Morgunblaðið - 02.05.2009, Qupperneq 44
GUÐMUNDUR Ingi Þorvaldsson, leikari og leik-
stjóri, vinnur þessa dagana með hinum rómaða
Shunt-leikhópi í London að uppsetningu á leik-
verki þar í borg. Um er að ræða tveggja manna
verk sem nefnist The Destruction of Experience:
Klamm’s Dream og er samið og leikstýrt af einum af
stofnendum Shunt, Mischa Twichin.
Shunt-hópurinn er tíu manna hópur listamanna sem
stofnaður var fyrir níu árum. Hann hefur um ára-
bil verið rómaður fyrir framúrstefnulegar sýn-
ingar og þykir einn merkilegasti leikhópur
Breta um þessar mundir. Síðastliðin sex ár hef-
ur hópurinn rekið klúbb sem staðsettur er í
nokkur þúsund fermetra bogagöngum undir
London Bridge-lestarstöðinni. Staðurinn er op-
inn fimm kvöld í viku og á hverju kvöldi fara
þar fram listaverkasýningar, innsetningar, gjörningar, tónleikar
og leiksýningar, og þykir staðurinn einn af „svölustu“ stöðum
borgarinnar.
Guðmundur Ingi er í mastersnámi í gjörningalist í Goldsmiths
University í London, en þar kynntist hann einmitt áðurnefndum
Mischa Twichin sem kennir þar öðru hverju. Mischa hringdi í
Guðmund skömmu eftir að kúrsinum sem hann
kenndi lauk og bauð honum hlutverk í The
Destruction of Experience: Klamm’s
Dream sem fjallar á afar sér-
stæðan hátt um síðustu mán-
uðina í lífi Franz Kafka.
44 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MAÍ 2009
Önnur plata Ljótu hálfvitanna
kemur út 25. maí næstkomandi en
þeir slógu í gegn eins og margir
muna fyrir um tveimur árum með
yfirgengilegum hálfvitaskap sem
féll landsmönnum einkar vel í geð.
Platan sem hefur enn ekki hlotið
nafn er að sögn þeirra sem til
þekkja einstaklega hálfvitaleg en
til að bæta gráu ofan á svart er í
undirbúningi heimildarmynd um
hljómsveitina þar sem hálfvitaskap-
urinn nær víst sögulegum hæðum.
Reiknað er með að heimild-
armyndin verði til um það leyti sem
platan kemur út en enn er óvíst
hvar hún verður sýnd hvað þá
hvort Kvikmyndaeftirlitið gefi
grænt ljós á hálfvitaskapinn.
Heimildarmynd
um ljóta hálfvita
Fólk
Einn vinsælasti bloggari lands-
ins, tónlistar- og blaðamaðurinn Dr.
Gunni, hefur ekki sinnt lesendum
sínum sem skyldi að undanförnu
vegna mikilla anna við skrif á túr-
istabók sem byggist eingöngu á
topp 10-listum um allt mögulegt ís-
lenskt. Nafn bókarinnar mun vera
Top 10 Reykjavík and Iceland and
The Icelandic Ways.
Að þeim skrifum loknum segist
Gunni þurfa að demba sér í að
semja nýjar spurningar fyrir
spurningaþáttinn Popppunkt sem
hefur göngu sína í Ríkissjónvarpinu
í júní en honum til mikilla von-
brigða mun hljómsveitin Hjaltalín
ekki taka þátt í honum vegna meik-
drauma meðlima, eins og Gunni ýj-
ar að á blogginu en sveitin er meira
eða minna erlendis um þessar
mundir að boða fagnaðarerindið.
Þá verða Bubbi og félagar hans í
Egó fjarri góðu gamni enda spurn-
ingaleikir á borð við Popppunktinn
langt fyrir neðan virðingu kóngs-
ins.
Þó hefur Morgunblaðið heimildir
fyrir því að fjölmargar hljómsveitir
bíði nú við símann eftir að Gunni
hringi og sumar sveitir hafa jafnvel
verið við það að splundrast þegar
raða átti niður í sætin þrjú.
Bloggar lítið
vegna anna
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÞAÐ var hringt í mig á föstudegi
og ég beðinn að mæta til London á
mánudegi. Þannig að ég fór út á
sunnudeginum,“ segir gervahönn-
uðurinn Stefán
Jörgen Ágústs-
son sem vinnur
þessa dagana við
gerð stórmynd-
arinnar The Wolf
Man í London.
Um er að ræða
endurgerð sam-
nefndrar myndar
frá árinu 1941, og
skartar hún þeim
Benicio del Toro
og Anthony Hopkins í aðalhlutverk-
unum. Þótt myndin sé tekin í Lond-
on er um bandaríska mynd að ræða,
en það er Universal-kvikmyndafyr-
irtækið sem framleiðir. Ekki er um
neina smámynd að ræða því áætl-
aður kostnaður nemur um 85 millj-
ónum dollara, eða rúmum 11 millj-
örðum íslenskra króna.
