Morgunblaðið - 02.05.2009, Síða 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MAÍ 2009
Ráðstefna um Pál Lýðsson
bóndann, félagsmálamanninn og fræðimanninn
í Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi 2. maí kl. 14–17.
Ávarp: hr. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Fram koma: Ólafur Kristjánsson bóndi, Guðni Ágústsson fyrrv.
ráðherra, Ingrid Westin fyrrv. sendikennari, Arne Torp prófessor,
Bjarni Harðarson bóksali, Jón Hermannsson bóndi,
Gunnar Sigurgeirsson ljósmyndari og Miklós Dalmay píanóleikari.
Ráðstefnustjóri: Þór Vigfússon fyrrv. skólameistari.
Ráðstefnan er ókeypis og öllum opin.
Nánar á www.fraedslunet.is
Ráðstefnan er styrkt af Menningarráði Suðurlands.
Hjörleifur Guttormsson, hug-myndafræðingur vinstri
grænna í Evrópumálum, fjallar í
grein hér í blaðinu í gær um lýð-
ræðishallann í Evrópusambandinu.
Hjörleifur bendir á að völd Evr-ópuþingsins séu lítil. „Fjar-
lægar valdastofnanir ESB í Brussel
(framkvæmdastjórnin), Strassborg
(þingið) og Lúx-
emborg (dóm-
stóllinn) hafa ýtt
undir pólitískt
sinnuleysi og
gefa lítið sem
ekkert færi á lýð-
ræðislegu að-
haldi,“ skrifar
hann.
Gagnrýnin álýðræðishallann í ESB er rétt-
mæt. Hins vegar má spyrja hvort
Hjörleifur væri tilbúinn að skrifa
upp á augljósustu leiðina til að
rétta hann af sem er að stórauka
völd Evrópuþingsins. Með slíkri
breytingu yrði ESB nefnilega „yf-
irþjóðlegra“ á kostnað þeirrar
valdastofnunar þar sem aðild-
arríkin hafa öll völd, ráðherraráðs-
ins.
Andstæðingar ESB-aðildar geramikið úr lýðræðishallanum og
láta eins og með inngöngu í sam-
bandið yrðu ákvarðanir um íslenzk
málefni ólýðræðislegri. Því er þver-
öfugt farið.
Við búum í dag við tvöfaldan lýð-ræðishalla samkvæmt EES-
samningnum; ákvarðanir sem tekn-
ar eru í Brussel eru leiddar beint í
íslenzk lög án þess að Alþingi Ís-
lendinga eða íslenzk stjórnvöld hafi
neitt um þær að segja. Þetta myndi
breytast við inngöngu í ESB; Ísland
hefði þá raunveruleg áhrif.
En kannski vill Hjörleifur baraganga úr EES. Hann greiddi at-
kvæði gegn samningnum á þingi á
sínum tíma.
Hjörleifur
Guttormsson
Tvöfaldur lýðræðishalli
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 7 skýjað Lúxemborg 21 léttskýjað Algarve 20 heiðskírt
Bolungarvík 5 skýjað Brussel 21 léttskýjað Madríd 19 heiðskírt
Akureyri 11 skýjað Dublin 15 léttskýjað Barcelona 19 léttskýjað
Egilsstaðir 9 skýjað Glasgow 13 léttskýjað Mallorca 19 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 9 alskýjað London 19 léttskýjað Róm 21 léttskýjað
Nuuk -2 skýjað París 19 heiðskírt Aþena 20 léttskýjað
Þórshöfn 9 þoka Amsterdam 18 léttskýjað Winnipeg 7 skýjað
Ósló 19 heiðskírt Hamborg 18 heiðskírt Montreal 19 skýjað
Kaupmannahöfn 15 heiðskírt Berlín 22 heiðskírt New York 19 léttskýjað
Stokkhólmur 15 heiðskírt Vín 17 skýjað Chicago 12 alskýjað
Helsinki 14 heiðskírt Moskva 13 léttskýjað Orlando 26 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
2. maí Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 6.25 1,1 12.41 2,9 18.49 1,2 4:55 21:55
ÍSAFJÖRÐUR 2.01 1,8 8.42 0,5 15.06 1,4 21.04 0,6 4:44 22:17
SIGLUFJÖRÐUR 4.01 1,2 10.36 0,2 17.18 1,1 22.59 0,5 4:26 22:00
DJÚPIVOGUR 3.27 0,8 9.27 1,6 15.40 0,7 22.22 1,8 4:21 21:29
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á sunnudag
Suðvestan 5-13 m/s og smá-
skúrir, en bjartviðri A-lands.
Vaxandi suðaustanátt og rign-
ing suðvestantil um kvöldið.
Hiti 3 til 10 stig.
Á mánudag
Gengur í suðvestan 10-18 m/s
sunnantil á landinu, annars
mun hægari vindur. Víða rign-
ing eða skúrir. Hiti breytist lítið.
Á þriðjudag og miðvikudag
Breytileg átt og sums staðar
skúrir eða él, þó síst SA-lands.
Hiti 1 til 8 stig, mildast syðst.
Á fimmtudag
Útlit fyrir suðaustanátt með
rigningu.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Austlæg átt, 5-10 m/s og rign-
ing með köflum í kvöld, einkum
SA-lands. Vestan- og suðvest-
anátt á morgun, víða 10-15
m/s. Skúrir eða slydduél og hiti
2 til 10 stig.
FYRIRTÆKIÐ Mentor ehf. var í
gær sæmt „Vaxtarsprotanum 2009“
en tilgangurinn með honum er að
vekja athygli á góðum árangri sprota-
fyrirtækja. Hefur Mentor nú orðið
fyrir valinu annað árið í röð en velta
þess milli 2007 0g 2008 jókst næstum
um 160%. Fyrirtækjunum Naust
Marine, Gogogic og Saga Medica var
einnig veitt viðurkenning fyrir góðan
vöxt.
Samtök iðnaðarins, Rann-
sóknamiðstöð Íslands og Háskólinn í
Reykjavík standa að Vaxtarsprot-
anum en Össur Skarphéðinsson iðn-
aðarráðherra veitti Vilborgu Ein-
arsdóttur, stjórnarformanni og
stofnanda Mentors, og starfs-
mönnum fyrirtækisins viðurkenn-
inguna við hátíðlega athöfn í Grasa-
garðinum í Laugardal. Af þessu sama
tilefni var fyrirtækið Nimblegen Sys-
tems-útibú á Íslandi brautskráð sem
sprotafyrirtæki. svs@mbl.is
Mentor fékk Vaxtar-
sprotann öðru sinni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vöxtur Iðnaðarráðherra ásamt þeim, sem viðurkenninguna fengu.