fengu að vinna með Gísla búa að því
alla tíð. En við fengum líka fleiri mjög
góða leikstjóra eins og Bjarna Stein-
grímsson, Ásdísi Skúladóttur og
Sögu Jónsdóttur svo einhverjir séu
nefndir, nú og svo áttum við líka okk-
ar menn og þar get ég nefnt Kára
Jónsson, Eyþór Stefánsson og Guð-
jón Sigurðsson, og svo núna Jón
Ormar, sem allir settu upp sýningar,
og voru ekki síður minnisstæðir. Það
eru mörg eftirminnileg andartökin,
eins og þegar Kári Jóns átti að setj-
ast við píanóið og spila í Grátsöngv-
aranum, en eitthvað ruglaðist hjá
tæknimönnunum, svo að lagið byrjaði
og Kári enn úti á miðju gólfi og fór í
stökkum að hljóðfærinu. „Þetta gerði
ekkert til,“ sagði tæknimaðurinn.
„Fólkið hafði bara gaman af þessu.“
Maður fór á leikæfingu um klukkan
fjögur, og strax eftir sýningu fór
maður svo í hljómsveitargallann og
var kominn heim um fjögur um nótt-
ina og þetta gekk venjulega öll kvöld-
in í Sæluvikunni, nema þriðjudags-
kvöldið þegar Ingimar Eydal kom
með sína hljómsveit.“
Sýning á verkum
Jóhannesar Geirs
Á Sæluvikunni verður auk þess
fjölbreytt tónlistardagskrá. Karla-
kórinn Heimir heldur tónleika í Mið-
garði ásamt fleiri tónlistarmönnum.
Tónlist verður einnig flutt í íþrótta-
húsinu og kirkjunni og harm-
onikuunnendur fá nóg við sitt hæfi á
degi harmonikunnar. Ragnar
Bjarnason mætir einnig á svæðið.
Á vegum Safnahússins verður sýn-
ing á glæsilegri listaverkagjöf ætt-
ingja listmálarans Jóhannesar Geirs,
en um er að ræða hluta af þeim lista-
verkum sem gefin voru safninu. Með-
al þess sem sýnt verður er fjöldi af
skissum og málverkadrögum, en
einnig fullmótuð verk sem sum hver
hafa ekki verið sýnd opinberlega áð-
ur.
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Heima Hafsteinn í horninu sínu þar sem gott er að rifja upp gamla tíma.
Kalli á Saumastofunni
hittir Gróu á Leiti
Margir koma að undirbúningi Sæluvikunnar í Skagafirði
Í HNOTSKURN
»Sæluvika Skagfirðinga ásér langa sögu, hét upp-
haflega Sýslufundarvika, en
varð síðan að því sem nú er.
Leiksýningar og söngur hafa
frá upphafi verið uppistaðan í
Sæluviku.
»Á Sæluviku í ár ber hæstleikverk um 120 ára sögu
Leikfélags Sauðárkróks, opn-
um félagsheimilisins Miðgarðs
eftir gagngerðar endurbætur,
og glæsilega sýningu á verk-
um eftir Jóhannes Geir list-
málara.