Ævintýri líkast
Hlutverk Stefáns við myndina er
að búa til hin ýmsu gervi og farða
leikara og breyta þeim í hin ýmsu
kvikindi. Stefán fékk starfið í gegn-
um hinn goðsagnakennda gerva-
hönnuð Rick Baker. „Hann er lík-
lega sá allra frægasti í þessum
bransa, og er búinn að vera mitt idol
síðan ég var 12 ára,“ segir Stefán,
en hann fékk starfið á nokkuð ótrú-
legan hátt. „Fyrir svona einu og
hálfu ári hitti ég Baker á ráðstefnu í
Bretlandi. Þá var sem sagt hægt að
fá eiginhandaráritun hjá honum, en
maður þurfti að standa í langri röð
til þess. Mér datt í hug að fá hann til
þess að árita albúmið mitt, þar sem
ég er með myndir af því sem ég hef
gert. Hann kíkti á myndirnar og
varð strax mjög hrifinn, og bað mig
um nafnspjald. Við töluðum svolítið
saman og það var komin rosalega
löng röð.“
Stefán gerði sér ekki miklar vonir
um að fundur þeirra tveggja myndi
skila nokkru, og varð því ansi hissa
þegar síminn hringdi löngu síðar.
„Aðstoðarkona hans hringdi bara í
mig um daginn, einu og hálfu ári
síðar, og bað mig að koma og vinna
við The Wolf Man,“ segir hann og
hlær.
Skemmtilegur draumur
Síðustu tökur á myndinni standa
yfir þessar vikurnar, en Stefán gerir
ráð fyrir að vera í London í einn og
hálfan mánuð til viðbótar.
„Ég vann nú við Flags Of Our
Fathers líka, og það var rosalega
stórt dæmi. Þetta er það líka, og
greinilega mjög miklir peningar í
þessu.
Þetta er bara það skemmtilegasta
sem ég hef gert, og einmitt það sem
mig hefur lengi dreymt um að fá að
gera,“ segir Stefán sem vonast til að
þetta verði til þess að hann fái fleiri
verkefni af þessu tagi í framtíðinni.
Stefán hefur komið víða við á ferli
sínum og gert brúður, skrímsli, leik-
muni, grímur og gervi fyrir kvik-
myndir, leikhús og söfn. Hann er
hvað þekktastur hér á landi fyrir að
hafa gert brúður fyrir Latabæ, en
hann gerði einnig óhugnanlega
breinagrind fyrir Mýrina.
Gert er ráð fyrir að The Wolf
Man verði frumsýnd í nóvember á
þessu ári.
Vinnur með varúlfum
Gervahönnuðurinn Stefán Jörgen Ágústsson vinnur við bandarísku hrollvekj-
una The Wolf Man Benicio del Toro og Anthony Hopkins leika aðalhlutverkin
Úlfurinn Benicio del Toro er nánast óþekkjanlegur í gervi sínu í hrollvekj-
unni The Wolf Man, sem eins og nafnið bendir til, fjallar um varúlfa.
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
ÞAÐ er kannski eðlilegast að álykta
sem svo, að bónusverðið á íslensku
krónunni byggi undir heimsóknir er-
lendra hljómsveita hingað til lands.
Alltént koma þær hingað unn-
vörpum um þessar mundir og í kvöld
mun Berlínarsveitin The Virgin
Tongues gera sitt besta til að hrista
kreppudjöfulinn úr landsmönnum
með tónleikum á Sódómu Reykjavík.
Með þeim spila ofurtöffararnir í
Singapore Sling og því vísast best að
mæta með sólgleraugun.
Magnað
The Virgin Tongues er bandarísk/
bresk rokksveit sem Singapore
Sling-liðar kynntust í Berlín fyrir
u.þ.b. ári en sveitin er búsett þar.
Meðlimir í The Virgin Tongues hafa
skapað sér nokkuð stórt nafn í tón-
listarsenu Berlínar á undanförnum
mánuðum og þykja tónleikar þeirra
mikil upplifun sem enginn ætti að
láta framhjá sér fara. „Meðlimir
spranga nú um bæinn eins og þeir
séu endurfæddir Rolling Stones,“
segir Einar Sonic, gítarleikari
Singapore Sling. „Þetta er magnað
lið!“
Þess má þá geta að síðasta plata
Sling, Perversity, Desperation and
Death, kemur út á næstunni í
Bandaríkjunum, Evrópu og Ástralíu
og mun hljómsveitin að öllum lík-
indum halda í tónleikaferðalag á
þessu ári, mögulega með end-
urfæddum Stones! Tónleikarnir í
kvöld hefjast kl. 22.
Ógeð, ofsi og argandi
rokk alla leið frá Berlín
Stíll The Virgin Tongues eru alveg með þetta.
The Virgin Tongues spila á Sódómu í kvöld
Gervahönnuðurinn Rick Baker
sem fékk Stefán til að vinna við
The Wolf Man á glæstan feril að
baki, en á meðal mynda sem
hann hefur hannað gervi fyrir
má nefna: An American Were-
wolf in London (1981), Thriller
(1983), Coming to America
(1988), Wolf (1994), Ed Wood
(1994), Batman Forever (1995),
Men in Black (1997), The Ring
(2002), Hellboy (2004) og X-
Men: The Last Stand (2006).
Geggjuð gervi
Stefán Jörgen
Ágústsson
Leikur með einum merkasta leikhópi Breta
Guðmundur Ingi
Gengur vel í London.