Morgunblaðið - 15.05.2009, Qupperneq 10
B
A
-1
5-
05
-2
00
9-
1-
1-
F
E
R
D
-6
-h
ar
pa
- C
M
Y
K
Á Akranesi er eitt stærsta
steinasafn Íslands sem geymt
er innandyra en tegundirnar
sem þar eru geymdir skipta
mörgum tugum. Hins vegar eru
fleiri þúsund steinar á staðn-
um sem er einkar skemmtilegt
að skoða, að sögn Jón Allans-
sonar, forstöðumanns Safn-
asvæðisins á Akranesi. „Stein-
arnir koma frá öllum lands-
hlutum og hluti þeirra er
sagaður og slípaður þar sem
steinar eru oft fallegri slípaðir.“
Jón talar um að það sé mikið
um að fólk komi sérstaklega á
Safnasvæðið til að skoða og
fræðast um steinana. „Þetta
er náttúrlega mjög litríkt og fal-
legt. Hvalfjörðurinn er einn
alauðugasti steinatökustaður
á landinu, það eru margar nám-
ur þar og ekki svo langt að
fara,“ segir Jón og bætir við að
erlendum ferðamönnum þyki
þetta sérstaklega áhugavert.
„Hingað hafa komið erlendir
ferðamenn sem koma gagn-
gert til að skoða og kaupa sér
steina.“
Steinaríki Íslands Það hefur verið áratugaverk að safna steinunum í
Steinaríki Íslands saman en þeir þykja mjög fallegir.
Mörg þúsund steinar
Steinaríki Íslands
www.museum.is
Frá 15. maí til 14. september
er opið frá klukkan 10-17
alla daga vikunnar.
Á Erpsstöðum er hægt að
smakka heimalagaðan ís eftir
að hafa fylgst með þegar kýrnar
voru mjólkaðar. Þorgrímur Einar
Guðbjartsson, eigandi Erps-
staða, segir að á Erpsstöðum
séu um 60 mjólkurkýr. „Við er-
um nýbúin að byggja nýtt fjós
fyrir tæplega 80 kýr og í hús-
næðinu er aðstaða til að taka á
móti ferðamönnum.“
Áningarstaður
fjölskyldunnar
Þorgrímur segir að fólki sé vit-
anlega frjálst að fara inn í fjósið
og komast í snertingu við dýrin
sé áhugi fyrir því. „Þetta er án-
ingarstaður fjölskyldunnar.
Krakkarnir geta hlaupið úti, far-
ið inn í fjós til að klappa kálf-
unum og hitta hestana auk
þess að sjá önnur dýr sem eru í
nágrenninu. Á meðan geta for-
eldrarnir aðeins teygt úr sér og
svo geta allir fengið sér ís og
kaffisopa.“
Þorgrímur byrjaði með ís-
framleiðslu og er nú að fara út í
mjólkurúrvinnslu. „Við erum að
koma okkur upp lager en ég
reikna með að það verði komið
upp úr miðjum mánuðinum. Síð-
an er meiningin að vera með
osta og skyr í mjólkurvinnsl-
unni.“
Mjólkurframleiðsla Á Erps-
stöðum geta börnin fylgst með
ísframleiðslu og svo fengið að
smakka ísinn.
Ís framleiddur á staðnum
Erpsstaðir
www.erpsstadir.is (frá og með
1. júní)
Opið frá 13-17 um helgar.
Eftir að kvikmyndin Brúðguminn
kom út hefur aðsókn að Flatey
aukist mikið, að sögn Ólafar
Rúnar Ásgeirsdóttur, starfs-
manns hjá Sæferðum. „Þetta
er náttúrlega sérstaklega falleg
eyja en það er misjafnt í hvaða
tilgangi fólk fer þangað. Erlendir
ferðamenn virðast hafa áhuga
á því að rölta um eyna á meðan
Íslendingar eru líklegri til að
gista. Svo eru sumir sem fara
bara þangað til að skoða
fuglana en það er mjög mikið
fuglalíf í Flatey. Við siglum út í
Flatey að morgni og þá er ann-
að hvort hægt að fara til baka
eftir hádegi eða um kvöldið.
Svo er náttúrlega alltaf hægt að
gista í Flatey og þar er bæði
tjaldsvæði og mjög huggulegt
hótel.“
Vinsæl ævintýraferð
Svokölluð Ævintýraferð hjá Sæ-
ferðum hefur líka verið vinsæl
og sérstaklega hjá hópum.
„Ferðin tekur um tvo tíma og
korter og það er siglt um suður-
eyjar Breiðafjarðar. Báturinn fer
mjög nálægt öllum eyjunum og
skipstjórinn segir frá sögu
eyjanna, talar um umhverfið og
fuglana. Þá er líka siglt inn í
Hvammsfjarðarröstina sem get-
ur verið rosalega skemmtilegt
því þar er svo mikill munur á
flóði og fjöru. Báturinn getur því
skollið niður hinum megin við
röstina sem veldur mikilli kát-
ínu hjá farþegunum.“
Ferskt sjávarfang
Hápunktur ferðarinnar segir
Ólöf að sé þegar plógurinn er
dreginn upp. „Þá fara allir far-
þegarnir upp á dekk og í plógn-
um leynast krabbar, ígulker og
skelfiskur sem farþegarnir
mega svo smakka á. Þetta er
aðalfjörið og erlendu ferða-
mennirnir og krakkarnir hafa
sérstaklega gaman af þessu.
Það er mjög mikið um að fólk
smakki á kræsingunum, sum-
um finnst þetta mjög gott á
meðan aðrir harðneita að
smakka sjávarfangið. Þetta er
náttúrlega alveg ferskt úr sjón-
um þannig að flestir kunna að
meta þetta og svo er hægt að
kaupa hvítvín með,“ segir Ólöf
og bætir við að farið sé í tvær
Ævintýraferðir á dag.
Ævintýri Það er vinsælt að gæða
sér á fersku sjávarfangi í Ævin-
týraferðum Sæferða en ekki
kunna allir að meta kræsingarnar.
Ævintýri
á sjó
Sæferðir
saeferdir.is
10| ferðasumar 2009 Morgunblaðið