Morgunblaðið - 15.05.2009, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 15.05.2009, Blaðsíða 30
B A -1 5- 05 -2 00 9- 1- 1- F E R D -1 9- ha rp a- C M Y K Flughelgin á Akureyri verður haldin í tíunda sinn í júní og þar munu flugmenn sýna margs konar listir. Á dagskránni er meðal annars listflugkeppni og útsýnisflug. Fjölbreytt dagskrá Helgin hefst á listflugkeppni á laugardeginum á vegum Flug- safns Íslands og Flugmála- félags Íslands og að því loknu taka við alls kyns flugsýningar í listflugi og hópflugi á öllum hugsanlegum gerðum flugvéla. Þá er venja að setja upp sér sýn- ingu á Flugsafni Íslands þessa helgi og verða gamlir flugstjórar í aðalhlutverki þar í ár. „Eins og venjulega með flughátíðir eru þær oft auglýstar yfir helgi og seinni dagurinn þá hugsaður sem varadagur þar sem veðrið getur sett strik í reikninginn. Hingað til hefur þó gengið upp hjá okkur að laugardagurinn er aðaldagurinn og sunnudagurinn frekar helgaður útsýnisflugi, bæði í þyrlum og flugvélum auk þess sem við erum með list- flugsýningar með,“ segir Svan- björn Sigurðsson, safnstjóri Flugsafns Íslands. Flughelgin verður haldin dagana 20.-21. júní og segir Svanbjörn að hana hafi sótt bæði íslenskir sem er- lendir gestir. Veglegar myndasýningar Flugsafnið varð til upp úr því að nokkrir einkaflugmenn stofnuðu sjálfseignarstofnunina Flug- safnið á Akureyri sem keypti flugskýli í bænum og var þá haf- ist handa við að koma þar upp safni. Nafninu var síðan breytt í Flugsafn Íslands árið 2005 og er safnið nú staðsett í nýju hús- næði við Akureyrarflugvöll. Safn- gripirnir hafa borist víða að en meðal þeirra má nefna svif- flugvél sem smíðuð var á Akur- eyri árið 1937, þyrluna sem fór í hafið í Straumsvík 2007 og stjórnklefa fyrstu þotu Íslend- inga, Gullfaxa. Þá er myndasýn- ing á safninu sem sýnir 70 ára sögu Icelandair eins og félagið heitir í dag eða Flugfélags Ak- ureyrar eins og það hét upp- haflega og eru sögu þess gerð góð skil í myndum og texta. Flugsýning Á flughátíð á Akur- eyri má sjá ótal gerðir þyrla og flugvéla á flugsýningum. Glæsileg flughátíð Flughelgi á Akureyri http://flugsafn.is/ Miðaldadagar verða haldnir á Gásum dagana 18.-21. júlí þar sem miðaldakaupstaðurinn verður endurvakinn. Gásar eru við Hörgárósa í Eyjafirði, 11 km norðan við Akureyri og eru hvergi á Íslandi varðveittar jafn- miklar mannvistarleifar frá verslunarstað frá miðöldum. Gásir voru helsti verslunar- staður á Norðurlandi á miðöld- um og er staðarins víða getið í fornritum frá 13. og 14. öld. „Á þessum dögum setjum við upp tilgátukaupstað eins og víða hefur verið gert á Norður- löndum. Gásahópurinn kemur að skipulagningu daganna en í honum er fólk sem hefur kynnt sér og gert miðaldir að áhuga- máli og þjálfað sig í aðferðum sem þá voru notaðar. Þetta fólk verður að sýsla við ýmsa hluti sem við vitum að áttu sér stað á Gásum á miðöldum, til dæmis rauðablástur, skart- gripagerð og trésmíðar. Þá verður brennisteinn hreinsaður á staðnum og búið til púður en vísir að brennisteinsiðnaði hef- ur fundist á Gásum og Gása- höfn var ein mikilvægasta út- flutningshöfn á brennisteini á Íslandi. Síðan geta gestir tekið þátt í ýmiss konar leikjum eins og miðaldaknattleik og spreytt sig í ýmiss konar fimi eins og að skjóta af boga,“ segir Har- aldur Ingi Haraldsson, fram- kvæmdastjóri hátíðarinnar. Framtíðarsýnin í Gása- kaupstað er sú að þar verði fornminjum gert hátt undir höfði og þar verði slíkt þorp reist til frambúðar. Endurvakning Á Gásum verður reist miðaldaþorp á miðaldadögum. Miðaldaþorp rís á Gásum Miðaldadagar á Gásum www.gasir.is Gönguvika í Dalvíkurbyggð verður nú haldin í annað sinn en hugmyndina má rekja til Krist- jáns Eldjárns Hjartarsonar á Tjörn sem sér um leiðsögn í ár ásamt Önnu Dóru Hermanns- dóttur frá Klængseyri. Ferða- félagið Trölli sér um skipulagn- ingu vikunnar að þessu sinni en að henni vinnur mikið af fólki á svæðinu sem hefur réttindi sem leiðsögumenn. Í gönguvikunni verða farnar tvær göngur á dag og miðað við að önnur sé fyrir vana göngu- garpa en hin öllu léttari. Meðal fjölmargra má nefna að genginn verður gamli Múlavegur að nóttu til og farið í grasa- og lækningajurtagöngu frá Klængshóli í Skíðadal og geng- ið um land sem hefur lífrænis- vottun frá Vottunarstofunni Túni. Tvær gönguvikur verða haldnar, sú fyrri dagana 26. júní til 5. júlí en hin dagana 28. ágúst til 3. september. Náttúrufegurð Það verða farnar margar fallegar göngur í Gönguvik- unni í Dalvíkurbyggð en vikan er nú haldin í annað sinn. Göngur af öllu tagi Gönguvika í Dalvíkurbyggð http://www.dalvik.is/gonguvika/ 30| ferðasumar 2009 Morgunblaðið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.