Morgunblaðið - 24.05.2009, Page 48
Kvikmyndahátíðin í Cannes hefur lengi veriðkunn fyrir gleði og glamúr og sannarlegahefur hátíðin komið sér upp orðspori sem
aðrar kvikmyndahátíðir dreymir um. Breiðgatan við
höfnina og háreistu lúxushótelin sem við hana standa
fá ungar og óharðnaðar stjörnur til að sundla og hin-
ar dýrindis snekkjur sem liggja við
festar í smábátahöfninni gefa fyr-
irheit um það líferni sem koma
skal, brenni stjörnurnar ekki of
fljótt út. En hátíðin í Cannes er
ekki síður ein stór tískusýning og
allir helstu hönnuðir heims bjóða
stjörnunum að ganga upp rauða
dregilinn í fatnaði eftir sig svo eftir
flíkunum verði tekið. Þetta samlíf
hentar bæði stjörnunum og hönn-
uðunum vel og ekki þykir okkur
hinum leiðinlegt að berja út-
komuna augum.
Furðuleg Natacha Amal mætir á
sýningu Los Abrazos Rotos en
gæti verið að fara á furðufataball.
Rjóð Tilda Swinton
mætti til frumsýn-
ingarinnar á Up í
þessum kjól frá
Haider Acker-
mann.
Athyglissjúk Samkvæmisljónið Paris Hilton og unn-
ustinn hafa látið á sér bera í Cannes.
Brúður Bollywood
stjarnan Aishwarya
Rai mætti sem fögur
sumarbrúður í þess-
um Roberto Cavalli
kjól en glingrið er
úr smiðju Swa-
rovski.
Rauðar Kjóll Sophie Marceau er úr
smiðju YSL en Monica Bellucci var í
Christian Dior kjól á dreglinum.
Kirsuber Leikkonan Elizabeth
Banks mætti til frumsýning-
arinnar á Up í Armani Privé kjól.
Spariklædd Lanvin síðkjóll
varð fyrir valinu hjá Kristin
Scott Thomas.
Flott par Brad Pitt og Angelena Jolie voru
glæsileg að vanda, með tug lífvarða með í för.
Klikkar ekki Leikkonan grann-
holda, Hilary Swank, á frumsýn-
ingu Looking For Eric.
Aðþrengd Eva Longoria Parker
vakti mikla athygli í þessum silf-
urlita Versace Atelier kjól.
48 MenningTÍSKA
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. MAÍ 2009
M
or
gu
nb
la
ði
ð/
H
al
ld
ór
K
ol
be
in
Tískusýningin á rauða dreglinum