Morgunblaðið - 15.05.2009, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 15.05.2009, Blaðsíða 24
B A -1 5- 05 -2 00 9- 1- 1- F E R D -1 5- ha rp a- C M Y K 24| ferðasumar 2009 Morgunblaðið Á sumrin velja margirferðalangar að fara norð-ur en samgöngur þangað eru greiðar, bæði á bíl og í lofti. Akureyri er vinsæll áfangastaður ferðamanna sem gjarnan dvelja þar en leggja út í ferðir, til að mynda á Mývatn, til Húsavíkur og út í Hrísey. Fjölbreytt dagskrá verð- ur á Norðurlandi í sumar með íþróttamótum, bæjarhátíðum, listviðburðum og tónleikum. Náttúran á Norðurlandi er ein- staklega fögur og laðar til sín fólk á öllum aldri. Þeir sem vilja binda á sig skó og ganga hafa úr nógu að velja og nota- leg tjaldstæði fjarri bæjum leynast víða. Í Skagafirði er mikil sönghefð og Skagfirð- ingar þekktir fyrir gæðinga sína. Á Skagafirði eru eyjarnar Málmey og Drang- ey og Tindastóll gnæfir þar fjalla hæst. Í Þingeyjar- sýslum ber margt fyrir augu en þar eru fossarnir Goðafoss og Dettifoss, sá síð- arnefndi aflmesti foss Evrópu. Neðan hans eru Jökulsár- gljúfur og norðar Hljóðaklettar og Ásbyrgi. Á ströndum Norð- austurlands er landslagið víða ævintýralegt. Melrakkaslétta geymir margar perlur en helsta kennileiti hennar er Rauð- inúpur nyrst á vesturströnd sléttunnar; 73 metra hár klettanúpur sem fær nafn sitt og lit úr rauðu gjalli. Hann rís með afgerandi hætti úr um- hverfi sínu og hefur mikið verið notaður sem kennileiti af sjó. Norðurland var sögusvið mik- illa atburða á Sturlungaöld. Þar voru háðir mannskæðir bardagar eins og Örlygs- staðabardagi og Flóabardagi. Á þeim tíma fór einnig fram á Flugumýri frægt brúðkaup í fjölskyldu Gizurar Þorvalds- sonar sem end- aði með Flugumýrar- brennu. Þá voru Hólar í Hjaltadal ann- að tveggja bisk- upssetra á Ís- landi. Norðurland Stórbrotin náttúra og sögusvið Norðurland er stór og hrífandi landshluti með stórbrotnu landslagi þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Þar er blómleg menning, fjöldi möguleika til úti- vistar og hrífandi náttúra. Á veturna eru vetraríþróttir allsráðandi en á sumrin er Norðurland rómað fyrir veðurblíðu. www.nordurland.is www.nordausturland.is www.northwest.is www.skagafjordur.is www.eyjafjordur.is www.akureyri.is www.myv.is Mikilfenglegt Á siglingu um Skjálf- anda sjást hvalir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.