Morgunblaðið - 02.05.2009, Side 1
Krefjast félagslegs réttlætis
STÓRA krafan í komandi viðræðum launamanna
á vinnumarkaði hlýtur að vera um félagslegt
réttlæti. Verkalýðshreyfingin krefst þess einnig
að stjórnvöld tryggi hér sama stöðugleika og í
nágrannalöndunum.
Ætla má að á þriðja þúsund manns hafi verið
samankomnir á Austurvelli í tilefni af verkalýðs-
deginum 1. maí. Austurvöllur var þétt skipaður
kröfugöngufólki svo minnti á búsáhaldabylt-
inguna. | 12
Morgunblaðið/Kristinn
L A U G A R D A G U R 2. M A Í 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
117. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
Íþrótta- og sýningarhöllinni
í Laugardal 8.-10. maí 2009
Frábært tækifæri fyrir alla fjölskylduna
til að skipuleggja sumarið!
Kynntu þér fjölbreytta dagskrá
www.ferdalogogfristundir.is
Framkvæmd: Samstarfsaðilar:
«MENNING
30 MYNDIR SÝNDAR Á
SKJALDBORGARHÁTÍÐ
«ANDRÉSAR ANDAR-LEIKAR
LÆTUR FÖTLUNINA
EKKI STOPPA SIG
Eftir Andra Karl og
Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur
„MJÖG MARGIR eru í sambandi við okk-
ur og hafa lýst yfir áhuga á því að fara í
einhvers konar greiðsluverkfall. Og sá
hópur stækkar óðum,“ segir Þórður B.
Sigurðsson, for-
maður Hagsmuna-
samtaka heim-
ilanna.
Samtökin ásamt
Húseigendafélag-
inu hafa lýst yfir
eindregnum stuðn-
ingi við tillögu tals-
manns neytenda
um neyðarlög í
þágu neytenda um
eignarnám fast-
eignaveðlána og
niðurfærslu þeirra
samkvæmt mati
lögbundins gerð-
ardóms. Að baki stuðningsyfirlýsingunni
eru ellefu þúsund félagsmenn samtakanna
tvennra. Þórður segir að stjórnvöld verði
að bregðast skjótt við, þolinmæði lántak-
enda sé á þrotum.
Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda,
hefur kynnt ráðherrum tillögu sína en ekki
fengið viðbrögð. Gísli segir að mikið liggi
við. Ríkisstjórnin hafi aðeins fáeinar vikur
– jafnvel aðeins fáa daga – til að grípa til
aðgerða. Hann segist ekki hvetja fólk til
að hætta að borga af lánum sínum en viti
að fjölmargir íhugi það. Ekki síst um þess-
ar mundir þegar frysting lána rennur út.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir félags-
málaráðherra segir ríkisstjórnina meðvit-
aða um vanda heimilanna og hversu brýnt
sé að bregðast við honum sem fyrst. „Hér
vinnum við öllum stundum að þessum
brýnu málum. Það þarf enginn að efast um
það. Við gerum okkur grein fyrir því að
vinna þarf hratt og örugglega að öllum
þessum málum sem framundan eru.“
Ráðherrann hefur hins vegar ekki talið
rétt að fara leið framsóknarmanna, þ.e. að
færa skuldir niður. | 28
Þolin-
mæði á
þrotum
Sífellt fleiri íhuga að
fara í greiðsluverkfall
Í HNOTSKURN
»Talsmaðurneytenda
telur hættu á að
vaxandi hópur
ákveði að hætta
að greiða af lán-
um sínum.
»Hann kynntitillögur sín-
ar fyrir helgi.
UNGLINGSSTÚLKURNAR sem
réðust hrottalega á fimmtán ára
stúlku í Heiðmörk á miðvikudag
munu að öllum líkindum sleppa
með frestun ákæru eða skilorðs-
bundinn dóm. Þær gætu þó verið
ákærðar fyrir frelsissviptingu, lík-
amsárás, fjárkúgun og hótanir.
Verði þær dæmdar til að greiða
miskabætur og geti ekki borgað
þarf fórnarlambið að sækja bæt-
urnar til ríkisins. Ekki eru fordæmi
fyrir því að ábyrgðin falli á for-
sjármenn. »2
Fá vægan dóm þrátt fyrir
hrottalega líkamsárás
MIÐAÐ við
stöðu Promens
í dag, en það
er dótturfélag
Atorku, er
hlutafé félags-
ins einskis
virði. Þetta er
niðurstaða
verðmats sem KPMG í Bretlandi
var fengið til að vinna. Samkvæmt
skýrslu KPMG væri hægt að auka
verðmæti Promens með því að
leggja því til eigið fé og reka í
þrjú ár til viðbótar.
Tíminn, sem kröfuhafar gáfu
Atorku til að vinna úr erfiðri
stöðu, rann út á miðnætti í fyrra-
dag.
Þorsteinn Vilhelmsson, stjórn-
arformaður Atorku, segir stjórn-
ina ætla að fá endurskoðunar-
fyrirtækið PWC í Danmörku til að
meta virði allra eigna Atorku. »16
KPMG telur hlutafé Atorku í
Promens vera einskis virði
AFBORGANIR
á láni nær sex-
tugs manns hafa
tvöfaldast á fjór-
um árum. Hann
greiðir nú rétt
tæpar 400 þús-
und krónur á
þriggja mánaða
fresti af láninu,
sem var upp-
haflega 9,5 millj-
ónir. „Ég er búinn að vera,“ segir
hann. Hann samþykkti að bankinn
ákvæði vextina á hverjum tíma,
þeir eru nú rúmlega tíu prósent á
verðtryggðu láninu. Ingibjörg
Þórðardóttir, formaður Félags
fasteignasala, segir dæmi mannsins
ekkert einsdæmi. »8
Ekkert einsdæmi að lán
beri yfir 10% vexti
Ingibjörg
Þórðardóttir
Í viðtali við Arnar Eggert Thorodd-
sen ræðir David Lynch um inn-
hverfa íhugun … en einnig um það
hvernig hann dansar djöfullega á
mörkum hins viðtekna í listinni.
Lesbók
Lynch kemur
Íslandi til bjargar
Trúbrot, sem fagnar fjörutíu ára
afmæli í ár með forláta plötuöskju,
var fyrsta íslenska „súpergrúppan“
og óefað framsæknasta rokksveit
landsins á sínum tíma.
Trúbrot og end-
ursköpun rokksins
Jóhann Hauksson fjallar um ótrú-
legt lífshlaup eins merkasta heim-
spekings 20. aldarinnar í tilefni af
120 ára fæðingarafmæli hans og
reifar helstu kennisetningarnar.
Snillingurinn Lud-
wig Wittgenstein