Morgunblaðið - 15.05.2009, Page 51
B
A
-1
5-
05
-2
00
9-
1-
1-
F
E
R
D
-3
7-
ha
rp
a-
C
M
Y
K
Það eru nokkur hundruð tjald-
svæði á Íslandi og erfitt getur
verið að ákveða hvert skal
stefna í tjaldútilegu eða með
fellihýsið auk þess sem það
getur verið flókið og jafnvel ill-
mögulegt að leita upplýsinga
um hvaða aðstaða er á viðkom-
andi tjaldsvæði. Þegar Geir
Gígja og Jónína Einarsdóttir
höfðu lent nokkrum sinnum í
þessum vanda ákváðu þau að
setja af stað vefsíðuna
www.tjalda.is þar sem finna má
greinagóðar upplýsingar um öll
tjaldsvæði á Íslandi. „Vefurinn
var settur í loftið sumardaginn
fyrsta og þá voru á skrá yfir 180
tjaldsvæði,“ segir Geir. „Fjöldi
tjaldsvæða með einhverjum
nánari upplýsingum er um 120
og þeim fer fjölgandi á degi
hverjum.“
Álit notenda kemur fram
Síðunni er skipt í hluta eftir
landshlutum til að auðvelda
leitina að rétta tjaldsvæðinu og
finna má upplýsingar um hvert
og eitt tjaldsvæði. Stóran kost
síðunnar segir Geir líka vera að
notendur geti skrifað athuga-
semdir um viðkomandi tjald-
svæði og miðlað þannig af
sinni reynslu. „Fyrst og fremst
er það álit ferðamanna, fólks
með fjölskyldur eða ein-
staklinga, sem skiptir máli.
Það er því mjög gott að geta
séð hvað aðrir hafa að segja
um tjaldsvæðið og kannski eru
það jafnvel bestu upplýsing-
arnar. Meginmarkmið okkar
með síðunni er að auðvelda
ferðalöngum að nálgast ítarleg-
ar upplýsingar um tjaldsvæðin
áður en lagt er af stað í ferða-
lagið svo enginn þurfi að fara út
í óvissuna. Notendur síðunnar
geta því fengið upplýsingar um
aðbúnað, verð og jafnvel skoð-
að myndir af svæðinu áður.“
Á mörgum tungumálum
Á síðunni tjalda.is er sömuleið-
is alls kyns fróðleikur og fréttir,
mataruppskriftir, stjörnugjöf
tjaldsvæða og margt fleira. „Á
síðunni er einnig hægt að velja
nokkur mismunandi tungumál.
Erlendir ferðamenn geta farið á
síðuna www.gocamping.is en
þar verða sömu upplýsingar á
ensku, dönsku og þýsku,“ seg-
ir Geir sem væntir þess að vef-
síðan verði mikið notuð í sum-
ar. „Það verða margir á
faraldsfæti í sumar og það er
alltaf heillavænlegra að skipu-
leggja ferðina vel áður.
Tjalda.is er tilvalin til þess.“
Tjaldsvæðið í Þakgili Á Tjalda.is má finna upplýsingar um staðsetn-
ingu tjaldsvæða út um allt land og hvernig aðstaða er í boði.
Upplýsandi vefur um tjaldsvæði
www.tjalda.is
www.gocamping.is
ferðasumar 2009 Morgunblaðið | 51