Morgunblaðið - 02.05.2009, Side 2

Morgunblaðið - 02.05.2009, Side 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MAÍ 2009 segðu smápestum stríð á hendur! Fæst í apótekum og heilsubúðum um land allt. Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is FÁI embætti lögreglu höfuðborgarsvæðisins ekki fjár- veitingu upp á rúmar 50 milljónir króna til að halda tutt- ugu lögreglumönnum, sem ráðnir voru tímabundið, inn- an sinna vébanda verða eftir um 290 lögreglumenn. Fyrir ári voru 347 lögreglumenn í starfi hjá embættinu. „Við sjáum ekki alveg fyrir endann á því hvernig þetta kemur til með að ganga fari þeir frá okkur,“ segir lög- reglustjóri. „Ég held að það sé ekki hægt að fara svona neðarlega með okkur án þess að það skerði þjónustuna. Það segir sig sjálft.“ Embættið fékk fimmtíu milljóna króna aukafjárveit- ingu í lok árs til að ráða tuttugu lögreglumenn tímabund- ið. Fjörutíu sóttu um stöðurnar. Stefán Eiríksson lög- reglustjóri segir nóg af lögreglumönnum sem sitja heima atvinnulausir á bótum frá ríkinu en væru til í að hefja störf á morgun. Stefán segir Rögnu Árnadóttur dómsmálaráðherra hafa sýnt málum embættisins mikinn skilning og fylgt þeim vel eftir. Ákvörðun um fjárveitingu liggur hins vegar hjá ríkisstjórninni allri. Hann bindur miklar vonir við að rík- isstjórnin hafi fullan skilning á stöð- unni enda ekki skynsamlegt að ganga of nærri lögreglunni, sérstaklega á tímum efnahagslegra erfiðleika. Ástandið kemur einnig illa við lög- reglunema í starfsþjálfun. Í haust eiga þrjátíu nemar að fara í þjálfun en ekkert lögreglulið hefur efni á að greiða þeim laun. Um þessar mundir eru fimmtán í starfsþjálfun og greiðir lög- regluskólinn þeim launin. Ekki er sjálfgefið að slíkt verði aftur enda undantekning en ekki regla. Alls er því óvíst hvað verður um þjálfunina. andri@mbl.is Mikil fækkun í lögreglunni Stefán Eiríksson „ÆFINGIN er keyrð á 36 tímum til að mæla alla þætti sem við þurfum að geta gert þegar við komum á erlenda grund,“ segir Gunnar Stef- ánsson, sviðsstjóri björgunarsviðs hjá Slysa- varnafélaginu Landsbjörg, en hann var með ís- lensku alþjóðasveitinni, rústabjörgunarsveitinni, á viðamiklli æfingu á Vallarheiði í Reykjanesbæ. „Við keyrum á vöktum, því í rústabjörgun erum við alltaf að.“ 31 tók þátt í æfingunni en 15-20 stóðu að undirbúningi og utanumhaldi. Sveitin æfir fyrir úttekt og vottun Sameinuðu þjóðana í september. Nái hún prófinu verður hún níunda alþjóðlega sveitin: „Og við byggjum þessa sveit á sjálfboðavinnu.“ Sveitin sé í fremstu röð en starfsemin velti á velvilja í hennar garð. Ljósmynd/Hilmar Bragi Æfa rústabjörgun fyrir úttekt SÞ í september ÓVISSA um framtíð stjórn- mála hér á landi kostar störf og verðmæti í at- vinnulífinu. Þetta segir Vil- hjálmur Eg- ilsson, formaður Samtaka at- vinnulífsins. „Stjórn- armyndunarviðræður hljóta alltaf að taka sinn tíma,“ segir Vil- hjálmur. Hann segist ekki vera að gagnrýna stjórnarflokkana, sem tóku sér hlé frá viðræðum í gær, fyrir að slugsa. „Hins vegar er mjög brýnt að fá festu í málin því óvissa í stjórnmálum hefur ríkt mjög lengi.“ SA hefur ásamt verkalýðshreyf- ingunni hvatt til þess að gerður verði stöðugleikasáttmáli, þar sem kæmi fram sterk sýn á framhaldið. „Þannig gætu menn fengið trú á stöðugleika og starfsskilyrði sem hvettu fyrirtæki til að fara að fjár- festa á nýjan leik og ráða fólk í vinnu. Til þess þurfa fyrst og fremst vextir að lækka og við þurfum að losna úr gjaldeyrishöftunum.