Morgunblaðið - 15.05.2009, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 15.05.2009, Blaðsíða 21
B A -1 5- 05 -2 00 9- 1- 1- F E R D -1 2- sv an - hv it - C M Y K Hin árlega saltfiskveisla Byggðasafns Vest- fjarða á Ísafirði verður á sínum stað í sumar. Veislan verður með óvenju veglegu móti að þessu sinni og ættu allir saltfiskunnendur svo og aðrir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. „Í ár verður gefin út ný uppskriftabók með saltfiskréttum frá fólki sem komið hef- ur og eldað uppáhalds saltfiskréttinn sinn á hátíðinni í gegnum árin. Uppskriftirnar eru settar saman í bókinni sem kemur út á ís- lensku, þýsku og ensku. Einnig mun koma út hljómdiskur með Saltfisksveit Villa Valla sem hefur leikið árlega í þessum veislum frá upphafi eða síðan árið 2002. Hljóm- sveitina skipa þau Villi Valli (Vilberg Vilbergs- son), Tómas R. Einarson, Matthías Hem- stock, Páll Torfi Önundarson og söngkonan Jóhanna Þórhallsdóttir. Þau hafa valið lög á diskinn sem eru í stemningu við saltfiskinn, svona suðræn lög í bland við íslensk lög og frumsamin,“ segir Jón Sigurpálsson, for- stöðumaður safnsins. Með mörfloti eða púrtvíni Að þessu sinni verður hátíðin haldin í Ed- inborgarhúsinu þar sem hún verður með stærra móti en eins og undanfarin ár verður verkaður sólþurrkaður saltfiskur og miðað er við að verka tvö tonn líkt og í fyrra. Fiskinn verður síðan hægt að kaupa eða gæða sér á ljúffengum fiskréttum í Tjöruhúsinu þar sem er rekinn veitingastaður á sumrin. Jón segir safnmenn hafa reynt að halda uppi heiðri íslenskrar matargerðar með soðningu með mörfloti en púrtvínsleginn saltfiskur með rúsínum og ýmsar aðrar útfærslur hafi einnig verið vinsælar. Saltfiskveislan verður haldin hinn 4. júlí og hefur hún verið mjög vinsæl, bæði meðal íslenskra og erlendra ferðamanna. Safnið er bæði byggða- og sjó- minjasafn en í sumar verður tekinn í notkun uppgerður bátur, Sædís ÍS 67 sem safnið er að koma í sjóhæft ástand og einnig sett upp hlunnindasýning sjávarnytja í safnhúsinu. Ljósmynd/Ágúst Atlason Sjósögu gert skil Saltfiskveislan verður haldin á Byggðasafni Vestfjarða. Tvö tonn af saltfiski Byggðasafn Vestfjarða http://nedsti.is/index.asp Þýsku ljósmyndararnir Tina Bauer og Claus Sterneck eru miklir Íslandsaðdáendur og hafa búið og starfað hér á landi í nokkurn tíma. Fyrsta sameig- inlega sýning þeirra verður opn- uð í gömlu síldarverksmiðjunni á Djúpavík hinn 18. júlí og þar fá gestir að sjá Ísland með ein- stökum augum ljósmynd- aranna. Náttúruöflin hafa betur Claus segist með myndum sín- um vilja sýna annað Ísland með nákvæmum myndum og fersk- um áherslum. Tina segist heill- uð af því hversu smátt henni finnst mannfólkið vera þegar það stendur andspænis nátt- úruöflum landsins og hvernig siðmenning fólksins sé þannig í raun yfirtekin af slíkum öflum. Á sýningunni má sjá myndir bæði frá Djúpavík og víðar frá Íslandi en á Hótel Djúpavík má einnig finna myndabækur með myndum sem Claus hefur tekið síðastliðin ár í Djúpavík og næsta nágrenni. Falleg náttúra Á ljósmyndunum er litið á hlutina frá nýju sjónarhorni. Nýtt sjónarhorn á landið www.clausiniceland.com www.iceland-photography.com ferðasumar 2009 Morgunblaðið | 21
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.