Morgunblaðið - 02.05.2009, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 02.05.2009, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MAÍ 2009 HVER SEGIR AÐ ÞÚ SÉRT BARA UNGUR EINU SINNI? SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI 2 VIKUR Í RÖÐ! KRINGLUNNI OG AKUREYRI “FUNNY AS HELL…” PETER TRAVERS / ROLLING STONE NY TIMES SEGIR: SPRENGHLÆGILEG, GRÓFUSTU BRANDARAR SEM SÉST HAFA Í BÍÓ... LANDMARK COMEDY DAVID EDELSTEIN N.Y. MAGAZINE VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA SÝND Í ÁLFABAKKA, HIÐ SÍGILDA ÆVINTÝRI ER LOKSINS KOMIÐ Í BÍÓ FRÁBÆR FJÖLSKYLDUSKEMMTUN SÝND ME Ð ÍSLENSK U TALI KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA, ROGER EBERT, EINN VIRTASTI KVIKMYNDAGAGNRÝNANDI USA. SÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í KRINGLUNNISÝND Í ÁLFABAKKA OG SELFOSSI ÓTRÚLEGA FYNDIN MYND Í ANDA KNOCKED UP OG FORGETTING SARAH MARSHALL ...ERTU NÓGU MIKILL MAÐUR TIL AÐ SEGJA ÞAÐ? SÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í KRINGLUNNI SKY Empire Fbl Mbl. „AFHVERJU GETA BANDARÍKJAMENN EKKI GERT SVONA MYNDIR LENGUR?“ CNN SÝND Í ÁLFABAKKA SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI 16 L L L 16 12 L 12 L L 12 12 L 12 12 12 L L á allar 3D sýningar merktar með grænu850 krrSPARBÍÓ STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN m. ísl. tali kl. 2 - 4 - 6 L THE UNBORN kl. 8 - 10 STATE OF PLAY kl. 8 OBSERVE AND REPORT kl. 10:20 RACE TO WITCH MOUNTAIN kl. 6 L MONSTERS VS ALIENS m. ísl. tali kl. 2 - 4 L / AKUREYRI 17 AGAIN kl. 6 - 8 L PUSH kl. 8 THE BOY IN THE STRIPED PAYJAMAS kl. 10:10 KNOWING kl. 10:10 STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN m. ísl. tali kl. 2 - 4 - 6 L MONSTERS VS ALIENS m. ísl. tali kl. 2 - 4 L / KEFLAVÍK PUSH kl. 8 -10:20 I LOVE YOU MAN kl. 8 FAST & FURIOUS kl. 10:20 STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN m. ísl. tali kl. 2 - 4 - 6 L MONSTERS VS ALIENS m. ísl. tali kl. 2 - 4 L MALL COP kl. 6 L / SELFOSSI Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is SKJALDBORG, hátíð íslenskra heimildamynda verður haldin í þriðja sinn á Patreksfirði helgina 29. maí til 1. júní næstkomandi. Dagskrá hátíðarinnar er að mót- ast og að sögn Hafsteins Gunnars Haukssonar og Hálfdáns Ped- ersen, sem eru meðal skipuleggj- enda, verða hátt í þrjátíu myndir sýndar í ár. „Íslenska dagskráin er mjög þétt, það verða myndir frá óþekkt- um kvikmyndagerðarmönnum í bland við þekktari nöfn,“ segir Hafsteinn. Meðal mynda eru Gott silfur er gulli betra um ólympíuför karla- landsliðsins í handbolta, Sirkus, heimildamynd um skemmtistaðinn sáluga Sirkus, Lúðrasveit verka- lýðsins og 200.000 naglbítar sem fjallar um samstarf þessara tveggja hljómsveita og Konur á rauðum sokkum sem rekur sögur Rauðsokka- hreyfingarinnar. Páll Stein- grímsson verður síðan með tvær náttúrulífsmyndir, um ljóðrænu vatnsins og tvöfalt líf spóans. Nægt framboð af myndum Hafsteinn og Hálfdán segja líka mörg spennandi verk í vinnslu verða sýnd. „Í þeim flokki eru myndir sem eru ekki alveg til- búnar. Þar verða t.d. myndirnar Fálkar og Aumingja Ísland sem fjallar um kreppuna og er eftir Ara Alexander. Það verður nokkuð um myndir sem fjalla um það sem er að ger- ast í þjóðfélaginu þessa stundina.“ Enn er möguleiki fyrir þá kvik- myndagerðarmenn sem vilja vera með á Skjaldborg að senda inn heimildamyndir því skilafrestur er til 15. maí. „Það stefnir í að dagskráin verði mjög sterk í ár, við búumst við að fá fleiri myndir inn og sjáum jafn- vel fram á að þurfa að fara að grisja. Það virðist vera nægt fram- boð af myndum á hverju ári. Bara á þeim tveimur árum sem Skjald- borgarhátíðin hefur verið haldin höfum við frumsýnt 56 íslenskar myndir. Núna býðst okkur meira af myndum sem hafa verið sýndar áður en við setjum forgang á frumsýningar,“ segir Hafsteinn. Framtíðin björt Gróskan er mikil í heim- ildamyndargerð hér á landi en þrátt fyrir það getur reynst erfitt að fá myndir teknar til sýninga í kvikmyndahúsum og sjónvarpi. „Það hefur reyndar verið aðeins bætt úr því í sjónvarpi undanfarið en það er bara brotabrot af því sem er framleitt. RÚV ætti að vera að sýna íslenskar heim- ildamyndir, líka frá grasrótinni því þar eru oft áhugaverðustu mynd- irnar sem varpa ljósi á sam- félagið.“ Hafsteinn og Hálfdán segja kreppuna ekki hafa sett mikinn svip á Skjaldborg, styrkir hafi fengist víða að, en róðurinn hafi þó verið aðeins þyngri en fyrri ár. Þeir óttast ekki um framtíð heim- ildamyndaformsins á samdrátt- artímum. „Heimildamyndir er það kvikmyndaform sem blómstrar núna. Myndirnar eru ekki gerðar fyrir mikla peninga og þetta hefur aldrei verið háð neinum markaði. “ Skjaldborg í þriðja sinn  Íslensk heimildamyndahátíð á Patreksfirði um hvítasunnuhelgina  Um þrjátíu myndir sýndar Morgunblaðið/Árni Sæberg Skjaldborgarmenn Hálfdán Pedersen og Hafsteinn Gunnar Hauksson skipuleggja Skjaldborg ásamt fleirum. www.skjaldborgfilmfest.com

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.