“ Töfin dýr fyrir at- vinnulífið Nauðsynlegt að eyða óvissu í stjórnmálum Vilhjálmur Egilsson FRÉTTASKÝRING Eftir Andra Karl andri@mbl.is ENGAR líkur eru taldar á að ung- lingsstúlkurnar sem mest höfðu sig í frammi í hrottalegri árás í Heiðmörk muni fá óskilorðsbundna fangels- isdóma. Verði fórnarlambinu dæmd- ar miskabætur mun ríkið að öllum líkindum sjá um að greiða þær. Brot stúlknanna sjö falla undir nokkur ákvæði almennra hegning- arlaga, s.s. frelsissviptingu, minni- háttar líkamsárás (gr. 217) og hót- anir og/eða fjárkúgun. Þrjár þeirra hafa játað að hafa haft sig mest í frammi en að öðru leyti er þáttur hverrar og einnar óskýr. Stúlkurnar eru sextán og sautján ára og því sakhæfar en undir lögaldri. Þær eru börn samkvæmt laganna bókstaf. Áverkar og aldur gerenda Aldur þeirra auk áverka fimmtán ára fórnarlambsins skiptir einna mestu máli. Svala Ísfeld Ólafsdóttir, sérfræðingur í refsirétti við laga- deild Háskólans í Reykjavík, segir að miðað við fyrirliggjandi upplýs- ingar um áverka muni verða ákært fyrir minniháttar líkamsárás og er hámarksrefsing þá eitt ár. Einna al- varlegasta brotið er þá frelsissvipt- ing og greinilegur ásetningur stúlknanna. „Frelsissvipting er auð- vitað grafalvarlegt brot, en mér finnst samt líklegt í ljósi ungs aldurs gerenda og, mjög líklega, hreins sakarferils að þær muni fá frestun ákæru, í mesta lagi skilorðsbundinn fangelsisdóm.“ Hæstaréttarlögmaðurinn Sveinn Andri Sveinsson tekur undir með Svölu og segir að þrátt fyrir að brot- ið sé þaulskipulagt og margt sé til refsihækkunar verði dómurinn varla óskilorðsbundinn. Spurður um ábyrgð vegna miska- bóta, ef fram á þær verði farið og þær dæmdar, segist Sveinn Andri ekki muna til þess að í málum ung- menna hafi hún nokkurn tíma færst yfir á foreldra. Því sé viðbúið að fórnarlambið þurfi að sækja þær til bótasjóðs ríkisins. Hrottaleg árás án afleiðinga?  Útlit er fyrir að stúlkurnar sem réðust á aðra fimmtán ára og gengu í skrokk á henni í Heiðmörk fái í mesta lagi skilorðsbundna dóma  Ábyrgð vegna hugsanlegra miskabóta færist ekki til forráðamanna Eftir því sem viðmælendur Morg- unblaðsins segja munu unglings- stúlkurnar sem réðust á sér yngri stúlku að öllum líkindum fá væga dóma fyrir ódæðið. Samkvæmt því sem fram hefurkomið gæti verið ákært vegna eft- irfarandi lögbrota: XXIV. kafli Brot gegn frjálsræði manna 226. gr. Hver, sem sviptir annan mann frelsi sínu, skal sæta fangelsi allt að fjórum árum. XXIII. kafli Manndráp og líkamsmeiðingar 217. gr. Hver, sem gerist sekur um minniháttar líkamsárás, skal sæta sektum eða fangelsi allt að sex mánuðum, en fangelsi allt að einu ári, ef háttsemin er sér- staklega vítaverð. XXV. kafli Ærumeiðingar og brot gegn friðhelgi einkalífs 233. gr. Hver, sem hefur í frammi hótun um að fremja refsiverðan verknað, og hótunin er til þess fall- in að vekja hjá öðrum manni ótta um líf, heilbrigði eða velferð sína eða annarra, þá varðar það sektum eða fangelsi allt að tveimur árum. XXVI. kafli Auðgunarbrot 251. gr. Hver, sem hefur fé af öðr- um með því að hóta manni að beita hann eða nána vandamenn hans líkamlegu ofbeldi […], skal sæta fangelsi allt að sex árum. Hvaða lögbrot voru framin?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.